
Vandað til verka
Vandað til verka fjallar um byggingariðnaðinn, fagmennsku og fólkið sem býr yfir þekkingu og reynslu í greininni. Iðan fræðslusetur stendur að hlaðvarpinu, og Bergþór Ingi Sigurðsson stýrir þáttunum. Þar ræðir hann við fjölbreyttan hóp fólks úr bygginga- og mannvirkjageiranum. Viðræðurnar snúast um verkefni, þróun og það sem skiptir máli í faginu.
Episodes

4. Votrými: Halldór Garðar Björnsson
Bergþór Ingi ræðir við Halldór Garðar Björnsson, meðal annars um votrými og frágang þeirra. Hvar verða algengustu mistökin, hvað getur farið úrskeiðis og hvað þarf að vera passa svo votrými endist?

3. Lífsferilsgreiningar: Lilja Sigurrós Davíðsdóttir og Helga María Adolfsdóttir
Hver er raunverulegur kostnaður bygginga fyrir umhverfið?
Bergþór Ingi ræðir við Lilju Sigurrós Davíðsdóttur og Helgu Maríu Adolfsdóttur um lífsferilsgreiningar, kolefnisspor, efnisval og grænar vottanir. Hvernig nýtum við þessar upplýsingar til að taka betri ákvarðanir og byggja með langtímahagsmuni í huga?

2. Tjón, viðgerðir og endurbætur: Björgvin Stefánsson
Hvað gerir þú fyrstu mínúturnar eftir vatnstjón og hvaða mistök geta gert lítið tjón að stóru?
Bergþór Ingi ræðir við Björgvin Stefánsson um viðbrögð við tjónum, algengustu orsakir vatnstjóna, falinn raka og hvað þarf að hafa í huga þegar tjón verður. Þeir ræða líka hvernig faglegt tjónaviðbragð fer fram og hvað má gera til að fyrirbyggja tjón.

1. Raki og mygla: Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
Viðmælandi þáttarins er Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi Verkvistar. Í þættinum ræða hún og Bergþór Ingi, stjónandi þáttarins, meðal annars um hvað veldur rakavandamálum, hvernig þau hafa áhrif á byggingar og innivist og hvers vegna mikilvægt er að bregðast rétt og tímanlega við.











