
Pyngjan
Pyngjan er íslenskt hlaðvarp sem fjallar um viðskipti og fréttir. Þar er lögð áhersla á fróðleik og vandaða umfjöllun um málefni sem varða vinnumarkaðinn. Þættirnir koma út á föstudögum og miða að því að veita almennum launþegum og millistjórnendum innsýn í stöðuna. Umsjónin er í höndum Pyngjanar og efnið er sett fram á aðgengilegan hátt.
Episodes

Föstudagskaffið: Finale (Takk, en bless)
Sendu okkur skilaboð!Kæra Pyngjusamfélag! Allt tekur enda og þar er Pyngjan engin undantekning. Þetta hafa verið 3 ánægjuleg ár en nú, eftir 268 þætti, mætast þeir Addi og Iddi í hinsta sinn fyrir aftan míkrófóninn. Við viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir hlustunina í gegnum árin - heiðurinn er án nokkurs vafa okkar megin. Megi Pyngjur ykkar þyngjast á komandi tímum, fjárfestingar bera ávöxt og

Ársreikningar: Finale - SKEL & Lifandi vísindi
Sendu okkur skilaboð!Þá er komið að síðasta ársreikningaþætti Pyngjunnar og því þriggja ára vegferð að ljúka. Það kom því ekkert annað til greina en að taka fyrir House of SKEL en svo þurftum við auðvitað að leita í ræturnar og gefa út þátt í anda upphaflegrar Pyngju sem innihélt tvo ársreikninga. Því ákváð Iddi að taka fyrir Lifandi vísindi sem er ansi skemmtilegur rekstur. Við viljum þakka öllum

Föstudagskaffið: Pabbi má ég kíkja í Járnfjallið?
Sendu okkur skilaboð!Kæru vinir Pyngjunnar. Þetta mun verða okkar næstsíðasta Föstudagskaffi og því er vel við hæfi að hafa það í lengri kanntinum. Þessi þáttur er gjörsamlega stappaður af viðskipti og vitleysu. Eigið yndislega helgi!

Ársreikningar: Isavia
Sendu okkur skilaboð!Kæru hlustendur Pyngjunnar! Þá er komið að næstsíðasta ársreikningaþættinum okkar og það er enn eitt ríkisapparatið. Þó lítur út fyrir að vel sé haldið á spöðunum hjá Isavia, ólíkt mörgum öðrum eignum í eigu ríkisins. Saga er sjón ríkari!

Föstudagskaffið: Let's talk about Tom (Time to say goodbye)
Sendu okkur skilaboð!Já þið heyrðuð rétt, kæru vinir. Pyngjan er á leið í frí - langt frí! Við munum þó dæla í ykkur P-vítamíni út febrúar svo í guðanna bænum verið með okkur þangað til. Þáttur dagsins er einn af þessum klassísku, fréttir, tuð, umfjöllun og hagnýtur fróðleikur.

Ársreikningar: Brim
Sendu okkur skilaboð!Í dag tökum við fyrir sögu og rekstur Brims sem er eitt stærsta útgerðarfélag landsins. Iddi droppar alvöru value bombum hægri, vinstri, enda sérfræðingur í þessum efnum.

Föstudagskaffið: Besta mögulega ár launþegans er gengið í garð
Sendu okkur skilaboð!Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við óskum ykkur góðrar helgar og gleðilegs árs. Ef þú ert launþegi er ekkert nema launað frí í vændum svo ekki fara að stofna þinn eigin rekstur á þessu ári. Góðar stundir.

Ársreikningar: Tandur
Sendu okkur skilaboð!Hið hreinasta hreinlæti er næst á dagskrá. Bjarni Ármanns virðist sjá í framtíðina og er ótvíræður keisari hreinlætis á Íslandi. Við förum yfir söguna, næyjasta ársreikning og fleira til í dag. Góða helgi.

Föstudagskaffið: Saga hlutabréfa á Íslandi með Þórði Pálssyni
Sendu okkur skilaboð!Það hlaut að koma að því! Geitin sjálf, Tóti Páls kíkti á okkur upp í Seðlabanka Kópavogs og settist á bakvið míkrófóninn. Í þættinum kynnumst við manninum og förum á hundavaði yfir sögu hlutabréfa á íslandi en sjálfur hefur Tóti séð tímanna tvenna í þeim efnum. Stórkostlegur þáttur sem, eins og svo oft áður, enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Gleðilegt nýtt ár, kæru kúrek

Föstudagskaffið: 2024 uppgjör ásamt Helga Frímannssyni
Sendu okkur skilaboð!Við fengum til okkar fyrrum hlutabréfamiðlarann Helga Frímannsson sem hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli fyrir greiningar á hlutabréfum á launþegaforritinu LinkedIn á árinu. Við fórum í manninn sem á langan feril að baki í heimi fjármála og auk þess gerðum upp árið 2024. Sannkölluð áramótasprengja fyrir ykkur, kæru kúrekar. Það verður bjart yfir 2025!

Ársreikningar: Innnes
Sendu okkur skilaboð!Heildsöluundrið Innnes (með þremur N-um) er eitt þessara fyrirtækja sem lætur hökur falla í gólfið. Allt í eigu eins manns og hefur vöxturinn verið slíkur að maður á vart til aukatekið orð. Verði ykkur að góðu, kæru hlustendur!

Ársreikningar: Múrbúðin
Sendu okkur skilaboð!Dömur mínar og herrar! Þáttur dagsins er tileinkaður öllum iðnaðarmönnum þarna úti. Feykilega skemmtilegt fyrirtæki sem hefur barist með kjafti og klóm fyrir skynsamri verðlagningu í áranna rás.

Föstudagskaffið: Bara aðdáendur (Only fans)
Sendu okkur skilaboð!Já kæru vinir Pyngjunnar - loksins eru Addi og Iddi mættir saman á ný og eru með drekkhlaðinn þátt fyrir ykkur í dag. Allt um only fans, fréttir vikunnar og fleira til.

Ársreikningar: Sky Lagoon
Sendu okkur skilaboð!Pyngjan kynnir stórmerkilegan þátt, þar sem stutt en ótrlúleg saga Sky Lagoon, er reifuð. Lónið birtist skyndilega á Kársnesinu og engu líkara en að það hafi verið reist yfir nótt en framkvæmdin átti sér þó nokkurra ára aðdraganda. Fyrirtækið er sannkölluð prentvél af bestu gerð og ætti þátturinn að ná að næra peningaheilastöðvar netbankakúrekans og rúmlega það.

Föstudagskaffið: Skattamál flokkanna með Gunnari Úlfarssyni
Sendu okkur skilaboð!Þegar kemur að efnahagsstefnum stjórnmálaflokkanna eru fáir fróðari en Gunnar Úlfarsson hagfræðingur Viðskiptaráðs sem kom og kjaftaði við okkur í heilar 100 mínútur - minna mátti það ekki vera. Gunnar og kollegar hans hjá Viðskiptaráði héldu nýverið kosningafund með fulltrúum frá flestum flokkum þar sem kynntur var til leiks nýr kosningaáttaviti sem mælir annars vegar afstöðu

Ársreikningar: SÝN
Sendu okkur skilaboð!Kæur Pyngjuhálsar, í dag er það fjarskipta- og fjölmiðlarisinn SÝN sem verður tekinn fyrir.

Föstudagskaffið: Jón Kári Eldon kíkir í kaffi
Sendu okkur skilaboð!Hann Jón Kári Eldon er svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur, en hann kíkti til okkar í kaffi og ræddi störf sín fyrir Apparatus, Dr.football, listamanninn Jón Kára og fleira til. Þetta er þáttur sem við hreinlega bönnum Pyngjuliðum að missa af.

Uppgjörið: Þriðji ársfjórðungur Nova 2024 - Skemmtanastjórn
Sendu okkur skilaboð!Við hittum þau Möggu framkvæmdastjóra og Lalla fjármálastjóra hjá Nova og fórum yfir þriðja ársfjórðung hjá þeim.

Ársreikningar: Skólamatur
Sendu okkur skilaboð!Skólamatur ehf. hefur verið í deiglunni undanfarið og sér í lagi vegna niðurgreiðslu ríkisins á skólamat fyrir grunnskóla. Við gerum sögunni og rekstrinum skil í þessu stykki sem þú, hlustandi góður, ættir ekki að láta framhjá þér fara.

Föstudagskaffið: Supreme luxury
Sendu okkur skilaboð!Hér fáiði einn rjúkandi volgan bolla í kuldanum, beint úr smiðju Adda & Idda. Megi helgin verða ykkur gæfusöm.

Ársreikningar: Ísey útflutningur
Sendu okkur skilaboð!Já þeir strokka skyrið sem eiga það! Ísey útflutningur hefur verið í vaxtafasa síðastliðin ár þrátt fyrir nokkrar misheppnaðar útrásir. Við gerum þessu öllu skil og fleira til í þætti dagsins!

Föstudagskaffið: Mömmubloggarar are so back!
Sendu okkur skilaboð!Stútfullur þáttur af viðskiptum og vitleysu fyrir ykkur, kæru netbankakúrekar og fagfjárfestar. Megi helgin verða ykkar!

Ársreikningar: EIK fasteignafélag
Sendu okkur skilaboð!Hluthafar Eikar liggja undir yfirtökuárás Langasjós fyrir 11 kr. á hlutinn. Hvað gerist? Við munum ekki svara því í dag, en við munum hrútskýra margt er kemur að sögu og rekstri fyrirtækisins.

Föstudagskaffið: Seljiði sullið, kaupiði gullið!
Sendu okkur skilaboð!Þáttur dagsins er af dýrari gerðinni og það er gullið líka. Allt þetta helsta - fréttir fróðleikur, fágæti og fíflalæti. Góða helgi, kæru launþegar!

Ársreikningar: Ölgerðin
Sendu okkur skilaboð!Kæru hlustendur, þið lásuð rétt! Ársreikningarnir hafa litið dagsins ljós á ný hjá okkur Pyngjumönnum og er þessi þáttur sá fyrsti í 12 þátta seríu þar sem ársreikningaþættir verða gefnir út annanhvern föstudag. Við byrjum á stórveldinu af Grjóthálsi - sjálf Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Gjörið svo vel.

Föstudagskaffið: Hvað gerðiru við peninginn sem frúin í Framsókn gaf þér?
Sendu okkur skilaboð!Þáttur dagsins er vægast sagt stútfullur. 1 klst og 8 mín. af gæðatuði og fleiru til að gera hlustendur klára inn í helgina. Veðmál, hrun Evrópu, regluverk, upprunarvottorð, fjármálamýtur og margt fleira til. Takk fyrir að hlusta á okkur.

Föstudagskaffið: Tónlistarmenn mega ekki græða
Sendu okkur skilaboð!Gleðilega helgi kæru launþegar! Hér fáiði ylvolgan þátt til að hlýja ykkur í umferðinni á leið til vinnu. Við erum til staðar fyrir ykkur og við viljum að þú vitir að þú skiptir máli.

Föstudagskaffið: Er LinkedIn nýja stefnumótaforritið?
Sendu okkur skilaboð!Kæra Pynjusamfélag! Hér færum við ykkur þátt dagsins á silfurfati. Ekki gera þau mistök að láta hann sem vind um eyru þjóta því umfjöllunarefnin eru stórbrotin eins og alltaf hjá þeim Adda og Idda. Góða helgi, kæru launþegar!

Föstudagskaffið: Er Nike búið að missa það?
Sendu okkur skilaboð!Kæru hlustendur! Þáttur dagsins er gott sem tímalaus svo það skiptir nákvæmlega engu máli hvenær þú hlustar á hann. Misheppnaðar markaðsherferðir, dvínandi markaðshlutdeil Nike og Fórnir risar eru dæmi um liði sem verður farið yfir svo þú, kæri hlustandi, vilt ekki missa af þessu. Gangið hratt um gleðinnar dyr um helgina!

Föstudagskaffið: Let's talk about Olive oil
Sendu okkur skilaboð!Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuhálsar. Þáttur dagsins er ekki eingöngu helgaður ólífuolíu þó titillinn gefi annað til greina. Að sjálfsögðu eru fréttir vikunnar á sínum stað og svo reifar Addi nýútgefinn ríkisreikning. Góðar stundir og góða helgi!

Föstudagskaffið: Er ekki komið nóg af parking fyrirtækjum á Íslandi?
Sendu okkur skilaboð!Kæru vinir Pyngjunnar! Þeir eru mættir aftur saman tveir á bakvið hljóðnemana þeir Addi og Iddi með sjóðheitar fréttir og laglegar umfjallanir. Alls ekki missa af þessum, hann er rosalegur!

Föstudagskaffið: Arnór Hreiðarsson kíkir í kaffi
Sendu okkur skilaboð!Í dag mætti til okkar afar sjaldgæfur blendingur launþega og frumkvöðuls. Svokallaður launkvöðull eða frumþegi - þið ráðið. Arnór starfar sem söluráðgjafi Business central hjá Origo á daginn en á kvöldin og um helgar sinnir hann sölu víns og kaffivéla. Stórskemmtilegur þáttur þó við segjum sjálfir frá og hellingur af fróðleiksmolum um business central fyrir ykkur braskarana.

Föstudagskaffið: Kampavínsspeki með Stefáni Einari
Sendu okkur skilaboð!Í þessum stórskemmtilega þætti förum við yfir kampavínsmarkaðinn með Stefáni Einari en hann er ekki einungis fremsti blaðamaður landsins um þessar mundir heldur einnig sérfræðingur í kampavíni og líklega fremstur á landinu í þeim efnum einnig. Það var því vel við hæfi að fá hann til að skóla okkur til í þessum fræðum. Missið ekki af þessum!

Föstudagskaffið: Myndlistaspeki með Sigurði Sævari
Sendu okkur skilaboð!Sigurð Sævar þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, en hann er einn okkar allra efnilegasti myndlistamaður ef hann er þá ekki hreinlega kominn í flokk þeirra allra bestu. Við fórum yfir ferilinn og myndlistamarkaðinn ásamt fleiru í þessum stórskemmtilega þætti sem þú ættir ekki að missa af.

Föstudagskaffið: Kíró biz með Vigni Kíró
Sendu okkur skilaboð!Brútal business þáttur fyrir ykkur þennan föstudaginn gott fólk. Vignir kíró er mikill hugsjónamaður og hefur náð stórbrotnum árangri á skömmum tíma sem eigandi Líf Kíró. Þáttur sem enginn með frumkvöðlablóð má láta fram hjá sér fara.

Föstudagskaffið: Idda vantar lompur
Sendu okkur skilaboð!Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuhálsar! Þáttur dagsins er stappaður af viðskiptum og vitleysu sem fyrr. Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist, þetta er Pyngjaaaan! Góða helgi kæru launþegar.

Föstudagskaffið: Pay me bitch
Sendu okkur skilaboð!Það var stuð á þeim Adda og Idda þennan föstudaginn í stútfullum þætti af viðskiptum og vitleysu eins og svo oft áður. Allar kvartanir berist á pyngjan@pyngjan.is. Góðar stundir

Föstudagskaffið: Tilgátan um fækkun ferðamanna er leyst
Sendu okkur skilaboð!Já þið sjáið það hér svart á hvítu kæru hlustendur að tilgátan er leyst og það er ekki vegna eldgoss né of sterkrar krónu. Þeir Addi og Iddi fara yfir víðan völl í þætti dagsins og segja má að hér sé eitthvað fyrir alla. Gangið hægt inn í helgina en ekki of hægt.

Föstudagskaffið: Tips fyrir fyrirtækjaeigendur & servíettusamningar
Sendu okkur skilaboð!Föstudagur er genginn í garð og það þýðir aðeins eitt kæru hlustendur, það er Ylvolgur Kalli og business. Farið varlega inn í helgina.

Föstudagskaffið: Dr. Pepper sækir í sig veðrið en Evrópa hrynur
Sendu okkur skilaboð!Já það er drekkhlaðinn þáttur úr smiðju Pyngjunnar þennan föstudagsmorguninn. Fréttir, fróðleikur og frábær hlaðvörpun í boði Adda og Idda. Eigið yndislega helgi, kæru launþegar.

Föstudagskaffið: Koma Kónga- og Drottningardeildirnar til Íslands?
Sendu okkur skilaboð!Gleðilegan föstudag, kæru launþegar! Þáttur dagsins er sá besti hingað til. Þú munt samt auðvitað ekki komast að því nema þú hlustir. Takk fyrir okkur.

Föstudagskaffið: Misheppnað útboð, suðupunktur Ingu Tinnu & K-pop
Sendu okkur skilaboð!Það var uppi fótur og fit í Seðlabanka Kópavogs þegar þeir Addi og Iddu settust á bakvið hljóðnemana þennan föstudagsmorguninn. Austurlandablæti Idda heldur áfram en í dag fjallar hann um K-pop markaðinn, ásamt 8-pop sem Addi hefur mikla reynslu af. Auk þess eru fréttir vikunnar á sínum stað og svo slær Iddi botninn í þetta með umfjöllun sinni um rauða humarinn sem er gjaldþro

Föstudagskaffið: Hlutafjárútboð, Memebréf & Brunnahagkerfi
Sendu okkur skilaboð!Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuhálsar! Þáttur dagsins er drekkhlaðinn af fréttum og fróðleik sem endranær, enda nóg um að vera í vikunni. Við hvetjum því alla til að leggja við hlustir og sömuleiðis taka kvittun fyrir öllu sem þú kaupir.

Föstudagskaffið: Er tími snjallsímans uppurinn?
Sendu okkur skilaboð!Í þætti dagsins erum við með nóg af fréttum og svo kemur Iddinn með tvær heimsklassa umfjallanir. Þetta er einn af þessum þáttum sem enginn má missa af. Góð helgi, kæru kúrekar og launþegar.

Föstudagskaffið: vinnustaðar topplistinn snýr aftur
Sendu okkur skilaboð!Þáttur dagsins er stappaður af gúmmelaði fyrir okkar ástkæru netbankakúreka. Fréttir vikunnar, Inn- og útflutningur á Ítalíu, milljarðamæringur vikunnar og að ógleymdum vinnustaðar topplistanum í boði Idda. Góða helgi kæru launþegar!

Föstudagskaffið: María Lena stofnandi M-Fitness & Hannes karlinn hennar
Sendu okkur skilaboð!Þau komu til okkar María og Hannes sem saman reka fatamerkið M-Fitness. Saga þeirra er stórmerkileg en merkið hefur hlotið mikillar velgengni sem kom svo sannarlega ekki af sjálfri sér, en í þættinum rekja þau söguna aftur og gefa okkur smjörþef af því hvernig skal bera sig að í frumkvöðlastarfsemi. Þennan þátt skaltu ekki láta framhjá þér fara, kæri hlustandi!

Föstudagskaffið: Iddi dreypir á einum Welding
Sendu okkur skilaboð!Stútfullt föstudagskaffi að vanda - tvær umfjallanir frá Iddanum og fréttir vikunnar hjá Addanum. Góðar stundir

Föstudagskaffið: Krónískur afsláttur hlutabréfa í Kóreu
Sendu okkur skilaboð!Í þætti dagsins má heyra yfirborðskennda en þó merkilega umfjöllun um Suður-Kóreskan markað og krónískan hlutabréfaafslátt þar í landi. Við kynnum einnig til leiks nýjan dagskrárlið og svo eru fréttir vikunnar á sínum stað. Gangið hratt inn um gleðinar dyr um helgina kæru kúrekar.

Föstudagskaffið: Iddi fjárfestir í Tequila
Sendu okkur skilaboð!Já kæru hlustendur, við Pyngjumenn látum ekki deigan síga þennan föstudaginn frekar en þann fyrri , en þáttur dagsins er stútfullur af alls konar lostæti. Fréttir vikunnar, tuð og umfjöllun á heimsmælikvarða um fjárfestingar í Tequila. Gangið af hörku inn í helgina!

Föstudagskaffið: Um páskana ætlar Yssi að skíða, skíða, skíða en Assi ætlar vera heima að....
Sendu okkur skilaboð!Föstudagskaffið er lengra en föstudagurinn langi þennan föstudaginn. Samsæriskenningar um landbúnaðarmálið, verðlagning skíðasvæða og Óopnir reikningar ríkisins teknir fyrir í lengsta þætti á lengsta degi ársins.

Ársreikningar: H-Berg (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan. Athugið að þetta er síðasti áskriftarþátturinn en við munum halda galvaskir áfram með föstudagskaffið í opinni dagskrá!

Föstudagskaffið: Addi mýkir málbeinið og opnar sig um Smartland fréttina og fasteignakaupin
Sendu okkur skilaboð!Já það er stappfullur þáttur fyrir ykkur í dag kæru hlustendur. Addi byrjar á því að leysa frá skjóðunni um títtnefnd fasteignakaup en einnig fáiði ykkar vikulega skammt af fréttum, fróðleik og tuði. Góða helgi!

Ársreikningar: Vinnupallar (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Ungir milljarðamæringar, farewell Jón “take-a-bow” Björnsson og Jomman does it again
Sendu okkur skilaboð!Ég þarf að klára skattskýrsluna svo ég hef ekki tíma í að skrifa neitt hér en ég lofa skemmtilegum þætti. Kv. Addi

Ársreikningar: M Fitness (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Skattar - 2.hluti ásamt Margréti Ágústu skattalögfræðingi
Sendu okkur skilaboð!

Föstudagskaffið: Skattar - 1.hluti ásamt Margréti Ágústu skattalögfræðingi
Sendu okkur skilaboð!ATH - seinni hlutinn kemur inn á mánudaginn!! Við vorum heldur tæpir á tíma svo við munum taka upp seinni hluta sem dettur inn á mánudagsmorgunn. En annars er þetta stórmerkilegur þáttur um skatta sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara enda er Margrét botnlaus fróðleikur um skatta! Hver vill ekki vita meira um skatta?

Ársreikningar: Valdís (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Hvert er næsta nafnablæti fyrirtækja?
Sendu okkur skilaboð!Gleðilegan marsmánuð kæru hlustendur! Hann er fjörugur þátturinn í dag svo ekki sé meira sagt en umfjöllunar efni dagsins eru eins misjöfn og þau eru mörg, allt frá nafnabreytingum og upp í acquisitions! Eigið yndislega helgi kæru launþegar og munið að hvíla ykkur vel!

Uppgjörið: Ársuppgjör Nova 2023 - Skemmtanastjórn
Sendu okkur skilaboð!Við hittum þau Möggu og Tóta hjá Nova og fórum yfir rekstrarárið 2023 á léttu nótunum.

Ársreikningar: Just wingin it (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Millistjórnandi ársins er fundinn
Sendu okkur skilaboð!Góðir hálsar - hér kemur ykkar vikulegi skammtur af P-vítamíni. Að þessu sinni eru örlitlar hljóðtruflanir sem við vonum að komi ekki að sök því þessi þáttur er eitthvað sem enginn ætti að missa af. Veriði góð við ykkur sjálf um helgina og munið að taka kvittanir fyrir öllu sem þið kaupið. Góða helgi!

Ársreikningar: Metro (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Nýr dagskrárliður(leitarsjóður Idda X Steinda Jr.), Tenetips, fréttir og fleira
Sendu okkur skilaboð!Gleðilegan föstudag kæru hlustendur. SD Kortið er fundið!

Ársreikningar: A4 (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Þórhallur Gunnarsson stjórnendaráðgjafi
Sendu okkur skilaboð!Við fengum til okkar hann Þórhall Gunnarsson í stórkostlegt viðtal sem ætti að vera skylduhlustun um helgina. Þórhallur hefur komið víða við og átt góðu gengi að fagna í gegnum tíðna en í viðtalinu kryfjum við ferilinn og ræðum ýmis hitamál sem upp komu í hans tíð sem stjórnanda. Látið þennan ekki fara framhjá ykkur! Góða helgi!

Valgeir Magnússon stjórnarformaður PIPAR/TBWA (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Sorgarsaga Quiznos, gleðisaga OREO & gengdarlaust fjárútlát alþingismanna
Sendu okkur skilaboð!Já kæru hlustendur, þar sem hann Iddi liggur á bakkanum á íslendingaparadísini Tenerife, þá hentum við í einn tímalausan þátt þar sem við förum yfir sögu tveggja risa ásamt því að kryfja fjárútlát alþingismanna. Gleðilegan föstudag kæru hlustendur, og gangið hratt um gleðinnar dyr.

Ársreikningar: Flying Tiger (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan

Föstudagskaffið: Loðnan snertir okkur öll
Sendu okkur skilaboð!Það var stór fréttavikan í þetta skiptið. House of SKEL að taka yfir, húsnæðismarkaður til fjandans, endurgreiðsla vegna kvikmyndagerðar óþörf og fleira til. Góða helgi kæru Pyngjuhálsar!

Ársreikningar: Serrano (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Mömmubloggarar are back!
Sendu okkur skilaboð!Kæru hlustendur, hér fáiði ykkar vikulega skerf af háðri og ófaglegri umfjöllun um heim viðskiptanna. Góða helgi!

Jón Þór forstjóri Kaldalóns (áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Ert þú næsti bréfpokamiðlari?
Sendu okkur skilaboð!Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuhálsar. Það var hálfgerð gúrkutíð í skemmtilegum viðskiptafréttum þessa vikuna en þó var hægt að finna eitthvað til að tuða yfir eins og venjulega. Iddi bjargar svo Adda með skemmtilegum umfjöllunum inn á milli og þ.á.m. umfjöllun um það nýjasta úr heimi heilbrigðistækninnar þvert gegn ráðleggingum stönunarlækna. Góða helgi!

Ársreikningar: Dineout (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Ár launþegans er gengið í garð
Sendu okkur skilaboð!Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við hefjum árið á löngum þætti þar sem við tuðum samfleytt på gamle måden. Launþegar þessa lands dansa dátt en árið 2024 verður ein stór fríhelgi. Að því sögðu óskum við ykkur góðrar helgar og gæfu á nýju ári.

Ársreikningar: Íslensk erfðagreining (áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Föstudagskaffið: Time to say goodbye
Sendu okkur skilaboð!Kæru Pyngjuhálsar. Takk fyrir árið 2023. Time to say goodbye.

Ársreikningar: PIPAR/TBWA (Áskrift)
Sendu okkur skilaboð!Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.

Frumkvöðlakaffið: Birgitta Haukdal rithöfundur
Sendu okkur skilaboð!Jólaandinn sveif yfir vötnum í Seðlabanka Kópavogs þegar rithöfundurinn og poppstjarnan Birgitta Haukdal mætti í stúdíó hjá þeim Adda og Idda. Við fórum yfir bakgrunninn og rákum söguna fram til dagsins í dag, en það er óhætt að segja að Birgitta hefur verið einn allra vinsælasti rithöfundur landsins síðustu ár, en í viðtalinu opinberar hún stórkostlegan árangur sem náðist á d











