Kaffitíminn með ASÍ-UNG er vettvangur þar sem fjallað er um málefni íslensks vinnumarkaðar út frá sjónarhóli ungs fólks. Tekið er á réttindum, skyldum, stéttarfélögum og samfélagsmálum sem snerta ungt fólk á vinnumarkaði í dag. Þátturinn veitir innsýn bak við tjöldin í verkalýðshreyfingunni, fjallar um mál líðandi stundar og fær góða gesti í heimsókn. Markmiðið er að setja flókin mál vinnuréttarins fram á léttan og skemmtilegan hátt. Þátturinn er bæði fræðandi og aðgengilegur.
Episodes

Afhverju er svona dýrt að vera ungur?
Launin hækka, en afhverju finnst okkur við samt ekkert eiga meira eftir um mánaðarmót? Í þessum þætti af Kaffitímanum með ASÍ-UNG fáum við Róbert Farestveit, hagfræðing á skrifstofu ASÍ, í spjall til að ræða fjárhagslega stöðu ungs fólks og reyna að gera efnahagsumræðuna aðeins skiljanlegri. Við ræðum meðal annars um kaupmátt, verðbólgu og hvers vegna opinberar tölur um stöðu heimilanna endurspegl

Kaffisopi með forsetaframbjóðanda: Georg Páll Skúlason
Kaffitíminn með ASÍ-UNG – Forsetaframboð: Georg Páll SkúlasonFramundan er þing Alþýðusambands Íslands þar sem meðal annars verður kosinn nýr forseti sambandsins.Af því tilefni fáum við forsetaframbjóðendurna í Kaffitímann með ASÍ-UNG til að kynnast þeim betur og heyra þeirra sýn á framtíð verkalýðshreyfingarinnar.Í þessum þætti ræðum við við Georg Pál Skúlason um ástæður framboðsins, hvað þurfi að

Kaffisopi með forsetaframbjóðanda: Arnaldur Grétarsson
Kaffitíminn með ASÍ-UNG – Forsetaframboð: Arnaldur GrétarssonFramundan er þing Alþýðusambands Íslands þar sem meðal annars verður kosinn nýr forseti sambandsins.Af því tilefni fáum við forsetaframbjóðendurna í Kaffitímann með ASÍ-UNG til að kynnast þeim betur og heyra þeirra sýn á framtíð verkalýðshreyfingarinnar.Í þessum þætti ræðum við við Arnald Grétarsson um ástæður framboðsins, hvað þurfi að

Fjórði sopinn - fræðslu- og tengsladagar
Í þessum þætti fara Elsa og Svanfríður yfir síðasta viðburð ASÍ-UNG sem haldinn var dagana 19. - 20. mars.Þær ræða húsnæðismál, menntamál, leikskólamál, barneignir og fleira

Þriðji sopinn - leikskólamál
Í þessum þætti ræðum við leikskólamál og umræðuna sem hefur verið í fjölmiðlum. Skemmtileg og lifandi umræða

Annar sopinn - réttindi, skyldur og stéttarfélög
Í þessum þætti ætlum við að spjalla um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og fara aðeins yfir stéttarfélögin og hlutverk þeirra

Fyrsti sopinn - hver, til hvers og afhverju?
Í þessum fyrsta þætti af Kaffitímanum með ASÍ-UNG förum við aðeins yfir það hver við erum, hvaðan við komum og hvert við ætlum að stefna












