
Legvarpið
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu.
Episodes
Ófrjósemi og frjósemislækningar með Ingunni
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Ingunn Jónsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingalæknir, stofnandi og meðeigandi Sunnu frjósemisstofu. Hún leiðir okkur í allan sannleikann um frjósemisvanda og frjósemislækningar og heyrum við af allskyns meðferðum og þjónustu sem veitt er í frjósemisferlinu.
Áhrif nikótíns á meðgöngu á nýbura með Snjólaugu og Björk
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestir þáttarins eru tvær fagkonur frá Vökudeild Landspítala, þær Snjólaug Sveinsdóttir nýburalæknir og Björk Áskelsdóttir ljósmóðir. Þær fjalla um áhrif nikótín-notkunar á meðgöngu og í brjóstagjöf á nýburann til skemmri og lengri tíma og má til dæmis nefna fráhvarfseinkenni á borð við öndunarerf
Fæðingarparís með Ósk
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þættinum segir Sigurveig Ósk Pálsdóttir ljósmóðir frá svokölluðum Fæðingarparís sem hefur nýlega verið innleiddur hér á landi. Markmið verkefnisins er að hvetja konu og stuðningsaðila þeirra að undirbúa sig fyrir fæðinguna og stuðla að aukinni virkni á meðgöngu og í fæðingu. Ósk leiðir okkur í a
Trans fólk og barneignir með Alexander
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigð
Offita á meðgöngu með Bryndísi Ástu
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Bryndís Ásta Bragadóttir, sérfræðiljósmóðir á Landspítalanum og ræðir hún við okkur um yfirþyngd og offitu á meðgöngu. Við veltum málefninu fyrir okkur út frá ýmsum hliðum, allt frá frjósemi yfir í langtímaheilsu kvenna eftir meðgöngur. Áhrif yfirþyngdar og offitu á meðgöngu ge
Brjóstagjöf með Fríðu
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu.Gestur þáttarins að sinni er brjóstagjafaráðgjafinn og Vestfjarðar-Valkyrjan Hallfríður Kristín Jónsdóttir, betur þekkt sem Frí-ða-nipple Hún fjallar um starf brjóstagjafaráðgjafans og þá miklu menntun og kröfur sem liggja að baki þeim titli Fríða brennur fyrir það að styðja við konur í þeirra brj
Ljósmæður líta um öxl: Anna Eðvaldsdóttir
Ljósmæður líta um öxl: Anna Eðvaldsdóttir by Stefanía Ósk Margeirsdóttir
Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í ge
Ljósmæður líta um öxl: Áslaug Hauksdóttir
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur þáttarins er Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir, báráttukona og kvenskörungur með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeg
Ljósmæður líta um öxl: Magga Bjarna og Gunna Bö
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáhu
Ljósmæður líta um öxl: Guðrún Guðbjarts
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á L
Þegar ljósmóðir eignast barn
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni. Hún segir sína reynslusögu af því að ganga með og fæða barn sem ljósmóðir. Hvernig er það að upplifa þetta sjálf á eigin skinni eftir að hafa fylgt ótal konum í gegnum ferlið? Hvað kom á óv
Sitjandi fæðingar með Kamillu
English below// Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerhard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og einstöku yfirvegun um sitjandi fæðingar og allskyns fróðleik sem tengist hinni sjaldgæfu sitjandi stöðu. Kamilla fræðir okkur um sérþekkingu sína og reynslu af “Upright breech” e
Kristbjörg og Amish konurnar í Pennsylvaníu
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af ljósmæðrastörfum með Amish fólki í Lancaster sýslu í Pennsylvania fylki Bandaríkjanna. Kristbjörg dregur upp mynd af lífi Amish fólksins sem einkennist af einfaldleika, sjálfbærni og nægjusemi, allt frá klæðaburði
Icelandic maternity care for women of foreign origin
Íslenska neðar// The midwives Stefanía Ósk and Sunna María are back and for the first time in English, a language they aren't that great in but thankfully Edythe M. Mangindin, did most of the talking. In this episode, Edythe, a woman of many titles but first and foremost a Filipino-American-Icelandic wife, mother, nurse and midwife, talks about the outcomes and experience of
foreign women who rece
Hulda Þórey í Hong Kong
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Hulda Þórey Garðarsdóttir sem deilir með okkur sögunni af því hvernig leiðir hennar lágu frá Kópaskeri í ljósmóðurfræði og þaðan til Hong kong. Þar bjó Hulda Þórey ásamt fjölskyldu
Kristín Rut á Fósturgreiningardeild
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Kristín Rut Haraldsóttir, sérfræðiljósmóðir á Fósturgreiningardeild Landspítalans.
Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningar-þjónustu á norðurhjara veraldar á tímum tækniframfara. Einnig ræðir hún við Legvörpur um fjölbreytta starfsemi deildarinnar, siðfe
Vatnsfæðingar
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er ljósmóðirin Sigurveig Ósk Pálsdóttir, betur þekkt sem Ósk og ræðir hún við Legvörpur um vatnsfæðingar. Ósk tekur okkur með inní draumkennt andrúmsloft vatnsfæðingarinnar þar sem ljósmæðra-listin fær að leika lausum hala. Vilt þú vita hver ávinningur vatnsbaða er á ólíkum stigum
Ljósmæðralíf: Anna Rut í Palestínu
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er hin eina sanna Anna Rut Sverrisdóttir sem deilir með okkur sögum af aðúnaði palestínskra ljósmæðra og fæðandi kvenna í Betlehem. Anna Rut dregur upp magnaða mynd af ljósmæðralífinu,
Ljósmæðralíf: Hólmfríður Garðarsdóttir á hamfara- og átakasvæðum í 27 ár
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Hólmfríður Garðarsdóttir ljósmóðir eða Hófí eins og hún er kölluð. Í viðtalinu segir hún frá störfum sínum sem sendifulltrúi hjá Rauða Krossinum og reynslu sinni af því að vera ljós
Breytingaskeið kvenna
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er ljósmóðirin Steinunn Zophoníasdóttir og ræðir hún við Legvörpur um breytingaskeið kvenna sem sveipað hefur verið dulúð og skömm. Steinunn fer meðal annars yfir helstu niðurstöður úr meistararannsókn sinni á upplifun kvenna af breytingaskeiðinu ásamt líkamlegum, andlegum og féla
Ljósmæðralíf: Björg Sigurðardóttir á Grænlandi
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæðralíf” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Björg Sigurðardóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum í Grænlandi. Þangað hefur hún farið fjölmargar ferðir víðsvegar um landið og bjó hún og starf
Einhverfar konur í barneignarferlinu
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Legvarpið snýr nú aftur í bættum hljóðgæðum úr stúdíói Landspítala Hlaðvarpsins. Voru legvarpskonur gripnar í smá yfirheyrslu í byrjun þáttar þar sem heyra má spjall um ljósmæðra-áhugann, lífið og tilveruna. Gestur dagsins er engin önnur en ljósmóðirin og Njarðvíkur/Blönduós-drottningin Rut Vestmann sem kemur
Ljósmæðralíf: Birna Gerður í Eþíópíu
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæðralíf” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er reynsluboltinn og ljósmóðirin Birna Gerður Jónsdóttir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum í Eþíópíu þar sem hún bjó og starfaði á 10. áratugi síðustu aldar. Bir
Sjálfræði kvenna og siðferðilegar flækjur
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Í þessum þætti Legvarpsins verður fjallað um siðferðileg álitamál sem tengjast barneignarferlinu. Rætt verður um þá flóknu stöðu sem myndast þegar tveir einstaklingar tilheyra sama líkama, ásamt öðrum eldheitum siðferðilegum flækjum. Slík umfjöllun er í eðli sínu margslungin og viðkvæm en gestur þáttarins er D
Sængurlegan
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Í þessum þætti Legvarpsins spjalla þær um fyrstu dagana eftir fæðingu sem kallast sængurlega en er það viðburðarríkur tími þar sem foreldrar stíga sín fyrstu skref í nýju hlutverki og kynnast barninu sínu. Farið verður yfir líkamlega og andlega þætti varðandi heilsu móður eftir fæðingu, upphaf brjóstagjaf
Typpa-Pælingar
Hver man ekki eftir Píku-Pælingum sem slógu í gegn í Legvarpinu á sínum tíma?! Í tilefni af Mottumars ætla ljósmæðranemarnir Stefanía og Sunna og skipta um gír og gægjast yfir í karlaklefann. Þar tekur enginn annar en Lárus Jón Björnsson eða Lalli, vel á móti þeim. Lalli er sjúkraþjálfari sem hefur sérhæft sig í neðanbeltisvandamálum karla. Hann heldur úti Facebook- og instagram-reikningnum Neðanb
Notkun mænurótardeyfingar í fæðingu
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Í þessum þætti Legvarpsins verður fjallað um mænurótardeyfingu í góðum félagsskap ljósmóðurinnar Katrínar Sifjar Sigurgeirsdóttur. Hvers vegna hefur orðið veruleg aukning á notkun mænurótardeyfinga í fæðingum? Hverjar eru afleiðingarnar? Og eru konur í raun að taka UPPLÝSTA ákvörðun um þessa verkjameðferð
Stærri brjóst, betra líf?
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Viðfangsefni Legvarpsins að þessu sinni er áhrif brjóstastækkunar með ígræðslu brjóstapúða á heilbrigði kvenna og er gestur þáttarins ljósmæðraneminn Kristín Georgsdóttir. Í þættinum deilir Kristín sinni eigin reynslu af því að vera með brjóstapúða, áhrif þeirra á brjóstagjöf sína en einnig þegar hún lét
Val á fæðingarstað
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Viðfangsefni Legvarpsins að þessu sinni er val kvenna á fæðingarstað og er gestur þáttarins Dr. Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ljósmóðir og prófessor í ljósmóðurfræði við HÍ. Farið verður lauslega yfir þróunina hér á landi síðustu áratugina en fæðingar hafa á skömmum tíma færst úr heimahúsum yfir á sjúkrahús. Þá
Pabbi Í Orlofi
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti fjalla þær um fæðingarorlof feðra og þátttöku þeirra í umönnun barna sinna fyrsta árið og árin. Umræðan teygist yfir í hinar ýmsu pælingar um staðalímyndir kynjanna, jafnrétti og menningu þegar kemur að barnauppeldi. Gestur þáttarins að þessu sinni er Keflvíkingurinn snjalli, B
Fæðingarhjálp fortíðar
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er hjúkrunar-og sagnfræðingurinn Erla Dóris Halldórsdóttir. Hún hefur tvinnað þessar tvær fræðigreinar saman á skemmtilegan hátt og hefur meðal annars rannsakað sögu lækna-og ljósmæðrastéttarinnar á Íslandi. Hún skrifaði doktorsritgerð sína um fæðingarhjálp á Í
Áhrif kynferðisofbeldis á barneignarferlið
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti verður fjallað um áhrif kynferðisofbeldis á barneignarferlið. Ása Kristín Einarsdóttir kíkti í Legvarps-köku og kaffi en hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir tæplega tveimur árum. Ásamt því að vera mamma er Ása ein af skipuleggjendum Druslu-göngunnar, frístundasnillingur og mik
Sársaukaupplifun kvenna í fæðingu
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti Legvarpsins verður fjallað um sársaukaupplifun kvenna í fæðingu og veltum við fyrir okkur ýmsum þáttum eins og viðhorfi, menningu og orðræðu varðandi sársauka í fæðingu. Sigfríður Inga Karlsdóttir ljósmóðir, eða Inga eins og hún er oftast kölluð, er gestur þáttarins og fræðir o
Píku-Pælingar 2/2
Ljósmæðranemarnir Stefanía og Sunna halda dróna-útsýnisferðinni áfram og í þetta sinn um innri kvenlíffærin. Þátturinn er framhald af fyrri þætti sem nefnist Legvarpið -Píku-Pælingar 1/2. Við byrjum á eggjastokkunum og þræðum okkur niður eggjaleiðarana, þaðan í legið og um leghálsinn og niður leggöngin. Í leiðinni verða sagðar allskonar sögur og skemmtilegar staðreyndir eins og að baka megi brauð
Píku-Pælingar 1/2
Ljósmæðranemarnir Stefanía og Sunna fjalla um tabúið mikla, píkuna. Þær fara yfir orðræðuna, bleika skattinn og píku-pólitík og taka hlustendur í æsispennandi dróna-útskýnisferð um hin mögnuðu kynfæri kvenna. Þær fara yfir uppsetningu og virkni píkunnar og er umræðan stútfull af ótrúlegum staðreyndum og sögum sem margir tengja við. Þessi þáttur gagnast öllum þeim sem eru með píku, eiga einhver sam
Mömmupressan
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti fjalla þær um pressuna sem mömmur verða fyrir í nútímasamfélagi. Hér má finna margar góðar pælingar um mömmuhópa, samanburð, kynjaveislur, áhrifavalda og kerru-meting svo eitthvað sé nefnt. Með í pælingum dagsins er hún Eva Sigrún Guðjónsdóttir, sem eignaðist sitt fyrsta barn í
Feður í barneignarferlinu
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum fyrsta þætti fjalla þær um feður í barneignarferlinu og fá til sín góðan gest, Þorleif Örn Gunnarsson, betur þekktur sem Tobbi. Hann eignaðist son í fyrra með kærustu sinni, henni Thelmu Sif Sævarsdóttur. Tobbi ræðir reynslu sína af barneignarferlinu á stórskemmtilegan hátt og ferða











