
Já OK
Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?
Episodes

Amma Lo-Fi
Strákarnir tala um Sigríði Níelsdóttur og hennar tónlist, tala reyndar líka um Bingo Dorthe en það er allt önnur saga. Af hverju var Sigríður kölluð Amma Lo-Fi? Hlustið og komist að því. K bæ

Bruninn í Skildi
Sorry þungur þáttur, en mikilvægur. Bruninn í Skildi er einn mannskæðasti eldsvoði á Íslandi á 20. öldinni. Tékkið á reykskynjurum heima hjá ykkur og þó það sé kósy passið að slökkva á öllum kertum áður en farið er að sofa.

Jólabjór, Julebrygg og J-Dag (kannski Ora baunir líka).
Gleðileg jól! Jólakarlar ræða jólahluti og drekka jóla(hvít)öl á meðan! Sumir myndu segja að Julebrygg Tuborgs sé ekki jólabjór Íslendinga, en þær manneskjur væru að ljúga að sjálfum sér… í bili.

Gamlar jólahefðir
Hó hó hó! Hvaða myndir skerið þið í laufabrauðið? Hér er heill þáttur stútfullur af gömlum íslenskum jólahefðum.

Sæmundur Hólm
Enn einn kynlegi kvisturinn... en við elskum kynlega kvista er það ekki? Sæmundur Hólm, við megum vera mjög þakklát fyrir honum, Sóli Hólm er líka alveg fínn sko! En þetta er Sæmundur Hólm!

Gíslaklettar
Trúir þú á álfa? En að álfar geti framið morð? Fylgist með í næsta þætti af CSI: Elfe Edition á Skjá Einum!

Íslenzk fyndni
Villi las sig til um allskonar grín, náði samt ekki að skrifa mikið niður, þáttur eftir minni, smá old skool, smá gerður í mikla vinnutörn. Staðreyndirnar á afslætti á forlagid.is með kóðanum jaokhladvarp

Hallbjörg Bjarnadóttir
Eru þið nokkuð með rödd sem spannar fjórar áttundir? Nei? Það var hún Hallbjörg Bjarnadóttir með! Shiiiii

Heklína
Í þessum þætti fer Villi í lélegasta drag íslandssögunnar, enda ekki hver sem er sem getur gert þetta bara sísvona, svo er drag ekki bara að "setja á sig meik". Villi segir Fjölni frá bestu dragdrottningu Íslandssögunnar. Það er mikið í þessum þætti, gleði, sorg, og allt inn á milli. Heklína, we love you.

Herbert Guðmundsson
Í þessum þætti Villi and Fjölnir can't walk away from hearing all about Herbert Guðmundsson. En ætli Hebbi hlusti á Já OK? Hebbi?! Svaraðu...kallainu...frá mééééér!

Hannes Hafstein
Strákarnir mæta aftur! Að þessu sinni eru þeir að reyna sitt besta til að halda sig á dagskrá, sem þýðir að héðan í frá kemur brakandi ferskur þáttur aðra hverja viku! Við skoðum líf Hannesar Hafsteinar, um leið og við tökum stöðutjékk á hvor öðrum líka. Kóði hjá Forlaginu : jaokhladvarp

Hannes Boy aka Hannes Beggólín
Hannes Boy er geggjaður veitingastaður á Siglufirði, en hvaðan kemur nafnið? Fylgisti með í næsta þætti...nei djók í þessum þætti.

Falun Gong
Stefán Ingvar kíkti í heimsókn. Hann er með uppistand í Sykursalnum - Stefán Ingvar sigrar atvinnulífið. https://tix.is/event/19107/stefan-ingvar-sigrar-atvinnulifidHann átti líka að skrifa lýsingu en fór heim áður en hann gerði það því hann er svo kvöldsvæfur.

Sæfinnur Vatnsberi
Kallaður Sæfinnur með sextán skó, við köllum hann vatnsbera frekar því það var vinnan hans. Maður sem beið eftir því alla sína ævi að fá að byrja að lifa.

Guðlast og Spaugstofan
Er maður gamall því manni finnst Spaugstofan aftur fyndin eða var hún alltaf fyndin og maður fór í gegnum tímabil? Bara pælingar. Heyrumst.

Þegar Ísland vildi kaupa Grænland
Jú krakkar mínir það var ekki bara Bandaríkin sem vildi kaupa Grænland, heldur Íslendingar líka. Sjálfur vil ég bara kaupa mér flugmiða til Tene. Fátt íslenskara en að fljúga til Tene. Væri samt gaman að heimsækja Grænland.

Þvottabirnir á Íslandi
Þvottabirnir eru hálfbirnir. Villi er hálfur Íslendingur, en hann er samt Íslendingur. Fjölnir er hálft legend og hálfur meistari, en samt 100% kóngur? Hversu gott er það? Villi er að skrifa þennan texta bsþsáh (bara svo það sé á hreinu) ekki Fjölnir.

Saga flugelda á Íslandi
Hvernig skrifar maður flugeldahljóð? vííííííjjjúúúúúúúuuuum....BANG!

Gleymdu jólasveinarnir
Villi og Fjölnir eru auðvitað líka jólasveinar en það eru MÖRG sem hafa gleymst í gegnum tíðina. Hér förum við yfir þau öll, hverja má bæta við á listann? Það er spurning... Kannski litla-pung.

Strompaslys
Desemberuppbót? Hvað er það? Meiri pening? Kíkið á vr.is fyrir frekari upplýsingar. Þessi þáttur er í boði VR.Ef þið viljið styrkja okkur með kaffibollum þá er slóðin hér: https://buymeacoffee.com/jaokAnnars er þessi þáttur um slys í strompum...á íslandi...

Steina Vasulka
Kaupa kaffi : https://buymeacoffee.com/jaokÞetta er hljóð en hér fjöllum við mest um vídeó, vídeólist. Did vídeolist kill the podcast star? Það er stóra spurning, eða nei samt ekki. Við spjöllum allavega við Maríu Guðjohnsen (@mariagudjohnsen) um hina stórmerkilegu Steinu Vasulka.

Sirry Steffen
Hi. Villi and Fjölnir take a trip though the time machine and all the way to Hollywood just to meet the first Icelandic woman to work as an actress on the big screen. That's impressive! Hope you know that! Does anybody read this??

Flámæli
Kaupa kaffi: https://buymeacoffee.com/jaokÍ þessum þæti tala strákarnir um akveðna hluti sem gaman er að. Kannski fá þeir sér sker ef engin flöga lendir á því. Það er aldrei að vita.

Hin ungu fórnarlömb hernámsins.
Þessi þáttur er kannski ekki mikið sprell, en þannig er lífið stundum og þannig umræðuefni þarf að taka fyrir af og til, en það er sprellað fyrir og eftir umræðuefnið er tekið.

Hrekkjavöku bland í poka Part 2 (Apótek á Íslandi)
Saga Apóteka á Íslandi er rúmlega 260 ára gömul og húsakynni fyrsta apóteksins á Íslandi munu helst hafa líkst fangaklefa frá miðöldum.Villi og Fjölnir fara yfir söguna og skoða margar hryllilegar sögur sem fylgt hafa lyfjasölum Íslands.

Hrekkjavöku bland í poka Part 1 (Spítalar á Íslandi)
https://buymeacoffee.com/jaokÞegar talað er um reimleika er oftar en ekki verið að vitna í sögur sem tilheyra stöðum sem geyma mikil áföll og erfiði, þó ekki sé minnst á sjálfan dauðan. Slíkir staðir eru allt um kringum okkur, en þó eru nokkrir sem eru ríkari slíkum sögum en aðrir.

VIP Partý
Kaupa köff : buymeacoffee.com/JaokMyndu Villi og Fjölnir fá samviskubit yfir því að vera ekki boðnir í VIP Partý á Replay? Myndu þeir reyna að komast inn eftir hálf tólf? Hvaða myndi Geiri Goldfinger segja við þá? Villi og Fjölnir ræða menninguna frá 2011, en hvaða menning er það?

Kallarnir
Velkomin í Metróskólann þar sem við kennum Villa og Fjölni að vera hörkufolar í áfangakerfi.

Nonni
Nonni var merkilegur maður. Var þessi þáttur kannski of stór biti fyrir Villa? Vonandi ekki. Hann vonar það allavega ekki. Vonandi hefur fólk gaman að þessum þætti. Við skulum vera góð við Villa <3 Takk fyrir leynikaffið Mr. Big!

Nágrannaerjur
Hver hefur lent í því að vera komin í góða íbúð eftir langa leit, allt virðist vera að ganga upp í lífinu en svo allt í einu færðu kvörtun frá nágrana "engin læti eftir kl18!" og þú fattar "ónei, ég á erfiða nágrana". Jú margir íslendingar. En leiðindin ganga þó stundum í báðar áttir og enda jafnvel með ofbeldi og dómstólum. Og já talandi um það þá fór Fjölnir smá að tala um eitthvað svon

Forræðisdeila Sophiu og Halims
Kaupið okkur kaffi : buymeacoffee.com/JaokÍ þessum þætti reyna Villi og Fjölnir að skilja dómstóla Tyrklands, en fyrst og fremst eru þeir mjög kátir að sjá hvorn annan í stúdíóinu eftir langan aðskilnað.

Sailesh á Íslandi (live þáttur)
Þú finnur hvernig augun verða þyngri og þyngri þar sem dáleiðslumáttur Já OK dregur þig dýpra og dýpra inn í dáleiðslu ástand. Þú ert villisvín VILLISVÍN! Þessi þáttur er um dávaldinn Sailesh og þegar hann kom til Íslands og tryllti líðinn bókstaflega! Minnum á Umræðugrúbbu Já OK á facebook þar sem hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni.

Allt í grænum sjó! (live þáttur)
Þessi þáttur var tekinn upp í sumar, þegar fólk var enn vongott um að framundan væri betra veður. Það kom ekki, en læv showið kom og það var algjör stemning! Strákarnir sátu sveittir í Háskólabíóhitanum og reyndu að fræða sitt besta fólk um eina frægustu revíu Íslandssögunnar.

Fjölnismenn (Live þáttur)
Nú vil ég ekki þetta orðlengjandi vera, heldur Yður guði bífalandi, bréfinu slúttandi og því lokandi, item utan á það skrifandi, mín stígvél upp á mig dragandi, í minn "kjól" farandi (snústóbakslitaðan verandi), mína skikkju eða yfirhöfn yfir mig látandi, minn hatt á mitt höfuð setjandi, lykilinn upp úr mínum vasa takandi, hurðinni upp ljúkandi, út úr dyrunum gangandi, hurðina síðan a

Charles Manson í síldinni
Umræðuefnið byrjar á 14:04 - Villi, Fjölnir og Tinna ræða þjóðarmálin á milli sín í þessum rammpólitíska þætti, en þar eru stóru málin rædd. Orkupakkinn, auðlindir og nýju airbnb lögin.

Álögin í Málmey
Strákarnir sjá flott í hús í sínum draumum, fjölskyldur kalla á þá... "talið um okkur" segja þær, "segið okkar sögu". Villi hlustar, og svarar kallinu.

Björn "ríki" Þorleifsson
Umræðuefni þáttarins byrjar á 17:32.Þessi nýr fídus er fyrir þá sem eru (skiljanlega) óþolinmóð yfir því að þátturinn byrji. Við fjöllum um alveg gammel gammel dag rifrildi og rugli.

Íslenska neftóbakið
Tóbakið hreint, fæ gjörla ég greint, gjörir höfðinu létta, skerpir vel sýn, svefnbót er fín, sorg hugarins dvín. Sannprófað hefi ég þetta.Tóbak nef neyðir, náttúru eyðir, upp augun breiðir, út hrákann leiðir, minnisafl meiðir, máttleysi greiðir og yfirlit eyðir.- Hallgrímur Pétursson

S.Í.B.S kubbarnir
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í Legoland Billund og velta fyrir sér hvort það væri ekki skrýtið að búa til S.Í.B.S-land út á landi.

Óeirðirnar á Austurvelli
Óður kommúnistaskríll eða landráð framin í skjóli ofbeldis?

Charles Thorson
Villi og Fjölnir og 5 aðrir dvergar fara og rannsaka slóðir Vesturfarans Charles Thorson, hver var þessi maður, í stuttu máli?Pun not intended

Draugurinn "að sunnan"
Voru ódæðisverkin eftir draug eða voru þau af mannavöldum? Við viljum benda á að í þessum þætti verður talað um gróft ofbeldi gegn dýrum.

Herfylkingin
Villi og Fjölnir fá ný vopn, derru með rauðan punkt fyrir ofan derið og fara síðan á æfingu með alla fellana sína undir stjórn Kaptein Kohls. Sá maður er auðvitað danskur fýr og mjög annt um lýðheilsu okkar, og það kunna þeir vel að meta!

Þáttur 200! ft. Berglind Ósk og Kilo
Já OK! á afmæli! Þáttur 200! Og með okkur eru skemmtilegir gestir að spjalla um daginn inn og daginn út. Förum aðeins á upprunaslóðir Villa og Fjölnis en annars bara glens og grín!

Gísli á Uppsölum
Villi sagði aðeins of oft Gísli í Uppsölum því hann ruglaðist og hélt það ætti að segja það þannig, hann er smá lítill í sér yfir því þannig ekkert vera að minnast á það við hann eða í grúppuni. Hann gengst við þau mistök.

Skrítnar íslenskar mataruppskriftir
Éttu mig! Uppskrift: 5 Egg, 75gr Sítróna, 250ml Rjómi, 125gr Sykur, 125ml Vatn, 24gr Matarlím.Aðferð fyrir Éttu mig! er í þættinum. Njótið! Bon Appetit!

Tónlistarbland í poka
Það er of seint núna fyrir Villa og Fjölni að stofna barnahljómsveit, en það er kannski alls ekki of seint fyrir þá að taka ábreiðu af ítölsku lagi... eða hvað?

Live and Reloaded
Fyrri live þátturinn okkar í Borgarleikhúsinu. Verði ykkur að því! Um Jörund Hundadagakonung

Klaustursmálið
Í þessum þættir fara Fjölnir og Villi á bar og tala um alsskonar hluti, þeir eru í 36 tíma "blackouti" og munu ekki muna eftir neinu. Það sem þeir vita þó ekki er að það er upptökutæki þarna nálægt.

the Björk stalker
Þessi þáttur er um mann sem var með mikil andleg vandamál. Við vörum við umfjöllunarefninu.

Megrunarkúrar á Íslandi
Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi yfir alsskonar megrunarkúra, þeir vita ekki mikið en eitt vita þeir, þeir virka sjaldan til lengdar.Hægt að syðja Já OK hér : https://www.buymeacoffee.com/jaok

Stripp á Íslandi: Pan-hópurinn (18+)
Já OK hefur opnað hjálpartækjaverslun ástarlífsins. Hvað má ykkur? Við eigum til Ruddann, Ótemjuna, Didda hrekkjótta, Tortímandann, Kjaftakerlinguna, Þroskahjálp, Broddgöltinn, Bragðarefinn, Limakrúnuna, Frikka fljóta, Skeiðvarginn og margt margt fleira.

Frakkarnir í Surtsey
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í Surtsey og reyna að detta í slag við þrjá frakka sem halda þau séu eitthvað betri en við, bara því þeir mæta með uppgjafarfánann á glænýja eyju? Frekar myndum við kalla þessa eyju Squirtey frekar en einhverntíman Frakkaey. Aldrei!Miðar fyrir Já OK Live! fást hér : https://tix.is/is/event/16745/ja-ok-live-/

Issei Sagawa
Árið er 1998 fyrir utan Næpuna í Reykjavík. "Afsakið getur þú nokkuð tekið mynd af okkur fyrir utan þetta fallega hús? Ég er nefnilega frægur og er í smá fríi á Íslandi. Fyrir hvað spyrð þú? Fyrir að borða mannakjöt!"

Lífsdjúsinn frá Kína
Villi og Stefán tala um djúsinn góða frá Kína (eða hvað) sem Íslendingar voru að stúta sig þarna um aldamótin. Í gamla daga var það lífsdjús, í nútíma daga er það hvað… sykurlaus orkudrykkur?

Hringt í Bush
Villi og Stefán mæta í Stúdíó Harmur og spjalla þar, Egill duglegi mætir og hjálpar þeim. Ef þeir gætu hringt í einhvern, þá myndu þeir auðvitað hringja í einhvern meistara, en annar gaur sem þau spjalla um, hringdi í Bush... næstum því.

Kynlíf með álfum
Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi út í Heiðmörk og hitta álf, hann veit nákvæmlega hvað þeir vilja, hann veit líka veit hvað þeir vilja en vita ekki að þeir vilja. Heiðmörkin gefur.

Opinberun Hannesar
Í þessum þætti ætla strákarnir að gera 10 milljóna króna þátt en fá síðan líka styrk uppá 22 millur og síðan styrk líka upp á 10 millur og síðan annan styrk, þannig more money in the bank, en hvaða bank? Ekki gleyma að kaupa (bara ef þið viljið) handa okkur kaffi á https://www.buymeacoffee.com/jaok

Íslenskt hryðjuverk eða náttúruvernd?
Villi og Fjölnir eru staddir í bílalest á leið í átt að Akureyri til að mótmæla Laxárvikrjun. Burt með stífluna eða það mun skapast hættuástand í héraði, sem leitt getur til óhappa, sem vér getum ekki borið ábyrgð á...djók

Eau de Portugal
Í þessum þætti ætla einn portúgalinn íslendingur og einn íslenskur portúgali að tala um að vera með portúgala í vasanum, en hvað er það? Það er spurning. Það er líka spurning hvort strákarnir ættu að byrja að vera með sjóðandi heit atriði í heimahúsum.

Sundafrek íslenskra dýra
Villi og Fjölnir eru mættir í boxhringinn. Fjölnir er team beljur, en Villi team rollur. Hvor þeirra mun vinna í sundafrekum dýra? Nei ég segi svona! En það er allavegana mikið talað um nautgripi í þessum þætti.

Rasmus Rask
Kannast þú við nafnið Rasmus Rask? Fjölnir vill ekki kannast við nafnið en Villi kannaðist við það, hvaðan? Það veit hann ekki, en hann kannaðist við nafnið, og ef maður kannast við nafnið er vert að kanna hvaða manneskja það er sem maður kannast við.

Reimleikinn á Höfða
Í þessum þætti tala strákarnir um hvaðan draugagangurinn á Höfða kemur eða í öðrum orðum um Sólborgarmálið. Smá spooky, smá mistería, smá grín. Góður Já OK kokteill!

White Top ævintýrið
Í þessum þætti setjast strákarnir niður og súpa á ólöglegum bjór frá Akureyri. Hann er frekar dýr, en hann er allavega góður! Samt ekki.

Fangar og fangelsi
Fjölnir og Villi tala um fanga og fangelsi...þeir vilja samt ekki fara sjálfir í fangelsi...en það gæti gerst einn daginn...ef þeir prakara yfir sig...

Kynjaskepnur (seinni hluti)
Umræðan um kynjaskepnur heldur áfram. Hvort segir maður fjörulalli eða fjörulalli? Hvað eru fjörulalli og eiturgedda að gera saman?

Kynjaskepnur (fyrri hluti)
Kynjaskepnur eru ekki kynæsandi skepnur. Þetta eru skepnur samt, þetta eru algjör kvikindi, sum ógeðsleg, sum krúttleg, sum steikt, en öll íslensk.

Íslenski "cult" leiðtoginn
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í gegnum viðamikla ævi manns sem lítur í fyrstu út eins og hann hafi lifað lífi sex einstaklinga. Gæti verið að hann sé að ljúga? Hvað er Fight Club for Children? Hvað er The Modern Mystery School? Hvað er eiginlega í gangi?

Skurðlæknir Oppenheimers
Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi stuttlega yfir ævi merkilegs Íslendings, sem fór til New York, og varð helvíti stórt nafn þar. Hversu margir faðmar eru á milli Íslands og New York? Hversu langur tími eru 100 ár? Heimspeki og heimskspeki í þætti dagsins.

Hvalfjarðargangaganga (feat. Eygló Höskuldsdóttir Viborg)
Skaginn bíður góðann daginn! Í þessum þætti fá Villi og Fjölnir góðann gest, en það er enginn annar en hún Eygló Höskuldsdóttir Viborg, einnig þekkt sem Alter Eygló. Þau hefja göngu sína við norðurmunna hvalfjarðarganganna ásamt fjölda fólks sem ákváðu að ganga í gegnum göngin árið 1998.

Ávaxtasjúklingar (feat. Kolbeinn Ari Hauksson)
Í þessum þætti fá Villi og Fjölnir annan gest til sín, að þessu sinni er það sagnfræðingurinn, grunnskólakennarinn og æskuvinur Villa, hann Kolbeinn Ari Hauksson. Það verður talað um alsskonar ávexti, það verður talað um alsskonar pólitík, og það verður talað um alsskonar bull, enda er það hin klassíski Já OK þáttur, að fræða og bulla.

Fyrstur manna til að ganga hringinn (feat. Palli)
Í þessum þætti ætlar Fjölnir að ganga hringinn í kringum Ísland, ásamt honum Palla. En þeir eru þó ekki fyrstir til að fá þá flugu í hausinn. Heldur feta þeir í fótspor Reyni Péturs, fyrsti Íslendingurinn til að ganga hringinn í kringum Ísland.

Hjálpum þeim/Help Them
Í þessum þætti tala Villi og Fjölnir um góðgerðalög, hvað lætur góðgeralag hljóma eins og góðgerðalag? Fara allir peningar í eitt nákvæmt málefni eða alsskonar? Væri "Live Aid" á íslensku "Hjálp í beinni"?

Dillibossaauglýsingarnar
Þessi þáttur er ekki kúluvarp, þessi þáttur er ekki andvarp, þessi þáttur er ekki æðavarp, þessi þáttur er hinsvegar hlaðvarp og algjört fever dream, líkt og "dillibossaauglýsingarnar" voru.

Jamestown strandið
1881, riiiisastór tómur bátur strandar á Íslandi. Eru það góðar fréttir fyrir Íslendinga? Hverjir ættu að vera á þessum bát? Hvað gerðist? Hvað er ballasti? Hvað er einn faðmur stór?

Háfjallasól
Ef þú ert að lesa þetta eftir að þú hlustaðir á þáttinn, BUSTED! hahaha! En allavega þessi þáttur er um Háfjallasól og tan.

Bland í poka með Villa 2
Villi reynir sóldasaður að kenna Fjölni á hitt og þetta, Þrettándaógleðin eða Þrettándalætin og líka íslenskur eigandi á Premier League liði og svo líka sjónvarpslausir fimmtudagar. Les einhver þennan texta? Má ég pliiiis fá keks.

Laddi lengi lifi
Í þessum þætti fara strákarnir ekkert voða langt aftur í tímann, heldur bara til ársins 2018. En þá fékk íslenska þjóðin fyrir hjartað þegar ákveðin mynd var deilt á facebook af einum ástkærasta grínista þjóðarinnar.

Loftárásirnar á Seyðisfirði
Fólk sem fer í reglulegar Wikipedia ferðir vissu kannski af þessu, en ekki vissu Villi og Fjölnir að þýskar flugvélar hefðu flogið yfir Seyðisfjörð. Vissu þið þetta? Því ekki vissum við það.

Náttfari
Í þessum þætti rifja Villi og Fjölnir upp sögu Náttfara sem lét greipar sópa um eignir borgarbúa sumarið 1976. Lengi fram eftir sumri stóð lögreglan gjörsamlega ráðþrota gagnvart þessum "Skugga" næturinnar.











