Home Podcasts Golf með Bödda Bergs
Golf með Bödda Bergs

Golf með Bödda Bergs

Böðvar Bergsson 3 Episodes Oct 2, 2026

Þátturinn fjallar allt um golf og fólk. Böðvar Bergsson ræðir við gesti og fer yfir málefni tengd golfi, keppnum og þeim sem stunda íþróttina. Hann veitir innsýn í golfheiminn, bæði á Íslandi og erlendis.

Episodes

Þáttur 4 - Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis er gesturinn.
Þáttur 4 - Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis er gesturinn. Oct 2, 2026 01:09:43 Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis er gesturinn. Óli golf eins og hann var kallaður sem ungur drengur talar um gamla tíma og nýja. Hvernig Hraunið eða fyrri níu varð að veruleika og pælinguna bakvið breytingarnar á Hvaleyrinni. Ný verkefni og margt fleira. Ólafur er maður í fremstu víglínu í íslensku golfi og ástríðan leynir sér ekki.
Þáttur 3 - Hólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu. Fór 8 ára uppá golfvöll og er enn ekki kominn heim
Þáttur 3 - Hólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu. Fór 8 ára uppá golfvöll og er enn ekki kominn heim Sep 23, 2026 01:10:18 Hólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu. Fór 8 ára uppá golfvöll og er enn ekki kominn heim. Hólmar segir frá uppvaxtarárum, náminu, starfinu og svarar spurningum frá kylfingum varðandi ástand vallar. Hin hliðin á peningnum er alltaf áhugaverð. Hérna komumst við að rót vandans í orðsins fyllstu.
Þáttur 2 - Ragnar Ólafsson Íslandsmeistari 1981 fer yfir ferilinn.
Þáttur 2 - Ragnar Ólafsson Íslandsmeistari 1981 fer yfir ferilinn. Sep 8, 2026 01:10:11 Ragnar Ólafsson Íslandsmeistari 1981. Lifandi goðsögn í íslensku golfi. Sögur sagðar og ráð gefin. Viðtal sem allir kylfingar hafa vonandi gott og gaman af - ungir sem aldnir. Raggi var sjötugur 1. september því tilvalið að renna yfir ferilinn.
Þáttur 1 - Jón Kristbjörn Jónsson. Jón er sjómaður og stundum kallaður Jón sjóari eða Jón góði
Þáttur 1 - Jón Kristbjörn Jónsson. Jón er sjómaður og stundum kallaður Jón sjóari eða Jón góði Aug 26, 2026 00:59:07 Jón Kristbjörn Jónsson. Jón er sjómaður og stundum kallaður Jón sjóari eða Jón góði. Hýreygur en með vott af eftirsjá, reglubundinn í andlitsfalli, krumlur sterkar og faðmur stór. Brúnt andlitið segir þér að þessi maður hefur séð hafið og horft í sól. Jón segir frá lífinu og golfi - einsog honum er einum lagið.

Recommended