Home Podcasts Blanda – hlaðvarp Sögufélags
Blanda – hlaðvarp Sögufélags

Blanda – hlaðvarp Sögufélags

Sögufélag 46 Episodes Aug 27, 2026

Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.

Episodes

#63 - Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?
#63 - Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar? Aug 27, 2026 01:34:05 Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?Í samstarfi Blöndu, hlaðvarpi Sögufélags og Íslandssögunnar, hlaðvarpi Jóns Kristins Einarssonar, ræða þeir saman Sverrir Jakobsson prófessor og Jón Kristinn um Sturlungaöld og hvort hún hafi verið mesti ófriðartími Íslandssögunnar? Spjall þeirra leiðir okkur nær ríkjandi söguskoðun.
#62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi
#62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi Jul 10, 2026 01:25:22 Förufólk í Laugarnesi: Fyrir um hundrað árum settist dularfull fjölskylda að í Laugarnesi með vísi að dýragarði. Fljótlega voru þau talin sígaunar og vöktu mikla athygli víða um land. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson hefur skoðað sögu þeirra og rekur hér þessa ævintýralegu frásögn í samtali við Markús Þórhallsson.
#61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára
#61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára Jun 29, 2026 01:30:54 Bandaríkin verða 250 ára í sumar og af því tilefni ræddi Markús Þórhallsson við Val Gunnarsson sagnfræðing um upphaf þessa volduga ríkis, sögu þess og þróun.
#60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi
#60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi Jun 3, 2026 00:34:11 Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur um bók hennar, Þurfamenn fá mannréttindi, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi, með sérstakri áherslu á Reykjavík, en í forgrunni er þýðingarmikil breyting á fátækralögum árið 1927 og breyttar hugmyndir um mannréttindi þeirra sem þurftu að þiggja opinbera aðst
#59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn
#59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn Jun 3, 2026 00:43:24 Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Arnþór Gunnarsson um bók hans, Hringvegurinn, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó og hefst á hinni sögulegu vígslu Skeiðarárbrúar 1974 en með henni var lokið við hringveginn um Ísland, sem lengi hafði ekki verið til í villtustu draumum landsmanna.
#58 Þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi
#58 Þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi May 13, 2026 01:00:07 Markús Þórhallsson ræðir við sagnfræðiprófessorana Erlu Huldu Halldórsdóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur um þær þjóðaratkvæðagreiðslur sem haldnar hafa verið á Íslandi. Þær leggja einkum áherslu á viðamikla og óvenjulega þjóðaratkvæðagreiðslu um lýðveldisstofnun og upptöku nýrrar stjórnarskrár árið 1944.
#57 Sumarliði R Ísleifsson og Grænland
#57 Sumarliði R Ísleifsson og Grænland Apr 24, 2026 01:15:07 Mannlíf og stjórnmál nútímans á Grænlandi, hörð náttúruöflin og ævintýraheimur norðursins ber vitaskuld á góma ásamt fjölmörgu öðru forvitnilegu í samtali Sumarliða R Ísleifssonar prófessors emeritus og Markúsar Þórhallssonar fréttamanns og sagnfræðings.
#56 Ný og spennandi ritröð Sögufélags væntanleg
#56 Ný og spennandi ritröð Sögufélags væntanleg Feb 16, 2026 00:25:13 Gunnar Þór Bjarnason, Kristín Svava Tómasdóttir og Rósa Magnúsdóttir ræða um Seríu Sögufélags, nýja ritröð stuttra bóka sem hefur göngu sína í vor, en hún er byggð á dönsku ritröðinni 100 danmarkshistorier.
#55 Samfélag átjándu aldar – Hvað segja þau okkur?
#55 Samfélag átjándu aldar – Hvað segja þau okkur? Jan 29, 2026 01:12:16 Jón Kristinn Einarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, þjóðskjalavörð og fyrrv. forseta Sögufélags, um rannsóknir hennar á samfélagi átjándu aldar. Þau spjalla um þéttbýlismyndum á Íslandi fyrir tíma iðnvæðingar, ullarvinnslu og viðreisnaráætlanir átjándu aldar, efnahagshugsun upplýsingarinnar, kameralisma og ýmislegt fleira.
#54 Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir um Piparmeyjar
#54 Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir um Piparmeyjar Dec 2, 2025 00:48:37 Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sagnfræðing og höfund bókarinnar Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi. Bókin er jöfnum höndum saga ógiftra íslenskra kvenna og saga Reykjavíkurstúlkunnar Thoru Friðriksson, skarpgreindrar konu með stóra drauma sem hún fékk ekki tækifæri til að láta rætast fyrr en á miðjum aldri, eftir að hún var búin að ræ
#53 Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga?
#53 Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga? Nov 25, 2025 00:54:42 Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga. Allt um það í þessum nýja Blönduþætti Sögufélags.Markús Þórhallsson ræðir við Pál Björnsson, sagnfræðing og prófessor við Háskólann á Akureyri, um nýjustu bók hans, Dagur þjóðar: Þróun 17. júní hátíðarhalda á 19. og 20. öld. Páll greinir frá hvernig 17. júní varð að þjóðhátíðardegi Íslendinga snemma á 20. öld, segir frá öðrum dögum sem h
#52 Kristín Svava Tómasdóttir um Fröken Dúllu
#52 Kristín Svava Tómasdóttir um Fröken Dúllu Nov 19, 2025 00:41:16 Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa

Recommended