Home Podcasts Læknavarpið
Læknavarpið

Læknavarpið

Læknablaðið 26 Episodes Jul 6, 2026

Læknavarpið er hlaðvarp Læknablaðsins þar sem rætt er við lækna á faglegum og persónulegum nótum. Nýr þáttur með hverju nýju Læknablaði. Þáttastjórnandi er Kristborg Bóel Steindórsdóttir.

Episodes

#6/2026. „Það eina sem skiptir máli í þessu lífi eru tengslin“
#6/2026. „Það eina sem skiptir máli í þessu lífi eru tengslin“ Jul 6, 2026 00:58:58 Geðlæknirinn og ljóðskáldið Ferdinand Jónsson er fluttur heim eftir rúmlega 28 ára dvöl í Bretlandi og starfar í dag á geðdeild Landspítalans við Hringbraut. Ferdinand var gestur Læknavarpsins þar sem hann talaði um starf sitt í Lundúnum, eigin veikindi, ljóðlistina og hvernig var að snúa heim á ný.
#5 2026 Fullkomið tækifæri til að snúa aftur heim
#5 2026 Fullkomið tækifæri til að snúa aftur heim Jun 10, 2026 00:53:18 Jónas A. Aðalsteinsson tók síðastliðið haust við stöðu prófessors við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknis húð- og kynsjúkdóma á Landspítala. Jónas sérhæfði sig í húðlækningum við University of Connecticut School of Medicine og lauk jafnframt sérnámi í húðmeinafræði frá Mount Sinai í New York. Kristborg Bóel Steindórsdóttir ræddi við Jónas í Læknavarpinu þar sem hann sagði frá námsárunum í Ban
#4 2026/Adam Erik Bauer: „Markmiðið er að rannsóknin skilji eitthvað nothæft eftir sig“
#4 2026/Adam Erik Bauer: „Markmiðið er að rannsóknin skilji eitthvað nothæft eftir sig“ May 11, 2026 00:35:04 Adam Erik Bauer réttarefnafræðingur hefur starfað á rannsóknarstofu lyfja- og eiturefnafræði Háskóla Íslands frá árinu 2018. Þar vinnur hann nú að doktorsverkefni sínu en markmið þess er að skoða leiðir til þess að meta nýjungar og breytingar á íslenskum fíkniefnamarkaði og nota þær upplýsingar í þágu lýðheilsu. 
#3/2026 Frá Kenýa í læknisfræði – Alma Glóð Kristbergsdóttir, sérnámsgrunnlæknir á Landspítala.
#3/2026 Frá Kenýa í læknisfræði – Alma Glóð Kristbergsdóttir, sérnámsgrunnlæknir á Landspítala. Apr 8, 2026 00:54:56 Alma Glóð Kristbergsdóttir er sérnámsgrunnlæknir á Landspítala. Leið hennar að læknisfræðinni er í senn óhefðbundin og heillandi. Það var undir lok menntaskóla sem hún áttaði sig á því hvert hugurinn stefndi, hana langaði til þess að hjálpa fólki. Það var svo tveggja mánaða dvöl í Kenýa sem veitti henni fullvissu um að stefnan væri rétt. Alma Glóð var gestur Læknavarpsins.
#2/2026 Per mentis innblásin af „sænska módelinu“ – Kristófer Sigurðsson
#2/2026 Per mentis innblásin af „sænska módelinu“ – Kristófer Sigurðsson Mar 27, 2026 00:28:23 Per mentis er geðlækningastofa sem býður þjónustu í almennum geðlækningum, þar á meðal greiningu og meðhöndlun taugaþroskaraskana á borð við ADHD. Þjónustan er veitt í teymisvinnu geðlækna, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga. Kristófer Sigurðsson, stofnandi Per mentis, er mikill talsmaður teymisvinnu innan heilbrigðiskerfisins. Hann var gestur Læknavarpins og hér að neðan má sjá stutt brot úr því vi
#1/2026 Klíníkin Ármúla
#1/2026 Klíníkin Ármúla Jan 7, 2026 01:05:20 Klíníkin Ármúla er læknamiðstöð þar sem framkvæmdar eru fjölbreyttar aðgerðir, bæði þar sem sjúklingar útskrifast samdægurs og einnig þær sem krefjast innlagnar. Þeir Hjálmar Þorsteinsson, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum, Kristján Skúli Ásgeirsson, sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum, og Hrólfur Einarsson, sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum, komu í Læknavarpið og sögðu frá ferli
#8/2025 Bjarni Geir Viðarsson og Guðrún Höskuldsdóttir.
#8/2025 Bjarni Geir Viðarsson og Guðrún Höskuldsdóttir. Dec 4, 2025 00:43:50 Bjarni Geir og Guðrún ræða stöðu mála í sérhæfðri offitumeðferð á Reykjalundi.
#7/2025. Steinarr, Þórður og Þórarinn eru íslenskir skurðlæknar sem reka Klíník í Svíþjóð.
#7/2025. Steinarr, Þórður og Þórarinn eru íslenskir skurðlæknar sem reka Klíník í Svíþjóð. Nov 4, 2025 00:50:40 Steinarr Björnsson, Þórður Ægir Bjarnason og Þórarinn Kristmundsson segja frá vegferð sinni í Læknavarpinu.  
#6/2025. Soffía Guðrún Jónasdóttir – Beinkröm - skortur í alsnægtum.
#6/2025. Soffía Guðrún Jónasdóttir – Beinkröm - skortur í alsnægtum. Oct 6, 2025 00:48:17 Soffía hefur í starfi sínu greint tíu börn með beinkröm hérlendis og segir að íslensk börn séu almennt ekki að fá nægjanlegt magna D-vítamíns. Hvað er til ráða?
#5/2025 Fehima Líf Purisevic og Katla Rut Robertsdóttir Kluvers um vita og Gulleggið.
#5/2025 Fehima Líf Purisevic og Katla Rut Robertsdóttir Kluvers um vita og Gulleggið. Sep 3, 2025 00:33:49 Þær Fehima Líf og Katla Rut komu í Læknavarpið á dögunum og sögðu frá því skemmtilega ævintýri þegar þær og tvær aðrar vinkonur úr menntaskóla komust í topp tíu í Gullegginu með hugmynd sína Vita.
#4/2025 - Gunnar Guðmundsson
#4/2025 - Gunnar Guðmundsson Jul 3, 2025 00:49:10 Gunnar Guðmundsson fær sínar bestu vísindahugmyndir á fjöllum.
#3/2025 Sæmundur Rögnvaldsson segir frá vísindastörfum sínum og framtíðarplönum
#3/2025 Sæmundur Rögnvaldsson segir frá vísindastörfum sínum og framtíðarplönum May 8, 2025 00:42:39 Sæmundur Rögnvaldsson er nýdoktor og sérnámslæknir í lyflækningum. Hann var valinn Ungur vísindamaður Landspítala vorið 2025 og nú á dögunum fékk hann um 60 milljóna króna rannsóknarstyrk frá World Cancer Research Fund. Styrkur þessi er til þess að rannsaka tengsl næringar og líkamsþyngdar við forstig mergæxlis og þróun þess yfir í mergæxli.

Recommended