Home Podcasts Spegillinn
Spegillinn

Spegillinn

RÚV 795 Episodes Sep 18, 2026

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Episodes

9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind
9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind Sep 18, 2026 0:19:45 80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Þetta sýna niðurstöður nýrra Lýðheilsuvísa landlæknis sem kynntir voru í vikunni. Sífellt fleiri nýta sér gervigreind og áhyggjur af þróun hennar aukast. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hjá Fenris Creations segir eðlilegt að áhyggjur fylgi hröðum tæknibreytingum en hefur efasemdir um að ábyrgasta nálgunin sé að hægja á.
Kosningakerfið, skattbyrði millistéttarinnar, mállýskur skógarþrasta
Kosningakerfið, skattbyrði millistéttarinnar, mállýskur skógarþrasta Sep 17, 2026 0:20:23 Tvær af þremur tillögum sem starfshópur um breytingar á kosningalögum leggur til, þurfa aðeins samþykki einfalds meirihluta á Alþingi. Aðeins þriðja tillagan, sem snýst um úthlutun jöfnunarsæta til kjördæmalista, og hefur áhrif á hringekjuna svokölluðu, þarf samþykki tveggja þriðju hluta á Alþingi. Ríkisstjórnin hefur því þingstyrk til að samþykkja meginbreytingarnar sem hópurinn leggur til. Rúna
Dagur íslenskrar náttúru
Dagur íslenskrar náttúru Sep 16, 2026 0:19:37 Þessi þáttur er helgaður íslenskri náttúru, rétt eins og dagurinn allur, því dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í dag, 16.september. Af því tilefni afhenti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í Laugarneskirkju. Viðurkenninguna í ár hlaut Andri Snær Magnason, náttúruverndarsinni, rithöfundur og leikstjóri, sem um árabil hefur unnið
Góð ráð dýr í Hafnarfirði, orð Trumps um sameiningu Írlands og áhrif gervigreindar á háskólanám
Góð ráð dýr í Hafnarfirði, orð Trumps um sameiningu Írlands og áhrif gervigreindar á háskólanám Sep 15, 2026 0:20:22 Áhrif gervigreindar á háskólanám og orð Bandaríkjaforseta um sameinað Írland eru til umfjöllunar í þætti dagsins. En við byrjum í Hafnarfirðinum.
Hröð þróun gervigreindar
Hröð þróun gervigreindar Sep 14, 2026 0:20:36 Grein sem Dario Amodei forstjóri og einn af stofnendum bandaríska gervigreindarfyrirtækisins Anthropic birti á vef sínum á laugardag hefur vakið gríðarlega athygli. Í greinni kallaði Amodei eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar og nauðsynlegt væri að fyrirtæki og stjórnvöld kæmu sér saman um ákveðnar takmarkanir og öryggiskröfur. Donald Trump hefur enn áhuga á Grænlandi, segir rannsóknarb
Gjaldtaka á ferðamannastöðum, sögur eftirlifenda 11.september og Íslendingar hafa ekkert að segja um varnir landsins
Gjaldtaka á ferðamannastöðum, sögur eftirlifenda 11.september og Íslendingar hafa ekkert að segja um varnir landsins Sep 11, 2026 0:19:40 Tuttugu og fimm ár frá hryðjuverkaárásum á Bandaríkin og samband sem snýst um hagsmuni Bandaríkjanna, fremur en Íslands eru umfjöllunarefni dagsins. En við byrjum á gjaldtöku á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir að frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt gjald á ferðamannastöðum í eigu þjóðarinnar, sem á að skila fimm milljörðum í ríkissjóð, verði opinberað og lagt fram í samráðsgátt í næstu vik
Trump talaði um Ísland yrði 51. ríkið,  aðalnámsskrá og miklu fleiri nota heyrnartæki en áður
Trump talaði um Ísland yrði 51. ríkið, aðalnámsskrá og miklu fleiri nota heyrnartæki en áður Sep 10, 2026 0:20:39 Donald Trump hefur ítrekað viðrað hugmyndir um að Ísland verði eitt Bandaríkjanna. Hann gerði það til dæmis í símtali 2024 við Bjarna Benediktsson, sem þá var forsætisráðherra. Það er nauðsynlegt að einfalda aðalnámskrá grunnskóla, segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og tekur þar undir orð Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Fjöldi þeirra sem fá styrk frá Sjúkratr
Meira um niðurstöður PISA-könnunar og umsvif Bláa Lónsinns
Meira um niðurstöður PISA-könnunar og umsvif Bláa Lónsinns Sep 9, 2026 0:19:17 Stefnt er að því að skrá Bláa Lónið hf. á markað í nóvember. Þá kemur í ljós hvert áætlað heildarandvirði félagsins er en forstjóri félagsins segir að í nýlegum viðskiptum með félagið hafi það verið metið á um 83 milljarða króna. En við ætlum að byrja á viðbrögðum við niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem kynntar voru í gær.
PISA-könnunin og fylgdi samsæriskenninga og stjórnmálaskoðana.
PISA-könnunin og fylgdi samsæriskenninga og stjórnmálaskoðana. Sep 8, 2026 0:20:00 Niðurstöður nýjustu PISA-könnunar voru kynntar í dag og voru verri á flestum sviðum en í síðustu könnun. Umboðsmaður barna telur niðurstöðurnar, sem ná líka til þess hvernig börnum líður, mjög alvarlegar. Annars staðar á Norðurlöndum eru niðurstöðurnar sagðar áfall og skammarlegar. Kosningaúrslitin í Saxlandi-Anhalt, þar sem hægriöfgaflokkurinn Alternative für Deutschland, fékk langmest fylgi al
Stefnt að hallalausum fjárlögum og kosningar framundan í Svíþjóð
Stefnt að hallalausum fjárlögum og kosningar framundan í Svíþjóð Sep 7, 2026 0:20:10 Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir fimm milljarða afgangi í fjárlagafrumvarpinu. Það á eftir að fara í gegnum þingið hver verður niðurstaðan eftir það. Rætt við Sigurjón Þórðarson (F) formann fjárlaganefndar og Njál Trausta Friðbertsson (D) sem situr í henni. Þing-, landsþings- og sveitarstjórnarkosningar eru í Svíþjóð 13.september. Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum milli núv
Atvinnuástandið, hægriöfgamenn gætu komist til valda í Þýskalandi og einmanna ungmenni
Atvinnuástandið, hægriöfgamenn gætu komist til valda í Þýskalandi og einmanna ungmenni Sep 4, 2026 0:20:23 Fyrstu sjö mánuði ársins var atvinnuleysi meðal Íslendinga 2,7% en hefur verið í kringum 2% undanfarin ár. Þetta samsvarar því að tæplega 4000 íslenskir ríkisborgarar hafi verið atvinnulausir. Atvinnuleysi hjá erlenda hópnum var 7,9% eða um 5.200 manns og þokast stöðugt upp á við. Hægriöfgamenn í AfD gætu komist til valda í minnsta sambandslandi Þýskalands – þau úrslit mörkuðu kaflaskil og hefðu
Tillögur um rýmri heimildir í baráttur við skipulagða glæpi og hamfaraflóð
Tillögur um rýmri heimildir í baráttur við skipulagða glæpi og hamfaraflóð Sep 3, 2026 0:19:38 Lagt er til að breyta hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum til að auðvelda baráttu við skipulagða glæpastarfsemi. Meðal annars er lagt til að hámarkslengd gæsluvarðhalds við rannsókn slíkra brota verði sex mánuðir í stað 12 vikna og heimildiir til að upptöku á ólögmætum ávinningi verði rýmkaðar. Rætt við Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjón á öryggis- og greiningarsviði hjá

Recommended