Home Podcasts Víðsvegar
Víðsvegar

Víðsvegar

RÚV Hlaðvörp 16 Episodes Oct 22, 2026

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um Ísland og heimsækir bæði þéttbýli og dreifbýli, borgir og smærri bæi. Á hverjum stað kynnist hún fólkinu sem þar býr og tekur fyrir ýmis málefni sem skipta íbúana máli. Þættirnir gefa þannig heildstæða mynd af lífinu og málefnum víðsvegar um landið. Um er að ræða hlaðvarp frá RÚV.

Episodes

Flakkað um Þjóðarbókhlöðuna
Flakkað um Þjóðarbókhlöðuna Oct 22, 2026 51:41 Víðsvegar flakkar um Þjóðarbókhlöðuna, þessa merkilegu byggingu sem margir þekkja frá námsárum sínum. Í þættinum er spjallað við starfsfólk og gesti sem hafa alls konar sögur að segja.Umsjón Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Litið yfir farinn veg II
Litið yfir farinn veg II Oct 15, 2026 52:36 Rifjum upp valin brot úr ferðum Víðsvegar um landið frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þekking að hverfa: Spjallað um torfhús í Skagafirði
Þekking að hverfa: Spjallað um torfhús í Skagafirði Oct 8, 2026 51:20 Sífellt færri kunna að gera við torfhús og hvað gerist ef sú þekking hverfur alveg? Í dag kynnumst við systkinunum Sigríði Sigurðardóttur og Helga Sigurðssyni, sem ólust upp á bænum Stóru-Ökrum í Skagafirði. Þau hafa bæði lagt mikið af mörkum til varðveislu og viðhalds torfbæja. Helgi ferðast um allt land og hefur sérhæft sig í viðgerðum á torfbæjum. Sigríður var í tæp 32 ár safnstjóri Byggðasafns
Matarmenning á Akureyri
Matarmenning á Akureyri Oct 1, 2026 51:13 Í þætti dagsins flökkum við um Akureyri og spjöllum um matarmenningu staðarins, að fornu og nýju. Allt frá hefðbundnum heimilismat, að bernaissósu og frönskum á milli, yfir í fínni veitingastaði.Viðmælendur: Inga Þöll Þórgnýsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Rakel Elín Garðarsdóttir, Þorgerður Jóhanna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Bergmann, Snæbjörn Bergmann og Reynir Gretarsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdótti
Vopnafjörður: Breskir veiðimenn, sláturhús og ferðaþjónusta
Vopnafjörður: Breskir veiðimenn, sláturhús og ferðaþjónusta Sep 24, 2026 50:12 Víðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum fjarðarins. Þetta er þriðji og síðasti þátturinn í þessari Vopnafjarðarseríu, sem varð til eftir flakk um fjörðinn mánudaginn 31. ágúst.Viðmælendur: Sigríður Dóra Sverrisdóttir, Skúli Þórðarson, Gíslína Skúladótti
Vopnafjörður: Lífið við höfnina, fótbolti og sýn sveitarstjóra á framtíðina
Vopnafjörður: Lífið við höfnina, fótbolti og sýn sveitarstjóra á framtíðina Sep 17, 2026 50:53 Víðsvegar heldur enn til á Vopnafirði, þar sem við kynnumst staðnum og veltum fyrir okkur hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu þar að finna.Viðmælendur: Kristinn Ágústsson, Sara Líf Magnúsdóttir, Íris Edda Jónsdóttir, áhöfnin á Indriða Kristins BA 751 og Heiðar Kristbergsson.Í þættinum er spilað brot þætti Berglindar Häsler „Frá Vopnafirði til vesturheims“ frá 2009. Þar ræddi hún við
Vopnafjörður:  Daglegt líf íbúa og spjall um tækifærin í framtíðinni
Vopnafjörður: Daglegt líf íbúa og spjall um tækifærin í framtíðinni Sep 10, 2026 49:24 Ferðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði.Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Host
Flakkað um Hrísey
Flakkað um Hrísey Jun 10, 2026 52:02 Í dag liggur leiðin út í Hrísey í Eyjafirði. Þangað fór þáttastjórnandi Víðsvegar mánudaginn 8. júní, flakkaði um og spjallaði við fólk á förnum vegi.Viðmælendur: Peter ferðamaður frá Hollandi, Björgvin L. Pálsson, Aron Trausti Sigurbjörnsson, Dröfn Teitsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir, Þórunn Björk Arnórsdóttir, Ásrún Ýr Gestsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir.Þetta var síðasti þáttur Víðsvegar
Litið yfir farinn veg
Litið yfir farinn veg Jun 3, 2026 50:17 Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum
Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum May 27, 2026 53:24 Í þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum. Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverð
Flakkað um Ólafsfjörð
Flakkað um Ólafsfjörð May 20, 2026 49:59 Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði. Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræ
Menning og ferðaþjónusta á Akureyri
Menning og ferðaþjónusta á Akureyri May 13, 2026 47:42 Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirð

Recommended