Home Podcasts Fram og til baka
Fram og til baka

Fram og til baka

RÚV 96 Episodes Oct 17, 2026

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi ásamt hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður og fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu. Að því loknu fær hann góða gesti í Fimmuna, þar sem þeir segja frá fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra. Um er að ræða dagskrá í umsjón Felix Bergssonar í hlaðvarpsformi.

Episodes

Katla Margrét Þorgeirsdóttir stórleikkona
Katla Margrét Þorgeirsdóttir stórleikkona Oct 17, 2026 1:57:00 Ein vinsælasta leikkona landsins, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, fer á kostum þessa dagana í verki Maríu Reyndal, Svikasögum. Katla Margrét kom í Fimmu til Felix og sagði af fimm lögum sem hafa fylgt henni í gegnum lífið. Þar mátti heyra bossanova og sænska baráttusöngva og svo auðvitað Katrínu Halldóru í hlutverki Ellýjar.
Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur
Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur Oct 10, 2026 1:57:00 Gestur dagsins í fimmunni, Eva Rún Þorgeirsdóttir, fékk á dögunum verðlaun kennd við Guðrúnu Helgadóttur fyrir nýja barnabók, Bestu vinir, sem hún skrifaði með Blævi Guðmundsdóttur. Í umsögn dómnefndar kemur fram að sagan sé vel skrifuð á góðu máli sem hæfi aldri væntanlegra lesenda. Sögupersónur séu vel skapaðar og sagan bæði spennandi og skemmtileg. Eva Rún hefur líka unnið á fjölmiðlum, m.a. í
Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar
Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar Oct 3, 2026 1:57:00 glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson hefur náð frábærum árangri heima og heiman og selt ótrúlegan fjölda af bókum. Þessum ferli hafa fylgt ferðalög og Ragnar segir hlustendum Fram og til baka af fimm löndum sem hafa haft áhrif á hann og líf hans. Þar kennir sannarlega margra grasa þegar við förum frá Bútan til Seychelles eyja með viðkomu í heimalandi Agöthu Christie Í síðari hlutanum hyllum við a
Adda Baldurs knattspyrnuhetja
Adda Baldurs knattspyrnuhetja Sep 26, 2026 1:57:00 Fimma dagsins er frá Öddu Baldursdóttur knattspyrnukonu og sérfræðingi sem segir okkur af fimm leikjum sem breyttu lífinu. Og þeir leikir eru sannarlega af ýmsum toga, allt frá erfiðu tapi yfir í leiki sem færðu liðinu Íslandsmeistaratitil. Svo tölum við líka um allt hitt, fjölskyldulífið og fötluð börn. Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður það sem gerðist á deginum
Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur
Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur Sep 19, 2026 1:57:00 Þættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu merkilega safni. Gunnar Tómas var gestur Felix í Fimmunni að þessu sinni og talaði auðvitað um fimm kvikmyndir en spjallið fór um víðan völl að vanda.
Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin
Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin Sep 12, 2026 1:57:00 Uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar pælingar um lífið og tilveruna og hún var gestur Felix í Fimmunni. Hún talaði um fimm uppistönd sem breyttu lífinu og þar kenndi sannarlega margra grasa, allt frá fyrsta uppistandinu í London sem reyndist mikið frægðarför yfir í versta uppistand allra tíma í matsalnum í Borgarholtsskóla. Í síðari hlutanum fjallaði Felix
Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins
Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins Sep 5, 2026 1:57:00 Bergur Ebbi Benediktsson hefur sent frá sér nýja bók um Öld ímyndunaraflsins og hann kom í Fimmu hjá Felix og ræddi fimm tölvur sem höfðu áhrif á líf hans og fjölskyldunnar. Spjallið fór eins og vera ber um víðan völl og við sögu komu ýmis ævintýri á magnaðri ævi. Í síðari hlutanum minntist umsjónarmaður látinna snillinga, Dolly Parton, Tim Curry og Freddy Mercury en hann hefði orðið áttræður í d
10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST
10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST Aug 29, 2026 1:57:00 Þennan laugardaginn í Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín þá Snorra Þór Stefánsson og Hauk Örn Brink sem saman skipa dúettinn HAUSST, en þeir gáfu út sitt fyrsta lag nú á dögunum. Við ræddum við þá um tilkomu samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum. Þá fengu umsjónarmenn þáttarins líka góða heimsókn frá þeim Söru Rut Arnardóttur og Stefáni Gunnlaugi Jónssyni frá Improv
Tónaflóð og enski boltinn
Tónaflóð og enski boltinn Aug 22, 2026 1:57:00 Í þessum þætti af Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín sparkspekingana Kjartan Atla Kjartansson og Kristjönu Arnarsdóttur til að ræða enska boltann sem fór af stað um helgina. Svo er Menningarnótt haldin hátíðleg um helgina og Tónaflóð, tónleikar Rásar 2, verða á sínum stað á Arnarhóli. Þar kemur fram úrvalslið tónlistarmanna, þar á meðal JóiPé og Króli, sem kíktu í stúdíó til Nönnu
Töðugjöld á Hellu og hátíðir um land allt
Töðugjöld á Hellu og hátíðir um land allt Aug 15, 2026 3:17:00 Fram og til baka tyllti niður fæti á Töðugjöldum á Hellum í þætti dagsins en Felix hitti gesti og gangandi í Íþróttahúsinu þar sem samfélaginu var boðið í morgunmat í tilefni af hátíðinni. Hafdís Sigurðardóttir Söring og Eiríkur V Sigurðsson settust hjá honum í spjall. Við heyrðum líka í Unni Birnu Bassadóttur sem tekur þátt í Blómstrandi dögum í Hveragerði og Nanna Guðrún hringdi í Kára Viðarsson
Hinsegin gleði, Leikur einn og Hvanneyrarhátíð
Hinsegin gleði, Leikur einn og Hvanneyrarhátíð Aug 8, 2026 3:17:00 Hinsegin dagar ná hápunkti um helgina og settu sinn svip á lagavalið í þætti dagsins hjá Felix og Nönnu. Í tilefni hátíðarinnar fengu þau til sín tónlistarmanninn Torfa sem ætlar einmitt að koma fram á Pride balli í Gamla bíó í kvöld ásamt Páli Óskari, Álfgrími og fleiri góðum gestum. Þá leit uppistandarinn og fræðarinn Sóley Kristjánsdóttir einnig við og ræddi við þau um ferilinn og spennandi ver
Neistaflug, Innipúkinn og Unglingalandsmót UMFÍ
Neistaflug, Innipúkinn og Unglingalandsmót UMFÍ Aug 1, 2026 3:17:00 Verslunarmannahelgin og íslensk tónlist var í hávegum höfð hjá þeim Felix og Nönnu í þætti dagsins. Þau slógu á þráðinn hjá Maríu Bóel Guðmundsdóttur sem er stödd í Neskaupsstað þar sem Neistaflug fer fram um helgina. Þá fengu þau til sín þau Kolbrúnu Óskarsdóttur og Hrannar Mána Ólafsson, Kusk og Óvita, í hljóðver en þau ætla að koma fram á Innipúkanum í kvöld. Þar verður líka Unnsteinn Manúel

Recommended