
Rás 2 er önnur rás Ríkisútvarpsins (RÚV) og er vinsælasta útvarpsstöð landsins. Dagskráin samanstendur aðallega af fréttum, dægurmálum, poppi og rokki. Rás 2 leggur sérstaka áherslu á íslenska tónlist og er mikilvægur hluti af menningarlífi landsmanna.