
Kveikur
Kveikur er hljóðvarpsútgáfa fréttaskýringaþáttar RÚV þar sem lögð er áhersla á rannsóknarblaðamennsku og ítarlegar fréttaskýringar. Í þættinum eru málefni líðandi stundar krufin til mergjar með viðtölum, greiningu og bakgrunni frétta. Sérstök áhersla er á að varpa ljósi á málefni sem varða íslenskt samfélag og stjórnmál. Þátturinn er hluti af hlaðvarpsframboði RÚV og er einnig sendur út í útvarpi.
Episodes

Risinn á barnum
Hver ræður því hvað er í glasinu þínu? Keppinautar Ölgerðarinnar segjast útilokaðir frá viðskiptum við bari, veitingastaði, útihátíðir og jafnvel nemendafélög því samningar við Ölgerðina standi í veginum. Kveikur skoðar samninga og samskipti sem varpa ljósi á það hvernig einn risi getur mótað heilan markað. Ölgerðin hafnar því að útiloka keppinauta.Ritstjórn og dagskrárgerð: Jóhann Bjarni Kolbeins

Lyfjaþoka á hjúkrunarheimili
Rúmur þriðjungur íbúa íslenskra hjúkrunarheimila fékk sterk geðlyf í fyrra, í mörgum tilvikum án greiningar á geðsjúkdómi. Aðstandendur lýsa ástvinum sem urðu svo sljóvgaðir að þeir héldu að um alvarleg veikindi væri að ræða.Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Árni Þór TheódórssonHlaðvarpsritstjórn: Anna Marsibil Clausen. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information











