Home Podcasts Kastljós
Kastljós

Kastljós

RÚV 5 Episodes Oct 6, 2026

Kastljós er frétta- og umræðuþáttur RÚV þar sem fjallað er um það sem er efst á baugi hverju sinni. Í þættinum eru teknir fyrir helstu fréttir og málefni dagsins, oft með viðtölum við gesti í myndveri Kastljóss. Umsjónarmenn krufa málin ítarlega og leitast við að varpa ljósi á ólíkar hliðar þeirra. Þátturinn er hluti af dagskrá RÚV og miðlar fréttum og greiningu á íslenskum samtímaefnum.

Episodes

Alþjóðamál, Pisakönnun, símabann
Alþjóðamál, Pisakönnun, símabann Oct 6, 2026 00:23:26 Rætt við Pawel Bartoszek og Dijá Mist Einarsdóttur alþingismenn um komu Marcos Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Rætt við Andreas Schleicher, framkvæmdastjóra hjá OECD um Pisa próf og frammistöðu Íslendinga (ATH. Viðtalið er á ensku en það er textað inn á ruv.is og í Spilara RÚV. )Fjallað um símabann í Garðaskóla í Garðabæ, rætt við skólastjóra og nemendur.
Lykillinn að heilbrigðu langlífi, Dr. David Barzilai og Thor Aspelund
Lykillinn að heilbrigðu langlífi, Dr. David Barzilai og Thor Aspelund Oct 2, 2026 00:18:03 Rætt var við Dr. David Barzilai, lektor við Harvard Medical School. Hann sérhæfir sig í heilbrigðum æviárum, gagnreyndum forvörnum og framtíð heilbrigðiskerfa. ATH. Viðtalið er á ensku en það er textað inn á ruv.is og í Spilara RÚV.Í kjölfarið kom Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands í myndver . Thor segir reglulegar heilsufarsmælingar geta hjálpað fólki að greina áhættuþætti
Endurmeta þarf ofanflóðavarnir, ráðherra um ofanflóðavarnir
Endurmeta þarf ofanflóðavarnir, ráðherra um ofanflóðavarnir Oct 1, 2026 00:16:31 Snjóflóð sem féll fyrir sex árum gerði sérfræðingum ljóst að hús undir varnargörðum væru ekki jafn örugg og áður var talið. Ríkið ákvað fyrir 30 árum að byggja varanlegar varnir ofan við alla byggð á snjóflóðahættusvæðum. Því verki er ekki lokið og líkur eru á að biðin eftir varnargörðum lengist enn. Ólöf Rún Erlendsdóttir, fréttamaður, fer yfir málið.Rætt við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis- ork
Rekstur heilbrigðisþjónustu SÁÁ í miklum vanda
Rekstur heilbrigðisþjónustu SÁÁ í miklum vanda Sep 30, 2026 00:15:46 Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala telur læknisþjónustu af hálfu félagasamtaka vera barn síns tíma. Útlit er fyrir að Landspítali hlaupi tímabundið undir bagga með SÁÁ í læknisþjónustu á Vogi.Viðmælendur:Runólfur PálssonMaría Heimisdóttir
Ofur El-Niño og loftslagsaðlögun
Ofur El-Niño og loftslagsaðlögun Sep 29, 2026 00:14:33 Í þættinum var fjallað um veðurfyrirbærið El-Niño. Vísindamenn telja að El-Niño atburðurinn í vetur verði sá kröftugasti í manna minnum. Rætt var við Mikael Allan Mikaelsson sérfræðing í loftslagsmálum. Í setti var rætt við Önnu Huldu Ólafsdóttur skrifstofurstjóra loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands um hvar Ísland sendur þegar kemur að því að búa þjóðina undir loftslagsbreytingar
Verðlag og fyrrverandi forsetafrú
Verðlag og fyrrverandi forsetafrú Sep 25, 2026 00:20:02 Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að allt fari í bál og brand á vinnumarkaði? Þær Ásta Fjeldsted forstjóri Festi og Halla Gunnarsdóttir formaður VR glímdu við þessa spurningu í Kastljósi í kvöld. Einnig var rætt við Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrú, um samband Kanada og Bandaríkjanna í skugga tollastríðs.Viðmælendur:Ásta FjeldstedHalla GunnarsdóttirEliza Reid
Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, umræða um Græland og SÁÁ
Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, umræða um Græland og SÁÁ Sep 24, 2026 00:28:43 Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur frá Allsherjarþingi SÞ í New York, viðtal við Ölmu Möller um rekstur SÁÁ og umræða um nýjan milliríkjasamning Grænlands, Bandaríkjanna og Danmerkur.Viðmælendur:Alma MöllerGuðbjörg Ríkey Th. ErlingsdóttirKristrún FrostadóttirVilborg Ása Guðjónsdóttir
Bílaleigur og orkuskipti
Bílaleigur og orkuskipti Sep 23, 2026 00:11:18 Loftslagsráðherra segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær? Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds- Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkus
Úkraína
Úkraína Sep 22, 2026 00:14:57 Eitt helsta vopn Rússa er að reyna að ýta undir ósamstöðu og deilur innan vestrænna samfélaga með það að markmiði að þau dragi úr stuðningi við Úkraínu segir Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Úkraínu og Póllandi. Friðarvilji hjá Rússum sé enginn.Viðmælendur:Friðrik Jónsson
Ávanabindandi snjallsímar og ábyrgð foreldra
Ávanabindandi snjallsímar og ábyrgð foreldra Sep 21, 2026 00:19:25 Eru snjallsímarnir okkar farnir að hafa meiri áhrif á okkur sjálf og samfélagið en við almennt gerum okkur grein fyrir? Kastljós fékk til sín sérfræðinga í málefninu til að kryfja vandann og ekki síst ræða um lausnir. Við hittum líka tónlistarmanninn Davíð Berndsen sem segist hafa losnað undan álögum snjallsímans með því að nota einungis takkasíma heima við.Viðmælendur:Halldóra MogensenSkúli Bragi

Recommended