Home Podcasts Þjóðmál
Þjóðmál

Þjóðmál

Þjóðmál 426 Episodes Sep 18, 2026

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Episodes

#459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni
#459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni Sep 18, 2026 01:51:54 Árni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf markmið í fjárlögum, hvernig ríkisstjórnin ýtir því verkefni á undan sér að takast á við háa verðbólgu, tillögur um jöfnun atkvæðavægis og hvaða þingmenn eiga sæti sín undir því, bíl
#458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna
#458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna Sep 15, 2026 01:26:15 Óli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að ríkisvaldið sé að seilast of langt inn í einkalíf og atvinnulíf landsmanna, hvort að stjórnlyndi sé að verða nýtt norm, um það hvernig ríkið beitir sköttum til að hafa áhrif á
#457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað
#457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað Sep 11, 2026 01:32:50 Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í stjórnmálin og stefnuræðu forsætisráðherra og mögulega hefndarför utanríkisráðherra, íslenska hlutabréfama
#456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum
#456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum Sep 8, 2026 01:13:29 Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna
#455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar
#455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar Sep 4, 2026 01:36:30 Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa ve
#454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál
#454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál Aug 31, 2026 02:02:00 Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla kjörsókn, hvernig kosningabaráttan fór fram og fleira sem snýr að þessu máli sem lagðist eins og mara yfir þjóðfélagið í sumar. Þá ræðum við um þær áskoranir sem eru framundan, bæði á vettv
#453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið
#453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið Aug 28, 2026 01:46:30 Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur ríkisstjórnina standa sig illa í efnahagsmálum, ásamt því að leggja mat á þróun væntingavísitölunnar, Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar, flótta utanríkisráðherra undan alvör
#452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun
#452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun Aug 25, 2026 01:00:55 Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosni
#451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa
#451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa Aug 21, 2026 04:36:15 Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Þórður heitinn Gunnarsson, Bjarni Benediktsson, Einar Sigurðsson, Stefán Einar Stefánsson, Ólöf Skaftad
#450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni
#450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni Aug 19, 2026 01:08:00 Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambæ
#449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann
#449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann Aug 18, 2026 00:57:30 Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess a
#448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar
#448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar Aug 14, 2026 02:20:30 Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að veruleika fyrr en árið 2031 — sem stangast á við bjartsýni forsætisráðherra um að hlutirnir stefni í rétta

Recommended