
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið er hlaðvarp Nörd Norðursins þar sem fjallað er um helstu tíðindi og umfjöllunarefni tölvuleikjaheimsins. Í hverjum þætti eru teknir fyrir leikir, fréttir og almenn umræða um tölvuleiki. Umsjónarmenn þáttarins eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn. Þátturinn er íslenskur og miðar að áhugafólki um tölvuleiki.
Episodes

Gervigreind, leikjaútgáfan og meira af Control Resonant
Farið er yfir leikjaútgáfuna í nýjasta þætti Leikjavarpsins en leikir á borð við Hellraiser og Star Wars: Galactic Racer komu út fyrir skemmstu. Fleiri og fleiri leikjafyrirtæki nota gervigreind í auknum mæli, nýverið tilkynnti Capcom að þeir ætla að nota gervigreind í auknum mæli og það sama má segja um Google og Unity. Er þetta jákvæð eða neikvæð þróun? Fjallað er nánar um Control Resonant og te

Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin
Sveinn, Daníel og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Sveinn rýnir í nýja Wolverine leikinn og segir að leikurinn sé töluvert betri en margir vilja meina og að sum gagnrýni sem leikurinn hefur fengið sé að hluta til ósanngjörn. Bjarki er byrjaður á Control Resonant og segir frá fyrstu hughrifum sínum á leiknum eftir að hafa spilað fyrstu tvo klukkutímana. Daníel er í skýjunum - eða öll

Leikjavarpið #71 - Zelda 40 ára, BlizzCon og Onimusha: Way of the Sword
Farið er um víðan völl í nýjasta þætti Leikjavarpsins. Fyrir nokkrum dögum hélt Nintendo ekki eina - heldur tvær leikjakynningar. Í annari þeirra var endurgerðin af The Legend of Zelda: Ocarina of Time kynnt nokkuð ítarlega í tilefni 40 ára afmælis The Legend of Zelda leikjaseríunnar. Nintendo kynntir fleiri leiki, þar á meðal Kirby and the World Beyond og Metroid Ravenous, ásamt varningi eins og

Leikjavarpið #70 - GTA VI sýnishornið og diskalaus framtíð Sony
Leikjavarpið er mætt aftur til leiks eftir ljúft og gott sumarfrí! Í þættinum rýnum við í nýjasta sýnishornið úr Grand Theft Auto VI sem var frumsýnt á Netflix á dögunum, þar er um að ræða yfir 20 mínútur af nýju efni. Einnig tökum við fyrir ákvörðun Sony um diskalausa framtíð fyrir PlayStation, breytir það einhverju eða er algjör óþarfi að bjóða upp á diska? Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór og Svein

Leikjavarpið #69 - Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia
Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5, tæknina frá Nvidia, og síðast en ekki síst fjalla um Pokopia - nýja Pokémon leikinn sem hefur notið mikilla vinsælda á Switch 2 leikjatölvunni. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjava

Leikjavarpið #68 - God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel segir okkur frá God of War Sons of Sparta sem er heldur óhefðbundinn God of War leikur í platformer-stíl. Einnig er rætt um stórar fréttir úr heimi Microsoft Xbox og Sony PlayStation; Phil Spencer kveður Microsoft og Sony lokar Bluepoint Games leikjastúdíóinu. Ýmislegt fleira er til umræðu, þar á meðal byrjendaráð fy

Leikjavarpið #67 - State of Play og Nioh 3
Daníel Rósinkrans, Steinar, Bjarki og Sveinn fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þætti 67 af Leikjavarpinu. Okkar helsti Nintendo sérfræðingur fer yfir það helsta frá Nintendo Direct: Partner Showcase þar sem væntalegir Switch og Switch 2 leikir voru kynntir. Steinar og Sveinn rýna í Nioh 3 og fjalla um nýjunga, helstu kosti og galla leiksins ásamt því að segja frá sínu áliti. Að loku

Leikjavarpið #66 - Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War
Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir - FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem

Leikjavarpið #65 - Væntanlegir leikir 2026
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hvaða leikir voru spilaðir yfir jólahátíðina. Þetta og margt fleira í þætti #65 af Leikjavarpinu!

Leikjavarpið #64 - Allt það helsta frá The Game Awards 2025
Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims - The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vann flest verðlaun þetta árið. Hvað stóð upp úr og hvað vantaði? Einnig segjum við frá helstu leikjakynningum kvöldsins þar sem nýir leikir voru kynntir til sögunnar, þar á meðal nýr væntanl

Leikjavarpið #63 - Icelandic Game Fest og The Game Awards
Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir eru tilefndir til The Game Awards og er farið yfir valda verðlaunaflokka en Clair Obscur: Expedition 33 er tilnefndur til flestra verðlauna. Fleira er til umræðu eins og leikir í spilun, Gold

Leikjavarpið #62 - Steam Machine og GTA VI seinkað
Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan (og aðeins of langan) sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins.
Helsta umræðuefni þáttarins er nýr vélbúnaður sem Valve kynnti til sögunnar fyrir skemmstu - Steam Machine, Steam Controller og Steam Frame. Mun Valve breyta leikjatölvumarkaðnum eins og við

Leikjavarpið #61 - Switch 2 útgáfa, Elden Ring Nightreign og Clair Obscur: Expedition 33
Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki virka hér á Íslandi í þeirri tölvu.
Bjarki og Sveinn heimsóttu íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games á dögunum og segja frá leiknum Echoes of the End sem er nýr hasar- og ævintýraleikur sem er

Leikjavarpið #60 - Nintendo Switch 2
Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta og ræða tæknileg atriði, leikjaúrval, nýja möguleika, verð, tollastríð og margt fleira.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution

Leikjavarpið #59 - Assassin’s Creed Shadows og næsta Xbox leikjatölvan
Í nýjasta þætti Leikjavarpsins fjalla þeir Sveinn, Rósinkrans og Bjarki um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Við fjöllum ítarlega um Assassin's Creed Shadows sem er nýjasti leikurinn í hinni frægu AC-seríu og Sveinn hefur verið að spila undanfarna daga. Þátturinn inniheldur enga spilla! Einnig ræðum við um Lost Records: Bloom & Rage sem Rósinkrans byrjaði nýlega spila að spila og Unnur Sól

Leikjavarpið #58 - Avowed og State of Play
Í þættinum segir Sveinn okkur frá hlutverkaleiknum Avowed sem kom út fyrr í þessum mánuði en hann hefur verið að spila leikinn og deilir sinni skoðun á honum. Einnig förum við yfir allt það helsta frá State of Play kynningunni sem haldin var þann 12. febrúar. Þar voru væntanlegir leikir á PlayStation kynntir, þar á meðal er nýr leikur frá Housemarque (þeim sömu og gerðu Returnal) og endurbætt útgá

Leikjavarpið #57 - Kingdom Come: Deliverance II og PSN aftengist
Bjarki, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta sem stóð upp úr í leikjaheiminum síðastliðnar tvær vikur. Helstu viðfangsefni þáttarins eru fyrstu hughrif á miðaldar-hlutverkaleiknum Kingdom Come: Deliverance II, frestun á næsta Football Manager og PSN vesenið mikla sem varð til þess að fjöldi spilara gat ekki spilað netleiki á PlayStation leikjatölvunni sinni. Auk þess er fjallað um endurútgáfu The

Leikjavarpið #56 - Væntanlegir leikir 2025
Leikjvarpið fer yfir allt það helsta sem er væntanlegt á leikjaárinu 2025 - nýr GTA leikur! Mafia! Doom! Hobbita-kósíleikur! og margt margt fleira. Einnig er fjallað um nýjustu fréttir sem tengjast útgáfu næstu leikjatölvu Nintendo: Switch 2.

Leikjavarpið #55 - Leikir ársins 2024 og Switch 2 orðrómar
Leikjavarpið hefur göngu sína aftur eftir jólafrí. Í þessum fyrsta þætti ársins fara þeir Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Steinar Logi yfir þá leiki sem stóðu upp úr á árinu. Þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Balatro, Like a Dragon: Infinite Wealth og Silent Hill II. Leikjalistann í heild sinni má finna á heimasíðunni okkar.
CES tæknisýningunni í Bandaríkjunum lauk fyrir

Leikjavarpið #54 – Hápunktar frá Game Awards og Indiana Jones and the Great Circle
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 54. þætti Leikjavarpsins. Rætt er um hápunkta frá The Game Awards 2024 þar sem farið er yfir hvaða leikir unnu í stóru verðlaunaflokkunum og síðast en ekki síst hvaða nýju leikir voru kynntir á verðlaunahátíðinni, þar má meðal annars nefna nýjan The Witcher leik!
Sveinn rýnir í Indiana Jones and t

Leikjavarpið #53 - The Game Awards og S.T.A.L.K.E.R. 2
Daníel, Sveinn og Bjarki ræða það heitasta úr heimi tölvuleikja í þessum þætti Leikjavarpsins. Við förum yfir þá leiki sem tilnefndir eru til verðlauna á The Game Awards 2024, þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Hellblade II og Final Fantasy VII: Rebirth. Sveinn segir okkur frá því hvernig PlayStation Portal virkar eftir nýja uppfærslu sem opnar fyrir þann möguleika að streyma tölvuleikjum be

Leikjavarpið #52 - PlayStation 5 Pro og umdeild Xbox auglýsing
Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Stutt er síðan að PlayStation 5 Pro leikjatölvan kom á markað og í þættinum er ítarleg umfjöllun á tölvunni. Við þökkum Sony og Senu fyrir aðgang að tölvunni til rýnis.
Nördarnir segja sínar skoðanir á tölvunni eftir prófanir og fara yfir helstu kosti og galla. Strákarnir ræða einnig nýja auglýsingu frá X

Leikjavarpið #51 - Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er m.a. fjallað um Call of Duty: Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard. Auk þess er fjallað um tölvuleikina Landnámu, Horizon Zero Dawn Remastered og minnst á tvær nýjar heimildarmyndir sem tengjast tölvuleikjum.

Leikjavarpið #50 - The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og Xbox Partner Preview
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Unnur Sól fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja í fimmtugasta þætti Leikjavarpsins! Í þættinum er kafað í The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og skipst á skoðunum - athugið að umræðan er laus við alla spilla!
Einnig er farið yfir valin atriði úr Xbox Partner Preview þar sem Xbox og þeirra samstarfsaðilar kynna væntanlega leiki á Xbox leikja

Leikjavarpið #49 - The Plucky Squire og State of Play
Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel nokkur Rósinkrans ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel gagnrýnir The Plucky Squire þar sem söguhetjan hoppar úr ævintýrabók og lendir í allskyns ævintýrum. Strákarnir skoða hvað var fjallað um á State of Play þar sem Sony kynnir væntanlega leiki fyrir PlayStation leikjatölvurnar - Þar má meðal annars nefna samúræ-leikinn Ghost of Yōtei.
Tónlist:

Leikjavarpið #48 - Astro Bot og PlayStation 5 Pro
Daníel Rósinskrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um PlayStation 5 Pro sem er væntanleg í verslanir næstkomandi nóvember. Við hverju má búast og hvernig er Pro útgáfan öflugri en hefðbundna PlayStation 5? Tríóið ræðir einnig um einn af betri leikjum ársins, Astro Bot, sem er fyrsti leikurinn fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá okkur nördunum.

Leikjavarpið #47 - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct
Daníel Rósinskrans og Bjarki Þór fjalla um þrjár stórar leikjakynningar - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct. Til umfjöllunar eru leikir á borð við Starfield, Super Mario Bros. Wonder, Mortal Kombat 1 og fjöldi annara leikja sem margir hverjir eru væntanlegir á komandi mánuðum.
Upptaka frá 4. júlí 2023.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under C

Leikjavarpið #46 - PlayStation Showcase 2023 og The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom
Sveinn, Daníel og Bjarki fara yfir helstu leikina sem kynntir voru á PlayStation Showcase 2023 sýningunni. Undanfarna daga hafa strákarnir svo verið að spila The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom og í síðari hluta þáttar segja þeir frá sínum fyrstu hughrifum á leiknum (umræður án söguspilla).
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attributio

Leikjavarpið #45 - Týndi þátturinn
Ofurdúóið Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn tækla allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Þar á meðal Xbox Developer_Direct, Hi-Fi Rush, FM 2023 fyrir PS5, DualSense Edge, Live Service leikina og síðast en ekki síst Forspoken.
Athugið. Þátturinn var tekinn upp snemma í febrúar en upptakan fór á flakk og týndist. Upptakan fannst loks. Afleiðingar fylgdu í kjölfarið. Tæknimaður okkar var rekinn,

Leikjavarpið #44 - Best of 2022 í tölvuleikjum
Þeir eru mættir aftur til leiks eftir vetrardvala! Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjarki fara saman yfir það sem stóð upp úr af nýliðnu leikjaári og gefa hlustendum smjörþefinn af leikjaárinu 2023. Strákarnir velja topp 3 bestu leiki ársins 2022 af sínu mati, ræða God of War: Ragnarök og fleira og fleira.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Att

Leikjavarpið #43 - Stray, PowerWash Simulator og hinsegin í tölvuleikjum
Í þættinum er ofurkrúttlegi kisuleikurinn Stray tekinn fyrir en leikurinn hefur náð að heilla marga spilara upp úr skónum og hefur auk þess verið nokkuð áberandi á netinu og samfélagsmiðlum. Fyrst þarf þó að klæða sig í gulu gúmmíhanskana þar sem háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator verður tekinn fyrir og enginn skítur skilinn eftir! Farið er yfir reynslusögur af því að steyma leikjum beint í geg

Leikjavarpið #42 - Elden Ring, Grow og Ísland í tölvuleikjum
Bjarki, Daníel og Sveinn spjalla um sjóðheitar tölvuleikjafréttir ásamt að taka fyrir Grow: Song of the Evertree og stórleikinn Elden Ring.
Yfirlit þáttar:
Í spilun
Ísland í tölvuleikjum
Útgáfudagur God of War
Skull and Bones kynning og útgáfudagur
Forspoken seinkað
Ekkert RDR eða GTA 4 Remake
Gollum stiklan
Grow: Song of the Evertree leikjarýni
Eldheitar Elden Ring umræður
Myndir úr Elden Ring

Leikjavarpið #41 - TMNT: Shredder’s Revenge, Nintendo Direct og Kirby
Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Farið er yfir hvað kom fram á nýjustu Nintendo Direct Mini kynningunni, spjalla um leikina Teenage Mutant Ninja Turtles: Shredder's Revenge, Horizon: Forbidden West og Kirby and the Forgotten Land, ræða kosti og galla nýjustu PlayStation áskriftarleiðanna og fleira.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licen

Leikjavarpið #40 - E3-farinn Bjössi mætir í spjall
Bjössi úr Gamestöðinni mætir í Leikjavarpið og ræðir E3 ferðina sína árið 2018. Einnig segir Sveinn frá ferðalagi sínu þegar hann heimsótti Gamescom í Köln árið 2012.
Mynd:
Myndblanda - Bjössi, Sveinn og Daníel og
Wikimedia Commons (Dronepicr)
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/4

Leikjavarpið #39 - Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase
Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans fjalla um Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase leikjakynningarnar sem fóru fram fyrir stuttu. Á kynningunum var sýnt úr og fjallað um væntanlega leiki sem flestir eru væntanlegir á þessu eða næsta ári. Þar á meðal eru leikirnir Redfall, The Callisto Protocol, High on Life og fjöldi annara leikja. Ef þú vilt vita hvað er framundan í leikjaheiminu

Leikjavarpið #38 - State of Play, Diablo Immortal og Sonic Frontiers
Tölvuleikjasérfræðingarnir Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn hjá Nörd Norðursins fjalla um það allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Aðalefni þáttarins er State of Play leikjakynningin hjá Sony en einnig er fjallað um ýmislegt fleira eins og Diablo Immortal, Star Wars Jedi: Survivor, Sonic Frontiers og hvað er framundan í sumar.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed

Leikjavarpið #37 - Væntanlegt árið 2022, PSVR 2 og Inscryption
Daníel Rósinkrans, Bjarki, Sveinn og hinn Daníel ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þrítugasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er jafnframt fyrsti Leikjavarpsþáttur ársins 2022. Stóra umræðuefni þáttarins eru væntanlegir leikir á komandi ári en auk þess er fjallað um PSVR 2, E3 2022 og tölvuleikina Inscryption, Death's Door og Halo Infinite.
Efni þáttar:
Hvað er verið að spila?
Daní

Leikjavarpið #36 - Leikir ársins 2021
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um það helsta úr heimi tölvuleikja og gera upp tölvuleikjaárið 2021. Farið er yfir hvaða leikir unnu til verðlauna á The Game Award og fjallað um ný sýnishorn úr leikjum sem sýnd voru á hátíðinni. Strákarnir fara yfir þá fimm leiki sem stóðu upp úr á árinu að þeirra mati og svo er Tölvuleikjaklúbburinn á sínum stað. Allt þetta og fleira til

Leikjavarpið #35 - Viðtal við Ara Þór hjá Epic Games
Í þrítugasta og fimmta þætti Leikjavarpsins spjalla þeir Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans við Ara Þór sem starfar sem boðberi (evangelist) hjá Epic Games. Í þættinum fer Ari yfir feril sinn í leikjaiðnaðinum en hann hefur meðal annars komið að gerð Angry Birds tölvuleiks og Returnal sem var gefin út fyrir PlayStation 5 leikjatölvuna. Í þættinum er einnig fjallað um Unreal leikjavélina, upphaf HRing

Leikjavarpið #34 - Cyberpunk 2077, Just Dance 2022 og The Game Awards tilnefningar
Efni þáttar:
Leikir í spilun - Hvað hafa strákarnir verið að spila frá því seinast?
The Game Awards tilnefningar - Daníel Rósinkrans leiðir umræðuna og skoðar hvaða leikir eru tilefndir í ár.
Cyberpunk 2077 - Ár er liðið frá útgáfu, hefur eitthvað breyst? Steinar Logi segir frá því hvernig leikurinn er að keyra á PS5 í dag.
Hvaða leikir voru keyptir á Black Friday? - Eru veskin nokkuð orðin tóm?!

Leikjavarpið #33 - Staðan á PS5 og Xbox Series X ári eftir útgáfu
Strákarnir í Leikjavarpinu fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja, þar á meðal nýju Halo Infinite og Elden Ring leikjakynningarnar. Þrír tölvuleikir eru teknir fyrir í þættinum; adrenelínleikurinn Riders Republic, þægilega rólegi indíleikurinn Unpacking og ævintýraleikurinn Kena: Bridge of Spirits.
Ár er liðið frá útgáfu PlayStation 5 og Xbox Series X leikjatölvunum og strákarnir yfir hvað

Leikjavarpið #32 - Guardians of the Galaxy, State of Play og Nintendo Expansion Pack
Þrítugasti og annar þátturinn af Leikjavarpinu, hlaðvarpi Nörd Norðursins, er nú kominn á allar helstu hlaðvarpsveitur! Að þessu sinni eru það Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór sem eru mættir til leiks til að ræða allt það helst úr heimi tölvuleikja. Það er úr ýmsu að taka og má þar meðal annars nefna nýjar fréttir varðandi útgáfu Cyberpunk 2077 og The Witcher, ný stikla úr Unchar

Leikjavarpið #31 - Nintendo fréttir, Metroid Dread og SSD diskar í PS5
Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjössi hjá Gamestöðinni eru mættir til að fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er ákveðið Nintendo þema þar sem fjallað er um væntanlega Animal Crossing viðbót, Nintendo Online viðbótaráskrift sem gerir áskrifendum kleift að spila gamla N64 og Sega Genesis leiki á Switch og að lokum rýnir Rósinkrans í Metroid Dread sem margir Nintendo-spilarar haf

Leikjavarpið #30 - Far Cry 6, FIFA 22 og Battlefield 2042 Beta
Tölvuleikjanördarnir Bjarki Þór, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Páll fara um víðan völl í þrítugasta þætti Leikjavarpsins. Steinar segir frá Alan Wake Remastered sem var gefinn út í byrjun mánaðar, Sveinn gagnrýnir Far Cry 6 en hann hefur spilað allar Far Cry leikina og þekkir seríuna því mjög vel, Bjarki skellir sér í takkaskóna og tæklar FIFA 22 og Hypermotion-tæknina sem EA notaði vi

Leikjavarpið #29 - Deathloop, Nintendo Direct og NBA2K22
Tölvuleikjanördarnir Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi, Bjarki Þór og Daníel Páll fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í nýjasta þætti Leikjavarpsins, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins. Í þættinum rýnir Sveinn í fyrstu persónu skotleikinn Deathloop sem kom í verslanir fyrr í þessum mánuði. Leikurinn hefur hlotið lof gagnrýnenda og gefa leikjasíðurnar IGN og Gamespot leiknum 10 af 10 mögulegum

Leikjavarpið #28 - PlayStation Showcase 2021, Twelve Minutes og Daði Freyr
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi og Bjarki Þór fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikjanna í nýjasta þætti Leikjvarpsins. Áhersla er lögð á PlayStation Showcase 2021 í þættinum en auk þess gagnrýnir Bjarki Twelve Minutes, fjallað er um Xbox Game Pass tónleikana með Daða Frey og nýjustu fréttirnar.
Efni þáttar:
Í spilun
Epic Games vs Apple
Twelve Minutes
Horizon Forbidden

Leikjavarpið #27 - Gamescom, Baldo og Arena heimsókn
Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Daníel Páll ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum tuttagasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er sérstaklega tileinkaður Gamescom 2021! Auk Gamescom er fjallað um heimsókn Nörd Norðursins til Arena, þjóðarleikvangs rafíþrótta á Íslandi, Ghost of Tsushima Director's Cut, Baldo, gamla góða Quake og fleira.
Efni þáttar:
Leikir

Leikjavarpið #26 - Ratchet & Clank, Steam Deck og Activision Blizzard kæran
Tölvuleikjasérfræðingarnir Steinar, Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum 26. þætti Leikjavarpsins.
Efni þáttar:
Hvað er verið að spila?
Ratchet & Clank: Rift Apart gagnrýni
The Witcher: Monster Slayer
Valve kynnir Steam Deck
Nintendo kynnir Switch OLED
Sveinn kláraði Demon's Souls á PS5!
The Legend Of Zelda: Skyward Sword HD umfjöllun
Activision Blizzar

Leikjavarpið #25 - Allt það helsta frá E3 2021
Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir allt það helsta frá E3 tölvuleikjaráðstefnunni sem haldin var á netinu fyrr í júnímánuði.
Efni þáttar:
Resident Evil Village
Returnal
Ratchet & Clank: Rift Apart
Sony skrópar á E3, aftur!
Ubisoft E3 kynningin
Samstarf Myrkur Games og Prime Matter (Koch Media Group)
Nintendo E3 kynningin
Microsoft og Bethesda með sameiginlega kynningu
Byrjunar- og endastef:

Leikjavarpið #24 - Afmæli, martraðir og pöddusnakk
Þríeykið, Sveinn, Daníel og Bjarki, halda upp á 10 ára afmæli Nörd Norðursins og spjalla um leikjaárið 2011 og hvernig tölvuleikir og leikjamenningin hefur þróast síðan þá.
Efni þáttar:
Sony fréttir (Last of Us og Days Gone 2)
Little Nightmares II
Outriders
Nörd Norðursins 10 ára! Leikjaárið 2011
Bugnax
Maquette
Oddworld
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed unde

Leikjavarpið #23 - State of Play, Nintendo Direct og PSVR 2
Bjarki lávarður, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Nintendo hélt Nintendo Direct kynningu þann 17. febrúar þar sem fyrirtækið fór yfir það sem framundan er fyrir Nintendo Switch. Sveinn fjallar um nýtt System Shock sýnishorn sem var birt á dögunum. Sony héldu State of Play kynningu þar sem farið var yfir það sem væntanlegt er á PlayStation 4 og 5. Fyrirtækið hefur einnig

Leikjavarpið #22 - Hitman 3, Super Mario 3D World og TOHU
Sveinn, Bjarki og Daníel fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 22. þætti Leikjavarpsins!
EFNI ÞÁTTAR:
Resident Evil 8
Xbox Game Pass Vs. Xbox Gold
Mass Effect Legendary Edition
PS+ áskriftir
TOHU
Hitman 3
PS5 selst vel
Ratchet & Clank: Rift Apart útgáfudagur
The Medium
Ring Fit Adventure #RingFitFebrúar
Super Mario 3D World á Switch
The Last of Us HBO leikaraval
Byrjunarstef: "Over

Leikjavarpið #21 – The Legend of Zelda 35 ára
Oddur Bauer og Gylfi Már eru gestir Daníels Rósinkrans í þessum sérstaka The Legend of Zelda þætti Leikjavarpsins. Liðin eru 35 ár frá útgáfu fyrsta Zelda tölvuleiksins en leikurinn var gefinn út í Japan árið 1986 samhliða Famicom leikjatölvunni. Í þættinum fara þeir Daníel, Oddur og Gylfi yfir sögu The Legend of Zelda leikjanna, ræða um tónlistina, framtíð seríunnar og margt fleira.
Efni þátta

Leikjavarpið #20 - Væntanlegir tölvuleikir 2021
Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta sem leikjaárið 2021 hefur upp á að bjóða. Má þar nefna titla á borð við Ratchet and Clank: Rift Apart, nýjan Resident Evil leik, The Medium, Far Cry 6, Little Nightmares II, Halo Infinite, Returnal og fleiri leiki. Ætli mörgum leikjum verði frestað til ársins 2022 vegna Covid? Ræðum þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
Mynd: Halo Infinite,

Leikjavarpið #19 - Leikjaárið 2020 gert upp
Bjarki, Sveinn og Daníel gera upp leikjaárið 2020. Farið er yfir það helsta frá Sony, Microsoft, Nintendo og öðrum tölvuleikjafyrirtækjum. Nýjar leikjatölvur komu á markað á árinu og fjölmargir flottir tölvuleikir. Í lok þáttar er tekinn saman topp fimm listi Nörd Norðursins fyrir tölvuleikjaárið 2020.
Fylgist með - í næsta þætti ætlum við að skoða hvað árið 2021 mun bjóða upp á!
Byrjunarstef: "

Leikjavarpið #18 - Sæberpönk, grísk goðafræði og Xbox Series X
Í áttjánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel, Sveinn og Bjarki hjá Nörd Norðursins um það helsta úr heimi tölvuleikja. Rennum stuttlega yfir það helsta úr The Game Awards 2020 tölvuleikjaverðlaununum. Bjarki spilaði fyrsta kaflann í Tell Me Why þar sem sterk trans persóna fer með aðalhlutverk og segir aðeins frá sinni upplifun á leiknum. Sveinn er búinn að vera að prufukeyra eina af fáum Xbox

Leikjavarpið #17 - Víkingar, köngulær og PS5
Í 17. þætti Leikjavarpsins fjöllum við um Hades, Assassin's Creed: Valhalla, Watch Dogs: Legion, og PS5 leikina Spider-Man: Miles Morales og Sackboy: A Big Adventure.
Mynd: Assassin's Creed: Valhalla og Sackboy: A Big Adventure
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #16 - Spiritfarer, Among Us og Star Wars Squadrons
Í 16. þætti Leikjavarpsins fjöllum við um tölvuleikinn Spiritfarer, Among Us, Star Wars Squadrons, gamla og (mis)góða leiki á YouTube-rásinni okkar, kaup Microsoft á ZeniMax media, tölvuleiki, leikjafréttir og fleira.
Mynd: Spiritfarer og Among Us
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License
creativecommons.org/licenses/by/

Leikjavarpið #15 - Næsta kynslóð leikjatölva, páfaát og geislasverð
Fimmtándi þáttur Leikjavarpsins er tileinkaður Xbox Series X/S og PlayStation 5 og ræða þeir Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans um verð, væntingar og útgáfu en leikjatölvurnar eru væntanlegar í verslanir í nóvember á þessu ári.
Sveinn segir frá hinum syndsamlega heimi sem er að finna í Crusader Kings 3 og Bjarki tekur upp geislasverð í sýndaheimi og fjallar um Vader Immortal.
Þ

Leikjavarpið #14 - The Avengers, Mortal Shell og Super Mario pakki
Í þessum fjórtánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel Rósinkrans, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór um það helsta úr heimi tölvuleikja.
Efni þáttarins:
• The Avengers tölvuleikurinn
• LEGO Super Mario
• Call of Duty Black Ops Cold War
• Uppærslur milli leikjatölvukynslóða
• Mortal Shell
• Super Mario 3D
Mynd: LEGO Super Mario
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.

Leikjavarpið #13 - Ghost of Tsushima, Paper Mario og Fall Guys
Í þessum þrettánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans um það helsta úr heimi tölvuleikja.
Efni þáttarins:
• Xbox Game Show
• Paper Mario: The Origami King
• PS4 State of Play
• Fall Guys
• Ghost of Tsushima
Mynd: Ghost of Tsushima, Fall Guys og Paper Mario (myndblöndun í boði Bjarka)
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetec

Leikjavarpið #12 - The Last of Us Part II spilliþáttur
Í þessum sérstaka The Last of Us Part II spoiler-þætti fjalla þeir Sveinn, Bjarki og Daníel um hvernig leikurinn, og þá fyrst og fremst söguþráður leiksins, fór í þá eftir að hafa spilað leikinn til enda.
Athugið að þátturinn inniheldur spilla (spoilers) úr The Last of Us Part II. Ef þú hefur ekki klárað leikinn og vilt ekki láta spilla sögu leiksins fyrir þér skaltu stoppa hér, klára leikinn og

Leikjavarpið #11 - PlayStation 5 og The Last of Us Part II
Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja.
Efni þáttarins:
• PlayStation 5 (tölvan, leikir, verð o.fl.)
• Trivia Royale
• Cyberpunk 2077
• E3 dagskráin
• The Last of Us Part II (spoiler free umræða)
Mynd: The Last of Us II og PlayStation 5 leikjatölvan (myndblöndun í boði Bjarka)
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By

Leikjavarpið #10 - Summer Game Fest, Unreal Engine V og FFVII Remake samantekt
Bjarki, Daníel og Sveinn ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja.
Efni þáttarins:
• Xbox Series X kynning,
• Summer Game Fest sumarhátíðin,
• Unreal Engine V
• Tony Hawk Proskater 1&2 endurgerð,
• EA framleiðir fleiri Switch leiki,
• Summer Game Fest dagskráin,
• Paper Mario: The Origami King,
• Ghost of Tsushima,
• GTA V frír á Epic Store,
• Final Fantasy 7 Remake samantekt.
Mynd: Tæknidemó Unr

Leikjavarpið #9 - Fortnite tónleikar, tölvuþrjótar herja á Nintendo og AC: Valhalla kynntur
Í níunda þætti Leikjavarpsins ræða Sveinn og Daníel meðal annars um stöðu Stadia frá Google, nýju viðbótina fyrir Fallout 76 og lekann sem herti á The Last of Us Part 2. Að sjálfsögðu spilli-frír þáttur!
Efni þáttarins:
🎶 Fortnite tónleikar,
🌀 Stadia Connect viðburður,
🤖 Tölvuþrjótar herja á Nintendo,
🌄 Ný viðbót fyrir Fallout 76,
🎮 Xbox Series X kynning þann 7. maí,
⚔️ Assassin’s Creed: Valhall

Leikjavarpið #8 - FFVII og RES3 Remake, PS5 fjarstýringin og Midgard 2020 aflýst
Daníel, Bjarki og Sveinn fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Það er einskonar remake-þema þessa dagana í Leikjavarpinu. Strákarnir spiluðu allir Final Fantasy VII Remake sem margir FF aðdáendur hafa beðið lengi eftir og segja sína skoðun á leiknum. Sveinn spilaði zombíleikinn Resident Evil 3 Remake og fjallar um hann. Einnig er fleira til umræðu eins og útlitið á nýju PS5 fjarstýringun

Leikjavarpið #7 - Doom Eternal, Animal Crossing, PS5 og indíleikir
Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um það helsta í heimi tölvuleikja. Sveinn baðar sig í blóðpollum Doom Eternal og segir okkur frá sinni upplifun. Daníel skellti sér í Animal Crossing og er orðinn stórskuldugur eftir stutta spilun. Bjarki segir frá indíleikjunum Mosaic og Spirit of the North sem sækir innblástur til Íslands.
Efnisyfirlit þáttarins:
* Ný íslensk eSports-sjónvarpsstöð kynnt til sögun

Leikjavarpið #6 - Heimsfaraldrar, Dreams og Final Fantasy VII
Bjarki, Daníel og Sveinn fjalla um áhrif COVID 19 á tölvuleikjaviðburði ársins en EVE Fanfest og GDC ráðstefnunum hefur meðal annars verið aflýst vegna veirunnar. Einnig fjalla þeir drengir um það sem vitað er um næstu kynslóð leikjatölva og taka fyrir tölvuleikina Plague Inc, A Plague Tale, Dreams og Final Fantasy VII Remake demóið.
Efni þáttarins:
• Áhrif COVID-19 á leikjaheiminn
• EVE Fanfest

Leikjavarpið #5 - Væntanlegir leikir 2020 & bestu leikir síðasta áratugar
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á leikjaárinu 2020: Cyperpunk 2077, The Last of Us Part II, Final Fantasy VII Remake og fleira. Einnig velja þeir drengir svo sína topp þrjá tölvuleiki seinasta ártugs, 2010-2019. Sjóðheit tilkynning í lokin: Sony tilkynnir að fyrirtæki mun EKKI taka þátt í E3 á þessu ári!
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (i

Leikjavarpið #4 - Leikir ársins 2019
Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór og Sveinn Aðalsteinn fara yfir leikjaárið sem er að líða með því að rýna í niðurstöður The Game Awards verðlaunanna og lista upp sína uppáhalds leiki fyrir árið 2019.
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #3 - 1. desember 2019 - Star Wars Jedi: Fallen Order
ÞRIÐJI ÞÁTTUR: Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fjalla um Star Wars Jedi: Fallen Order, væntanlega Half-Life leik og The Game Awards.

Leikjavarpið #2 - 19. nóvember 2019 - Death Stranding
ANNAR ÞÁTTUR: Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fjalla um Death Stranding frá Kojima Production.
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Kind fyrir Korn 2. þáttur - Viðtal við Óskar Árnason, spilafréttir og íslensk spil
Kind fyrir Korn er hlaðvarp um allt sem tengist borðspilum, fréttir, umfjallanir, viðtöl eða hvað sem mér dettur í hug. Í öðrum þætti tek ég viðtal við Óskar Árnason sem skellti sér á Essen spilaráðstefnuna, fer yfir nokkrar spilafréttir og ræði um útgáfu íslenskra spila.
Hljóð og tónlist: http://incompetech.com/music/ (Deadly Roullette) og http://www.sherlockology.com/downloads (Sherlock Holmes)

Kind fyrir Korn 1. þáttur - Essen, Pandemic Legacy S2 og Charterstone
Kind fyrir Korn er hlaðvarp um allt sem tengist borðspilum, fréttir, umfjallanir, viðtöl eða hvað sem mér dettur í hug. Í fyrsta þættinum er fjallað um Essen, Pandemic Legacy S2 og Charterstone

Leikjavarpið #1 - 25. júní 2017 - E3 2017
FYRSTI ÞÁTTUR: Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Steinar Logi ásamt Sveini Aðalsteini frá PSX.is ræða um það besta og versta frá E3 tölvuleikjasýningunni þetta árið, en þar kynntu leikjarisarnir það sem framundan er í leikjaheiminum.
Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum. Við erum búnir að senda Ant Man í hljóðrásirnar til að kanna málið.
Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.











