Home Podcasts Samhengið með Sif
Samhengið með Sif

Samhengið með Sif

samhengidmedsif 34 episodes Nov 19, 2026

Sif Sigmarsdóttir, samfélagsrýnir og sagnfræðingur, fer yfir það sem hefur verið hæst í vikunni. Hún setur fréttir og samfélagsmál í sögulegt og félagslegt samhengi. Hver þáttur býður upp á yfirvegaða greiningu á málefnum liðandi stundar. Podcastið er því blanda af fréttaskýringum, sagnfræði og samfélagsrýni.

Episodes

Heimsmeistaramótið í volæði: Smelltu hér til að skrá þig
Heimsmeistaramótið í volæði: Smelltu hér til að skrá þig Nov 19, 2026 5:15 Samtíminn er eins og heimsmeistaramót í volæði. Enginn er maður með mönnum nema á honum sé troðið. Þegar kveikt er á fréttum virðist sem við höfum aldrei átt jafnbágt. Vogi einhver sér að halda öðru fram er viðkomandi vanalega sakaður um illsku, heimsku eða forréttindablindu.
Ótrúleg tilfelli þar sem karlmenn tóku ekki eftir konubrjóstum – Sérð þú þau?
Ótrúleg tilfelli þar sem karlmenn tóku ekki eftir konubrjóstum – Sérð þú þau? Nov 12, 2026 5:21 Fornleifafræðingar við Bournemouth-háskóla á Englandi halda því fram að Verica, keltneskur leiðtogi sem sagður er hafa fengið Rómakeisara til að ráðast inn í Bretland árið 43, hafi verið kona. Í fréttum er fullyrt að gamall kóngur hafi verið drottning. Á Íslandi telur gamall forseti sig hins vegar enn kóng.
Stjörnulífið: „Cosplay“-spilarar og feitar gæsir í banastuði
Stjörnulífið: „Cosplay“-spilarar og feitar gæsir í banastuði Nov 5, 2026 4:17 Í dag eru fimmtíu dagar til jóla. Fyrir utan hús nágranna míns situr beinagrind og les Schopenhauer. Sennilega verður hún sú eina í götunni sem mun upplifa aðventuna með þeim hætti sem við þráum flest.
Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti
Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Oct 29, 2026 4:13 Í síðasta mánuði fór fram á vegum læknadeildar Harvard-háskóla málfundur um offitu. Á fundinum var dregið í efa að offita hefði neikvæð áhrif á heilsu. Þyngdarstjórnunarlyf á borð við Ozempic voru sögð verkfæri heimsvaldasinna og uppáskrift þeirra fasismi.
Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið?
Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Oct 22, 2026 6:26 Eðlisfræðingar halda því fram að alheimurinn fari stækkandi. Í stöðugt stækkandi veröld skapast æ meira svigrúm fyrir ráðgátur.
Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela
Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Oct 15, 2026 5:17 Í vikunni útbjó ég hvatakerfi fyrir sex ára son minn: Ef hann væri duglegur að gera heimavinnuna sína á hverjum degi fram að jólafríi í skólanum fengi hann verðlaun. ÞÚ TRÚR EKKI HVAÐ GERÐIST NÆST.
Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp?
Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Oct 8, 2026 4:35 „Hvers vegna eru Bandaríkjamenn feitir?“ spurði blaðamaðurinn Michael Pollan í metsölubókinni The Omnivore’s Dilemma sem í ár á 20 ára útgáfuafmæli. Samkvæmt Pollan lá svarið ekki aðeins í stórum skammtastærðum og lítilli hreyfingu heldur einnig í landbúnaðarstefnu Richards Nixon.
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Oct 1, 2026 4:25 Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan.
Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið
Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sep 24, 2026 5:51 Kona myrðir eiginmann sinn. Þvínæst skýst hún út í búð til að kaupa kartöflur. Hvað gengur henni til?
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Sep 17, 2026 5:12 Nýjar rannsóknir sýna fylgni milli neyslu omega-3 fæðubótarefna og hraðari hugrænnar hnignunar hjá eldra fólki. Eigum við öll að henda lýsistöflunum okkar í ruslakörfuna?
Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla
Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Sep 10, 2026 5:56 Gjarnan er sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Stundum væri þorpinu hins vegar hollt að hugsa sig tvisvar um áður en það byrjar að ausa af tómum viskubrunni sínum.
Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur?
Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Sep 3, 2026 5:40 Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu …

Recommended