
Á ég að hend'enni?
Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína bera saman bækur sínar í nýjum podcasti. Þær fara í gegnum bókaskápana, flokka og meta hvort halda eigi, gefa eða eyða. Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og ákveða örlög þeirra. Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa?
Episodes

Bless - Halló - Lokaþáttur 2025-2025
Send us Fan MailTímabær andlátsfrétt en afskaplega eldheitur útfararstjóri;)Á ég að hend´enni kveður því hér, í bili að minnsta kosti, því nú leita vinkonurnar á ný mið eftir ríflega 70 þætti sem allir eru aðgengilegir á öllum helstu streymisveitum. Í lokaþættinum réða þær til sín útfararstjóra enga aðra en manneskjuna sem þekkir og jarðar þær vitanlega best, æskuvinkonu beggja, Möggu Örnólfs se

72. Braselíski frumskógurinn og íslenska lækningakonan Ravi
Send us Fan MailÁ veitingastaðnum Mama áttu þær Halldóra og Steinunn óvæntan fund við lækningakonuna Raví Jenný en hún er nýkomin til Íslands eftir 11 mánuða dvöl með Huin- Kuin þjóðflokknum.Raví segir okkur frá ferðum sínum, hvers hún leitaði og hvera hún var vísari. Kannski er lykillinn að okkar eigin plöntu og alþýðulækningamenningu fundin með hjalp þjóða sem enn hafa varðveitt lækningavisku þá

71. Áramótaþáttur III. og síðasti hluti
Send us Fan MailÞessi III. hluti Áramótaþáttarins er rúsínan í pylsuendanum! Hér fer stuðið fram úr hófi og auðvitað fer nánast allt úr böndunum. Gleðilegt ár kæru hlustendur!Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og SjáðuSupport the show

70. Áramótaþáttur II.hluti
Send us Fan MailÞessi II. hluti Áramótaþáttarins fer einnig fram á uppáhaldsstaðnum, Mama, í Bankastræti og þar taka þær Steinunn Og Halldóra á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Nú æsast leikar! Fegurðardrottningar, völvur, lögmenn, kærastar, söngkonur og atvinnu álfkonur mæta á svæðið!Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og SjáðuSupport the sho

69. Það eru að koma áramót 25/26 - Spjallað við merkar konur I. hluti
Send us Fan MailÍ þessum þætti sitja vinkonurnar á sínum uppáhaldsstað, Mama, í Bankastræti og taka á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Í þessum fyrsta hluta eru gestir enginn annar en Nikkó, eða Nicolas Pétur Blin eiginmaður Halldóru sem er neyddur í stutt viðtal en svo kemur engin önnur en Esjudóttirin vitra, Linda Mjöll Stefánsdóttir, dr

67. Gleðilegur jólaþáttur 2025
Send us Fan MailÞað eru lúnar vinkonur sem fara yfir jólaundirbúninginn sem virðist vera lítill sem enginn en þó, Halldóra, keypti sófa og Steinunn Eldar rétt um jólin í fyrsta sinn!Annars er sagt frá tilurð skemmtilegasta skötuboðs aldarinnar sem fram fór á Þorláksmessu 2025. Geta líksnyrtar gefið ráð gegn ólykt, Steinunn hringir í besta útfararstjóra landsins og fær hjá honum góð ráð! Börnin, me

66. Virk-ilega farið yfir víðan völl
Send us Fan MailSteinunn vill gjarnan vinna við að ferðast um heiminn og stofna fyrirtæki sem hitir Tent-Living en Dóra segir þetta bara vera glorified tjaldútilegu. Varnarkerfi líkamans er til umræðu en er kerfi eins og hænsnanetTakk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu GleraugnaverslunFullan þátt má hlusta á hér: https://feeds.buzzsprout.com/2419952.rssSupport the show

65. Dauði hjartans viðtal við Jared Wholeheart
Send us Fan MailÍ þessum þætti fá Halldóra og Steinunn til sín enn að leiðbeinendum Halldóru, Jared Wholeheart, en hann er sprenglærður ráðgjafi og hefur átt litríkan starfsferil. Einnig ræða þær um andlega vakningu, dauða hugans og hjartans á þeirri leið. Hvað sambönd geta kennt okkur um okkur sjálf og um hið magnaða samspil hins kvenlega og karlmannlega í fari hvers og eins. Hvernig getum við l

64. Steinn um Stein frá Steini til Steins (Steinn Steinarr)
Send us Fan MailHalldóra hefur tekið upp huggulegan lífsstíl og fræðir Steinunni um þær raunir sem hún hefur komist í við að gera hýbíli sín að tímaritaverðu ljósmyndaefni. Magga Erla Húsahvíslari kemur til sögunnar en hún kemur og galdrar inn á heimilum með því að færa til húsgögn, færa til myndir og leikur sér og endurnýtir eigur fólks sem fyrir er á staðnum - Kona með auga eins og Steinunn segi

63. Einsetukonur og tækifærissinnar
Send us Fan MailSteinunn ver sig fimlega þegar Halldóra reynir að fá hana til að axla ábyrgð á gengdarlausri leti sinni og vinnuframlagsleysi. Halldóra er langþreytt á gangi mála og reynir að ala vinkonu sína upp án árangurs. En Human Design þeirra vinkvennanna er undir og ýmislegt er gaman að skoða í kortum beggja enda eru þær báðar í því sem þær kalla ´transision´ án þess að þær skýri það nokkuð

61. ,,Ég er eiginlega alveg orðlaus“ Ólafur Stefánsson eins og hann er bestur
Send us Fan MailSteinunn þekkir tvo íþróttamenn og annar er gestur þeirra Halldóru í þessum mjög þætti. Gesturinn er enginn meðalmaður, óvanalegur og einlægur, sá einstaki Óli Stef! Í fyrstu er gesturinn orðlaus, sem hann segir hollt.en þetta einlæga samtal fer um víðan völl enda þrír sveimhugar í leit að kjarna sem hvergi er að finna.Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu. Við kunnum að meta

60. Þetta er fyrsti verulega SEXÝ þátturinn!
Send us Fan MailÍ þessum þætti verður farið yfir óvenjulegt boðskort sem Halldóra hlaut á dögunum. Þar verður í boði að vera allsber en töluverður áhugi er að myndast hjá þeim stöllum um að ganga um naktar en sérstaklega ber á þessu hjá Halldóru. En hvað er nánd og hversu mikil nánd er Ok, of mikil o.s frv. Allt þetta of fleira á lendum þess erótíska verður rætt og krufið.Elsku áskrifendur, þessi

59. Viðtal við algjöran Eðalmann - ADI ÆVINTÝRI
Send us Fan MailSumir þættir podcastsins eru teknir upp á matsölu-og samfélagsstaðnum Mama í Bakarabrekkunni. Þar er fallegt og ört stækkandi samfélag fólks sem kýs að leggja stund á andlega iðkun, borða heilnæma náttúrufæðu og drekka gullna túrmerik drykki og draga sér svo sem eins og eitt tarot spil. Einn höfuðpaurinn á Mama er Adi Ævintýri, andlegur kennari og leiðbeinandi. Hann leggur ástundun

58. Hjónalíf, James Bond á Bora Bora – Halldóra ræðir við eiginmann sinn
Send us Fan MailSteinunn skrópaði í þennan þátt og því brá Halldóra á það ráð að taka viðtal við eiginmann sinn Nikkó en um engan er þeim Steinunni meira tíðrætt um. Hjónin stikla á hjónamálum, Nikkó segir sögur frá uppvaxtarsögur frá Marokkó, kostulegar sögur af skurðlækninum pabba hans og einhver óskiljanlegur galdur er í því að heyra hjón tala saman þó þau viti vel að það er verið að taka þau

57. Veitingahúsið Mensa og minningarnar
Send us Fan MailHvað gerist þegar kakóbolli kveikir á minningu og bók breytist í brú á milli heima? Við sitjum saman yfir Mensu, matreiðslu- og minningabók sem setur fjölskyldu, unglingsár og samfélagið okkar við saman borð þar sem rababarabaka, salöt og glæstar kökur voru meira en bara matur. Sögur sem eru bæði fyndnar og hjartnæmar: konan sem borgaði með fallegum steinum, draugurinn sem tók hlj

56. Frá verkjum til visku – Viðtal við lækningakonu (Ana Bloom)
Send us Fan MailLjós kviknar á í öllum hornum hugans þegar Anna Bloom stígur inn og segir okkur frá ferli sem byrjar í líkamanum en endar í rýminu þar sem hugrekki, húmor og heilun mætast. Galdra og lækningakonan Ana Bloom hefur frá mörgu að segja og hagnýt galdaráð leynast í samtalinu sem má prófa strax—gulur pýramídi til að finna týndan hlut, grænn styrkur fyrir plöntuna sem á erfitt.Ana afhjúpa

55. Frá kvíða til sjálfsmildi: reynslusögur af sveppum, microdósing og Ayahuasca
Send us Fan MailBókahillan varð að hliði inn í hugrekkið. Við förum frá hæðni og hálfkæringi yfir í djúpar sögur af microdósum, sveppum og ayahuasca, þar sem kvíði ´ breytingaskeiðinu, svefnleysi og stjórnsemi víkja fyrir mildi, leikgleði og heiðarlegri skuggavinnu. Á leiðinni skoðum við hvernig Portugal nálgast afglæpavæðingu og hvers vegna skaðaminnkun, öryggi og umgjörð skipta öllu þegar fólk v

54. Frá fordómum til fræðslu: Tóta töfrakona og kannabishjúkka
Send us Fan MailÞórunn Thors Jónsdóttir er gestur Halldóru og Steinunnar en hún hefur um árabil leiðbeint Íslendingum sem nota kannabis í lækningaskyni. Þú heyrir sögur sem kveikja von—frá sjúklingunum sem endurheimta svefn og matarlyst til kvenna sem finna loksins tök á endómetríósu og miklum tíðaverkjum. Við förum frá bókaskápnum og brandaranum yfir í djúpa, heiðarlega umræðu um lífsgæði, virðin

53. Hinn fullkomni Gestur II ( Lífsskoðanir og gildi) Seinni hluti viðtals við Gest Pálmason
Send us Fan MailÍ kjarna mannlegrar tilveru er samband okkar við reglur, gildi og samfélagið grundvöllur alls. Þessi framhaldsþáttur með Gesti Pálmasyni kafar djúpt í þessar pælingar og kannar hvernig mótþrói gegn yfirvaldi getur verið hluti af erfðamengi okkar og uppeldi.Þátturinn skoðar líka ólíkar nálganir á markmiðasetningu og skipulag. Sumir einstaklingar setja sér aldrei markmið en ná samt

52. Hinn fullkomni Gestur: Gildakerfin okkar (Gestur Pálmason)
Send us Fan MailÞegar þú skilur gildakerfi þín sérðu heiminn í allt öðru ljósi. Í þessum spennandi þætti förum við í djúpt ferðalag í gegnum þróun mannlegra gilda, allt frá grunnþörfum um að lifa af upp í heimsmiðaða hugsun.Hvað rekur þig áfram? Er það öryggið í að tilheyra hópi, löngunin til að hafa áhrif, reglur og skipulag, eða kannski draumurinn um betri heim? Með hjálp Gests Pálmasonar förum

51. Leiðin heim er í gegnum eldinn, ekki framhjá honum (instagram viska)
Send us Fan MailLífið er ferðalag sem krefst þess að við horfumst í augu við allar hliðar okkar sjálfra - ekki bara þær fallegu. Í þessu samtali skoða Steinunn og Halldóra eðli sjálfsvinnu og BREAKING NEWS er að sjálfsþroski snýst ekki um að losna við erfiðu hlutina.Margir leita að "betri útgáfu" af sjálfum sér í gegnum andlegar æfingar, hugleiðslu eða jóga. En hvað ef sú leit er bara f

50. Að sitja með sjálfum sér og elska illmenni (Vigfús Bjarni í viðtali)
Send us Fan MailHvað gerist þegar við sleppum tökunum? Hér hefst ferðalag inn í kjarna mannlegrar reynslu þar sem við könnumst við mikilvægi æðruleysis í daglegum æfingum. Enginn verður óbarinn biskup svo þær Steinunn og Halldóra fá til sín Vigfús Bjarna Albertsson til spjalls og ráðagerða. Hann sleppur reyndar óbarinn enda ekki biskup heldur rithöfundur, prestur og sálgætir.Í þessu einlæga samtal

49. Móðurhlutverkið og kannabislækningar
Send us Fan MailMóðurástin! Þurfum við hana? Getum við lifað án hennar? Uppeldisfræðingarnir ...hm...Steinunn og Halldóra tala fjálglega um uppeldi en það er lán að þær skuli ekki hafa nokkurt átorítet í þeim efnum. Umræðan snýst svo dálítið mikið um heilsu kvenna enda hafa þær stölluð hótað að tóra lengur en gott þykir. Steinunn talar annars nánast í viðstöðulausum um ráðstefnu sem er væntanleg,

48. Skuggavinna og drullan í sálinni (Endurtekin bók Papalangi)
Send us Fan MailAndans dýr Steinunnar, eða spirit animal, er ugla og hún holdgerðist sem ugla í samkvæmi nú fyrir stuttu og veit nú hvernig það er að vera fiðraður. Fróðlegt fyrir fuglaáhugamenn. Dóra er sem oft áður að velta fyrir sér the dark female sem hún reynir nú að styrkja í sér með því að vera meiri tík svona dags daglega. Það er líka töluvert talað um hvernig ljósið lýsir upp myrkrið og h

47. Að koma út úr skápnum sem völva (Völva Suðurnesja)
Send us Fan MailÞað kemur á daginn að bæði Halldóra og Steinunn telja sig völvur svo það er um að gera að fara að panta hjá þeim tíma. Þær ræða hvernig sýnir og hlutir birtast þeim eins og þetta rugl sé einhver vitniburður um forspárgáfu þeirra. En til umhugsunar er bókin, Völva Suðurnesja um alvöru íslenska völvu sem sagði: Ég er að sjá“, þegar hún var lítil og fór sálförum. Steinunn fær afmælis

46. Alversti eða besti þátturinn hingað til! (Konur og ástir, Nýja testamentið)
Send us Fan MailÞað kveður við nýjan tón í þessum þætti þar sem Halldóra gerist djörf hvað innslög og klippingar varðar. Hljóðið í þættinum reyndist ekki vera fullkomið og því þurfti að bútasauma þáttinn eins og handverkskonum einum er lagið. Útkoman – algjör nýlunda í hlaðvarpsþáttagerð á Íslandi ef ekki í heiminum! En tvær bækur koma við sögu þessu sinni, sem lesið er úr af handahófi verða því m

45.Partý, partý, partý! Öll Heimsins partý!
Send us Fan MailHalldóra er skemmtanasjúk og kemur með partýbók og Steinunni langar strax á kjötkveðjuhátíðina í Ríó. Verður Freezing Man svar Íslands við Burning Man in the US of A!? Það er óviðeigandi hvað Halldóra talar mikið og oft um það að hún vilji vera allsber, hvað gengur konunni til? Báðar hafa þær verið Fjallkonur og þurfa að rifja upp þá óhæfu að Steinunn hafði verið fjallkona eftir mi

44. Breytum bulli í gull (Kría siglir um suðurhöf)
Send us Fan MailEf við byggjum í landi þar sem bara er hægt að týna ávexti sér til matar sem nota á samdægurs því annars myndi allt skemmast þá yrði okkur aldrei kalt en þannig er það í Frönsku -Pólónesíu þar sem Halldóra dvaldi ásamt fjölskyldu sinni. Sjöl eru mesta þarfaþing á ferðalögum en í þessum þætti má læra um notagildi sjala í tískuinnslagi frá Dóru. Ýmislegt er rætt um gleraugu í þessum

43. Þar sem háir hælar hálfan dalinn fylla (Leikrit eftir AI og Ljóð eftir RUMI)
Send us Fan MailTröllskessurnar Fossatussa og Fjallatussa létu AI skrifa fyrir sig leikrit og um það skal fátt sagt utan það að það er ansi lélegt en stóra spurning dagsins er: Ertu dropinn í hafinu eða hafið í dropanum? Er auðveldara að vera allt en að vera eitthvað afskaplega smátt? Töluverð hætta virðist vera á því að Steinunn sé að gerast súfisti því hún leggur nú stund á snúningsdans sem kem

42. Fjallatussur og hin guðdómlegi kvenleiki (Gullkorn úr íslenskum bókmenntum)
Send us Fan MailÞessi þáttur er tekin upp á uppáhalds hang-outi þeirra vinkvenna, andlega menningarheimilinu Mama í bakarabrekkunni. Nú er loks hægt að velta fyrir sér kvenleikanum þar sem þær eru báðar komnar fram yfir síðasta söludag og í Halldóru er að fæðast fjallatussa. Ljósu og dökku hliðar kvenleikans og karlmennskunnar eru krufnar til mergjar enda löngu komin tími til að í það mál allt fái

41. Þrettán vasaklúta þáttur (Bróðir minn Ljónshjarta e. Astrid Lindgren)
Send us Fan MailSteinunn fór í fyrra lífi i fyrralífslestur og reyndist hafa verið svört ambátt og breskur grasafræðingur seint á 18. öld. Halldóra reynist vera frambærileg á kínversku enda downloadar hún bara tungumálum í gegnum Akashic-skjölin og svo var hún náttúrlega Kínverji í fyrra lífi að sögn. Konur eru að taka yfir heilbrigðiskerfið enn og aftur enda eru það ætíð þær sem sjá um aðhlynning

40. Nærföt útfararstjórans og The 4 fucks (Speki Konfúsíusar)
Send us Fan MailÞað kemur í ljós að Steinunn átti nærfataskúffu sem hæfði útfararstjóra en hefur nú, af því að hún las það einhverstaðar, kannski á Smartlandi, að það væri hollara að klæðast glaðari litum næst sér. Halldóra byrjaði hinsvegar að klæðast björtum litum í hruninu og dvaldi langdvölum með fjölskyldu sína í sundlaugum Reykjavíkur til að forðast skarkala heimsins. Ef þetta hljómar undarl

39. Að selja sig eða selja sig ekki (Spámaðurinn Kahil Gibran)
Send us Fan MailAð vera þræll markaðarins en vilja það eiginlega ekki er efst baugi. Stöllurnar Steinunn og Halldóra viðurkenna á sig vandræðagang miðaldra kvenna sem reyna að fóta sig á samfélagsmiðlum í ýmsum tilgangi. Þær leggjast svo lágt að biðla til hlustenda að dreifa fagnaðarerindinu þ.e podcasti þeirra - ekki er öll vitleysan eins. Sálarferðalagið er áfram til umræðu enda eru allir í rusl

38. Er sálin á eilífðarferðalagi? (Feður og synir e. Ivan Sergeyevich Turgenev)
Send us Fan MailHalldóra er að spá í vaxtarferðalag sálarinnar og hvar hún sjálf er stödd í því ferðalagi. Steinunn heldur því fram að í verönd hverrar manneskju búi þrír þræðir innra barnið, innra foreldrið og svo hið innra fullorðna sjálf. Þær eru óvanalega djúpar og einlægar í þessum þætti. Já það má segja að þessi þáttur sé á dýpinu, andlega dýpinu. Það er búið að vara ykkur við...hlustið ef þ

37. Stóru vinkonurnar eru bestu vinkonurnar! ( She is my sweetheart)
Send us Fan MailÞær Halldóra og Steinunn eiga báðar því láni að fagna að hafa átt fjölmargar sterkar og góðar fyrirmyndir í lífinu og hvað er betra en að eignast slíkar að vinkonum. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir listakona með meiru en ein þeirra ofurkvenna sem hafa fylgt þeim stöllum stóran hluta ævinnar og til umfjöllunar í þessum þætti, er eins og Steinunn kallar það einhver fallegasta ástarjátni

36. Það eru allir og amma þeirra að taka sveppi
Send us Fan MailÍ þessum þætti dregur aldeilis til tíðinda því Steinunn nuddar hendurnar og fæturnar á Halldóru þar til hún sofnar næstum. Þetta ku vera heimsviðburður. Ætla má að Steinunn hafi með ráðum boðið upp á nuddið svo hún sjálf gæti talað svo gott sem í viðstöðulausum. Halldóra fær ferðasögu af heilsudvöl í Portúgal þar sem Steinunn borðaði ofskynjunarsveppi og talaði við blóm, býflugur o

35. Erum við stjörnuryk eða zombie-ar? Er hugsanlegt að sumir séu hvortveggja.
Send us Fan MailFyrst segir frá kuðungum sem Halldóra bar yfir hálfan hnöttinn. Fermingar ber á góma en hvorki Steinunn né Halldóra fermdust og þess vegna kannski er þetta podcast þeirra svona undarlegt. Er náttúrutrúin það merkilegasta sem við Íslendingar eigum í menningu okkar? Það finnst Steinunni. Halldóra segir frá óvanalegum uppeldisaðferðum þar sem hún hræddi börn sín til varkárni með trö

34. Hægra heilahvelið, Freud og ferðalagið. (Kuan Yin og Freud)
Send us Fan MailHalldóra dregur spil frá gyðju samkenndarinnar Kuan Yin og færir spilið Halldóru nýja sýn enda á hún að leita að auganu sem býr í hjartanu, hvernig sem hún fer nú að því. Hvað segja ferilskrár um manneskjur yfirleitt? Eru manneskjurnar oft og tíðum fangar fortíðarinnar því hver ertu ef þú sleppir tökum á sögunni þinnii? Freud ber á góma og salfræðingur sem Halldóra þekkir kemur í h

33. Má bjóða þér far? Til Helvítis? Í gegnum hreinsunareldinn? ( Guðdómlegi gleðileikurinn)
Send us Fan MailÍ fjarska heyrist mófuglasöngur enda er vorið á hátindi sínum. Heimsbókmenntirnar eru undir og ferðast þær Halldóra og Steinunn eftir leiðakerfi sjálfsvitundarinnar í gegnum sjálft helvíti og hreinsunareldinn í leitinni að paradís. Eru örvæntingarfyllstu augnablik í lífi okkar tækifæri í dulargervi? Hvernig komumst við úr limbói tvíhyggjunnar og aftur heim til hjartans? Halldóra át

32. Skjalasafn alheimsins - megum við fara þangað í beinni? (Akashic hugleiðsla)
Send us Fan MailÞessi þáttur er tekin upp í Skorradal í sumarbústað Halldóru þar sem Steinunn á griðastað og myndar samband við friðland og fiðraða. Halldóra umskapar sjálfa sig og breytist í transmiðil snemma þáttar og þá kemur við sögu hinn kvensjúki Pétur og reyndar ein vinnukona sem hann barnaði margoft í sveitinni. Napóleonsskjölin eða Akashic skjölin eru heimsótt og hauslaus geimvera vill h

31.Á mörkum raunveruleikans (Macbeth)
Send us Fan MailHalldóra fékk eiginmann sinn til að nálgast Alheimsskjalasafnið eða Akashic skjölin í hugleiðslu og má segja að þau hafi bæði lent í töluverðum ógöngum því þegar þangað er komið er nauðsynlegt að stimpla sig út því annars er maður fastur milli tveggja heima. Steinunn segist svo jarðbundin að hún festist frekar í Napoleonsskjölunum eftir Arnald Indriðason. Fyrirvaralaust breytist H

30. Viljiði vita leyndarmál? (The Secret)
Send us Fan MailFyrir leyndarmálasækna er þessi þáttur kannski nákvæmlega það sem þið voruð að leita að. Reyndar eru töluverðar líkur á að þið munið eiga erfitt með að skilja hvað fer fram, en það er vegna þess að Steinunn er komin á það sem hún kallar Tea n' Biscuits aldurinn! Dóra gerir uppgötvun! og mun svara því í þættinum, hvaða peningarnir koma! En það er sumsé bókin THE SECRET...fornfr

29. Voru páska-endurnar í Biblíunni? (páskaþáttur)
Send us Fan MailÞað er ekki gott að segja hvað fer fram í þessum þætti. Sjálf Biblían er undir en Halldóra getur ekki fyrir sitt litla líf fundið það sem hún ætlaði að lesa í hinni Helgu Bók! Krossfestinguna ber á góma enda styttist mjög í píslargöngu alls mannkyns og allir örugglega fyrir löngu búnir að afflísa litlu krossana sína. Þær ráðast nú heldur betur á garðinn þar sem hann er lægstur þe

28. Ferðaskrifstofan Gaman Gaman! ( Ennegram)
Send us Fan MailFramtíðarplönin eru ljós, þær vinkonurnar Steinunn og Halldóra ætla að setja á fót leikjabúðir fyrir fullorðna og Dóra ætlar að sjá um excelskjölin og raða fólki á leigubíla. Steinunn hefur eftir ónefndum sérfræðingi að manneskjan hafi ekki bolmagn til að melta allar heimsins hörmungar, þegar við rétt náum utan um að hugsa um okkar nánustu aðstaðdendur. Halldóra kemur færandi hend

27. Þegar þú berð ljósið að myrkrinu verður myrkrið stórkostlega fallegt (Píkusögur)
Send us Fan MailGervigreindin veit allt um Halldóru og frægðarsól hennar og segir að hún hafi náttúrulegan en hráslagalegan kynþokka. AI harðneitar að gefa Steinunni ráðleggirngar um hvernig best væri að snúa sér ef hún vill sænga með Halldóru. Þær stöllur sökkva sér ofan í leiktexta úr verkinu Pikusögur og reyna fyrir sér í stunutúlkun með afdrifaríkum hlátursköstum því þroskinn er bara ekki meir

26. Hversu oft í lífinu á maður að skipta um persónuleika? (Steina sofnar)
Send us Fan MailÁ þessi þáttur að taka breytingum og hætta að vera bókmenntaþáttur og verða þess í stað að henda fötum þáttur? Steinunn og Halldóra telja sig hafa ,,larpað“ allt lífið og myndu alla daga velja að ,,larpa“ umfram það að ,,lana“. Dóra segir frá því þegar hún kortlagði á annað hundruð einstaklinga sem hún tók í undarlega einstaklingsmeðferð. Kvíða ber á góma en hvað er til ráða þegar

25. Lemdu á þér mjaðmirnar til að ná jarðsambandi (Jónas Hallgrímsson)
Send us Fan MailSteinunn er svo róleg í þessum þætti að halda mætti að hún eigi stutt eftir. Misgóðar ráðleggingar til stúlkna frá fyrri öldum koma fyrir þótt þær þættu nú ekki góðar tvíbökur í dag! Er gott að reyna að gleyma öllu því sem höfuðið spinnur upp og hugsa bara með hjartanu? Þegar Dóra fær áhuga á einhverju kviknar orka í líkamanum á henni, hvað meinar hún? Jónas Hallgrímsson svífur yfi

24. Kattaskítur og rándýr ilmvötn (Ilmurinn)
Send us Fan MailHalldóra hefur lagt í vana sinn að kaupa rándýr ilmvötn en nota þau síðan bara í einn dag á meðan Steinunn notaði sama ilmvatnið í þrjá áratugi en smyr sig nú eingöngu með ilmkjarnaolíum. Bókin Ilmurinn kemur við sögu, en á að hend'enni? Pablo, köttur á heimili Steinunnar skítur í blómapott og er hótað lífláti í miðjum þætti. Mun hann hálshogginn verða? Verður aftakan í beinn

23. Ástin er alheimsundrið mesta! (Jóhannes úr Kötlum)
Send us Fan MailÞetta er allra andlegasti þátturinn hingað til því smáskammtar á hugvíkkandi sveppum koma til tals og áhrif þeirra á þeytivindu hugans. Halldóra er gift vísindamanni og veit því allt um spegilfrumur sem eru alveg stórmerkilegur hluti af viðbragðskerfi okkar. Steinunn les ljóð Jóhannesar úr Kötlum og hann Jesús kemur við sögu enda erum við manneskjurnar eilíflega að fara í hans spor

22. Þið munið öll! Þið munið öll! (Lokaæfing Svövu Jakobs)
Send us Fan MailFæddar 68´og 69' ólust þær vinkonurnar upp við kjarnorkuvána ógurlegu og núna ríflega 50 árum síðar eru kjarnorkustríðsógnanir að trenda aftur. Þá er bara eitt í stöðunni að skella sér niður í kjarnorkubyrgi Svövu Jakobsdóttur og leikrit hennar LOKAÆFINGU sem fjallar um íslensk hjón sem loka sig inni í einu slíku. Vill maður reyna að lifa af í slíku stríði eða deyja bara drott

21. Ég bið að heilsa eftir Inga T. (Söngbókin)
Send us Fan MailEr Halldóra gerviflautuleikari eða alvöruflautuleikari, þar er efinn! Finnst öllum gaman að dansa? Hver vill vera athyglissjúka leikkonan sem lætur á sér bera á viðburðum annara? Steinunn deilir því að amma hennar hnerraði sjö sinnum en er augljóslega eftirbátur hennar því í þættinum hnerrar hún aðeins fimm sinnum. Er það forboði um eitthvað? Ferðasöngbók er til umræðu enda ættu

20. Bylting miðaldra þjónustufulltrúa..kvenna (Birna, Rósa, Bára)
Send us Fan MailEru konur alltaf að gerast þjónustufulltrúar án þess að gera sér grein fyrir því? Halldóra og Steinunn vilja nýja vængi enda búnar að vera þjónustufulltrúar í þrjá áratugi. Halldóra er meira miðaldra en Steina því hún heldur að það heiti ,,að larpa“ þegar unglingar eru ,,að lana.“ Eru barnaherbergi og stærð þeirra misskilningur frá upphafi til enda? Um það tjáir Steinunn sig enda

19. Hugleiðsla, Botox og betri líðan (Hugleiðsla)
Send us Fan MailFlensa dró Steinunni nær til dauða og henni batnaði ekki fyrr en henni höfðu verið færðir svo margir blómvendir að heimilið minnti á líknardeild. Dóra vænir vinkonu sína um að hafa farið í botox en Steinunn segir þetta nýja 'look' stafa af massívum varaþurrk. Báðar gangast vinkonurnar við útlitsröskun en spurningin er; Afhverju byrjar svona geðveiki að búa um sig? Dóra læ

18.Einu sinni langaði okkur að gerast Dýragarðsbörn (Christiana F)
Send us Fan MailUnglingsárin einkenndust af hangsi á Hressó og reykingum í sjoppum en aðal fyrirmyndin var ungur heróínisti frá Berlín, Kristjana F. Var bókin um hana forvörn eða fyrirmynd? Ekki alveg gott að segja en Halldóra fór á söguslóðir bókarinnar sem ung stúlka enda lærdómsfús með endemum.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlun.Support the show

17. Ég negli og saga og smíða mér bát (Í kjölfar Kríunnar)
Send us Fan MailÍ kjölfar kríunnar, er bók sem breytti lífi Dóru og hafði mikil áhrif á Steinunni líka. Dóra komst að því við lestur bókarinnar að hún hugsaði of smátt og að hún ætti ekki að láta neitt stoppa sig í að láta drauma sína rætast. Steinunni finnst alltaf gaman að vakna þótt þyrmt geti yfir hana stuttu síðar. Dóra talar um frelsið sem hún upplifir á skíðum en nennir ekki að tala um það

16. Manngerðirnar og baslið eilífa við egóið (Manngerðirnar)
Send us Fan MailSteinu fannst á unglingsárunum Dóra alltaf vera há og spengileg á meðan hún upplifði sig sem litla kiðfætta buddu. Dóra segir Ólöfu Skaftadóttur vera alvöru knattspyrnukonu en sjálf hafi hún aðeins leikið handboltamanneskju. Steinunn hefur gaman af kvartsáru fólki upp að ákveðnu marki en Dóra hefur litla elsku fyrir slíku. Ef sá sem kvartar fer í taugarnar á manni þá hlýtur sá hinn

15. Spáðu í mig... þá mun ég spá í þig (Spámaðurinn)
Send us Fan MailRósir eru sköpunarverkið sjálft enda er rósin tvíkynja. Og fíflið í Tarot heldur á rós sem sannar þvælukenningar Steinunnar um að við séum í raun öll rósir eða meðlimir í Rósareglunni. Halldóra umber kjaftæði Steinunnar og rifjar upp road-trip þeirra vinkvennanna en þá var með í för kynlífsdúkkadúkkuna Nína sem var gerð ódauðleg í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Oxzmá. Dóra vi

14. Spáum í spilin 2025 (Áramóta spá)
Send us Fan MailSteinunn er afburða beinþýðandi á meðan Halldóra fattaði á ögurstundu hvað hún er léleg í ensku. Köttur hefur hægðir í beinni. Tsjíkú-ví er ákall til kakaóguðsins og það skal hrópa þegar drukkið er alvöru- kakaó sem að þessu sinni er bragðbætt með stjörnuanís og einhverju sem enginn getur munað hvað heitir! Mun bókin deyja drottni sínum í framtíðinni eða er myndmálið það sem koma s

13. Jólaóratoría Steinunnar og Halldóru (Biblían, jólaguðspjallið)
Send us Fan MailÞetta mun þegar fram líða stundir verða valinn jólalegsti jólaþáttur allra tíma. Halldóra beygir af yfir Jólaguðspjallinu, Steinunn er engu skárri og þusar eitthvað í gegnum tilinningasemina sem grípur þær báðar. Saman sitja þær vinkonurnar, hámiðaldra, jóla yfir sig og ræða fæðingu frelsarans. Barn allra barna. Og auðvitað ástina skilyrðilslausu.Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki,

12. Guðsríki er að velja sér góða leikfélaga (Jólin koma)
Send us Fan MailSteinunn syngur Disney lög með börnunum sínum því henni misfórst að kenna börnum sínum íslensku jólalögin þegar hún bjó í Bandaríkjunum. Hversu mikilvægt er að eiga góða leikfélaga? Er það himnaríki þegar maður á slíkan? Halldóra var alveg frjáls til að gerast poppari á meðan að í ljós kemur að Steinunn þorði alls ekki að leggja slíkt fyrir sig.Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki, I

11. Hvar er boðið upp á svæfingar á hárgreiðslustofum? (Jólagrauturinn)
Send us Fan MailHalldóra var rétt um tvítugt þegar hún byrjaði að grána og nennur ekki að lita á sér hárið. Einu sinni hljóp kona þvert yfir götu til að ráða henni heilt í þeim efnum. Steinunni finnst svo leiðinlegt á hárgreiðslustofum að hún óskar þess að klippingu væri hægt að fá undir svæfingu. Hvernig stendur á því að börn eru svona treg að hjálpa til, eru þau kannski bara útgáfur af okkur sjá

10. ...Þau verða leið á lestri í bók, en lángar að sofa hjá...(Brot frá Laxnes)
Send us Fan MailÍ þessum þætti er það ástin og augun og ástin í augunum. Hvað má sjá í augum þeirra sem eldri eru...? Steina heldur að hún gæti verið dóttir leikarans Marty Feldman af því að hún er með svo útstæð augu en Dóra er örugglega dóttir foreldra sinna. Steina kann ljóð utan að sem Dóra kann ekki en það kemur ekki að sök því þær hafa báðar fengið hrós fyrir að vera vel máli farnar. Er hægt

9. Eru öll börn dramadrottningar? (Dísa Ljósálfur)
Send us Fan MailDísa Ljósálfur var mikill örlagavaldur í lífi Steinunnar Ólínu enda sólgin í drama en eru þær bækur sem við lásum í æsku áhrifavaldar í lífi okkar sem fullorðinna kvenna? Dóru er tíðrætt um froska og glæpastorka...verðum við ekki að læra að skilja og elska glæpadýr líka, því erum við ekki öll bæði vond og góð? Steinunn og Halldóra eru alveg sammála um eitt; það er glatað að láta kl

8. Það er of mikið pláss fyrir ofan höfuðið á okkur! (Jóhannes úr Kötlum)
Send us Fan MailDóra er með hendur ömmu sinnar– en af afhverju vill hún ekki mála sig? Steina þarf að hætta að vera hávær og að misþyrma lyklaborðum en Dóra getur ekki þegar eggin kenna hænunni. Kötturinn Pablo sem er úr Dölunum dregst að ljóðskáldinu Jóhannesi úr Kötlum. Steina er ekki sátt við að þátturinn sé að breytast í virðulegan bókmenntaþátt en Dóru finnst það flott og segist geta klippt

7. Nennir einhver að kenna köttum mannasiði? (Hámarks Árangur)
Send us Fan MailHalldóra dregur upp handbók sem breytti lífi hennar en hún man ekki hvernig. Steinunn vill ekki ná árangri í lífinu. Hvernig á að vera ekki alltaf í viðbragsstöðu ef kötturinn þinn kemur fram við þig eins og þú sért vinnukona. Hvers vegna eru börn nútímans förðunarfræðingar?Takk fyrir samstarfið Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlunSupport the show

6. Helvíti er engin skemmtiganga! (Mahabarata Indiandia)
Send us Fan Mail100.000 erindi er slatti en fólk hafði svosem nægan tíma í eld eld gamla daga. Hvernig er í neðsta víti Dantes? Er maður þar botnfrosinn til eilífðar eða er leið fær til að losna út úr myrkrinu og finna leiðina í paradís. Smá átök en upprisan er freistandi og mannbætandi. Í ilmvötnum eru olíur sem leiða aðrar olíur og gera það að verkum að ilmvötn endast og endast á manni. Kannski

5. Jónas í hvalnum og hvað ef Oliver Twist væri Guðmundsson? (Orwell og Engill meðal áhorfenda)
Send us Fan MailJesúbarnið er um það bil að fæðast undir Úranusi og vitringarnir eru stressaðir. Vill María gull, reykelsi og myrru eða vill hún kannski bara fá að vera í friði? Það er ekki gaman að vera fastur í hvalsmaga, það veit Jónas öðrum betur. Kynæsandi örleikrit dregur fram hliðar í persónuleika Halldóru sem ekki hafa sést áður. Steinunn spyr hvernig það hefði verið, hefði Oliver Twist

4. Bráðum munu allir vilja halda upp á afmælið sitt í Hvalfjarðargöngunum (Papalangi)
Send us Fan MailGætu Íslendingar vanist því að hafna búningum lífsins og ganga um naktir? Matvöruverslanir á föstudegi, sjáið þetta fyrir ykkur? Tæknihornið hefur göngu sína því þegar konur sem eru búnar með einn þriðja af ævinni búa til podcast þurfa þær að gefa sig tækninni gjörsamlega á vald. Dóra deilir reynslusögu sem má ekki fara lengra. Hvað getum við lært af frumbyggjaþjóðum? Allt og meira

3. Hvernig getum við vitað hvern við eigum að éta og hvern ekki? (Ljóna bókin)
Send us Fan MailÍ þessum þætti eru sálfræðingshæfileikar katta ræddir því heimili án katta er eins og spítali án hjúkrunarfræðinga. Steinunni dreymdi um að vera tökubarn og Halldóra ætlar að standa fyrir hópfjármögnun fyrir vísindagrein sem staðfestir með óyggjandi rökum að hún sé besta leikkona í heimi. Eru öll dýrin í skóginum vinir, já þangað til þeir taka upp á því að éta vini sína. Eru þau þá

2. Andardráttur og myrku öflin (Andardráttur og Mein Kampf)
Send us Fan MailÍ þessum þætti ræða þær Steinunn Ólína og Halldóra mikilvægi þess að draga andann, nokkuð sem flestir gera hugsunarlaust. það kemur í ljós að áralangt svefnleysi Steinunnar stafaði af nálægð við hræðilega bók sem olli straumhvörfum í mannkynssögunni en hvað á að gera við hræðilegar skruddur, brenna þær, éta þær, selja þær eða...vá nú er vandi á höndum.Takk fyrir samstarfið Alfreð a

1. Er bókaskápurinn spegill sálarinnar? (Trevor Noha, Glæpur við fæðingu)
Send us Fan MailÍ þessum þætti podcastsins – Á ég að hend'enni – drekka þær vinkonurnar Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína, sparneytið myntuvatn, þvælast um S-Afríku og Los Angeles, ræða barnauppeldi eða kannski ofeldi og kafa ofaní bókaskápa hvor annarrar þar sem bók Trevor Noah, Glæpur við fæðingu, kemur við sögu. ATH! Óheimilt er að vinna fréttir upp úr efni þáttanna fyrir prent e

Teaser
Send us Fan MailFyrsti þáttur kemur út á miðvikudaginn 6. nóv!Support the show











