Home Podcasts Um víðan völl
Um víðan völl

Um víðan völl

Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson 1 episodes Oct 18, 2026

Hlaðvarpsþáttur í umsjón Sigurðar E. Sigurjónssonar þar sem farið er um víðan völl. Í hverjum þætti er rætt um margvísleg málefni, allt frá samfélagsmálum til menningar og daglegs lífs. Sigurður leiðir umræðurnar og tekur á móti gestum til að varpa ljósi á ólík sjónarmið.

Episodes

Strand Persier - 2. þáttur
Strand Persier - 2. þáttur Oct 18, 2026 01:08:42 Í þættinum held ég áfram umfjöllun minni um strand Persier á Mýrdalssandi árið 1941. Í þættinum verður m.a. til umfjöllunar frásögn skipstjóra Persier sem og upphafið á þeim miklu deilum sem urðu vegna járnsins sem fleygt var frá borði á strandstað.
Strand Persier - 1. þáttur
Strand Persier - 1. þáttur Oct 8, 2026 59:21 Í þætti dagsins förum við aftur til ársins 1941. Í lok febrúar þetta ár gekk yfir landið mikið óveður sem olli víða miklu tjóni. Í þessu mikla fárviðri strandaði belgíska flutningaskipð Persier á Mýrdalssandi, strandið átti seinna meir eftir að valdamiklum deilum sem enduðu í dómsmáli og brágðabirgðaverkstæði var reist við Hafursey svo eitthvað sé nefnt. Strandið markaði upphafið af lengri og merk
Flugslysið á Mýrdalsjökli - 4. þáttur
Flugslysið á Mýrdalsjökli - 4. þáttur Oct 1, 2026 30:44 Fjórði og síðasti þáttur minn um flugslysið á Mýrdalsjökli byggir fyrst og fremst á samtölum mínum við þá Reyni Ragnarsson og Þóri Kjartansson í Vík. En báðir þekkja þeir söguna af eigin raun.
Flugslysið á Mýrdalsjökli - 3. þáttur
Flugslysið á Mýrdalsjökli - 3. þáttur Sep 24, 2026 39:30 Í þessum þriðja þætti um flugslysið á Mýrdalsjökli förum við frá sjötta áratugi síðustu aldar, þar sem við höfum verið stödd fram að þessu í sögunni, og til ársins 1981 þegar brak flugvélarinnar kom undan jökli. Að lokum verður fjallað um sögu Neptune flugvélanna.
Flugslysið á Mýrdalsjökli - 2. þáttur
Flugslysið á Mýrdalsjökli - 2. þáttur Sep 17, 2026 01:14:58 Í þessum öðrum þætti verður flugslysið á Mýrdalsjökli árið 1953 áfram til umfjöllunar. Þar sem m.a. ferðasögur þeirra Brands Stefánssonar og Ragnars Þorsteinssonar verða til umfjöllunar, en óhætt er að segja að þær varpi skýru ljósi á hversu gríðarlega erfiðar aðstæður voru til leitar á jöklinum.
Flugslysið á Mýrdalsjökli - 1. þáttur
Flugslysið á Mýrdalsjökli - 1. þáttur Sep 10, 2026 01:19:15 Í þessum fyrsta þætti verður til umfjöllunar flugslysið á Mýrdalsjökli í desember árið 1953. Um er að ræða fyrsta þáttinn af fjórum í umfjöllun um þennan sorglega atburð.

Recommended