Rokkland er músík-magasín í útvarpi sem fjallar um tónlist líðandi stundar, segir sögur af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallar við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson.
Episodes

Karnival ljóssins og útvarpshjartað
U2 og Kevin Cole í Rokklandi vikunnar!
Í fyrri hluta þáttarins förum við lag fyrir lag í gegnum nýju plötu U2, Carnaval de Luz – fyrstu stóru plötu sveitarinnar í níu ár. Við hlustum á öll lög plötunnar og skoðum sögurnar á bak við þau, textana. Karnival ljóssins, Rosalía, trúin, frelsið, vonin, vináttan og óttinn við myrkrið. Hvað er U2 að segja okkur eftir 50 ára samveru? Eiga þeir enn erindi v

3toOne - Agent Fresco á Airwaves - Kevin Cole og Manowar
Það er tutti frutti í Rokklandi vikunnar!
Brynjólfur Þór Guðmundsson frétta&þungarokksmaður spjallar við Joey DeMaio stofnanda og bassaleikara bandarísku þungarokksveitarinnar MANOWAR sem spilar á Íslandi í desember.
Við heyrum spjall við hljómsveitina 3ToOne sem byrjaði á plötu fyrir 30 árum sem var að koma út núna. 3toOne er súpergrúppa: Sigurður Gröndal, Ingólfur Guðjónsson sem voru í Rikshaw

Iceland Airwaves 1999-2026
Rokkland vikunnar er einskonar upphitun fyrir Iceland Airwaves 2026 – og upprifjun. Rokkland hefur verið á Airwaves á hverju ári frá árinu 2000 og við rifjum upp eitt og annað. Meðal þeirra sem koma við sögu eru Árni Matthíasson, Grímur Atlason, Sinéad O'Connor, Of Monsters and Men, Kevin Cole, John Lydon, Dhani Harrison, Thorunn Antonia Magnusdottir, Hilmar Örn Agnarsson, Magnus Thor, Dóri Braga,

Drottningin af Færeyjum - þungarokk og Metallica
Rokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á föstudagsamorguninn heimsótti hún Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið – sagði frá nýju plötunni sem hún segir að sé einskonar afturhvarf til Færeyja, og svo spilaði hún 2 lög af plötunni á kas

Færeyjar - Hafnarfjörður - Akranes
Í Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi.
Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á Iceland Airwaves, var að senda frá sér nýja plötu sem heitir Sýrublað (Hundasúra) og hún ætlar að spila á 9 tónleikum hringinn í kringum Íslandi dagana 20. - 29. október.
Við förum Þaðan til

Stríð og friður
Það er friðarvika í Reykjavík þessa dagana – 40 ár frá fundi Reagan og Gorbachov í Reykjavík - Friðarsúlan í Viðey var tendruð á föstudaginn á afmælisdegi Lennons og stríð og friður er rauði þráðurinn í þessum þætti í dag.
Séra Hildur Eir segir nokkur orð -
Við minnumst leiðtogafundarins í Höfða 1986
Tölum um kjarnorkuvopn
Ræðum við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í Viðey
Yoko Ono talar ujm fr

Á Móti Sól í 30 ár
Hljómsveitin Á Móti Sól á 30 ára afmæli um þessar mundir og tekur yfir Rokkland vikunnar.
Hljómsveitin var upphaflega stofnuð af vinunum bassaleikaranum Þóri og hljóðborðsleikaranum Heimi og tilgangurinn var að spila á böllum.
Á Móti Sól hefur gefið út talsvert af sínum eigin lögum og spilað um allt land í 30 ár. Þeir komu í Rokkland í std. 12 í Útvarpshúsið - sögðu sögur og spiluðu vel valin lög.

U2 50
U2 er 50 ára – föstudaginn 25. september voru liðin 50 ár – HÁLF ÖLD síðan Larry Mullen 14 ára og nokkrir aðrir strákar – 15 og 16 ára í Mount Temple Comprehensive School í norður-Dublin hittust í eldhúsinu heima hjá Larry og U2 varð til. Öllum þessum árum síðar eru sömu fjórir strákarnir í þessari hljómsveit. U2 er langlífasta hljómsveit heims með sömu liðsskipan. Það eitt er virðingavert. Það Þa

Hörður Torfason
Tónlistarmaðurinn - leikarinn og leikstjórinn Hörður Torfason er gestur Rokklands vikunnar. Hann mætti í std. 12 í vikunni sem leið - við spjölluðum saman og hann spilaði nokkur lög.
Við ræðum í þættinum um ástina - gamlar kærustur - búsáhaldabyltinguna - stofnun samtakanna 78 - foreldra og margt fleira. Hörður sem er fæddur árið 1945 hefur ekki mikið verið að halda tónleika undanfarið en brást ve

Rokkland mælir með / Deus kemur / Oasis í bíó
Rokkland mælir með: september 2026
Belgíska hljómsveitin Deus kemur til landsins og spilar í Austurbæ - rifjum upp viðtal við Tom Barman úr DEUS frá 2006 þegar sveitin kom síðast til Íslands.
Oasis - tölum um myndina Don´t look back in anger sem er verið að sýna í bíó um allan heim þessa dagana - líka á Íslandi.

Magnús Jóhann
Magnús Jóhann lenti í þriðja sæti í Músíktilraunum fyrir áratug og síðan hefur hann gert ansi margt.
Hann er búinn að spila inn á ótal plötur með hinum og þessum – stjórna upptökum á plötum hjá Flóna og Bubba Morthens - spila oftar en 30 sinnum í Gísla Marteini með allskonar fólki – gefa út margar plötur – þar af tvær með GDRN – spila með Stuðmönnum og Moses Hightower - gera tónleika með Sinfóníu

Liverpool
Rokkland með Hljómum og The Beatles í Liverpool.











