
Menningarvaktin
Menningarvaktin er hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson ræðir við góða gesti um stóru málin í íslensku menningarlífi. Þátturinn fer yfir bestu leiksýningar, heitustu kvikmyndir og tónleika, með gagnrýni frá gagnrýnendum Vísis. Hann er hugsaður fyrir áheyrendur sem vilja fylgjast með menningu og umræðu landsins. Hægt er að hlusta á Menningarvaktina á Vísi og helstu hlaðvarpsveitum.
Episodes

Magnús Jochum og Valur Grettisson #17
Símon fékk þá Magnús Jochum og Val Grettisson til sín og þeir félagar fóru yfir það helsta í menningarlífinu þessa vikuna

Valur Grettisson og Ómar Úlfur #17
Menningarvaktin fer aftur af stað eftir sumarið. Símon og Valur fara yfir leikárið og Ómar Úlfur mætir með nokkar góðar plötur.

Magnús Jochum, Valur Grettisson og Bubbi Morthens #16
Blaðamennirnir Magnús Jochum og Valur Grettisson mættu til Símonar. Bubbi Morthens kom svo í skemmtilegt spjall um nýjustu plötuna sína.

Magnús Geir Þórðarson #15
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #15 fær Símon Birgisson til sín Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en óhætt er að segja Þjóðleikhúsið hafi átt sýningar í ár sem hafa bæði vakið athygli og umtal. Óresteia sló í gegn hjá gagnrýnendum og áhorfendum og Ormstunga sann

Egill Heiðar Anton Pálsson #14
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #14 fær Símon Birgisson til sín Egil Heiðar Anton Pálsson, borgarleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en Egill var skipaður borgarleikhússtjóri síðasta vor og er þetta því fyrsta leikárið hans í þessu hlutverki; sýningar á borð við Moulin Rouge sem sló í gegn og

Valur Grettisson, Magnús Jochum og Ómar Úlfur #13
Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson fóru yfir sviðið og Ómar Úlfur mætti á plötuvaktina.

Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #12
Símon, Magnús Jochum og Valur fara um víðan völl. Í lok þáttar mætir Trausti Júlíusson og rýnir í nýútgefna jazzplötu.

Jónas Sen og Finnur Bjarnason #11
Velkomin á Menningarvaktina á Vísi. Hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Ég heiti Símon Birgisson og skrifa um leiklist á Vísi og hjá mér eru gestir þáttarins í dag - Jónas Sen tónlistargagnrýnandi Vísis og Finnur Bjarnason óperusöngvari og nýráðinn Óperustjóri.
Tónlistin er undir nálinni hjá okkur í dag. á Finnur Bjarnason mun sitja fyrir svörum okkar á Menningarvaktina um hina nýju

Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #10
Nýjar íslenskar kvikmyndir verða í aðalhlutverki í þessum þætti. Menningarvaktin skellti sér á frumsýningu stórmyndarinnar Röskun en framleiðendur myndarinnar hafa bent á að þetta sé eina íslenska kvikmyndin fullfjármagnaða íslenska kvikmyndin á árinu. Röskun var hins vegar ekki eina íslenska kvikmyndin frumsýnd í vikunni - Menningarvaktin skellti sér í Bíó Paradís á myndina Dimmalimm - Returning

Sigríður Jónsdóttir, Valur Grettisson og Ómar Úlfur #9
Gestir Menningarvaktarinnar eru Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagrýnandi og sérfræðingur leikminjasafns Íslands, Valur Grettisson blaðamaður og Ómar Úlfur Eyþórsdóttir útvarpsmaður. Í þættinum er fjallað um leiksýningarnar Ekki hugmynd í Borgarleikhúsinu og Bústaðinn í Tjarnarbíó. Við ræðum einnig hvaða lærdóm Þjóðleikhúsið getur dregið af velgengni Ormstungu og Óresteiu. Í seinni hluta þáttari

Magnús Jochum og Jónas Sen #8
Gagnrýnendur Vísis þeir Magnús Jochum Pálsson og Jónas Sen voru gestir Símonar í Menningarvaktinni.

Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson #7
Í nýjasta þætti Menningarvaktarinnar fóru gestir Símonar Birgissonar - þau Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson yfir bestu og verstu sýningar ársins 2025.

Sólveig Arnarsdóttir - hátíðarviðtal #6
Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir settist niður með Símoni Birgissyni og ræddi um ferilinn og lífið.

Kolbrún Bergþórsdóttir, Jakob Bjarnar og Valur Grettisson #5
Það er alvöru blaðamanna-tríó sem mætti í Menningarvaktina í þessari viku. Kolbrún Bergþórsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson og Valur Grettisson ræddu menninguna í þaula.

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir og Magnús Jochum Pálsson #4
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV, og Magnús Jochum Pálsson, gagnrýnandi og blaðamaður, eru gestir Símonar Birgissonar þessa vikuna.

Jón Viðar Jónsson og Valur Grettisson #3
Jón Viðar Jónsson og Valur Grettisson settust niður með Símoni Birgissyni og ræddu meðal annars um um Hamlet í Borgarleikhúsinu og Jónsmessunæturdraum í Tjarnarbíói.

Magnús Jochum og Valur Grettisson #2
Blaðamennirnir Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson settust niður með Símoni Birgissyni og fóru yfir það helsta á Menningarvaktinni.

Jónas Sen og Valur Grettisson #1
Í fyrsta þætti Menningarvaktarinnar fær Símon Birgisson þá Val Grettisson blaðamann og Jónas Sen tónlistargagnrýnanda Vísis í heimsókn. Stóru leikhúsin hafa sýnt spilin og rætt verður um fyrstu sýningar vetrarins - hvað hefur floppað og hvað hefur slegið í gegn? Menningarvaktin skellti sér svo á íslensku stórmyndina Eldarnir til að svara stóru spurningunni - er loksins komin alvöru íslensk stórsly

Menningarvaktin - Kynning
Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu leiksýningarnar, heitustu kvikmyndirnar og tónleikarýni - beint frá einvala hópi gagnrýnenda Vísis. Fylgstu með Menningarvaktinni frá byrjun - hér á Vísi og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Við erum á va











