Home Podcasts hún hlaðvarp
hún hlaðvarp

hún hlaðvarp

Erna Hrund Hermannsdóttir 11 Episodes Sep 15, 2026

Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.

Episodes

hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir
hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir Sep 15, 2026 02:03:59 Gestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert einmitt það. Hún er forstöðumaður markaða hjá Arion banka og var áður framkvæmdastjóri þriggja lífeyrissjóða í einu og þá önnur af aðeins tveimur konum á landinu sem stýrðu lífeyrissjóði. H
hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir
hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir Sep 9, 2026 01:44:40 Gestur þáttarins í dag er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir. Konu sem hefur fært okkur margar af þekktustu fataverslunum Norðurlandanna. Í lítilli íbúð í Halmstad í Svíþjóð, einhvern tímanní kringum 2010, sat kona við eldhúsborð. Borðið var þakið innkaupapokum og pökkum. Hún var með fartölvu í kjöltunni og barn á brjósti og var að slá inn pantanir. Þegar maðurinn hennar kom heim úr vinnunni ýtti hún tö
hún hlaðvarp #13 Eva Ruza Miljevic
hún hlaðvarp #13 Eva Ruza Miljevic Sep 1, 2026 01:51:36 Gestur þáttarins í dag er Eva Ruza Miljević. Þið þekkið hanaaf sviði, úr útvarpi, af skjánum, konuna sem er alltaf með míkrófóninn, alltaf með húmorinn, alltaf með orkuna sem fyllir salinn og oftar en ekki öskursyngjandi. En það sem mig langar að tala um í dag er ekki bara sviðið heldur líka árin á undan. Trúin sem hún hafði á sjálfri sér áður en nokkur vissi hver hún var og hvað það kostaði hana
hún hlaðvarp #12 Dr. Þóranna Jónsdóttir
hún hlaðvarp #12 Dr. Þóranna Jónsdóttir Jun 16, 2026 01:50:03 Gestur þáttarins er Dr. Þóranna Jónsdóttir við tölum um konur í forystu, erfiðar ákvarðanir, áhrifin sem sjást ekki alltaf utan frá og hvað það þýðir að byggja sér leið, ekki með því að bíða eftir leyfi heldur með því að stíga inn. Sumar konur ganga ekki bara inn um dyrnar sem þeim er boðið inn um. Þær læra að opna nýjar dyr. Þær læra að sitja við borðin þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Og stundu
hún hlaðvarp #11 Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
hún hlaðvarp #11 Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir Jun 9, 2026 01:36:17 Gestur þáttarins er Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, kona sem eflaust þarf ekki að kynna fyrir mörgum enda ein þekktasta sjónvarsp- og fjölmiðla kona landsins. Í dag situr hún í framkvæmdastjórn &starfar sem markaðs- & upplifunarstjóri Hagkaupa en þar hefur hún skapað sér nýtt hlutverk, ekki með því að loka á það sem hún var, heldur með því að byggja ofan á það.Í þættinum tölum við um hug
hún hlaðvarp #10 Bókaklúbbur og trúnó
hún hlaðvarp #10 Bókaklúbbur og trúnó May 28, 2026 01:09:26 Í þessum þætti förum við aðeins yfir hvað mér fannst standa uppúr í síðustu viðtölum. Ég kynni til leiks bækurnar fyrir nýja bóka klúbbinn okkar, Aspire, Lean in og Leiðin heim, en hugmyndin er að taka svo fyrir hverja bók fyrir sig og ræða hana og áhrifin sem hún hefur. Ég hvet ykkur til að lesa þær í sumar, ég er búin með bókina Leiðin Heim og fékk höfundinn hana Karitas Sigurðardóttur til mín í
hún hlaðvarp #9 Sesselía Birgisdóttir
hún hlaðvarp #9 Sesselía Birgisdóttir May 19, 2026 01:42:13 Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum, hefur byggt feril sinn á breytingum, uppbyggingu og umbreytingu. Hún hefur farið inn í ólíkar atvinnugreinar, tekið að sér hlutverk sem voru oft ný eða í mótun, og aftur og aftur unnið með það sem er annaðhvort að verða til, eða þarf að breytast. Í þættinum fáum við að kynnast konunni á bak við verkefnin. Heyru
hún hlaðvarp #8 Arna Harðardóttir
hún hlaðvarp #8 Arna Harðardóttir May 5, 2026 01:34:58 Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health, fyrirtækis sem vinnur að því að tengja saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta þjónustu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Arna hefur þurft að taka stórar ákvarðanir á stuttum tíma, byggja upp traust hratt og leiða fólk í gegnum breytingar. Hún gerir það á sinn hátt, af yfirvegun, sannfæringu og með skýra sýn á það að sjúklingurinn sj
hún hlaðvarp #7 Edda Konráðsdóttir
hún hlaðvarp #7 Edda Konráðsdóttir Apr 28, 2026 01:26:10 Edda Konráðsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Edda hefur helgað ferilinn sinn nýsköpun og sprotum, hún er annar stofnenda Iceland Innovation Week og rekur viðburða og hugmyndastúdíóið Milk & Kleina. Mér fannst tilvalið að fá hana Eddu til mín í spjall nú þegar IIW er einmitt að hefjast. Edda stýrði Gullegginu sem er elsta frumkvöðlakeppni Íslands þar sem mörg fyrirtæki hafa tekið sín
hún hlaðvarp #6 Salóme Guðmundsdóttir
hún hlaðvarp #6 Salóme Guðmundsdóttir Apr 21, 2026 01:23:09 Salóme Guðmundsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Ísorku, situr í þónokkrum stjórnum og er stofnandi og formaður konur í stjórnum.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið
hún hlaðvarp #5 Guðrún Aðalsteinsdóttir
hún hlaðvarp #5 Guðrún Aðalsteinsdóttir Apr 14, 2026 01:23:54 Guðrún Aðalsteinsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Krónunnar með eftirtektarverðum hætti. Guðrún er svo sannarlega leiðtogi með skýra sýn og fyrir mér hefur alltaf verið greinilegt að hún hefur sterka sannfæringu og trú á að það sem hún er að gera skiptir máli - sem er svo sannarlega rétt. Guðrún er sýnilegur leiðtogi bæði fyrir starfsfólkið sitt en
hún hlaðvarp #4 upprifjun & spurningar frá ykkur
hún hlaðvarp #4 upprifjun & spurningar frá ykkur Apr 7, 2026 00:57:06 Í þessum þætti langaði mig að segja ykkur hvað stóð uppúr hjá mér úr fyrstu þremur viðtölunum. Einnig er ég meira á persónulegu nótunum og svara spurningum hlustenda eins og hvernig leið mér þegar ég sagði upp? hvað getum við gert til að lyfta upp konum? afhverju forðast konur við að breyta? Svo að lokum deili ég 5 bestu ráðunum sem ég hef fengið á ferlinum mínum.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólk

Recommended