Home Podcasts Temjum tæknina
Temjum tæknina

Temjum tæknina

Háskólinn á Akureyri 21 Episodes Jun 10, 2026

Temjum tæknina er hlaðvarp um gervigreind og áhrif hennar á fólk og samfélag. Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri við Háskólann á Akureyri, tekur á móti gestum og ræðir tækni, spunagreind, sjálfvirkni og afleiðingar tæknibyltinga í daglegu lífi. Gestirnir koma úr ólíkum áttum, allt frá sérfræðingum til þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref í tækninni. Áherslan er á mannlegar sögur, tengsl tækni við samfélagið og áhrif hennar á ólíkar greinar.

Episodes

#S2-10 Eyjólfur Guðmundsson - Hvað setur þú í magnarann?
#S2-10 Eyjólfur Guðmundsson - Hvað setur þú í magnarann? Jun 10, 2026 5418 Samtal við Eyjólf Guðmundsson — fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, deildarforseta við Landbúnaðarháskóla Íslands og fyrrverandi hagfræðing hjá CCP (EVE Online). Gervigreindin sem magnari, LLM eins og Minecraft, fatan sem hver kynslóð fyllir, velviljaða búrið og fullveldi yfir eigin gögnum — og af hverju þetta snýst um stjórnarhætti, ekki tækni.
#S2-09 Pietro Segreto - Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin?
#S2-09 Pietro Segreto - Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin? Jun 10, 2026 5093 Íslenska: Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin? Ég ræði við Pietro Segreto, ítalskan doktorsnema sem rannsakar gervigreind í útgáfu, um hvers vegna útgefendur eru í kjarnann hliðverðir þekkingar, hvernig þeir færast frá því að selja bækur yfir í að selja þjónustu byggða á gögnum sínum, og af hverju gögn — ekki líkönin sjálf — eru raunverulega verðmætið. Samtal um sköpun, sj
#S2-08 Guðmundur Smári Gunnarsson - Valhöll range-boltanna: Dans, golf, gervigreind og einlendu tegundirnar
#S2-08 Guðmundur Smári Gunnarsson - Valhöll range-boltanna: Dans, golf, gervigreind og einlendu tegundirnar May 22, 2026 4916 Í þessum þætti mætir Guðmundur Smári Gunnarsson. Við ræðum hvernig flókin mannleg færni mótast í taugakerfinu og hvernig líkamsvitund nýtist jafnt í dansi, flugveiði og golfi. Magnús deilir tilraun sinni þar sem hann notar gervigreind til að greina Trackman-gögn og hreyfimyndbönd til að endurbyggja golfsveifluna. Saman velta þeir upp „prompt-prófi“ Guðmundar um einlendu dýrin á Íslandi, „2026-stim
#S2-07 Dr. Sigrún Stefánsdóttir - Hvað á frystihúsvinna á Akureyri sameiginlegt með framrás gervigreindar?
#S2-07 Dr. Sigrún Stefánsdóttir - Hvað á frystihúsvinna á Akureyri sameiginlegt með framrás gervigreindar? Mar 10, 2026 2298 Í þessum þætti fær Magnús Smári til sín dr. Sigrúnu Stefánsdóttur, fjölmiðlafræðing og fyrrum dagskrárstjóra RÚV. Þau ræða þróun fjölmiðla, stöðu íslenskrar tungu og hvernig gervigreindin breytir námi og fréttamennsku. Sigrún deilir athyglisverðri tilraun þar sem nemendur kepptu við tæknina og veltir því upp hvort við séum að ræna ungt fólk dýrmætri lífsreynslu. Samtal um dýpt, gagnrýna hugsun og
#S2-06 Smári Sigurðsson - "Við erum búin að hlaða múra í kringum okkur."
#S2-06 Smári Sigurðsson - "Við erum búin að hlaða múra í kringum okkur." Dec 15, 2025 8309 Í þessum þætti er gestur minn Smári Sigurðsson, múrarameistari og faðir minn. Saman ræðum við breytta tíma, frá uppvexti í sveit og vinnu við Laxárvirkjun yfir í tækniöldina sem við lifum í dag. Smári hefur haldið sig fjarri tölvum og snjallsímum stærstan hluta ævinnar og hefur einstaka sýn á hvernig tæknin hefur breytt samskiptum okkar – eða eins og hann segir: „Við erum búin að hlaða múra í krin
#S2-05 Lilja Dögg Jónsdóttir - Hvernig lifir lítið tungumál af á öld gervigreindar?
#S2-05 Lilja Dögg Jónsdóttir - Hvernig lifir lítið tungumál af á öld gervigreindar? Dec 10, 2025 2735 Í þessum þætti af ræðir Magnús Smári við Lilju Dögg Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Almannaróms, miðstöðvar um máltækni á Íslandi. Samtalið er ferðalag um fortíð, nútíð og framtíð íslenskunnar í stafrænum heimi. Lilja rekur sögulega baráttu þjóðarinnar fyrir íslenskum stöfum á lyklaborðum, útskýrir þá brýnu þörf sem er á íslenskum þjálfunargögnum fyrir gervigreind og lýsir þeim metnaðarfullu verkefnu
#S2-04 Sálin í vélinni: Samtal við Roberto Buccola & Giorgio Baruchello
#S2-04 Sálin í vélinni: Samtal við Roberto Buccola & Giorgio Baruchello Dec 1, 2025 4695 Hver er sál tækninnar? Í þessum enska þætti ræðir Magnús Smári við ítölsku hugsuðina Dr. Roberto Buccola og prófessor Giorgio Baruchello. Í stað tæknilegrar umræðu er gervigreind krufin með tækjum sálgreiningar, goðafræði og heimspeki. Eru reikniritin nýir guðir og gervigreindin nútíma gullgerðarlist?
#S2-03 Sigurður Óli Árnason - Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind?
#S2-03 Sigurður Óli Árnason - Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind? Nov 6, 2025 5508 Í þessum þætti af "Temjum tæknina" sest Magnús Smári niður með Sigurði Óla, vöruþróunarstjóra hjá Datalab, og þeir rýna í eina af stærstu spurningum samtímans: Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind? Í hlaðvarpinu er m.a. fjallað um muninn á "gamaldags" spálíkönum og nýrri spunagreind/skapandi-gervigreind á borð við ChatGPT. Sigurður deilir hagnýtri reynslu sinni af því að hanna lau
#S2-02 Pia Susanna Sigurlína Viinikka - Sönnunardrifin nálgun og ný aðferðafræði
#S2-02 Pia Susanna Sigurlína Viinikka - Sönnunardrifin nálgun og ný aðferðafræði Oct 17, 2025 3915 Sérstakur þáttur" af Temjum tæknina, þar sem óljóst er hvor sé gestur eða hlaðvarpsstjórnandi, en Pia Sigurlína langaði að ræða við Magnús um Scite sem nemendur og starfsmenn HA hafa aðgang að í tilefni að Open Access. Sagt verður frá hvers vegna Scite.ai varð fyrir valinu og hvernig innleiðingin gengur. Hvaða hlutverk bókasafnið hefur í ferlinu? Einnig verður rætt um hvað sönnunardrifin nálgun er
#S2-01 Pétur Maack Þorsteinsson - Getur spjallmenni komið í stað sálfræðings?
#S2-01 Pétur Maack Þorsteinsson - Getur spjallmenni komið í stað sálfræðings? Oct 15, 2025 7075 Getur spjallmenni komið í stað sálfræðings? Og hvaða ábyrgð berum við á tímum þar sem tæknin býður upp á skjótar lausnir við flóknum mannlegum vanda? Pétur Maack Þorsteinsson sálfræðingur fer yfir mörkin milli manns og vélar og veltir upp spurningunni um hvað raunverulega skiptir máli þegar fólk þarf á stuðningi að halda.
#S1-09 Sverrir Bergmann
#S1-09 Sverrir Bergmann Sep 11, 2025 3740 Í þessum þætti af „Temjum tæknina“ ræðir Magnús Smári Smárason við Sverri Bergmann Magnússon, nýútskrifaðan viðskiptafræðing frá Háskólanum á Akureyri og bæjarfulltrúa. Við byrjum að ræða um meistararitgerð Sverris þar sem hann rannsakaði áhrif síaukinnar stafrænnar tengingar á mörk vinnu og einkalífs hjá sveitarstjórnarfólki. Þaðan þróast umræðan yfir í víðtækar áskoranir nútímans, svo sem stöðug
#S1-08 Tolli og Dr. Auðbjörg Björnsdóttir
#S1-08 Tolli og Dr. Auðbjörg Björnsdóttir May 20, 2025 2925 Í þessum þætti af Temjum tæknina ræðir Magnús Smári við listamanninn Tolla og Dr. Auðbjörgu Björnsdóttur um áhrif gervigreindar á sköpun, menntun og manneskjuna. Samtal þeirra snýst um jafnvægi, innri ró og hvernig við getum nýtt tæknina á mannúðlegan og skapandi hátt.

Recommended