
Virðing í uppeldi
Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.
Episodes

106. Mataruppeldi og að fyrirbyggja vanda
Hér er á ferðinni frábær þáttur um hvernig við sem foreldrar getum reynt að frá grunni hlúa að mataruppeldi barnanna okkar þannig að sem best verði komið í veg fyrir átraskanir og hvaða viðbragða er viðeigandi að grípa til þegar við sjáum breytingar á matarvenjum barnanna okkar.Reynsluboltinn Elín Vigdís Guðmundsdóttir ræðir hér við Guðrúnu Ingu Torfadóttir um starf sitt hjá Sátt þar sem þeirra ei

105. Um uppeldi stráka með Rögnu Guðnýju
Fjögurra, þriggja og tveggja stráka mæðurnar Ragnheiður Guðný, Dagný og Laufey settust saman og ræddu hvernig er að ala upp stráka. Ragna Guðný eins og hún er kölluð er aðstoðarskólastjóri í Sunnulækjarskóla í Árborg og er afar reynslumikil þegar kemur að bæði uppeldismálum sem og að ala upp strákana sína. Hvernig er best að hrósa? Hvernig má styrkja bræðrasambandið sem best? Hvernig eru erfiðu sa

104. Skjáuppeldi - nú með Skúla Braga
Við höldum áfram umfjöllun okkar um skjáuppeldi. Skúli Bragi Geirdal er sviðsstjóri hjá Netöryggismiðstöð Íslands (SAFT - Icelandic Safer Internet Center) sem er vakningarátak um örugga tækni- og miðlanotkun á Íslandi ásamt því að vera varaþingmaður á Alþingi og flutningsmaður þingsályktunartillögu um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum á síðasta haustþingi. Skúli hefur að auki þrætt skólana bak og fy

103. Skjáuppeldi - Anna Laufey Stefánsdóttir
Anna Laufey Stefánsdóttir kom til þeirra Birnu Almarsdóttur, Dagnýjar Hróbjartsdóttur og Guðrúnar Ingu Torfadóttur að ræða af hverju það er ekki svo góð hugmynd að láta snjallsíma í hendurnar á barni. Anna Laufey er forritari og fjögurra barna móðir. Hlaðvarp hennar og Kristínar Sævarsdóttur, Kvíðakynslóðin, er frábært um þetta málefni. Anna Laufey hefur ástríðu fyrir því að hjálpa fólki að finna

102. Grænahlíð - með börnum og fjölskyldum þeirra í liði
Í þessum þætti heimsækir Kristín Björg Viggósdóttir vinnustað sinn, Grænuhlíð, og ræðir við Önnu Maríu Jónsdóttur geðlækni og Öldu Pálsdóttur iðjuþjálfa um starfsemi miðstöðvarinnar og þá meðferðarnálgun sem þar er unnið eftir. Grænahlíð er fjölskyldumiðað geðheilbrigðisúrræði fyrir 0–25 ára börn og ungmenni, þar sem þverfaglegt teymi vinnur með allri fjölskyldunni út frá áfallamiðaðri og tengslae

101. Uppeldi ungra barna ⎸Nokkur lykilatriði að mati Birnu, Dagnýjar og Laufeyjar
Hvað skiptir mestu máli í uppeldi yngri barna?Þú ert í miðju þykkninu – þetta eru árin sem reyna á svefn, þolinmæði og tengsl svo um munar. Þær Birna Almarsdóttir, Dagný Hróbjartsdóttir og Laufey Ósk ræða nokkur lykilatriði virðingarríks uppeldis þegar kemur að yngri börnum. Þær eiga allar börn undir þriggja ára – auk eldri systkina. Nokkrir hlátraskellir fengu að fylgja með, enda er Dagný húmoris

100. þáttur - Viðkvæmar og viljasterkar
Í 100. þætti Virðingar í uppeldi fóru þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Guðrún Inga Torfadóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir og Perla Hafþórsdóttir yfir það hvernig er að vera viðkvæmar og viljasterkar mæður í grunninn og eiga jafnvel viðkvæm og viljasterk börn líka. Þar sem þetta er 100. þátturinn var líka aðeins farið yfir hvernig það hefur mótað þær að tileinka sér virðin

99. Unglingar
Guðrún Inga Torfadóttir ræðir við Kristínu Björgu Viggósdóttur og Sólveigu Maríu Svavarsdóttur um hvernig má best efla foreldra í hlutverki sínu þegar börnin fara inn í unglingsárin.Þetta eru árin sem heilinn fer í gegnum ferli sem má líkja við að fara í allsherjar tiltekt og gerist í gamla heilanum fyrst og fremst, randkerfinu, og færir sig síðar ofar og framar og yfir í framheilann allra síðast.

98. Þroski og vegferð Elsu og Kristínar sem mæður, grasrótarkonur og uppeldisfræðingar
Elsa Borg Sveinsdóttir og Kristín Björg Viggósdóttir ræddu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breytt um virðingarríkt uppeldi og þroskasögu sína þegar kemur að foreldrahlutverkinu og foreldraráðgjöf. Allar þrjár hafa verið vinkonur í sjö til átta ár og mynduðu félagsskapinn Meðvitaða foreldra með fleiri góðum. Heilmikið vatn hefur runnið til sjávar frá því þær Elsa og Kristín urðu fyr

97. Eitt svefnvandamál leyst
Kona á samtal við konu um hvernig á að koma á nýjum svefnvenjum og eignast kvöldin sín aftur; fyrir raunveruleikaþætti, prjónaskap eða að stara út í loftið eða í augu makans. Skiptir ekki öllu máli fyrir hvað, en meira máli skiptir að trúa því að það er hægt!Í þetta sinn voru það vinkonurnar Birna Almarsdóttir og Guðrún Inga Torfadóttir sem rifjuðu upp hvernig gekk að gera stórar breytingar með li

96. Undirbúningur fæðingar
Auður Bjarnadóttir, eigandi Jógasetursins og dásamlegur meðgöngujógakennari, kom beint úr tíma með fullan sal af verðandi mæðrum sem dönsuðu og önduðu ásamt Birnu Almarsdóttur sem á brátt von á sér. Þær ræddu við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um undirbúning fæðingar, stuðning maka, að vinna sig í gegnum tilfinningar sem vakna á meðgöngu og góðar möntrur sem hjálpa við að sjá fyrir sér góða fæðingu. Dás

95. Gleðiskruddan og jákvæð sálfræði
Perla Hafþórsdóttir tók á aðventunni á móti þeim Marit Davíðsdóttur og Yrju Kristinsdóttur sem saman sköpuðu Gleðiskrudduna og eru mjög virkar við að halda námskeið fyrir börn og ungmenni. Þær gáfu jafnframt út samnefnda dagbók fyrir börn að vinna með sem er mjög vel heppnuð og notuð víða.Gleðiskruddan byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan og við k

94. Hugarfrelsi
Vinkonurnar til margra ára sem stofnuðu Hugarfrelsi og hafa í um tíu ár eða meira starfað við að heimsækja leik- og grunnskóla og kenna börnum að hugleiða, sem og foreldrum á ótal námskeiðum, heimsóttu þær Dagnýju Hróbjartsdóttur og Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Þetta eru þær Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir, sem saman hafa búið til auð af efni, alls konar spjöld, hugleiðslur og bæk

93. Dúlur um úrvinnslu eftir erfiða fæðingu
Í þættinum fjalla þær Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir dúlur mættar að ræða erfiða fæðingarreynslu og úrvinnslu vikurnar og mánuði á eftir, eða jafnvel enn síðar. Þær fjalla fallega um þetta málefni og gott er að hlusta á þær og gera upp sína eigin fæðingarreynslu í leiðinni.

92. Ágústa Rúnars um kynslóðauppeldi
Í þættinum fékk Dagný Hróbjartsdóttir Ágústu Rúnarsdóttur til sín í spjall um foreldrahlutverkið og þróun og þroska sinn í því frá því hún varð móðir fyrst, tæplega 17 ára gömul og svo aftur komin yfir fertugt. Tímarnir hafa breyst og fólkið breytist með. Yndislegt spjall sem við mælum með!

91. Leiðir til gleðilegrar sængurlegu
Hér er á ferðinni fjórði þáttur dúlanna Guðrúnar Björnsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur í Hönd í hönd. Þær ræða í þættinum um leiðir til þess að gera sængurleguna ánægjulegri og reynslu sína hvað það varðar. Fallegt og rólegt spjall sem er yndi að taka í göngutúrnum, með makanum í bíltúr eða á koddanum fyrir svefninn, sérstaklega ef þú eða einhver nákominn þér á von á barni.

90. Gestur Pálmason
Í þessum 90. þætti Virðingar í uppeldi kynnumst við viðhorfi Gests Pálmasonar, stjórnenda- og teymisþjálfara hjá breska þjálfunarfyrirtækinu Complete Coherence til foreldrahlutverksins í samtali við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Áhugi hans og starfsorka liggur í að vinna með fullorðnu fólki við að ná lengra í störfum og lífi sínu. Viðhorf okkar og orka segi til um hvernig við tengjumst öðrum sem hefur

89. Stutt hugvekja um mörk
Öll höfum við stundum gott af því að hlusta á eitthvað sem peppar okkur í leiðtogahlutverkinu. Hér er stutt hugvekja um mörk í boði Guðrúnar Ingu Torfadóttur.

88. Dúlur um parsambandið á meðgöngu og í fæðingu
Enn á ný heiðra dúlurnar Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir í Hönd í hönd okkur með nærveru sinni í Virðingu í uppeldi með spjalli sínu og vangaveltum um parsambandið á meðgöngu og í fæðingu - og hvað aðkomu dúlur geta haft til að liðka fyrir og gefa því byr undir báða vængi áður en þau taka á móti barninu.Fallegt og rólegt spjall sem er yndi að taka í göngutúrnum, með makanum í bíltúr eð

87. Guðrún Jóhanna um að styrkja félagsfærni
Guðrún Inga Torfadóttir tók hér á móti Guðrúnu Jóhönnu Benediktsdóttur iðjuþjálfa. Hún er með réttindi sem leiðbeinandi í PEERS félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungt fólk og heldur námskeið í því hjá Lífsbrunni ásamt því að vinna með börnum og fjölskyldum þeirra almennt við skynúrvinnslumöt til að mynda. Frábært og upplýsandi spjall!

86. Undirbúningur fyrir fæðingu og hjálplegar staðhæfingar með Guðrúnu Björns og Soffíu Bærings
Þær Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir dúlur hjá Hönd í hönd eru mættar aftur til að gefa konum og foreldrum sem eiga von á barni leiðir til að finna stuðning og ró í fæðingunni sjálfri sem og fæðingarundirbúningnum. Einkar ljúf hlustun sem við mælum heils hugar með.

85. Vignir Sigurðsson barnalæknir
Hvað gerist þegar tvær traustar vinkonur sem kynntust í gegnum félagsskap okkar í kringum virðingarríkt uppeldi og búa á Selfossi taka spontant viðtal við barnalækninn á svæðinu sem önnur þeirra var svo ánægð með í síðustu heimsókn?Þessi þáttur.Vignir Sigurðsson læknir leyfir sér hér að segja það sem stendur hjarta hans nær. Vinkonurnar tvær blómstra í þessu spjalli sömuleiðis.Sértu heilbrigðissta

84. Guðrún Björns og Soffía Bærings um dúlustarfið
Framundan inn á milli annarra þátta eru nokkrir þættir úr smiðju þeirra Guðrúnar Björnsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur. Þær starfa báðar sem doulur. Guðrún er ein stofnmeðlima Meðvitaðra foreldra og tveggja barna móðir. Segja má að foreldrahlutverkið og ástríða hennar fyrir virðingarríku uppeldi hafi leitt hana á þá braut sem hún starfar á í dag, með börnum hjá Hjallastefnunni og sem doula eftir að

83. Barna og fjölskyldustofa - Farsæld barna
Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældarsviðs Barna- og fjölskyldustofu og Elísabet Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur hjá Barna og fjölskyldustofu spjölluðu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur og Önnu Mjöll Guðmundsdóttur frá Fyrstu fimm - hagsmunafélagi foreldra og fagaðila um barnvænna samfélag. „Hvað á að gera þegar barn byrjar að eiga í vanda?“ er meðal þes

82. Marta Birna
Marta Birna Baldursdóttir er einstæð móðir og sérfræðingur og verkefnisstýra í kynjaðri fjárlagagerð í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.Hún spjallar hér við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breitt um foreldrahlutverkið og upplifun sína við að afla sér þekkingar á því sviði, sem og hvernig er að vera í fullu starfi og halda öllum boltum á lofti sem einstætt foreldri með litla aðstoð.Þá bregður á gó

81. Þegar ég kynntist RIE
Í þættinum fáum við að heyra sögu Huldu Margrétar Brynjarsdóttur í spjalli hennar við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Hulda fer með miðilinn Leið að uppeldi og segir okkur frá því þegar hún kynntist uppeldisstefnunni RIE, hvaða bækur hún las fyrst, námskeið hennar hjá RIE Institute með Ruth Ann Hammond sem kennara og almennt um hvernig henni hefur fundist eftir að hún fluttist til Íslands og hóf störf í

80. Tryggvi Hjaltason
Tryggvi Hjaltason er duglegur að tjá sig um málefni barna og stöðuna í menntakerfinu og er sjálfur fjögurra barna faðir á aldrinum eins til tólf ára. Hann er formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins og starfsmaður greiningardeildar CCP og er þeim eiginleikum gæddur að hann dýfir sér djúpt ofan í málefnin sem vekja áhuga hans.Guðrún Inga Torfadóttir ræddi við hann um sýn hans á uppeldið, hlutverk h

79. Þátturinn sem þú vilt hlusta á - með Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur
Perla Hafþórsdóttir heimsótti reynsluboltann, fag- og ástríðukonuna fyrir velferð barna, Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, Öddu, og fékk að eiga við hana samtal um ævistarfið og þau tól og tæki sem hún hefur þróað í starfi sínum með börnum. Adda heldur utan um kennslu í forvörnum um ofbeldi fyrir börn, foreldra og kennara ásamt því að ræða um heilbrigð samskipti og kenna börnum að vera læs á tilfinninga

78. Mörk og samfélagslegt uppeldi
Eftir gríðarlega neikvæðar fréttir að undanförnu um líðan barna, eineltismál, frásagnir af ofbeldi og með menntamálin í deiglunni töldum við rétt að taka aðeins púlsinn hjá tveimur frábærum sem vita talsvert um hlutina. Anna Rakel Aðalsteinsdóttir, félagsfræðingur og sáttamiðlari hjá Foreldrahúsi og Sólveig María Svavarsdóttir, heimakennari, unnu eitt sinn saman í grunnskóla. Þær hafa báðar gríðar

77. Umhverfisþættir í uppeldi með Unu Emilsdóttur
Í þættinum fékk Árni Kristjánsson til sín Unu Emilsdóttur, sérnámslækni í umhverfislæknisfræði, til að ræða um heilsuspillandi efni í nærumhverfi okkar og hvernig aukin þekking á skaðsemi þessara efna getur aukið sjálfstraust í foreldrahlutverkinu og stuðlað að virðingu í uppeldi. Una er brautryðjandi hér á landi í vitundarvakningu um áhrif efnanotkunar á heilsu okkar. Hún er jafnframt tveggja bar

76. Um íþróttauppeldi barna
Kristín Björg Viggósdóttir fékk þau Viðar Halldórsson og Guðlaugu Ingibjörgu Þorsteinsdóttur í spjall um tilgang íþróttaiðkunar fyrir börn. Þau ræddu aðgengi barna að íþróttum og hvernig íþróttir gætu verið meira á forsendum barnanna frekar en á forsendum íþróttagreina. Til að mynda hefur sýnt sig að börn innflytjenda taka síður þátt í íþróttum og stelpur síður en strákar. Einnig getur verið flóki

75. Skólabyrjun
Til Guðrúnar Ingu mættu þær Una Guðrún Einarsdóttir, aðstoðarskólastjóri grunnskólastigs og grunnskólakennari sem sérhæft hefur sig í kennsluaðferðum í lestri – en ekki síst fjögurra barna móðir - og Þórey Huld Jónsdóttir, aðstoðarskólastjóri leikskólastigs og tveggja barna móðir og reynslubolti í aðlögun og alls konar tengdu leikskólanum í Urriðaholtsskóla.Þær þrjár ræddu allt og ekkert sem tengi

74. María Rún um stafrænt uppeldi
María Rún Bjarnadóttir er doktor í lögfræði og móðir og hefur haft stefnumarkandi áhrif á hvernig tekið er á stafrænum kynferðisbrotamálum hér á landi hin síðustu ár. Hún þekkir málaflokkinn sömuleiðis vel vegna núverandi starfa sinna hjá ríkislögreglustjóra sem verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá ríkislögreglustjóra.Þær Guðrún Inga Torfadóttir nutu þess afskaplega vel að leyfa umræðunni að fara

73. Samvinna við skilnað
Guðrún Björnsdóttir, doula og einingastýra hjá barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði, tók þau Davíð Alexander Östergaard, sem er í MA-gráðu í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf, og Ragnheiði Láru fjölskylduráðgjafa tali um samvinnu foreldra eftir skilnað. Ragnheiður stofnaði ráðgjafarþjónustuna Tvö Heimili árið 2019 og hefur langa reynslu sem ráðgjafi á þessu sviði hjá Sýslumanninum í Reykjaví

72. Betri borg fyrir börn
Í þessum þætti ræðir Gyða Björg Sigurðardóttir við þrjár konur, þær Karen Lind Gunnarsdóttur, sálfræðing hjá Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, Gró Einarsdóttur, doktor í félagssálfræði, og Emblu Vigfúsdóttur, listrænan leikjahönnuð. Þær starfa í teymi sem vinnur að verkefninu „Betri borgar fyrir börn“ sem unnið er í samstarfi milli þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar og Bloomberg Phila

71. Umhverfisvernd og uppeldi með Stefaníu Rut og Alexöndru
Í þessum þætti settust þær Stefanía Rut Hansdóttir og Alexandra Kjeld niður með Guðrúnu Ingu og sögðu henni allt af létta um textíliðnaðinn og sjónarmið um umhverfisvernd með ýmsum leiðum - s.s. með ungbarnafataleigu og endurnýtingu en ekki síst kaupum á umhverfisvænum textíl. Eftir um 30 mínútna spjall um það var sjónum vikið að öðrum áhugamálum þeirra og Guðrúnar Ingu um foreldrakulnun, að ala s

70. Guðmundur Ingi - um skjánotkun, uppeldi drengja og að alast upp af annarri kynslóð
Guðmundur Ingi Þorvaldsson ræðir hér við Árna Kristjánsson um hvernig var að alast upp sem drengur í sveitinni sinni og verða síðan faðir fremur seint á lífsleiðinni. Umhverfið þá gjörólíkt og væntingar og hugmyndir um hlutverk feðra allt annað en áður var. Verandi faðir tveggja drengja hefur hann hugsað sig í gegnum ýmislegt sem varðar uppeldi stráka. Hann segir okkur einnig frá viðhorfum sínum t

69. Spjallað um leiklist
Heimsækjum aðeins orð Robin Einzig, stofnanda Visible Child: „Visible Child styður ekki að börn séu sett í skipulagða tíma eða tómstundir þar til þau hafa náð um 7 ára aldri – og þá aðeins að þeirra eigin beiðni og á máta sem býður upp á frjálsa aðferð og sem helst felur ekki í sér skuldbindingu í lengri tíma svo þau geti hætt eða byrjað hvenær sem þeim langar.“En hvernig líður þá 7 og 8 ára gömlu

68. Að upplifa lífið sitt á meðan það er að gerast
Bryndís Jóna Jónsdóttir átti frábært núvitundarspjall við þrjár okkar úr hópi Meðvitaðra foreldra sem jafnframt eru eða hafa verið nemendur hennar hjá Háskóla Íslands, þar sem hún starfar sem aðjúnkt. Bryndís er jafnframt núvitundarkennari hjá Núvitundarsetrinu, með MA diplóma í jákvæðri sálfræði, MA í náms- og starfsráðgjöf og B.Ed. í grunnskólafræðum með áherslu á íþróttir og heilsu. Þá er hún v

67. Handan hegðunar - seinni hluti
Í dag höggvum við á hnútinn og ljúkum loks umfjöllun okkar um hina frábæru bók dr. Monu Delahooke Beyond Behaviors. Til þess að gefa meira fyrir hlustendur að melta og sofna ekki endanlega yfir sefandi rödd Guðrúnar Ingu ákváðum við að klippa inn bestu augnablik úr fjarbókaklúbbi Virðingar í uppeldi. Þátttakendur sem hljóma í þættinum eru þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir , Ágústa Margrét Arnardóttir,

66. Spjallað um Waldorf-stefnuna
Í þessum fyrsta þætti Virðingar í uppeldi í umsjón Árna Kristjánssonar kynnumst við Waldorf-skólanum á Íslandi örlítið með spjalli hans við Waldorfkennarana Martein Teit Kristjánsson og Ingibjörgu Jónu Sigurðardóttur, sem bæði eru reynslumiklir kennarar í Waldorf-stefnunni og hafa jafnframt alið upp börn sín eftir gildum hennar.Stefna Waldorfskólans byggir á heimspeki og heildrænum lífskenningum R

65. Meistaraspjall um virðingarríkt uppeldi með Árna og Hörpu
Þau Árni Kristjánsson og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir fara hér yfir barnæskur sínar með Guðrúnu Ingu og setja í samhengi við hvernig þau mættu til leiks sem foreldrar. Þau ræða um mikilvægi ömmu og afa og tengslamyndunar þeirra við börnin og einnig hvernig við getum reynt að fá þau til liðs við okkur í að gera hlutina af virðingu. Þau ræða áfall sem þau urðu fyrir skömmu eftir að hafa orðið foreldra

64. Handan hegðunar - fyrri hluti
Í þessum frábæra þætti í umfjöllun Bókaklúbbs Meðvitaðra foreldra um bókina Handan hegðunar eftir dr. Monu Delahooke fékk Guðrún Inga Torfadóttir þær Önnu Mjöll Guðmundsdóttur, Margréti Thelmu Líndal og Sólveigu Rós til þess að lesa með sér yfir ítarlegan útdrátt úr fyrri hluta bókarinnar. Saman stöldruðu þær af og til við og leyfðu sér að velta upp ýmsum hugleiðingum um efnið. Bókin Handan hegðun

63. Reynslusaga Ölmu um einveru
Alma Björk er menntaður framhaldsskólakennari, viðskiptafræðingur og umhyggjusöm þriggja barna móðir sem segir Guðrúnu Ingu í þessum þætti frá baráttu sinni fyrir réttindum sonar síns í grunnskólakerfinu. Sú barátta hefur leitt líf hennar inn á nýjar og aðrar brautir; hún hóf nám í lögfræði og hefur son sinn nú í heimakennslu og á í virku samtali við aðra foreldra í svipuðum sporum inni á hópnum S

62. Að eignast þriðja barn
Í þessum þætti setjast þrjár þriggja barna mæður niður til að ræða hvernig lífið breyttist við að eignast þriðja barn. Það voru þær Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir og Svava Margrét Sigurðardóttir sem ræddu málin.Hugmyndin að þættinum var í grunninn sú að ræða hvernig nálgun að uppeldi breytist við að eignast þriðja barn eftir hafa tileinkað sér virðingarríkar uppeldisaðferðir

Enn um hreyfiþroska með góðum gestum
Við höfum nokkrum sinnum fjallað um hreyfiþroska ungbarna hér í hlaðvarpinu. Fyrst í þætti okkar um grunnatriði RIE og um að kenna eða kenna ekki, þegar við vorum að hefja flugið í þessu hlaðvarpi fyrir tveimur árum síðan. Þá hafa bæði sjúkraþjálfararnir Agnes og Kara úr Hraust þjálfun aðeins komið inn á þetta með okkur í 22. þætti sem og Freyja Barkardóttir sjúkraþjálfari og Kristín Björg Viggósd

60. Í heilum heimi í uppalendahlutverkinu með Gyðu Dröfn
Gyða Dröfn Tryggvadóttir er frábær ráðgjafi í meðvirknifræðum Piu Melody og gefur hlustendum okkar hér innsýn í hvernig hún hefur öðlast skarpskyggni á hvernig mynstrin úr æsku birtast okkur á fullorðinsárum og hafa áhrif á öll okkar sambönd og tengsl. Að alast upp í klessutengslum eða hafa verið yfirgefin eða látin afskipt af uppalendum okkar hefur þannig langvarandi og lúmsk áhrif sem mikils er

59. Bókaklúbbur - Hvernig á að tala svo lítil börn hlusti og hlusta svo lítil börn tali
Eftir langan sumardvala erum við vöknuð til lífsins í Virðingu í uppeldi og hefjum kröftugan og fjörugan fræðslu- og umræðuvetur um virðingarríkt uppeldi með umfjöllun um bókina How To Talk So Little Kids Will Listen And Listen So Little Kids Will Talk. Það virðist loða við uppeldisbækur sem við lesum að vera með langa titla. En það er í lagi, við ráðum við það. Þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Gyða

58. Bókauppeldi með Bergrúnu Írisi og Hermundi
Guðrún Inga Torfadóttir og Eva Rún Guðmundsdóttir hafa oft rætt saman með áhyggjufullum tóni eftir að börnin þeirra fóru upp á grunnskólastigið. Hverjar hafa áhyggjur þeirra verið? Jú, önnur er með strák og hin með stelpu. Þær hafa báðar haft áhyggjur af því að ánægja barnanna af að lesa fölni í umhverfi leshraðamælinga, límmiðagjafa og einkunnaspjalda. Börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í umh

57. Meðvituð sambönd með Þórhildi og Soffíu
Þá er komið að enn öðrum þættinum um ástarsambönd okkar foreldranna. Með Guðrúnu Ingu til halds og trausts voru mættar til leiks þær Soffía Bæringsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir.Fyrsti hluti þáttarins fjallar um týpískar aðstæður þar sem foreldrum í sambandi lenti saman við að svæfa barn og reyndi á samanburð, að vera saman í liði og hvernig yngri útgáfa af okkur sjálfum getur vaknað þegar allir

56. David Weinstock on Raising Children Empathically
In this episode, conducted in English in this Icelandic podcast on respectful parenting, Gudrun Inga discusses with David Weinstock how his methods of practicing somatic NVC by using his Aikido training background, can be applied when raising children. We hear how he has best understood what our human needs are and how to listen empathically to our children. If you'd like to learn more about Mr. W

55. Bókaklúbbur Suðurlandsþríeykisins skoðar grunnatriði RIE - Elevating Child Care
Í þessum þætti heimsóttu þær Birna Almarsdóttir, Dagný Hróbjartsdóttir og Laufey Ósk okkur í hlaðvarpið og fjölluðu um bók Janet Lansbury, Elevating Childcare með Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Bókin er grunnbók um RIE-uppeldi og því er þetta frábær umfjöllun fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessum efnum og góð upprifjun fyrir aðra. Þær grínuðust mikið inn á milli háalvarlegra umræðna og s

54. Sæunn Kjartansdóttir
Sálgreinirinn og rithöfundurinn Sæunn Kjartansdóttir er ein helsta hugsjónarmanneskja eldri kynslóðarinnar um virðingarríkt og tengslavænt uppeldi. Perla Hafþórsdóttir tók á móti henni í litla eldhúsið sitt í spjall um helstu hugðarefni Sæunnar, sem hún hefur verið mikilvirk við að setja í orð og birta á prenti hingað til. Bækur hennar Fyrstu 1000 dagarnir, Árin sem enginn man, Hvað gengur fólki t

53. Fyrstu fimm
Þrír meðlimir úr stjórn Fyrstu fimm mættu til Guðrúnar Ingu Torfadóttur að ræða um þau sjónarmið sem leiddu þau saman og liggja að baki áherslumálum hagsmunafélagsins.Þau Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Matthías Ólafsson og Ólafur Grétar Gunnarsson eru öll í stjórn Fyrstu fimm og eru, eins og aðrir í stjórninni, blanda af fagfólki og foreldrum með reynslu af virðingarríku uppeldi. Þau hafa öll ástríðu

52. Um tengsl og áhrif annarra með Sigrúnu Júlíusdóttur
Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í Félagsráðgjöf og stofnandi Tengsla meðferðarþjónustu fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur, var viðmælandi Kristínar Bjargar Viggósdóttur í þessum 52. þætti. Sigrún er reynslubolti á sínu sviði og hefur haft mikil áhrif á málefni barna og fjölskyldna á Íslandi síðastliðna áratugi. Hún hefur meðal annars haft áhrif á að foreldraviðtöl séu haldin í leikskólum og hve

51. Birna Almars
Birnu Almarsdóttur þekkja e.t.v. nokkrir glöggir hlustendur úr þáttum okkar nr. 43 og 44 um bókina sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið eftir Philippu Perry. Í þættinum fáum við að kynnast Birnu og ferðalagi hennar í gegnum krabbameinsmeðferð síðasta hálfa árið. Við heyrum hvernig RIE nýttist henni persónulega sem og með dóttur hennar og kærasta í gegnum þetta allt, hvar þurfti að gefa sla

50. Svefnuppeldi - hátíðarþáttur
Í sérstökum hátíðarþætti í tilefni þess að vera 50. þáttur hlaðvarpsins Virðingar í uppeldi fjöllum við ítarlega og af metnaði um svefnuppeldi. Gestir eru þau dr. Berglind Sveinbjörnsdóttir, dr. Erla Björnsdóttir, Ólafur Grétar Gunnarsson og Soffía Bæringsdóttir. Stjórnandi þáttarins er Guðrún Inga Torfadóttir og með henni þau Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, Konráð Jónsson og Perla Hafþórsdóttir.

49. Auðnast: Um sambönd og uppeldi
Þær Hrefna Hugosdóttir og Ragnhildur Bjarkadóttir frá Auðnast spjölluðu í þessum þætti við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Hrefna er hjúkrunarfræðingur og Ragnhildur sálfræðingur. Báðar eru þær með framhaldsmenntun í fjölskyldumeðferð en nefna sig aðallega mæður. Saman stofnuðu þær fyrirtækið með miklar hugsjónir um að huga að öllum þáttum heilsunnar til að ná jafnvægi í einkalífi og starfi. Í spjallinu

48. Bókaklúbbur - The Explosive Child krufin til mergjar
Í þessum þætti birtum við upptöku af fjarbókaklúbbi um snilldarbókina The Explosive Child eftir dr. Ross Greene. Guðrún Inga Torfadóttir sat sveitt í nokkra daga yfir að því er henni fannst ofvaxna verkefni að gera bókinni skil og heimfæra CPS-fræði Ross Greene yfir á aðra hluti sem við ræðum um í þessu hlaðvarpi, eins og RIE og almennt virðingarríka framkomu við börn. Frábærir gestir mættu sem be

47. Konfektmoli með þakklæti
Áslaug Björt Guðmundardóttir, rithöfundur bókarinnar Þökk til þín, verkefnabókar, Guðrún Birna le Sage markþjálfi með meiru og uppeldiskúnstner og Þórhildur Magnúsdóttir verk- og hagfræðibræðingur, Kyrrukona og þakklætisiðkandi ræddu í þessum þætti við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um þakklæti.Í þættinum ræddum við hvernig við styrkjum þakklætisvöðvann með iðkun, líkamlegri sem og andlegri og getum þan

46. Hátíðaruppgjörið
Við fögnum því ákaflega að nýtt ár er runnið í garð en förum fyrst aðeins yfir hvernig hátíðirnar gengu. Hvað mætti gera betur og hvað mætti endurtaka? Þetta var því þáttur til að taka upp núna rétt eftir áramót og jafnvel hlusta á hann líka til að hugsa málið sjálf á meðan minnið er enn á sínum stað - en hlusta svo aftur fyrir næstu jól til að endurtaka ekki sömu vitleysurnar.Þátttakendur voru Gy

45. Sigga Dögg og Soffía Bærings um sambandsslit
Í þessum þætti fékk Guðrún Inga Torfadóttir þær Siggu Dögg kynfræðing og Soffíu Bæringsdóttur fjölskylduráðgjafa og doulu með sér til að spá aðeins í sambandsslitum foreldra. Þátturinn hefst á 7 mínútna langri og krefjandi einræðu Guðrúnar, ef þú vilt sleppa við hana, um tengslatýpur og hvernig þær geta haft áhrif á hvernig samband virðist fara hring eftir hring í þvottavél af spennu, upplausn og

44. Bókin sem... seinni hluti
Í þessum síðari þætti um bók Philippu Perry, Bókin sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið, förum við yfir skilyrði góðrar geðheilsu og að setja mörk. Þetta var svo gott efni að við áttum erfitt annað en að tala djúpt og mikið og það var áskorun að klippa eitthvað í burtu til að þetta yrði ekki allt of langt. Þátttakendur að þessu sinni voru reynslu- og þekkingarbrunnar: Ágústa Margrét Arnard

43. Bókin sem... fyrri hluti
Í þessum þætti gefum við hlustendum okkar færi á að hlusta á ítarlega umfjöllun okkar um bók Philippu Perry, Bókin sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið (og börnin þín fagna að þú gerir). Bókin er löng og yfirgripsmikil en auðlesin að okkar mati og rímar vel við kenningar Mögdu Gerber og fleiri virðingarríka sérfræðinga um uppeldi. Guðrún Inga Torfadóttir stjórnaði upptökum og leyfði sér að

42. Pabba-rabb II
Eftir rúmlega árs þögn er komið að öðrum pabbarabbs-þætti. Þeir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, sem stýrði umræðum, Arnar Pétursson, Árni Kristjánsson og Matthías Ólafsson tengdu sig inn á sömu bylgjulengd á sama tíma og ræddu hvað virðingarríkt uppeldi er fyrir þeim og hvaða áhrif það hefur helst haft á þá í föðurhlutverkinu. Á meðal þess sem bar á góma var hvaða upplifun sumir þeirra hafa af feðraorl

41. Umhugsunarefni dagsins
Í þættinum förum við nokkrar yfir hvað við erum að hugleiða í dag í tengslum við uppeldið og létum upptökutækið ganga á milli okkar. Það sem kom við sögu var ýmist uppeldi á okkur sjálfum eða börnunum okkar. Hér fengu vangaveltur að flakka um notkun uppnefna í systkinahópi, svefnrútínu, einkatíma, útiveru, húsverkaþátttöku, svefntíma, málþroska, að vera gagnsæ um okkar líðan við börnin og uppákomu

40. Vandræðasögur – börn í klípu og hvað gerum við?
Í fertugasta þætti okkar skyggnumst við á bak við barnabókina Vandræðasögur og fáum að heyra lýsingu höfunda bókarinnar á hugmyndafræðinni sem fyllir þær báðar ástríðu um hvernig við getum sem best hjálpað börnum að leysa úr klípum sín á milli og aðkomu hinna fullorðnu til að það megi heppnast sem best. Sögur eru vel til þess fallnar að fá börn í samræður um þær klípur sem geta komið upp í samskip

39. Fjarbókaklúbbur The Objectivist Parenting
Í þessum þætti er farið yfir bókina The Objectivist Parenting eftir Roslyn Ross í fjarbókaklúbbi. Sem fyrr var tæpt á helstu atriðum bókarinnar og svo fjörlegar umræður inni á milli. Við vitum aldrei hverjir mæta á þessa fjarbókaklúbba en það sýnir sig að þegar stjórnartaumunum er sleppt kemur eitthvað frábært upp úr dúrnum. Þessi bók er knöpp og fer ítarlega yfir allt sem Roslyn og aðrir telja ve

38. Forgangsröðun í umgjörð fjölskyldunnar
Í þessum þætti, sem spratt upp sem sjálfstætt framhald af frábærum síðasta þætti um minimalisma og virðingarríkt uppeldi, ræddum við nokkrar um hvernig við forgangsröðum í lífum okkar hvað varðar hagsmuni barnanna og okkar sjálfra. Ólíkir foreldrar forgangsraða með ólíkum hætti en það þýðir ekki að einhver þeirra hafi rétt fyrir sér og aðrir rangt. Þetta reyndist vera prýðisgott umræðuefni og hægt

37. Einfaldleiki í virðingarríku uppeldi
Þær Sigurlaug Elín Þórhallsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir frá Kyrru lífsstíl hafa marga fjöruna sopið þegar kemur að því að ræða einföldun umgjarðar fjölskyldulífs enda verið að veltast með stóru spurningarnar undanfarin ár. Hvernig er best að haga gjöfum? Haga húsverkum? Hugsa um neyslu okkar? Raða í fataskápana? Huga að þvottinum? Þessi einföldu atriði geta flækt lífið afar mikið þegar við set

36. Aldrei gleyma að leika - spjall við Sigrúnu Yrju Klörudóttur
Í þessum fyrsta þætti eftir sumarfrí ræddi Guðrún Inga Torfadóttir við Sigrúnu Yrju Klörudóttur, sem er konan á bak við heimasíðuna, fb-hópinn og Instagram-reikninginn Always Remember To Play. Hvernig datt henni í hug, búandi á Austfjörðum með börnin sín í fæðingarorlofi, að hefja þá vegferð að gerast áhrifavaldur um leik barna með metnaðarfullum hætti? Við mælum með að hlusta á þetta spjall við f

35. Kulnun í foreldrahlutverki
Við vorum þrjár í þessum þætti hver á sínum stað á Norðurlöndunum. Í Svíþjóð var það Ingibjörg Ólafsdóttir, sem kallar sig Hjálp ég er útbrennd á Instagram, en hún hefur tiltölulega nýlokið meðferð að sænskum hætti við kulnun og hefur viðað að sér miklum fróðleik um málefnið og miðlað því til annarra. Í Danmörku var það Stefanía Rut Hansdóttir, sem skrifaði lokaritgerð sína í sálfræði ásamt vinkon

34. Bókaklúbbur - Hold On To Your Kids
Í þessum þætti er upptaka birt af bókaklúbbi um bókina Hold On To Your Kids eftir þá Gordon Neufeld uppeldissálfræðing og lækninn og rithöfundinn Gabor Maté frá árinu 2004. Höfundar þessarar bókar eru þeirrar skoðunar að börn séu að renna foreldrum úr greipum, að verða nánast týnd kynslóð og þá sér í lagi með skjáina alls staðar í sjónlínu og unglinga sem vilja sem minnst vita af foreldrum sínum.

33. Hreyfiþroski
Í þættinum er fjallað vel og ítarlega með hæfilegu kæruleysi að venju um hreyfiþroska barna út frá kenningum dr. Emmi Pikler og RIE með Freyju Barkardóttur sjúkraþjálfara og Kristínu Björgu Viggósdóttur iðjuþjálfa. Okkur þótti þetta vera góður tímapunktur fyrir foreldra allra barnanna þarna úti sem eru ekki enn farin að ganga og geta spreytt sig liggjandi á jörðinni úti við, helst berfætt eins og

32. Þóra Jónsdóttir ásamt góðkunningjum um barnasáttmálann, meðvirkni, sambönd, uppeldi og sjálfsvinnu
Í dag ræðum við Guðrún Birna le Sage, Ágústa Margrét Arnardóttir og Guðrún Inga Torfadóttir við Þóru Jónsdóttur, lögfræðing hjá Barnaheillum og markþjálfa. Hugmyndin var Ágústu Margrétar eftir að þær kynntust í gegnum markþjálfarahitting á netinu. Þetta er því spjall tveggja lögfræðinga og þriggja markþjálfara og eðlilega var komið aðeins inn á bæði hlutverkin. Þóra kemur í þættinum inn á hlutverk

31. Bókaklúbbur - The Whole Brain Child
Rafrænn bókaklúbbur, svo til óklipptur, fær að flakka í þessum þætti. Bókin er The Whole Brain Child eftir Daniel J. Siegel og Tinu Payne Bryson. Fæst okkar myndu bara standa á öðrum fæti ef við gætum notað báða fætur. En hið furðulega er að mörg okkar – sérstaklega börn – nýta sér ekki mikilvæga hluta heilastarfsemi sinnar án þess þó að það sé meðvitað val. Vandinn er að hlutar heilans þroskast á

30. Brjóstagjafarspjall
Í þessum þætti er brjóstagjöfin rædd stuttlega en ófullkomlega eins og reynslusögur eru flestar. Fullt af góðum litlum punktum koma þarna fram hjá þeim Elsu Borg Sveinsdóttur, Guðrúnu Birnu le Sage, Guðrúnu Björnsdóttur, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, Gyðu Björg Sigurðardóttur og Perlu Hafþórsdóttur. Skilaboðin eru að þú getur leitað hjálpar og ráða hjá fagfólki, vinkonum og öðrum góðum. Stundum þarftu

29. Raunveruleg hljóðdæmi
Í þessum þætti settumst við Guðrún Björnsdóttir, Guðrún Inga Torfadóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir og Perla Hafþórsdóttir niður yfir fáeinar upptökur með börnunum okkar þar sem reyndi á eitthvað sem okkur þótti vera þess virði að taka upp. Þetta er því eins konar raunveruleg tilraunastofa þar sem við deilum upptökum okkar með hlustendum, ræðum þær og gefum hvor annarri endurgjöf. Það reynir hér á

28. Að vera til staðar - með Ágústu Margréti Arnardóttur
Ágústu Margréti Arnardóttur kynntust hlustendur okkar í 17. þætti. Þegar hún kom í bæjarferð um daginn gripum við tækifærið og Guðrún Inga Torfadóttir og Guðrún Birna le Sage fengu hana aftur í settið og þær spjölluðu út frá nýrri bók Daniels Siegels og Tinu Brysons, The Power of Showing Up. Þegar kom að því að klippa þáttinn komst Guðrún Inga að því að hann á fullt erindi við okkur í dag. Við ger

27. Um virðingarríkt uppeldi og einhverfu með Aðalheiði Sigurðardóttur
Við hefjum þáttinn á örlitlu innskoti um stöðuna í dag frá Guðrúnu Ingu Torfadóttur og um framhaldið næstu vikur en við munum engan bilbug láta á okkur finna ef við getum einhverju um það ráðið og höldum áfram dagskrá okkar.Aðalheiður Sigurðardóttir, fyrirlesari og samskiptaráðgjafi, er móðir stúlku sem fékk einhverfugreiningu átta ára gömul. Hún kom til Guðrúnar Birnu le Sage og Kristínar Bjargar











