Home Podcasts Tveggja Turna Tal
Tveggja Turna Tal

Tveggja Turna Tal

Tveggja Turnatal 80 Episodes Jan 15, 2026

Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.

Episodes

#65 Björn Daníel Sverrisson part II
#65 Björn Daníel Sverrisson part II Jan 15, 2026 01:07:43 Þáttur vikunnar er seinni hluti spjallsins við Björn Daníel Sverrisson. Björn Daníel er þjálfari, leikmaður, tónlistarmaður og lífskúnsner!
#64 Aron Baldvin Þórðarson
#64 Aron Baldvin Þórðarson Jan 8, 2026 01:23:25 Aron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Sölva Geirs Ottesen hjá karlaliði Víkings í fótbolta. Aron Baldvin komst í fréttirnar í vikunni þegar Eyjamenn reyndu að fá drenginn til Eyja úr hamingjunni. Víkingar vildu ekki selja. Í þessum þætti kynnumst við Aroni og áttum okkur glögglega á því hversvegna Víkingar vildu ekki missa hann frá borði!
#63 Andri Freyr Hafsteinsson
#63 Andri Freyr Hafsteinsson Dec 29, 2025 01:49:43 Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra Freys að þjálfun. Í Eftir að Andri Freyr flutti í bæinn hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki, meðal annars Helga Jónasi Guðfinnssyni, Einari Einarssyni og Kristjáni Guðmundssyni. Andri Freyr hefur þ
#62 Björn Daníel Sverrisson
#62 Björn Daníel Sverrisson Dec 25, 2025 02:09:15 Fyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira er tekið fyrir í þessum hluta. Samstarfsaðilar Turnanna eru: Hafið FIskverslun Lengjan Budvar Dav
#14 Turnar Segja Sögur: Graeme Souness
#14 Turnar Segja Sögur: Graeme Souness Oct 3, 2025 01:02:55 Graeme Souness var leikmaður, þjálfari og sjónvarpsmaður og var sigursæll en einnig afar umdeildur. Saga Liverpool FC, söguleg endurkoma Glasgow Rangers, Rod Stewart að drekka bjór með Sigga Jóns í Reykjavík, borgarastyrjöld í Istanbul, sögur af ofbeldi og frændi George Weah koma við sögu í þætti dagsins. Turnar segja sögur ætla að ræða Graeme Souness í þætti dagsins.
#61 Milan Stefán Jankovic
#61 Milan Stefán Jankovic Sep 29, 2025 01:18:25 Milan Stefán Jankovic er lifandi goðsögn í fótboltanum á Íslandi. Janko, líkt og hann er kallaður, kom til Íslands árið 1992 og hefur hann svo sannarlega skilað sýnu til fótboltasamfélagsins á Íslandi. Við fórum yfir ferilinn hans, bæði hérlendis og erlendis. Samstarfsaðilar okkar Turnanna eru Visitor, Lengjan, Hafið, World Class og Budvar félagi okkar!
#13 Turnar Segja Sögur: Svikarhrappar & sóun á hæfileikum
#13 Turnar Segja Sögur: Svikarhrappar & sóun á hæfileikum Sep 12, 2025 01:22:24 Andri Geir kom í heimsókn og við ræddum svikahrappa, drullusokka og leikmenn sem hefðu getað nýtt hæfileikana sína betur!
#12 Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992
#12 Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992 Aug 29, 2025 00:58:26 Evrópuævintýri Dana sumarið 1992 í Svíþjóð er merkileg saga. Krissi veit meira um knattspyrnusögu daga en Sacchi um 442 leikkerfið. Njótið vel!
#60 Dagbjartur Sigurbrandsson
#60 Dagbjartur Sigurbrandsson Aug 25, 2025 00:57:41 Dagbjartur varð á dögunum Íslandsmeistari í golfi, eingöngu 22 ára gamall. Hann er þrátt fyrir ungan aldur útskrifaður úr háskóla í Bandaríkjunum og stefnir á að verða atvinnumaður í golfi á næstunni. Við fórum yfir hvernig þetta byrjaði, hvað er í gangi hjá honum og hvert hann er að fara!
#11 Turnar Segja Sögur: Risar vs Dvergar
#11 Turnar Segja Sögur: Risar vs Dvergar Aug 21, 2025 01:09:15 Ómar Freyr Rafnsson, Bangsinn, kom í heimsókn til okkar og við skiptum í tvö lið. Risarvaxnir leikmenn gegn stórum egóum með færri sentimetra í vegabréfinu. Getur De La Pena dekkað Duncan Ferguson í föstum leikatriðum? Góða skemmtun!
#10 Turnar segja sögur: Pizzagate
#10 Turnar segja sögur: Pizzagate Aug 15, 2025 01:04:16 Sir Alex Ferguson og Arsène Wenger eru tveir goðsagnakenndir knattspyrnustjórar sem gerðu Manchester United og Arsenal að risum í ensku úrvalsdeildinni. Þeir börðust á banaspjótum í meira en áratug, skiptust á að vinna titla og kveiktu í áhorfendum með ógleymanlegum leikjum. En úr eldi hatursins kviknaði virðing og úr virðingunni óvænt vinátta.“
#59 Guðrún Brá Björgvinsdóttir
#59 Guðrún Brá Björgvinsdóttir Aug 14, 2025 01:04:16 Guðrún Brá Björgvinsdóttir varð um helgina Íslandsmeistari í golfi í fjórða sinn þegar hún sigraði á frábæru móti á Keilisvelli í Hafnarfirði. Hún hefur verið atvinnumaður í golfi undanfarin ár, fór í gegnum háskólagolf í Bandaríkjunum og má segja að golfið hafi verið henni í blóð borið , hún fékk það nánast með móðurmjólkinni! Saga Guðrúnar Brár er bæði áhugaverð og lærdómsrík. Hún hefur frá mik

Recommended