Home Podcasts Teymisþjálfarinn
Teymisþjálfarinn

Teymisþjálfarinn

Örn Haraldsson 11 Episodes Aug 17, 2026

Þátturinn fjallar um teymi og teymisþjálfun út frá margvíslegum sjónarhornum. Rætt er um leiðtogafræði, vinnustaðamenningu og mannauðsstjórnun, auk annarra þátta sem tengjast samstarfi og þróun teyma. Hugmyndirnar eru skoðaðar í víðara samhengi og tengdar öðrum fyrirbærum í vinnulífinu.

Episodes

Anna Valgerður Sigurðardóttir
Anna Valgerður Sigurðardóttir Aug 17, 2026 5143 Enn fáum við nýtt sjónarhorn á teymisþjálfun. Að þessu sinni er það Anna Valgerður Sigurðardóttir, mannauðsráðgjafi hjá sveitarfélaginu Árborg, sem deilir sinni reynslu. Hún færir okkur fjölbreytt sjónarhorn, hlið mannauðsstjórnunar, sveitarfélags og skólamenningar á teymisvinnu og teymisþjálfun, og segir frá því hvernig hún hefur unnið með teymisþjálfun í því umhverfi. Að venju kynnumst við líka
Torben Nielsen #2
Torben Nielsen #2 Apr 19, 2026 5168 Þá er komið aftur að Torben Nielsen. Í fyrsta samtali okkar frá júní 2025 kynntum við hann og hugmyndafræðina að baki Conscious Consulting. Í þetta skipti förum við nánar í það hvernig þau vinna með sínum kúnnum. Við ræðum meðal annars hversu löng vegferðin er með kúnnanum — oft 4–5 ár — og hvernig hún skiptist upp í ákveðna fasa. Torben deilir líka sjónarmiðum sínum um hvað hann telur algengustu
Colin M. Fisher
Colin M. Fisher Mar 23, 2026 6761 Í þessum þætti tala ég við prófessor Colin M. Fisher um vísindin á bak við bókina hans, The Collective Edge, sem kom út árið 2025. Þetta er að mínu mati ein besta bókin sem gefin hefur verið út um samvinnu fólks á undanförnum árum. Colin er prófessor við University College London's School of Management, en hefur líka þá skemmtilegu og óhefðbundnu baksögu að hafa verið atvinnu-jazztrompetleikari.
Sagan mín
Sagan mín Feb 9, 2026 2960 Í þessum þætti segi ég frá minni eigin vegferð inn í teymisþjálfun - hvaðan ég kem og fer yfir eitthvað af þeim hugmyndum, reynslu, fólki og umhverfi sem hefur haft mótandi áhrif á mig sem teymisþjálfara og manneskju.
Torben Nielsen
Torben Nielsen Jun 19, 2025 4073 Viðmælandi minn í þessum þætti er Torben Nielsen. Hann þekkir stjórnendahlutverkið vel af eigin raun og á að baki áhugaverða og djúpa þroskaleið. Torben brennur fyrir framþróun manneskjunnar og vill leggja sitt af mörkum á því sviði, meðal annars í gegnum fyrirtækið Conscious Consulting, sem hann rekur ásamt fleirum og er með starfsstöðvar í Danmörku og á Íslandi. Í þættinum ræðum við sögu Torbens
Dr. Catherine Carr
Dr. Catherine Carr Apr 9, 2025 3868 Nú er komið að sjónarhorni handleiðslumeistara og reynslubolta í þjálfun teymisþjálfara sem og í teymisþjálfun, og það er engin önnur en Dr. Catherine Carr. Ég var svo heppinn að kynnast henni í teymisþjálfunarnámi sem ég var í fyrir nokkrum árum og fékk að velja hana sem handleiðara í því námi. Það hélt áfram eftir námið en ekki nóg með það heldur var ég (og nemendurnir 😀) svo ljómandi heppinn að
Thor Ólafsson
Thor Ólafsson Feb 11, 2025 6702 Í þessum fimmta þætti ræði ég við Thor Ólafsson um teymisþjálfun út frá sjónarhóli leiðtogaþjálfunar. Thor er sannkallaður reynslubolti, með áratuga reynslu af leiðtogaþjálfun á efstu stigum, bæði hérlendis og erlendis. Fyrirtæki hans, Strategic Leaders, starfrækir í dag skrifstofur í þremur löndum. Ég sá fyrst til Thors árið 2014 þegar hann hélt erindi um Innri Áttavitann, og í þessum þætti fáum
Guðrún Aðalsteinsdóttir
Guðrún Aðalsteinsdóttir Jan 26, 2025 5757 Nú er komið að sjónarhorni leiðtogans á teymi og teymisþjálfun og það er hún Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, sem spjallar við mig um sína vegferð, leiðtogahlutverk og teymispælingar. Guðrún hefur spilað allskonar hlutverk, bæði hérlendis og erlendis og því sérlega ánægjulegt að fá hana í þáttinn.
Daði Ingólfsson
Daði Ingólfsson Dec 12, 2024 5118 Í þessum þætti beini ég sjónum okkar að þjálfun hugbúnaðarteyma og fæ til mín sérfræðing í þeim efnum, Daða Ingólfsson, sem starfar sem teymisþjálfari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Kolibri. Hann hefur gríðarlega reynslu í þessum efnum og á stóran þátt í útbreiðslu á þekkingu og nýtingu á Agile hugmyndafræðinni hér á landi ásamt Pétri Orra Sæmundsen og fleirum, ekki síst í gegnum ráðstefnuna Agile Ísla
Gestur Pálmason
Gestur Pálmason Dec 2, 2024 5130 Í þessum þætti ræði ég við Gest Pálmason sem starfar sem teymisþjálfari og stjórnendamarkþjálfi hjá fyrirtækinu Complete Coherence. Hann vinnur að stórum hluta erlendis og hefur frá ýmsu fróðlegu að segja, bæði er varðar teymisþjálfun en einnig frá reynslu sinni áður en teymisþjálfunin fór á fullt skrið.
Kristrún Anna Konráðsdóttir
Kristrún Anna Konráðsdóttir Nov 25, 2024 4843 Í þessum fyrsta þætti ræði ég við Kristrúnu Önnu Konráðsdóttur sem er sjálfstætt starfandi teymisþjálfari. Hún hefur heldur betur verið að viða að sér þekkingu og reynslu undanfarin misseri og er á fleygiferð í faginu. Það er því sannarlega gleðiefni að fá hana í þáttinn að deila sögu sinni, reynslu og hugmyndum um teymi og teymisþjálfun, og af hverju hún er í þessu fagi í dag.

Recommended