Home Podcasts Stakkaskipti
Stakkaskipti

Stakkaskipti

RÚV Hlaðvörp 7 Episodes Nov 30, 2025

Í þáttunum er fjallað um framhaldsskólakerfið á Íslandi, en rúmlega 22 þúsund nemendur stunda nám í 30 framhaldsskólum víðs vegar um landið. Menntamálayfirvöld hafa staðfest tæplega 400 mismunandi námsbrautir og er lítið samræmi á milli skóla, sem gerir gerð námsefnis erfiða þar sem enginn kennir það sama. Rætt er við fólk sem þekkir málin innan frá og kannað hvaða áhrif þessi fjölbreytni hefur á nemendur, kennara og skólana sjálfa. Í fyrsta þættinum koma fram Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Atli Harðarson, Guðrún Helga Ástríðardóttir, Hildur Ýr Ísberg, Matthildur Ársælsdóttir og Svanhildur Svavarsdóttir.

Episodes

7. þáttur: Virði íslensks stúdentsprófs
7. þáttur: Virði íslensks stúdentsprófs Nov 30, 2025 43:00 Borið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársæls
6. þáttur: Við erum alls konar
6. þáttur: Við erum alls konar Nov 23, 2025 42:45 Við erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardót
5. þáttur: Kennaramenntun og faggreinar
5. þáttur: Kennaramenntun og faggreinar Nov 16, 2025 42:37 Það vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í fimmta þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Freyja Hreinsdóttir, Guðjón Haukur Hreinsson og Gunnlaugur Magnússon. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
4. þáttur: Það vantar húsnæði
4. þáttur: Það vantar húsnæði Nov 9, 2025 42:42 Stjórnendur framhaldsskóla segja það áskorun að koma öllum fyrir sem stunda þar nám. Kennsla fer jafnvel fram í gámum og geymslum og þetta getur haft þau áhrif að færri sæki í verknám en annars væri. Nemendur sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á verknáms-, starfsnáms- eða stúdentsbrautir velja framhaldsskólabraut. Viðmælendur í fjórða þætti eru: Berglind Halla Jónsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Guðr
3. þáttur Námsmat og námsefni
3. þáttur Námsmat og námsefni Nov 2, 2025 42:59 Námsmat og námsefni eru stór hluti af starfi innan framhaldsskólakerfisins. Félagslífið er líka mikilvægur hluti af framhaldsskólanum. Gervigreindin er tækni sem ryður sér hratt til rúms í menntakerfinu líkt og annars staðar. Á sama tíma eiga ýmsar námsbrautir undir högg að sækja. Viðmælendur í þriðja þætti Stakkaskipta eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason
2. þáttur Er skólakerfið á villigötum?
2. þáttur Er skólakerfið á villigötum? Oct 26, 2025 42:55 Vegna þess hversu opin aðalnámskrá framhaldsskóla er þá er framhaldsskólum nánast í sjálfsvald sett hvaða hvaða námsefni er kennt og hvaða hæfni nemendur þurfa að sýna til þess að ljúka námi. Engu að síður kemur fram í námskránni að í kjarnagreinum skuli námsmat í lokaáföngum til stúdentsprófs taka mið af viðmiðunarprófum sem ráðherra lætur í té eða viðurkennir. Þessu ákvæði er ekki framfylgt. Við
1. þáttur: Samræmi lítið sem ekkert
1. þáttur: Samræmi lítið sem ekkert Oct 19, 2025 41:59 Alls eru rúmlega 22 þúsund nemendur í þeim 30 framhaldsskólum sem eru starfandi á Íslandi. Menntamálayfirvöld hafa staðfest tæplega 400 mismunandi námsbrautir hjá þessum skólum og lítið samræmi er á milli skóla. Þetta torveldar gerð námsefnis þar sem enginn er að kenna það sama. Viðmælendur í fyrsta þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Atli Harðarson, Guðrún Helga Ástríðardóttir, H

Recommended