Home Podcasts Jón Ólafs á spjallinu
Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafsson 32 Episodes Sep 18, 2026

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á.

Episodes

44.þáttur: Eyþór Gunnarsson
44.þáttur: Eyþór Gunnarsson Sep 18, 2026 02:01:49 Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar.  Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí.  Þar kynntist hann Ellen Kristjánsdóttir sem síðar varð eiginkona hans.  Saman hafa þau hjón gengið í gegnum súrt og sætt og kvöddu Bakkus fyrir margt löngu sem var þeirra besta ákvörðun.  Á n
43.þáttur:  Lalli töframaður
43.þáttur: Lalli töframaður Sep 14, 2026 01:45:25 Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim.  Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette.  Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rú
42.þáttur: Rán Flygenring
42.þáttur: Rán Flygenring Sep 2, 2026 01:50:45 Rán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu.  Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og höfundur.  Þetta gekk aldeilis upp en eftir tæpan áratug flutti hún aftur heim til Íslands, reynslunni ríkari.  Rán hefur sent frá sér fjölda bóka og myndskreytt fyrir sjálfa sig og að
41.þáttur:  Margrét Valdimarsdóttir
41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir Aug 20, 2026 01:39:31 Við höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin.  Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í afbrotafræðunum.  Hún vann í nokkur ár sem barþjónn áður en hún sótti um starf á útvarpsstöðinni FM 957 án þess að hafa nokkurn tímann hlustað á útvarpsstöðina.  Við tóku nokkur ár á ljósva
40.þáttur: Jónatan Garðarsson
40.þáttur: Jónatan Garðarsson Aug 5, 2026 01:52:19 Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við.  Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska.  Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar.   Í
39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson
39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson Jul 28, 2026 02:26:19 Óskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik.  Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki.  Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall.  Þá hóf hann a
38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir
38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir Jul 22, 2026 02:04:37 Sviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika. Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún hafi nú bara haft gott af þeirri höfnun.  Hún ákvað að nema heimspeki við Háskóla Íslands auk þess að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar og læra þar vísnatónlist af innfæddum.  Vi
37.þáttur: Gói
37.þáttur: Gói Jul 11, 2026 01:54:59 Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann.  Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi.   Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur.  Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini.  Hann er þakklátur fyrir
36.þáttur: Pétur Pétursson
36.þáttur: Pétur Pétursson Jul 3, 2026 02:10:31 Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna.  Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd.  Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR.  Pétur starfaði um árabil sem ljó
35.þáttur: Gunnar Árnason
35.þáttur: Gunnar Árnason Jun 25, 2026 01:53:23 Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar  og er margverðlaunaður.  Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann.  Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn h
34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir
34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir Jun 19, 2026 01:50:27 Brynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd.  Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt um ævina.  Þættir hennar, Hold, sem hún gerði fyrir Rás 1 hafa vakið mikla athygli.  
33.þáttur: Björn Stefánsson
33.þáttur: Björn Stefánsson Jun 11, 2026 01:30:02 Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus.  Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009.  Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku.  Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki.  Alkóhólískt heimi

Recommended