
Gigtarspjallið
Gigtarspjallið er sex þátta fræðslusería frá SPOR fyrir fólk sem hefur nýlega greinst með bólgugigt og aðstandendur þeirra. Í þáttunum er á aðgengilegan hátt farið yfir það helsta sem gott er að vita við upphaf greiningar, allt frá einkennum og rannsóknum til meðferðar, hreyfingar og daglegs lífs. Læknirinn Berglind Bergmann ræðir við sérfræðinga úr ólíkum heilbrigðisstéttum sem miðla þekkingu sinni og svara algengum spurningum sem vakna eftir greiningu. Þættirnir eru gefnir út af SPOR og eru aðgengilegir bæði í hljóði og mynd.
Episodes

Lyfjapennar í gigtarsjúkdómum
Hvernig á að nota lyfjapenna?
Í þessum þætti Gigtarspjallsins ræðum við við Elínborgu Stefánsdóttur, hjúkrunarfræðing á göngudeild gigtarlækninga á Landspítala, um rétta notkun lyfjapenna.
Elínborg fer skref fyrir skref yfir hvernig lyfjapenni er undirbúinn og notaður, hvar best er að sprauta lyfinu og hvað er gott að hafa í huga fyrir og eftir gjöf. Einnig er fjallað um algeng atriði sem geta kom

Lyf við gigtarsjúkdómum
Gigtarspjallið – Lyf við bólgugigt
Í þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann, læknir, við Elínborgu Stefánsdóttur, hjúkrunarfræðing á göngudeild gigtarlækninga á Landspítala, um helstu lyf sem notuð eru við meðferð bólgugigtarsjúkdóma.
Við förum meðal annars yfir stera og methotrexate, hvernig lyfin eru notuð, algengar aukaverkanir og hvað þarf að hafa í huga meðan á meðferð stendur.

Fylgigigt
Í þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann, læknir, við Gerði Gröndal, gigtarlækni, um fylgigigt (e. reactive arthritis), bólgusjúkdóm í liðum sem getur komið fram í kjölfar sýkingar, oft þegar sýkingin sjálf er þegar gengin yfir.
Hvað er fylgigigt og hvaða sýkingar geta komið henni af stað? Við ræðum hvernig greining fer fram, hvaða meðferðir eru í boði og hverjar horfurnar eru.
Þátt

Sóragigt
Í þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann, læknir, við Gerði Gröndal, gigtarlækni, um sóragigt (e. psoriatic arthritis), langvinnan bólgusjúkdóm sem getur haft áhrif á liði, hrygg og sinafestur og tengist húðsjúkdómnum psoriasis.
Hvað er sóragigt og hvernig tengist hún psoriasis? Hvernig getur sjúkdómurinn lýst sér og hvaða einkenni ættu að vekja grun um sóragigt? Við ræðum meðal ann

Hryggikt
Í þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann, læknir, við Katrínu Þórarinsdóttur, yfirlækni göngudeildar gigtarlækninga á Landspítala, um hryggikt (e. ankylosing spondylitis), langvinnan bólgusjúkdóm sem leggst einkum á hrygg og spjaldliði.
Hvað er hryggikt og hvernig lýsir hún sér? Hvernig greinum við bólguverk í baki frá algengari bakverkjum og hvernig fer greiningin fram? Við ræðum e

Liðagigt
Í þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann við Katrínu Þórarinsdóttur, yfirlækni göngudeildar gigtarlækninga á Landspítala, um liðagigt (e. rheumatoid arthritis).
Hvað er liðagigt og hvernig lýsir hún sér? Hvernig er sjúkdómurinn greindur og hvaða meðferðir eru í boði? Við ræðum fyrstu einkenni, rannsóknir og greiningu, markmið meðferðar og hvað tekur við þegar greiningin liggur fyrir











