Home Podcasts Okkar heimur
Okkar heimur

Okkar heimur

okkarheimur 3 Episodes Oct 1, 2026

Okkar heimur er þáttur fyrir börn og ungmenni sem eiga foreldra með geð- eða fíknisjúkdóm og fjölskyldur þeirra. Þátturinn fjallar opinskátt um reynslu barna og ungmenna sem eiga foreldri með geðsjúkdóm. Einnig er rætt um hvað það þýðir að vera foreldri og glíma við geðræn veikindi. Markmiðið er að rjúfa þögnina og ræða hvernig samfélagið getur stutt við fólk þegar kemur að geðheilsu og geðrænum veikindum.

Episodes

Börnin finna þegar eitthvað er að - hvernig tölum við um geðsjúkdóma?
Börnin finna þegar eitthvað er að - hvernig tölum við um geðsjúkdóma? Oct 1, 2026 2029 Sigríður ræðir við Bergdísi Júlíu, leikstjóra og leiklistarkennara, og Kolbrúnu félagsráðgjafa, sem báðar starfa hjá Okkar heimi, um hvernig við tölum við börn um geðsjúkdóma, geðrænan vanda og geðheilsu. Þær ræða hvað getur komið í veg fyrir þessi samtöl, hvað fullorðnum þykir erfitt og eftir hverju börn sækjast. Hvenær er best að hefja samtalið og hvers vegna er mikilvægt að börn fái heiðarlegar
Aníta Georgs - Ég er meira en sjúkdómurinn
Aníta Georgs - Ég er meira en sjúkdómurinn Sep 11, 2026 2764 Spjall við Anítu Georgs, áhrifavald og stofnanda samfélagsmiðilsins Hennar heimur, um reynslu hennar af því að greinast með geðhvörf 1. Hún segir frá viðbrögðum fólks við sjúkdómnum, fordómum og því hvernig hún hefur unnið að bata og aukinni sjálfsþekkingu. Aníta ræðir einnig mikilvægi þess að fá að vera fyrst og fremst kona, móðir og manneskja, því sjúkdómsgreiningin er aðeins hluti af henni en s
Þögnin viðheldur fordómum og ótta
Þögnin viðheldur fordómum og ótta Sep 11, 2026 2222 Sigríður sest niður með Bergdísi Júlíu, leikstjóra og leiklistarkennara, og ræðir um þá fordóma sem enn eru til staðar í íslensku samfélagi gagnvart geðrænum vanda og geðsjúkdómum. Þær skoða hvernig fordómarnir birtast, hvaða áhrif þeir geta haft á einstaklinga og fjölskyldur og hvers vegna fólk veigrar sér stundum við að ræða geðheilsu. Því er fátt annað eins mikilvægt og fræðsla, opinská samtöl
Við kynnum: Hlaðvarp Okkar heims
Við kynnum: Hlaðvarp Okkar heims Sep 11, 2026 163 Fylgið Sigríði Gísladóttur, þáttastjórnanda og stofnanda Okkar heims, þar sem hún fær til sín góða gesti og ræðir opinskátt um það sem oft er þögn í kringum – um reynslu barna og ungmenna sem eiga foreldri með geðsjúkdóm, um hvað það þýðir að vera foreldri og glíma við geðræn veikindi og hvernig við getum öll, sem samfélag, stutt hvert við annað þegar kemur að geðheilsu okkar og geðrænum veikindum

Recommended