Keppniskastið eru spjallþættir um allt sem snýr að vélknúnum tækjum. Þáttarstjórnendur eru Kristinn Kjartansson, Brynjar Schiöth og Eyvindur Kristján Jóhannsson.
Episodes

Keppniskastið þáttur 27 - Hlaupið yfir restar sumarsins, spurningar og svör!
Keppniskastið er í boði Fuel Kött ehf, Finnur ehf, Motul, VP Bensín.

Keppniskastið þáttur 26 - Motul torfæran 2026 spurningar og svör!
Keppniskastið er í boði Fuel Kött ehf, Finnur ehf, Motul, VP Bensín.

Keppniskastið þáttur 25 - Annar þáttur með Gunnar Þór Reynisson AKA Gunni GST
Keppniskastið er í boði Fuel Kött ehf, Finnur ehf, Motul, VP Bensín.
Í dag fengum við aftur hann Gunna GS Tuning. Aðeins tæknilegra spjall en mjög skemmtilegt engu að síður.

Keppniskastið þáttur 24 - Gunnar Þór Reynisson AKA Gunni GST
Keppniskastið er í boði Fuel Kött ehf, Finnur ehf, Motul, VP Bensín.
Í dag fengum við í viðtal til okkar engan annan en Gunna GS Tuning, hann er legend í bransanum og hefur ferðast um allan heim að tjúnna, hanna og smíða bíla með liðum á borð við Austin Martin. Mjög skemmtilegt spjall og þökkum við honum fyrir komuna.

Keppniskastið þáttur 23 - Komnir til lífs eftir 152 daga útlegð.
Keppniskastið er í boði Fuel Kött ehf, Finnur ehf, Motul, VP Bensín.
Snögg yfirferð á liðnum torfærukeppnum, spurt og svarað í bland við spjall og sprell.

Keppniskastið þáttur 22 - Bogga (Sigurbjörg Björgvinsdóttir) og Victor Hjörvarsson
Keppniskastið er í boði Fuel Kött ehf, Finnur ehf, Motul, VP Bensín.
Hjúin Bogga (Sigurbjörg Björgvinsdóttir) og og Victor Hjörvars komu í spjall til okkar og sögðu okkur frá ýmsu sem gengið hefur á síðustu árin. Þau hafa meðal annars ferðast með keppnisbíla til evrópu og keppt á Street week í svíþjóð svo eitthvað sé nefnt.
Hægt er að fylgjast með þeim á Instagram https://www.instagram.com/bbogga

Keppniskastið þáttur 21 - Kristján Skjóldal
Þátturinn er í boði Fuel Kött -Finnur ehf - Maxx Ecu - VP bensín.
Það var enginn annar en sjálfur Kristján Skjóldal sem mætti í viðtal hjá okkur að þessu sinni. Þessi drengur hefur ýmissa fjöruna sopið í mótorbransanum.

Keppniskastið þáttur 20 - Einar Þór Gunnlaugsson
Þátturinn er í boði Fuel Kött -Finnur ehf - Maxx Ecu - VP bensín.
Til okkar kom í spjall enginn annar en Einar Gunnlaugsson eða Einar Gunnlágsen eins og hann er kallaður.
Við renndum yfir ferilinn og allskonar annað skemmtilegt.

Keppniskastið þáttur 19 - Spurningar og svör, Gluggagægir og blöðrur.
Í þessum þætti var farið yfir hitt og þetta eftir pásuna góðu.
Í boði Fuel Kött og Finnur ehf

Keppniskastið þáttur 18 - Tómas Karl Benediktsson - AKA Tom Holley
Fengum einn mesta snilling norðan alpha fjalla í spjall til okkar um allt sem á daga hans hefur drifið. Þetta er enginn annar en Tómas Karl sem hefur farið mjúkum hönum um tölvur margra keppanda landsins með góðum árangri.
Tómas er einnig annar eigandi á Fuel Kött sem er jú styrktaraðili þessa þáttar.
Tómas er sonur Jólasveinsins ( no joke )

Keppniskastið þáttur 17 Helgi Garðarsson
Fengum mann sem hefur alla tíð stutt við bakið á öllum sem að mótorsporti koma sama hvort það sé uppsettningar á vélum/skiptingum/bílum viðgerðir eða bara almenn vitleysa. Þökkum Helga Garðars fyrir gott spjall og frábæran feril á bakvið tjöldin í mótorsport heimum hingað til.

Keppniskastið þáttur 16
Keppniskastið í lengri kanntinum í þætti dagsins.











