
Stóra myndin
Stóra myndin er íslenskt hlaðvarp sem tengir málefni samtímans við sögu, heimspeki og mannlegt eðli. Þar er fjallað um hringrás sögunnar, ris og fall menningarheima og lærdóm fortíðarinnar. Í þættinum er horft á stóru myndina frekar en að festast í málefnum líðandi stundar. Rætt er um hugsuði og tímabil allt frá Móses til nútímans, svo sem Platón, Cíceró, Rómaveldi, Dante, Machiavelli, Shakespeare og René Girard. Einnig eru teknar fyrir bækur og einstakir hugsuðir.
Episodes

#3 - Brauð og leikar
Er síminn orðinn okkar eigið Colosseum? Brauð og leikar er gamalt hugtak úr Rómaveldi sem á enn erindi við nútímann. Þá voru það kornúthlutanir og stórkostlegir leikar. Hvað gegnir sama hlutverki í dag? Við ræðum hvernig þægindi og afþreying geta haldið fólki uppteknu á meðan stærri spurningar um vald, frelsi og ábyrgð sitja á hakanum. Við tengjum brauð og leika Rómverja við íþróttir, samfélagsmið

#2 - Hermiþrá og René Girard
Hvað er hermiþrá (e. Mimetic Desire)? Hvaðan koma langanir okkar ? Hvað langar þig að langa í?Við ræðum hugmyndir fransk-bandaríska hugsuðarins René Girard um hermiþrá, sem meðal annars fjalla um það hvaðan langanir okkar koma og hvernig þær smitast manna á milli. Af hverju verður leikfang skyndilega spennandi þegar annað barn tekur það upp? Eru nútíma áhrifavaldar að spila á eðli mannsins?Hvernig

#1 - Ekkert nýtt undir sólinni
Geta gamlar sögur hjálpað okkur að skilja nútímann? Hver er drifkraftur sögunnar? Endurtekur sagan sig? Er tíðarandinn lifandi fyrirbæri? Við ræðum gamlar og góðar bókmenntir og skoðum hvað helstu hugsuðir fortíðarinnar höfðu að segja. Hér má til dæmis nefna Biblíuna, Hómer, Platón, Shakespeare, Dostójevskí, Nietzsche, René Girard og sögu Rómaveldis. Við ræðum eðli mannsins og skoðum hvernig það h











