Home Podcasts Vísir
Vísir

Vísir

visirhladvarp 2 Episodes Oct 4, 2026

Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.

Episodes

Í bóli Bjarnars - Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Í bóli Bjarnars - Sigríður Dögg Auðunsdóttir Oct 4, 2026 3186 Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.
Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann
Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann Sep 30, 2026 2413 Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu viðtali við
Í bóli Bjarnars - Halldór Guðmundsson
Í bóli Bjarnars - Halldór Guðmundsson Sep 29, 2026 2567 Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur, sem sumir myndu segja að sé helsti mafíósi í íslenska bókabransanum, hefur vaðið í það þarfa verk að rita bókmenntasögu Íslendinga frá öndverðu og til vorra daga, hvorki meira né minna. Hann er gestur Í bóli Bjarnars þessa vikuna.  
Í bóli Bjarnars - Benedikta Guðrún Svavarsdóttir
Í bóli Bjarnars - Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Sep 20, 2026 2978 Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman að því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félag um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfjörð. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum dögum  
Hitað upp fyrir Bakgarðshlaupið
Hitað upp fyrir Bakgarðshlaupið Sep 16, 2026 2619 Garpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic, sem munu lýsa Bakgarðshlaupinu um helgina, fengu Egil Trausta Ómarsson í spjall þar sem þau ræddu meðal annars um líklegan sigurvegara ofl.
Í bóli Bjarnars - Gísli Marteinn
Í bóli Bjarnars - Gísli Marteinn Sep 13, 2026 3807 Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og vert þarfnast engrar kynningar. Hann er „stórasta“ sjónvarpsstjarna landsins og nú að fara af stað með Vikuna, sem hefur verið flaggskip Ríkissjónvarpsins um árabil. Engan bilbug er að finna á Gísla Marteini, hvorki hvað varðar Vikuna né Café Vest. Gísli hætti sér í ból Bjarnars.
Í bóli Bjarnars - Guðni Th. Jóhannesson
Í bóli Bjarnars - Guðni Th. Jóhannesson Sep 6, 2026 3254 Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem han
Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“
Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Aug 28, 2026 5194 Þótt að Kjartan Sveinn Guðmundsson úr Ungum vinstri grænum og Ármann Leifsson úr Ungu jafnaðarfólki staðsetji sig báðir vinstra megin í lífinu eru þeir ósammála um það hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Kjartan hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins og utanríkisstefnu Íslands hvað varðar meðal annars málefni Palestínu. Ármann sér tækifæri í ef
Ungt hægri fólk tekst á: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“
Ungt hægri fólk tekst á: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Aug 27, 2026 4183 Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fy
Snorre Rein - EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“
Snorre Rein - EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Aug 27, 2026 2315 Frændur okkar í Noregi fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, sérstaklega útvegsmenn í Noregi. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum. Hann segir að viðsnúningur gæti orðið í afstöðu norskra sjávarútvegsmanna til Evrópusambandsins skyldi Ísland ná einhvers konar undan
Margrét Ágústa - Eins og að biðja um að hafa fimmtán menn inni á vellinum
Margrét Ágústa - Eins og að biðja um að hafa fimmtán menn inni á vellinum Aug 26, 2026 4264 Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Hún telur að eina leiðin sem íslenskur landbúnaður gæti virkað innan Evrópuregluverks væri með undanþágu frá landbúnaðarstefnu sambandsins eins og hún leggur sig. Það sé ólíklegt að fá það samþykkt, og í raun eins og að biðja um að fá að keppa í fótbolta með fimmtán liðsmenn inni á vellinum, frek
Þorsteinn Gunnarsson - Íslendingar voru alræmdir í Brussel og lítið traust á milli
Þorsteinn Gunnarsson - Íslendingar voru alræmdir í Brussel og lítið traust á milli Aug 25, 2026 4814 Gestur dagsins er Þorsteinn Gunnarsson, fræðimaður, fyrrverandi rektor HA og síðast en alls ekki síst: varaformaður samninganefndar Íslands á árunum 2009 til 2013. Í ítarlegu samtali fórum við yfir það sem raunverulega fór fram á meðan viðræðunum stóð, hvernig afstöður voru mótaðar, hvernig samskiptum var háttað við ráðherra og framkvæmdastjórnina. Hvernig tók Brussel í kröfur Íslands um þessar ma

Recommended