Home Podcasts Flekaskil
Flekaskil

Flekaskil

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson 8 Episodes Sep 14, 2026

Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri ræða flekaskil í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur. Þau fjalla um hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands í öryggis- og varnarmálum, samskiptum við bandalagsríki, Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

Episodes

Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum
Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum Sep 14, 2026 4821 Símtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og fyrrverandi prófessors. Erum við að afsala okkur fullveldi án þess að ræða það? Og erum við að horfa á uppnám í aldagömlum reglum um hafrétt og siglingarfrelsi. Hvaða áhrif hefur það á heimili og fyrirtæki á Íslandi.
Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon
Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon Sep 7, 2026 4409 Íslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður um frið í Úkraínu, fjölþáttaógnir, varnarsamninginn við Bandaríkin, leyndarhyggju og hvort hægt sé að treysta gömlum samningum í nýjum heimi, Trump og Pútin.
Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge
Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge Aug 31, 2026 3991 Flekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd Grænlenska þingsins opnar hjarta sitt í einstöku viðtali um stöðuna í Grænlandi og það sem hefur gengið á. Þjóðaratkvæðagreiðslan, deilur Bandaríkjanna og Kanada, tilhugalíf Kanada og Evrópu, CIA forstjóri í Moskvu, skeytase
Flekaskil - 20. þáttur - Þáttaskil, viðskiptastríð og Evrópa
Flekaskil - 20. þáttur - Þáttaskil, viðskiptastríð og Evrópa Aug 25, 2026 4799 Við ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman við Grænlandsmálið og ræðum Evrópumálin í þessu ljósi. Þá tilkynnir Þórdís Kolbrún um þáttaskil í þáttöku sinni í Flekaskilum.
Flekaskil - 19. þáttur - Titringur milli Trump og bandamanna og Evrópu-umræðan
Flekaskil - 19. þáttur - Titringur milli Trump og bandamanna og Evrópu-umræðan Aug 18, 2026 5292 Þegar 60 daga tímamörk vopnahlés í Íran liði í morgun, virðist langt í samninga. Titringur er milli Trump og bandamanna í Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Kyrrahafi. Við ræðum málefnalegar greinar fyrir já og nei og óvissu um framtíð EES-samningsins.
Flekaskil - 18. þáttur - Bandarísk olíuleit í óleyfi við Grænland - afleiðingar Íran-stríðsins og atburðirnir við Ceuta
Flekaskil - 18. þáttur - Bandarísk olíuleit í óleyfi við Grænland - afleiðingar Íran-stríðsins og atburðirnir við Ceuta Aug 10, 2026 3435 Bandarískt olíufyrirtæki gerir sig líktlegt til að hefja olíuleit í lögsögu Grænlands, án leyfa og gegn mótmælum landstjórnarinnar. Við fjöllum um kenningar og skýringar á því að tugþúsundir lögðust til sunds að ströndum spænska hluta Marókkó, Ceuta, sem olli pólitískum skjálfta í Evrópu og var kallað innrás í Evrópu. Afleiðingar og staða Íran-stríðsins, Gaza, yfirgripsmiklar árásir sem við köllum
Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn
Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn Aug 3, 2026 5124 Þórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy Burnham fyrrum borgarstjóra Manchester og nýs forsætisráðherra Bretlands um Gaza. Nýtt álit um stöðu lofstslagsskuldbindinga skv. alþjóðalögum og fjölda greina um hvað það þýðir að vera verðugur bandamaður, sem birtist í
Flekaskil - 16. þáttur - Kristrún í Rest is Politics og Þórdís Kolbrún í Skálholti
Flekaskil - 16. þáttur - Kristrún í Rest is Politics og Þórdís Kolbrún í Skálholti Jul 28, 2026 3637 Í sextánda þætti Flekaskila - og þeim síðasta áður en Þórdís Kolbrún verður formlega sendiherra í London tölum við um glænýtt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í uppáhalds hlaðvarpinu okkar Rest is Politics. Dagur nýtir sé aðstöðuna til að ræða við Þórdísi um hátíðarræðu hennar á Skálholtshátíð þar sem alþjóðamálin, Evrópuumræðan og staða Íslands var í brennidepli. Hin ótrúlega og
Flekaskil - 15. þáttur
Flekaskil - 15. þáttur Jul 20, 2026 3031 Við rifjum upp lítt þekkta greningu Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra frá 2014 um hver áhrifin af upptök evru í stað krónu yrðu. Sú umfjöllun var í jafnvægi en niðurstaðan engu að síður skýr. Við tölum um sögu íslensku krónunnar, gjaldmiðlasamstarf Íslands í gengum tíðina - og veltum vöngum yfir Evrópuumræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald viðræðna við Evrópusambandið.
Flekaskil - 14. þáttur
Flekaskil - 14. þáttur Jul 14, 2026 3913 Heimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda. Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð
Flekaskil - 13. þáttur
Flekaskil - 13. þáttur Jul 8, 2026 3271 Við förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast.Þungi Evrópu og Kanada innan bandalagsins eykst og Spánn virðist mega búast við efnahagslegum þrýstingi frá Bandaríkjunum ef marka má orð forsetans. Vægi alþjóðalaga er áfram umræðuefni en nú eru heilagar reglur fótboltans brotnar líka.Brothætt st
Flekaskil - 12. þáttur
Flekaskil - 12. þáttur Jun 29, 2026 4284 NATO á Flekaskilum! Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara. Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa árið - frá því Trump varð forseti Bandaríkjanna. Rifjum upp yfirlýsingar um NATO og einstök aðildarland. Greinum stöðuna í Íran, samkomulagið um vopnahlé og áhrif átakanna á heiminn, hagkerfið, Íran og ekki síður Bandarí

Recommended