Home Podcasts Krakkaheimskviður
Krakkaheimskviður

Krakkaheimskviður

RÚV Hlaðvörp 76 episodes Latest May 30, 2026

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.

Episodes

Sögulegur almyrkvi á sólu í sumar Jun 13, 2026 15:15 Í þessum síðasta þætti Krakkaheimskviða fyrir sumarfrí fræðist Karitas um almyrkvann sem verður sýnilegur frá Íslandi í ágúst. Stjörnu-Sævar er gestur þáttarins og segir okkur allt um sólmyrkva. Hvers vegna þarf maður sérstök sólmyrkvagleraugu og hvernig tengist norræn goðafræði sólmyrkvum? Allt um það í þætti dagsins! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Stærsta HM í fótbolta sögunnar Jun 6, 2026 14:11 Í þessum þætti Krakkaheimskviða ræðir Karitas við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur um HM karla í fótbolta, breytingar sem gerðar hafa verið á mótinu, nýliðana og spennandi leiki framundan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Breytingar í Hollywood May 30, 2026 13:48 Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru breytingar í Hollywood í brennidepli. Hvað er samruni og samkeppni? Allt um yfirvofandi kaup Paramount á Warner Bros. í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Feneyjatvíæringurinn May 23, 2026 12:00 Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við á Ítalíu þar sem Feneyjartvíæringurinn fer fram um þessar mundir. Dagskrárgerðarmaðurinn Kristján Guðjónsson veit allt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
17. maí og þjóðhátíðardagar um víða veröld May 16, 2026 14:33 Í þessum þætti Krakkaheimskviða heldur Karitas upp á þjóðhátíðardag Noregs sem er í dag. Við skoðum líka aðra þjóðhátíðardaga, hvers vegna þeir eru þegar þeir eru og um hvað þeir snúast. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Eurovision og Attenborough May 9, 2026 15:37 Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við í heimi sjónvarpsins. Gísli Marteinn Baldursson er gestur þáttarins og ræðir við Karitas um Eurovision sem hefst á þriðjudaginn. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við fjölmiðlamanninum David Attenborough sem varð 100 ára á föstudaginn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvað er Evrópusambandið? May 2, 2026 15:07 Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við Evrópusambandið, ESB. Það hefur verið mikið til umræðu, bæði í fyrri þáttum Krakkaheimskviða og meðal Íslendinga. Hvers vegna? Og hvað gerir þetta samband eiginlega? Fréttamaðurinn Þorgils Jónsson er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Sögulegar kosningar í Ungverjalandi Apr 25, 2026 12:49 Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Ungverjalands og kynnum okkar nýafstaðnar og sögulegar þingkosningar þar. Hverjir eru Viktor Orbán og Péter Magyar? Hvernig tengist Evrópusambandið kosningunum? Fréttamaðurinn Björn Malmquist veit allt um málið og er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Artemis II og menn á tunglinu Apr 18, 2026 13:59 Í þessum þætti Krakkaheimskviða beinum við sjónum okkar að Artemis II, leiðangrinum sem farinn var á tunglið fyrr í mánuðinum. Sævar Helgi Bragason er gestur þáttarins og veit allt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kosningar í Danmörku og Færeyjum Apr 11, 2026 15:01 Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur þingkosningar sem nýlega fóru fram í Danmörku og Færeyjum. Stjórnmálafræðingurinn Sara Þöll Finnbogadóttir býr í Danmörku og fylgdist vel með kosningunum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvað er sumartími og hvers vegna breyta Íslendingar ekki klukkunni? Mar 28, 2026 15:09 Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar svefnvana Karitas hvers vegna klukkunum er breytt tvisvar á ári víðsvegar um heiminn - og hvers vegna það er ekki gert á Íslandi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvað er að gerast í Íran? Mar 21, 2026 16:43 Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur hvað er að gerast í Íran. Mið-Austurlandafræðingurinn Magnús Þorkell Bernharðsson er gestur þáttarins og segir okkur frá landinu, sögu þess og atburðum síðustu vikna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Recommended

Playing