Home Podcasts Stígamóta hlaðvarpið
Stígamóta hlaðvarpið

Stígamóta hlaðvarpið

Stígamót 6 episodes Nov 9, 2026

Stígamóta hlaðvarpið er fræðsluþáttur um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi, þar sem fjallað er um hvað slíkt ofbeldi er, hverjar afleiðingarnar eru og hvaða bjargráð standa til boða. Viðmælendur eru ráðgjafar Stígamóta og fleiri sem koma að málaflokknum í stuttum þáttum. Þátturinn kynnir einnig þjónustu Stígamóta, sem bjóða öllum ókeypis viðtöl, ráðgjöf fyrir fagfólk, aðstandendur brotaþola og gerendur. Hægt er að panta viðtal í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 562 6868.

Episodes

Um vændi - Sveina endurómar óskir kvenna í vændi
Um vændi - Sveina endurómar óskir kvenna í vændi Nov 9, 2026 30:26 Sveina Hjördís Þorvaldsdóttir segir frá fordómum, jaðarsetningu og óskum um úrræði eftir viðtöl sín við 14 íslenskar konur sem hafa verið í vændi. Ein af fágætum rannsóknum sem hafa verið gerðar um aðstæður fólks í vændi á Íslandi. 
Um vændi - Anna Þóra segir frá afleiðingum vændis
Um vændi - Anna Þóra segir frá afleiðingum vændis Nov 5, 2026 29:33 Anna Þóra, sálfræðingur og ráðgjafi hjá Stígamótum segir frá veruleika þeirra sem koma til Stígamóta til að vinna úr afleiðingum vændis. Hún hefur bæði stýrt sjálfshjálparhópum, veitt ráðgjöf og rannsakað þennan hóp brotaþola sérstaklega. 
Um vændi - Brynhildur fjallar um veruleika kvenna í vændi
Um vændi - Brynhildur fjallar um veruleika kvenna í vændi Nov 2, 2026 50:35 Talskona Stígamóta ræðir við Brynhildi Björnsdóttur sem skrifaði frásagnir íslenskra kvenna í vændi í bókinni „Venjulegar konur". Hlaðvarpið er hluti af fræðsluherferð Stígamóta um skaðsemi vændis og kröfu um að betur sé gert til að tryggja öryggi og aðstoða fólk úr vændi og að þeir sem valdi skaða þurfi að axla ábyrgð. 
Um vændi - viðtal við dómsmálaráðherra
Um vændi - viðtal við dómsmálaráðherra Oct 29, 2026 22:59 Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um hertar refsingar við vændi. Drífa Snædal talskona Stígamóta ræðir við ráðherra um skaðsemi vændis, tengsl við mansal og skipulagða brotastarfsemi og áætlanir hennar til að sporna við því. 
5. Ofbeldismenn
5. Ofbeldismenn Dec 18, 2025 31:43 Talskona Stígamóta ræðir við Hjálmar ráðgjafa hjá Stígamótum um þá sem beita ofbeldi, hvað vitum við um þá, af hverju beita sumir ofbeldi og hvað er hægt að gera í því. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum, þeim sem beita ofbeldi og fleirum.
4. Karlarnir á Stígó
4. Karlarnir á Stígó Dec 3, 2025 16:12 Talskona Stígamóta ræðir viðHjálmar ráðgjafa hjá Stígamótum um karlana sem sækja stuðning til Stígamóta, hvaða stuðning og ráðgjöf er hægt að sækja og hvernig. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum og fleirum.
3. Að mæta til Stígamóta í fyrsta sinn
3. Að mæta til Stígamóta í fyrsta sinn Nov 24, 2025 18:29 Talskona Stígamóta ræðir við Sigrúnu Elsu, sem er brotaþoli sem leitaði ráðgjafar hjá Stígamótum og vinnur nú sjálf sem ráðgjafi, um hvernig það var að taka fyrstu skrefin til Stígamóta. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum og fleirum.  
2. Afleiðingar kynferðis- og kynbundins ofbeldis
2. Afleiðingar kynferðis- og kynbundins ofbeldis Nov 24, 2025 17:14 Talskona Stígamóta ræðir við Önnu Rakel ráðgjafa hjá Stígamótum um helstu afleiðingar kynferðis- og kynbundins ofbeldis, hvernig þær blasa við ráðgjöfum hjá Stígamótum og hvernig er unnið með þær. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum og fleirum.
1. Eru Stígamót fyrir mig?
1. Eru Stígamót fyrir mig? Nov 24, 2025 17:54 Talskona Stígamóta ræðir við Önnu Þóru ráðgjafa hjá Stígamótum um hver sækja stuðning til Stígamóta, hvaða stuðning og ráðgjöf er hægt að sækja og hvernig. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum og fleirum.

Recommended