Home Podcasts Til skjalanna
Til skjalanna

Til skjalanna

Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands 47 Episodes Aug 27, 2026

Til skjalanna er hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands. Í þáttunum er fjallað um forvitnileg skjöl, sögulega viðburði og nýjar rannsóknir sem byggja á efni safnsins. Farið er yfir hvað Þjóðskjalasafn Íslands er og hvernig gögnin varpa ljósi á íslenska sögu. Hver þáttur tekur fyrir ákveðið efni eða spurningar tengdar skjalasöfnun og rannsóknum.

Episodes

Dularfullt andlát við Draugatjörn
Dularfullt andlát við Draugatjörn Aug 27, 2026 1530 Símon Sverrisson ræðir við Ólaf Valdimar Ómarsson skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um dularfullt andlát Kristmanns Jónssonar árið 1881. Kristmann Jónsson, gullsmiður, fannst látinn við Draugatjörn árið 1881. Hann hafði verið í skemmtiferð á Hellisheiði í byrjun ágústmánaðar. Misvísandi framburður samferðafólks hans og sönnunargögn sem fuku út í veður og vind gera málið allt hið undarlegasta. H
Berklar á Íslandi
Berklar á Íslandi Jul 8, 2026 3233 Helgi Biering ræðir við dr. Erlu Dóris Halldórsdóttur um bók hennar Berklar á Íslandi.Berklaveiki var mikið mein í íslensku samfélagi og var dánartíðni berklasjúklinga hér á landi meðal þeirra hæstu í Evrópu. Veikin lagðist einkum þungt á ungt fólk og voru ungar konur í meirihluta þeirra sem létust af völdum hennar. Í þættinum er farið yfir sögu berkla á Íslandi, afleiðingar veikinnar og baráttuna
Vorráðstefnur Þjóðskjalasafns Íslands
Vorráðstefnur Þjóðskjalasafns Íslands Jun 26, 2026 1177 Árleg vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands fór fram 3. júní síðastliðinn og var það í áttunda sinn sem ráðstefnan var haldin. Í þættinum ræða Heiðar Lind Hansson, fagstjóri gagnaskila og eftirlits og Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður, um tilurð ráðstefnunnar, þróun hennar og fyrri ráðstefnur. Þemu vorráðstefnanna hafa verið fjölbreytt og endurspeglað þau mál sem hafa verið efst á baugi
Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar 1874-1903
Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar 1874-1903 May 6, 2026 2175 Unnar Ingvarsson fagstjóri ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um nýjan vefgagnagrunn um alþingiskosningar á árunum 1874–1903, sem opnaður var þann 1. maí á vef Þjóðskjalasafns Íslands. Þar má finna upplýsingar sem varpa ljósi á kosningar, frambjóðendur og stjórnmálaþróun á fyrstu áratugum íslensks lýðræðis.Í þættinum er fjallað um tilurð gagnagrunnsins, hvaða heimildir liggja honum að baki og
Strand spítalaskipsins Sankti Páls á Meðallandsfjörum árið 1899
Strand spítalaskipsins Sankti Páls á Meðallandsfjörum árið 1899 Mar 30, 2026 1895 Í þessum þætti ræðir Símon Sverrisson við Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur sagnfræðing og verkefnastjóra heimildaútgáfu á Þjóðskjalasafni Íslands um strand franska spítalaskipsins Sankti Páls.Sankti Páll var með glæsilegri skipum sem komu á Íslandsmið en það var þrímastra seglskip sem strandaði í sinni þriðju ferð til Íslands árið 1899. Hið fagra skip vakti eðlilega mikla athygli þar sem það lá í fjörunn
Draugaskipið Jamestown
Draugaskipið Jamestown Feb 24, 2026 1711 Símon Sverrisson ræðir við Helga Biering þjóðfræðing og skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um rannsóknir hans á strandi Jamestown árið 1881. Þann 26. júní árið 1881 strandaði seglskipið Jamestown við Hvalsnes á Reykjanesi. Skipið sem var á leið frá Bandaríkjunum til Liverpool á Englandi var fullt af timbri af mismuanndi tegundum svo sem harðvið. Ólukka virtist fylgja skipinu en úti á rúmsjó datt
Vald hinna veiku
Vald hinna veiku Jan 28, 2026 2936 Unnar Ingvarsson fagstjóri á Þjóðskjalasafni ræðir við Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands, um rannsóknir hans á þorskastríðunum og væntanlega bók hans, Vald hinna veiku. Útfærsla efnahagslögsögu Íslands á 20. öld  leiddu iðulega til átaka við Breta, sem mótmæltu þeim áformum harðlega. Deilurnar náðu hámarki þegar kom til átaka á fiskimiðunum sjálfum, þar se
Fröken Dúlla: Ævisaga
Fröken Dúlla: Ævisaga Dec 18, 2025 1882 Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur um nýjustu bók hennar sem nefnist Fröken Dúlla: Ævisaga. Í bókinni fer Kristín Svava yfir ævi og störf Jóhönnu Knudsen hjúkrunar- og lögreglukonu sem þekktust er fyrir vinnu sína fyrir lögreglu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.Kristín Svava segir í viðtalinu meðal annars frá heimildaöflun, vinnslu og aðdraganda bókarinnar. 
38 ár í Þjóðskjalasafni
38 ár í Þjóðskjalasafni Dec 11, 2025 2537 Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ræðir við Kristjönu Kristinsdóttur skjalavörð, fyrrum sviðsstjóra í Þjóðskjalasafni og fyrrum lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands. Kristjana hefur unnið á Þjóðskjalasafni Íslands frá árinu 1988 en mun í lok árs láta af störfum. Í þessum þætti ræðir Kristjana um það hvernig hún fór að vinna við skjalavörslu, viðhorf til skjalavörslu og hvað breyst hef
Vinnukona, ómagi, stúlka og frú
Vinnukona, ómagi, stúlka og frú Oct 30, 2025 3212 Helgi Biering ræðir við sagnfræðinginn Atla Björn Jóhannesson um MA-ritgerð hans, Vinnukona, ómagi, stúlka og frú. Ritgerðin fjallar um konur sem skrifuðu undir áskorun Hins íslenska kvenfélags árið 1895 - fyrstu skipulögðu kvenréttindakröfuna á Íslandi á landsvísu. Konur úr öllum stéttum tóku þátt. Þátttakan var misjöfn eftir landshlutum og fór eftir einstaklingsframtaki á hverjum stað. Þátturinn
Minja- og sögufélag Grindavíkur. Að varðveita sögu og menningu.
Minja- og sögufélag Grindavíkur. Að varðveita sögu og menningu. Jun 3, 2025 2572 Í þessum þætti ræðir Helgi Biering við Hall Jónas Gunnarsson, eina af driffjöðrum Minja- og sögufélags Grindavíkur. Farið er yfir upphaf félagsins, hið mikilvæga starf við söfnun, skráningu og miðlun heimilda og minja. 
Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna
Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna Apr 28, 2025 2592 Helgi Biering ræðir við Þórunni Marel Þorsteinsdóttur sagnfræðing um rannsókn hennar á lausamennsku. Þórunn skrifaði BA ritgerð sem heitir Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna: Afbrot og siðferði á Akureyri 1810 – 1840. Eftir að einokunarverslun lauk og kaupstaðir tóku að myndast á Íslandi í upphafi 19. aldar, hófst þéttbýlismyndun þar sem atvinnuleit dró fólk að verslunarstöðunum.  Þó

Recommended