Home Podcasts Sjöan
Sjöan

Sjöan

Sjöan 1 Episodes Oct 19, 2026

Sjöan er íslenskt fótboltahlaðvarp Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Harðar Snævars Jónssonar. Jóhann Berg er fyrrum landsliðsmaður Íslands með yfir 100 A-leiki og hefur spilað meðal annars með AZ, Charlton og Burnley, en Hörður Snævar er ritstjóri 433.is og þekktur umræðumaður í íslenskum fótbolta. Þeir fara saman yfir helstu deildir Evrópu auk deilda sem oft gleymast, og fá íslenska atvinnumenn til að útskýra sína deild, daglegt líf og það sem gerist á og utan vallar. Þegar við á er stutt stopp heima þar sem Besta deildin og landsliðið eru rædd. Nafnið kemur frá númerinu 7 sem Jóhann Berg hefur borið í áratug, og nýr þáttur kemur vikulega á Spotify, Apple Podcasts og YouTube.

Episodes

Sjöan - Alfreð Finnboga gestur - Toddi gat ráðið Freysa
Sjöan - Alfreð Finnboga gestur - Toddi gat ráðið Freysa Oct 19, 2026 01:01:22 Alfreð Finnbogason er fyrsti gestur Sjöunnar, hann fer ítarlega yfir málin. Þá er farið yfir enska boltann og aðeins kíkt í þá Bestu.Sjöan er í boði Lengjunnar, Peroni 0,0 prósent og Númereitt.is
Sjöan - Er í lagi að landsliðsmenn helli í sig?
Sjöan - Er í lagi að landsliðsmenn helli í sig? Oct 12, 2026 01:08:01 Íslenskir landsliðsmenn gómaðir á barnum, Manchester City og stóri dómur JBG yfir því máli. AskBigBerg og fleira gott í þessum öðrum þætti af Sjöunni.
Sjöan - Skórnir á hilluna
Sjöan - Skórnir á hilluna Oct 8, 2026 00:59:16 Fyrsti þáttur af Sjöunni - Jóhann Berg Guðmundsson hefur lagt skóna á hilluna. Jóhann mun í vetur fræða íslenskt knattspyrnuáhugafólk um leikinn sem allir elska. 102 landsleikir, spilaði á Íslandi, Hollandi, Englandi og í sandinum.

Recommended