
Athafnafólk
Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.
Episodes

81. Einar Örn Einarsson, meðstofnandi Serrano, Zócalo og Wok to Walk á Íslandi
Viðmælandi þáttarins er Einar Örn Einarsson, stofnandi og forstjóri Zócalo. Zócalo er keðja af mexíkóskum skyndibitastöðum sem eru allir reknir sem sérleyfisstaðir meðal annars í London, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Einar er fæddur árið 1977, gekk í Verzlunarskóla Íslands og kláraði síðar BA gráðu í hagfræði frá Northwestern University í Chicago. Eftir útskrift flutti Einar aftur til Íslands og st

80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK
Viðmælandi þáttarins er Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLK. Fyrirtækið er vaxandi íslenskt hönnunarmerki sem hannar og framleiðir vörur úr endurnýjanlegu efni. Ragna er fædd árið 1973 og lá leið hennar í Menntaskólann við Hamrahlíð og síðan lauk hún BA námi í mannfræði frá Háskóla Íslands og starfaði við blaða- og fréttamennsku um árabil. Ragna lauk því næst MSc gráðu í a

79. Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís
Viðmælandi þáttarins er Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís matarverslunarinnar. Gréta er fædd árið 1980 og alin upp á Flateyri og síðar í Seljahverfinu í Reykjavík. Hún fór í Menntaskólann í Reykjavík áður en hún fór út í skiptinám til Bandaríkjanna og útskrifaðist síðan úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Gréta María er með BS og MS próf í verkfræði frá Háskóla Íslands. Gréta hefur víð

78. Davíð Örn Símonarsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten
Viðmælandi þáttarins er Davíð Örn Símonarson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten. Smitten er vinsælasta stefnumótaforrit Íslands og stefnir að því að verða stórleikandi á markaði sem Tinder, Bumble og Hinge og önnur stefnumótaforrit hafa hafa ráðið ríkjum. Smitten býður upp á einstaka nálgun þar sem prófílar eru leikjavæddir og persónuleg tengsl eru í forgrunni. Davíð er fæddur árið 1990 og

77. Pétur Þór Halldórsson, stofnandi og forstjóri S4S
Viðmælandi þáttarins er Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S. S4S rekur skóbúðirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og S4S Premium Outlet, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. S4S rekur einnig heildverslun og á dótturfélagið S4S Tæki sem er tækjadeild Ellingsen. Það vinna um 180 manns hjá S4S ehf. og veltir fyrirtækið um 5,5 ma kr.
Pétur er fæddur árið 1964 og a

76. Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull
Viðmælandi þáttarins er Guðmundur Hafsteinsson oftast kallaður Gummi, frumkvöðull og stjórnarformaður Icelandair. Gummi hefur starfað hjá stærstu tæknifyrirtækjum í heimi ásamt því að koma að stofnun nokkurra sprotafyrirtækja.
Gummi fæddist á Húsavík árið 1975 og er alinn upp í Breiðholtinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði BS próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands

75. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku
Viðmælandi þáttarins er Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku sem er þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi og byggir á grunni Hitaveitu Suðurnesja sem var stofnuð í árslok 1974. HS Orka á og rekur fjórar virkjanir, tvær jarðvarmavirkjanir og tvær vatnsaflsvirkjanir. Það starfa um 90 manns hjá fyrirtækinu og veltir fyrirtækið um 16 ma. kr.
Tómas er fæddur árið 1968 og alinn upp á Seltjarna

74. Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi
Viðmælandi þáttarins er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, stofnandi og meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi. Lindex er sænsk verslunarkeðja sem selur kven- og barnaföt og Gina Tricot er sænsk tískukeðja sem selur kvenmannsföt. Lóa er fædd árið 1979 og alin upp í Flóanum og á Selfossi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og lauk síðan BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Eftir út

73. Benedikt Skúlason, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Lauf
Viðmælandi þáttarins er Benedikt Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf. Lauf er þekktast fyrir framúrstefnulega hjólagaffla sína, en framleiðir nú og selur malar-, götu- og fjallahjól um allan heim. Benedikt er fæddur árið 1984 og alinn upp í Grafarvoginum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk síðan BS prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í iðnaðarverkfræði frá Col

72. Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríus
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri sælgætisgerðarinnar Nóa Siríus. Sælgætisgerðin var stofnað árið 1920 og framleiðir og selur súkkulaði og sælgæti en árið 2021 var fyrirtækið selt til norska matvæla samsteypunnar Orkla.
Sigríður Hrefna er fædd árið 1977 og ólst upp í Breiðholtinu í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Reykjavík og lauk síðan embættisprófi í lög

71. Finnur Oddsson, forstjóri Haga
Viðmælandi þáttarins er Finnur Oddsson, forstjóri Haga. Hagar er samstæða fyrirtækja sem starfa á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði og starfa um 2.600 starfsmenn hjá samstæðunni. Dótturfélög í samstæðu Haga eru Hagar verslanir ehf., (Bónus, Hagkaup og Aðföng), Olís ehf., Bananar (dreifingaðili á grænmeti og ávöxtum), Noron (Zara), Eldum rétt og Stórkaup heildverslun.
Finnur er f

70. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect
Viðmælandi þáttarins er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect, sem tengir saman starfsmenn fyrirtækja við ólíka sérfræðinga í velferð og geðheilbrigðisþjónustu. Í dag býður Kara Connect upp á nýja vöru, velferðartorg fyrirtækja, sem getur nýst stjórnendum vel til að styðja starfsfólk við ólíkar áskoranir í lífi og starfi. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík og

69. Finnur Pind, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Treble
Viðmælandi þáttarins er Finnur Pind, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Treble Technologies, sem er fyrirtæki sem framleiðir hugbúnað til hljóðhermunar (e. sound simulation). Hugbúnaður Treble er nýttur af fyrirtækjum út um allan heim í bygginga-, tækni- og bílageirum til þess að hanna betri hljóðupplifanir og draga úr hávaða, meðal annars af mörgum af stærstu tækni- og verkfræðifyrirtækjum heims. F

68. Margrét Harðardóttir, Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate
Viðmælandi þáttarins er Margrét Harðardóttir, Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate Partners (AREP) þar sem hún er yfir fjáröflun og fjárfestatengslum. Fyrirtækið stýrir framtakssjóðum sem fjárfesta í ákveðnum tækifærum í fasteignum á lægra miðstigi markaðarins (e. lower middle market) og hefur nú yfir $3,5 milljarða af fasteignum í stýringu. Margrét er alin upp í Bandaríkjunum og á Íslan

67. Tryggvi Björn Davíðsson, meðstofnandi indó
Viðmælandi þáttarins er Tryggvi Björn Davíðsson, meðstofnandi Indó sparisjóðs. Indó kom inn á fastmótaðan bankamarkað í byrjun síðasta árs og hefur hrist upp í markaðnum með því að bjóða upp á nýja einfalda bankaþjónustu á góðum kjörum. Tryggvi er fæddur árið 1973 og ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann gekk í Menntaskólann á Akureyri og lauk B.S. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.S. gráð

66. Sindri Már Finnbogason, stofnandi Tixly (Tix.is)
Viðmælandi þáttarins Sindri Már Finnbogason, sem er sjálflærður forritari, en hann byrjaði að forrita á Sinclair Spectrum aðeins 7 ára gamall. Hann kláraði ekki framhaldsskóla heldur fór að vinna sem forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Innn sem þróaði vefumsjónarkerfið LiSA. Árið 2003 stofnaði hann Miði.is sem seldi miða á alla viðburði á Íslandi í mörg ár en Miði.is keypti svo miðasölufyrirtækið

65. Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga hf.
Viðmælandi þáttarins er Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Hann er fæddur árið 1979 í Reykjavík og er ættaður úr Dölunum á Vesturlandi en ólst upp í Seljahverfinu í Reykjavík. Haraldur gekk í Menntaskóla Reykjavíkur og þaðan lá leiðin í Háskólann í Reykjavík þar sem hann lauk BS prófi í viðskiptafræði. Hann lauk svo MBA-gráðu frá I

64. Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca Cola á Íslandi
Viðmælandi þáttarins er Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (CCEP). CCEP er leiðandi fyrirtæki í neytendavöru á heimsvísu og er með starfsemi í 30 löndum í Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Starfsmenn fyritækisins eru 45 þúsund og þjónar fyrirtækið yfir 600 milljón neytendum.
Anna Regína er fædd árið 1982 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavo

63. Ægir Þorsteinsson, meðstofnandi Hopp og framkvæmdastjóri Aranja
Viðmælandi þáttarins er Ægir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Aranja og einn stofnanda Hopp. Ægir er fæddur árið 1985 og ólst upp á Seltjarnarnesi og á Landsbyggðinni. Hann flutti að heiman eftir 10. bekk til að fara á tölvubrautina í Iðnskólanum og hélt áfram í Háskólann í Reykjavík þar sem hann kláraði B.S. í tölvunarfræði. Ægir vann að netbönkum Landsbankans eftir útskrift og síðan hjá Red Gate í

62. Halla Tómasdóttir, frumkvöðull og forstjóri B-Team
Viðmælandi þáttarins er Halla Tómasdóttir, forstjóri B-Team og frambjóðandi til forsetakosninga Íslands árið 2024. B-Team eru samtök alþjóðlegra leiðtoga sem vinna saman að sjálfbærni, jafnrétti, jöfnuði og aukinni ábyrgð í forystu og viðskiptum. Halla er fædd árið 1968 og ættuð af Vestfjörðum og úr Skagafirði en alin upp á Kársnesinu í Kópavogi. Hún er rekstrarhagfræðingur frá Auburn University o

61. Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs CRI
Viðmælandi þáttarins er Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Carbon Recycling International (CRI). CRI hefur þróað leiðandi tæknilausn á heimsvísu sem gerir viðskiptavinum þeirra kleift að framleiða metanól á umhverfisvænan hátt úr koltvísýringi og vetni, sem síðan er hægt að nýta sem grænan orkugjafa eða í efnavörur. Í dag starfa rúmlega þrjátíu ma

60. Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Öldu
Viðmælandi þáttarins er Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnandi og framkvæmdastjóri Öldu. Alda er hugbúnaðarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að meta og auka fjölbreytileika og inngildingu með örfræðslu, inngildingarkönnun, aðgerðaráætlun og mælaborði. Alda hugbúnaðurinn fór í loftið haustið 2023 og var í lok þess árs valinn á lista ráðgjafafyrirtækisins Gartner yfir leiðandi tæknilausnir sem bjóð

59. Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri Good Good
Viðmælandi þáttarins er Garðar Stefánsson, meðstofnandi og forstjóri matvælafyrirtækisins GOOD GOOD. Fyrirtækið framleiðir m.a. sykurlausar sultur, sætuefni og súkkulaði- og hnetusmjör. GOOD GOOD hefur safnað um $25m+ frá fjárfestum og sækir nú fram á Bandaríkjamarkaði. Garðar er fæddur árið 1984 og ólst upp í Langholtshverfinu. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði

58. Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns
Viðmælandi þáttarins er Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns, fasteignafélags sem er skráð á íslenska aðalmarkaðinn. Jón er fæddur árið 1985 og ólst upp í Hafnarfirðinum. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í byggingaverkfræði frá DTU háskólanum í Danmörku. Jón hefur starfað sem verkfræðingur hjá Mannviti, sé

57. Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fv. forstjóri Dominos
Viðmælandi þáttarins er Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Domino’s. Birgir er fæddur árið 1972 og ólst upp á Borgarnesi og fór síðan í Menntaskólann á Akureyri. Hann flutti til Reykjavíkur og lauk BS í hagfræði frá Háskóla Íslands og frá Pompeu Fabra Barcelona. Birgir starfaði í 10 ár sem forstjóri Domino’s á Íslandi og 13 ár sem “Group Managing Director” hjá Strax en hann

56. Jón Björnsson, forstjóri Origo
Viðmælandi þáttarins er Jón Björnsson, forstjóri Origo. Origo er samstæða þjónustufyrirtækja í upplýsingatækni með um 500 starfsmenn og býður fyrirtækið upp á þjónustu við rekstur og innviði, hugbúnað og notendabúnað. Jón er fæddur árið 1968 og ólst upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Verzlunarskóla Íslands og er lauk síðan B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Rider University í New Jersey. Jón gegndi

55. Þorsteinn Baldur Friðriksson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Rocky Road
Viðmælandi þáttarins er Þorsteinn Baldur Friðriksson, framkvæmdastóri og meðstofnandi leikjafyrirtækisins Rocky Road en fyrirtækið þróar nú nýjan samfélagsleikjamiðil fyrir snjallsíma. Fyrirtækið hefur nú safnað um samtals 700 milljónum kr. frá innlendum og erlendum fjárfestum, þ.á.m. íslenska vísissjóðnum Crowberry Capital, Luminar Ventures og Sisu Ventures.
Þorsteinn er fæddur árið 1979 og ólst

54. Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion
Viðmælandi þáttarins er Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion. Iða Brá er fædd 1976 og er alin upp í Vestmanneyjum, hún gekk í grunnskólann þar og stundaði síðan nám við Verzlunarskólann áður en hún útskrifaðist með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Rotterdam í Holl

53. Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia
Viðmælandi þáttarins er Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia. Guðbjörg er fædd árið 1989 og er alin upp í Garðabæ en síðan lá leið hennar í Menntaskólann í Hamrahlíð. Hún kláraði BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Master í framleiðsluverkfræði frá Chalmers University í Svíþjóð. Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki sem er að þróa nýja og umhverfisvæna aðferð við framleiðslu á ammoníaki til no

52. Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarkona og fv. forstjóri Icepharma
Viðmælandi þáttarins er Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarkona og fyrrverandi forstjóri Icepharma. Icepharma er um 100 manna fyrirtæki sem selur, markaðssetur heilsueflandi vörur og þjónustu t.d. eins og lyf, lækninga- og hjúkravörur ásamt því að reka umboðið fyrir Nike á Íslandi.
Margrét er fædd árið 1954 og er alin upp í miðbænum og Smáíbúðahverfinu. Hún gekk í Verslunarskólann og lauk Cand. Ocean

51. Helga Árnadóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Tulipop
Viðmælandi þáttarins er Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Tulipop. Tulipop er íslenskur ævintýraheimur fyrir börn sem hefur notið mikilla vinsælda um áraraðir. Helga er fædd árið 1979 og ólst upp í Noregi, bjó svo um nokkurra ára skeið á Selfossi og flutti svo í Háaleitishverfið í Reykjavík þar sem hún sleit barnsskónum. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk BS prófi í

50. Styrmir Þór Bragason, stjórnarformaður Stellar Collection og fyrrum forstjóri Arctic Adventures
Viðmælandi þáttarins er Styrmir Þór Bragason, stjórnarformaður Stellar Collection og fyrrum forstjóri Arctic Adventures. Stellar Collection er ný samstæða ferðaþjónustufyrirtækja í Alaska sem hann fer fyrir. Styrmir er fæddur árið 1970 og alinn upp í Seljahverfinu. Hann gekk í Menntaskóllann við Sund og fór þaðan í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og kláraði Master í fjármálahagfræði frá Stirli

49. Tómas Ingason, framkvæmdastjóri hjá Icelandair
Viðmælandi þáttarins er Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Tómas er alinn upp í Reykjavík með stuttri viðkomu í Kiel í Þýskalandi. Hann gekk í MH og fór þaðan í iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Hann hefur einnig mastersgráðu í stjórnun aðfangakeðja með áherslu á flugfélög frá MIT í Boston ásamt MBA gráðu frá sama skóla. Tómas hefur tekið að sér ýmis st

48. Ægir Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi
Viðmælandi þáttarins er Ægir Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. Ægir er fæddur árið 1973 og er alinn upp á Selfossi. Hann gekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands, R.A. Long High School og kláraði síðan BA próf í sálfræði og Master í vinnusálfræði frá Háskóla Íslands. Ægir starfaði um árabil hjá Capacent, þekkingar- og ráðgjafyrirtæki, og vann þar sem ráðgjafi, mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri ráðg

47. Einar Stefánsson, stofnandi Oculis
Viðmælandi þáttarins er Einar Stefánsson, meðstofnandi Oculis og prófessor í augnlækningum frá Háskóla Íslands. Oculis er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar augnlyf en fyrirtækið var skráð á Nasdaq kauphöllina í mars árið 2023. Oculis hefur m.a. þróað lyf sem byggir á einkaleyfavarinni tækni, sem gerir mögulegt að meðhöndla sjúkdóma í afturhluta augans með augndropum. Hjá Oculis starfa um 30 starfsmenn

46. Björn Hólmþórsson, stofnandi Five Degrees sem seldi fyrirtækið sitt til Topicus
Viðmælandi þáttarins er Björn Hólmþórsson, stofnandi og forstjóri Five Degrees. Björn er fæddur árið 1975 og er alinn upp á Suðurnesjunum og Hafnarfirði. Hann útskrifaðist á eðlisfræðibraut við Menntaskólann í Hamrahlíð og kláraði próf í tölvunarfræði frá HR, áður TVÍ. Hann hefur unnið við forritun hjá Fjarvangi, forritari og verkefnastjóri í hugbúnaðargerð hjá Mens Mentis en þar vann hann við ger

45. Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri hjá Vodafone
Viðmælandi þáttarins er Sesselía Birgisdóttir framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu og markaðssviðs hjá Vodafone. Sesselía er fædd árið 1976 og alin upp á Egilsstöðum. Hún gekk í Menntaskólann á Egilsstöðum og kláraði BA próf í félagsfræði frá Háskóla Ísland. Hún er með tvær mastersgráður frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, í alþjóða markaðsfræði og vörumerkjastjórnun og í stjórnun mannauðs með áherslu á

44. Ingvar Helgason, stofnandi og forstjóri Vitrolabs Inc.
Viðmælandi þáttarins er Ingvar Helgason, stofnandi og framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins VitroLabs Inc. Vitrolabs er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar leður úr stofnfrumum dýra. Fyrirtækið er staðsett úti í Bandaríkjunum og hefur safnað yfir $46m frá m.a. Khosla Venures og Leonardo Dicaprio. Ingvar er fæddur árið 1980 og hóf ungur störf í tískuiðnaðinum. Eftir að hann flutti til London árið 2001 h

43. Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Sensa
Viðmælandi þáttarins er Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi og forstjóri Sensa. Valgerður er fædd árið 1963 og alin upp í Vesturbænum. Hún gekk í Melaskóla og Hagaskóla þangað til leið hennar lá í Menntaskólann í Reykjavík. Hún kláraði síðan BS próf í rafmagnsverkfræðifræði frá Háskóla íslands og MBA frá University of Miami. Valgerður hefur komið víða við og m.a. unnið sem sérfræðingur hjá iðna

42. Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical
Viðmælandi þáttarins er Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical en félagið framleiðir lækningatæki sem notuð eru af heilbrigðisstarfsfólki um allan heim til greiningar á svefni og svefnvandamálum. Pétur er fæddur árið 1966 og er alinn upp í Kópavoginum. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi og lauk prófi frá Kennaraháskólanum og nam síðar mastersnám í viðskiptafræði við Háskóla

41. Sveinn Sölvason, forstjóri Össurar
Viðmælandi þáttarins er Sveinn Sölvason, forstjóri Össurar. Össur er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyriræki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks. Sveinn er fæddur árið 1978 og alinn upp í Langholtshverfinu. Hann gekk í Menntaskólann við Sund og kláraði BS próf í alþjóðaviðskiptum og mastergráðu í fjármálum fyrirtækja frá Copenhage

40. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju. Sigríður Margrét eða Sigga Magga eins og hún er oft kölluð er fædd árið 1976 og er alin upp víða á landinu. Hún gekk í Höfðaskóla á Skagaströnd, Grunnskóla Njarðvíkur, Verslunarskóla Íslands og lauk BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri en undanfarin ár hefur hún tekið stjórnendanámskeið hjá IESE og Harvard Busines

39. Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix
Viðmælandi þáttarins er Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdarstýra Carbfix. Carbfix hefur allt frá árinu 2012 fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun og dælt því ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum ferlum. Hefur sú aðferð til varanlegrar og öruggrar kolefnisförgunar vakið heimsathygli og starfa nú yfir 30 manns hjá fyrirtækinu.
Edda er fædd árið 1981 og er alin upp í F

38. Orri Hauksson, forstjóri Símans
Viðmælandi þáttarins er Orri Hauksson, forstjóri Símans. Orri er fæddur árið 1971 og er alinn upp í Vesturbænum. Hann gekk í Melaskóla, Hagaskóla og Menntaskólann í Reykjavík og kláraði CS próf í vélaverkfræði frá Háskóla íslands og MBA frá Harvard Business School. Orri hefur m.a. starfað hjá Eimskipafélaginu og Maskínu, sem aðstoðarmaður forsætisráðherra, framkvæmdastjóri þróunarsvið Símans, fjár

37. Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid
Viðmælandi þáttarins er Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid. Grid þróar hugbúnað sem auðveldar vinnu með tölur, myndrit og útreikninga og skákar þannig hefðbundnum töflureiknum á borð við Excel og Google Sheets. Hjálmar er fæddur árið 1976 og er alinn upp í Borgarfirðinum. Hann byrjaði að forrita 12 ára gamall og seldi sitt fyrsta hugbúnaðarleyfi aðeins 15 ára gamall. Hann gekk í

36. Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaðssviðs hjá Icelandair
Viðmælandi þáttarins er Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaðssviðs hjá Icelandair. Sylvía er fædd árið 1980 og er alin upp í Vesturbænum. Hún gekk í Kvennaskólinn í Reykjavík og kláraði BS próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla íslands og Master í aðgerðarannsóknum frá London School of Economics. Sylvía starfaði í fimm ár hjá Amazon, fyrst sem sérfræðingur í nýfjárfest

35. Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma
Viðmælandi þáttarins er Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma. Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í Hafnarfirði sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja fyrir önnur lyfjafyrirtæki. Félagið var stofnað árið 2018 en nú starfa þar um 160 manns. Jónína er fædd árið 1972 og er alin upp í Kópavoginum þar sem hún gekk í grunnskóla. Hún fór í Menntaskólann í Hamrahlíð og kláraði

34. Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus
Viðmælandi þáttarins er Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands/Motus. Greiðslumiðlun býður upp á skráningar- og greiðslulausnir fyrir fyrirtæki, félagasamtök og opinbera aðila. Brynja er fædd árið 1976 og ólst upp í Laugardalnum í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Hamrahlíð en þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands þar sem hún lauk BS prófi í Iðnaðarverkfræði og síðar MS gr

33. Sigríður Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri hjá Experian
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri hjá Experian, sem er breskt gagna- og tæknifyrirtæki staðsett í London. Sigríður er fædd árið 1968 og ólst upp í miðbænum og svo Smáíbúðarhverfinu. Hún gekk í Austurbæjarskóla, Breiðagerðisskóla, Réttó og síðan Menntaskólann við Sund. Sigríður er doktor í leiðtoga- og nýsköpunarfræðum frá The University of Manchester, er með MBA frá

32. Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Transition Labs
Viðmælandi þáttarins er Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Transition Labs. Félagið starfar með leiðandi erlendum loftslagsverkefnum, og aðstoðar þau við að byggja þau upp á Íslandi. Kjartan er fæddur árið 1972 og alinn upp í Fossvoginum. Hann gekk í Réttarholtsskóla og síðan lá leið hans í Menntaskólann við Sund. Kjartan lauk BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og Háskól

31. Hermann Haraldsson, forstjóri og meðstofnandi Boozt.com
Viðmælandi þáttarins er Hermann Haraldsson, meðstofnandi og forstjóri Boozt.com. Boozt.com er stærsta netverslun Norðurlandanna sem selur vörur eins og tískufatnað, íþróttaföt, snyrtivörur og heimilisbúnað. Hermann er fæddur árið 1966 og ólst upp í Reykjavík og á Akureyri. Hann flutti 14 ára til Danmerkur í heimavistaskóla, gekk í menntaskóla þar og háskóla og hefur búið í Danmörku síðan. Hermann

30. Guðjón Már Guðjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri OZ
Viðmælandi þáttarins er Guðjón Már Guðjónsson eða Guðjón í OZ eins og hann er alltaf kallaður en hann er stofnandi og framkvæmdastjóri OZ. Guðjón er fæddur árið 1972 og ólst upp í Sundahverfinu. Hann gekk í Langholtsskóla og síðan Verzlunarskólann og stofnaði þar hugbúnaðarfyrirtækið OZ, sem þróaði þrívíddarhugbúnað og síðar samskiptahugbúnað. Það fyrirtæki var selt til Nokia árið 2008 fyrir um $3

29. Baddý Sonja Breidert, stofnandi & framkvæmdastjóri 1xInternet
Viðmælandi þáttarins er Bjarney Sonja Breidert eða Baddý eins og hún er alltaf kölluð. Baddý er stofnandi og framkvæmdastjóri 1xINTERNET, sem er hugbúnaðarfyrirtæki stofnað árið 2013. Um 70 starfsmenn starfa hjá 1xINTERNET og er fyrirtækið með skrifstofur í Frankfurt, Berlin, Reykjavík og á Conil de La Frontera á Spáni. Baddý er fædd árið 1980 og alin upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Vers

28. Hekla Arnardóttir, meðstofnandi Crowberry Capital
Viðmælandi þáttarins er Hekla Arnardóttir. Hún er meðstofnandi Crowberry Capital, sem er vísissjóður sem fjárfestir í norrænum tækni sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum fjármögnunar. Hekla er fædd árið 1974 og alinn upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskólann og síðan lá leið hennar í véla- og iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands þar sem hún lauk verkfræðiprófi. Hekla vann sem prófunars

27. Hermann Kristjánsson, stofnandi Vaka sem selt var til Pentair
Viðmælandi þáttarins er Hermann Kristjánsson, stofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Vaka, sem er 30 ára gamalt hátæknifyrirtæki sem býr til búnað fyrir fiskeldi. Hermann er fæddur árið 1962 og ólst upp í Kópavogi og Garðabæ. Hann gekk í Fjölbrautaskólann í Garðabæ og Flensborg og síðan lá leið hans í Háskóla Íslands í rafmagnsverkfræði. Hermann stofnaði Vaka árið 1986 þegar hann var enn í

26. Gunnar Hólmsteinn, meðstofnandi Quest Portal, Teatime Games & CLARA
Viðmælandi þáttarins er Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri og meðstofnendi hugbúnaðarfyrirtækisins Quest Portal. Gunnar er fæddur árið 1986 og ólst upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík en þaðan lá leið hans í verkfræði við Háskóla Íslands þar sem hann stofnaði fyrirtækið CLARA sem hjálpaði fyrirtækjum að skilja umræðu á netinu. Gunnar vann að fyrirtækinu í 5 á

25. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna
Viðmælandi þáttarins er Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna eða RB. RB er fyrirtæki í eign Seðlabankans og íslensku bankanna sem vinnur að innviðum íslensks fjármálakerfis. Ragnhildur er fædd árið 1971 og ólst upp á Hlíðunum. Hún gekk í Menntaskólann í Hamrahlíð en þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands þar sem hún lauk prófi í véla- og iðnaðarverkfræði. Ragnhildur lauk síðan MS

24. Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri Alfa Framtak
Viðmælandi þáttarins er Gunnar Páll Tryggvason. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Alfa Framtaks. Gunnar er fæddur árið 1977 og alinn upp í Norðurmýrinni, Reykjavík. Hann gekk í Menntaskólann í Hamrahlíð og síðan lá leið hans í Háskóla Íslands þar sem útskrifaðist sem viðskiptafræðingur og síðar lauk hann MBA námi frá Wharton Business School í Bandaríkjunum.
Gunnar starfaði lengi í fyrirtækjará

23. Grímur Lund, stofnandi Logimatic og fyrrum framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs AVEVA
Viðmælandi þáttarins er Grímur Lund en hann er stofnandi danska tæknifyrirtækisins Logimatic og sat seinna í framkvæmdastjórn hjá breska tæknifyrirtækinu AVEVA. Grímur er fæddur árið 1961 og er alinn upp á Melrakkasléttunni. Hann gekk í Tækniskólann og þaðan lá leið hans til Danmerkur þar sem hann lauk mastersnámi í rafmagnsfræði við Álaborgarháskóla og hefur hann búið í Danmörku síðan. Árið 1987

22. Svava Johansen, forstjóri NTC
Viðmælandi þessa þáttar er Svava Johansen eða Svava í Sautján, eins og hún er alltaf kölluð. Hún er eigandi og forstjóri NTC, sem framleiðir og selur tískufatnað á Íslandi. NTC starfrækir nú 15 verslanir á höfuðborgarsvæðinu, vefverslun, saumastofu og eigin fataframleiðslu erlendis og heildsölu sem selur fatnað til margra af betri tískuvöruverslunum á landsbyggðinni. En Svava er fædd árið 1964 og

21. Ari Fenger, forstjóri 1912 og formaður Viðskiptaráðs
Viðmælandi þessa þáttar er Ari Fenger, forstjóri 1912 og formaður Viðskiptaráðs. 1912 er aldargömul heildsala og fjölskyldufyrirtæki, sem þá hét Nathan & Olsen og var stofnað árið 1912. Fyrirtækið er eitt af stærstu fyrirækjum landsins í heildsölu með dagvöru og veltir um 11 milljörðum íslenskra króna. 1912 er móðurfélag Nathan & Olsen, sem sinnir heildsölu á sviði snyrti- og dagvöru, Ekru

20. Bjarney Harðardóttir, meðeigandi og stjórnandi hjá 66° Norður
Viðmælandi þessa þáttar er Bjarney Harðardóttir, meðeigandi og stjórnandi hjá 66°Norður. Fyrirtækið er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins og var stofnað árið 1926 og framleiðir og selur útivistafatnað. Verslanir 66°Norður eru nú um tólf talsins, þar af tvær í Danmörku. Sjóklæðagerðin rekur einnig verslunina Rammagerðina, sem selur ýmsar hönnunar- og gjafavörur. Bjarney er fædd árið 1969 og e

19. Magnús Ingi Óskarsson, stofnandi Calidris, sem seldi fyrirtækið sitt til Sabre
Viðmælandi þessa þáttar er Magnús Ingi Óskarsson, stofnandi Calidris, hugbúnaðarfyrirtækis. Calidris er hugbúnaður sem hjálpar flugfélögum að auka sveigjanleika og tekjur og sum of stærstu flugfélögum í heiminum nota ennþá hugbúnaðinn í dag. Calidris var selt til bandaríska fyrirtækisins Sabre árið 2010 en Sabre er eitt af stærstu hugbúnaðarfyrirtækjum heims á flugrekstrarsviði. En Magnús Ingi er

18. Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandshótelum
Viðmælandi þáttarins er Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandshótela. Íslandshótel rekur 17 hótel með yfir 1.700 gistirými út um allt land auk funda- og ráðstefnuaðstöðu. Kolbrún tók við starfinu árið 2016 en þekkti vel til fyrirtækisins enda setið í stjórn hótelsins áður. Kolbrún er fædd árið 1962 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í MH og kláraði svo Cand

17. Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri World Class
Viðmælandi þessa þáttar er Hafdís Jónsdóttir, eða Dísa í World Class, eins og hún er alltaf kölluð. Hún er framkvæmdastjóri og einn af eigendum World Class, heilsuræktarstöðvanna, sem allir Íslendingar þekkja. Hafdís er fædd árið 1961 og alin upp í Garðabænum. Eftir grunnskóla fór hún í danskennaranám hjá Dansskóla Sigvalda og útskrifast sem danskennari frá Danskennarasambandi Íslands. Síðar lauk

16. Gísli Herjólfsson, stofnandi og forstjóri Controlant
Viðmælandi þessa þáttar er Gísli Herjólfsson, stofnandi og forstjóri Controlant. Controlant er fyrirtæki sem framleiðir hug- og vélbúnað sem mælir meðal annars raka, hitastig og staðsetningu og sendir frá sér rauntímaupplýsingar svo hægt sé að fylgjast með og tryggja gæði á viðkvæmum vörum, m.a. á lyfja- og matvælamarkaði. Controlant hefur verið mikið í umræðunni nýverið þar sem fyrirtækið kemur m

15. Ágúst Einarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Tempo & ráðgjafi
Viðmælandi þessa þáttar er Ágúst Einarsson, sem starfar nú sem ráðgjafi en er fyrrum framkvæmdasjóri Tempo, sem er tímastjórnunarkerfi, sem byrjaði sem nýsköpunarvara hjá TM Software og svo Origo. Ágúst er fæddur árið 1962 og ólst upp í Mosfellsveit. Hann gekk í Vélskólann og Tækniskólann en þaðan lá leið hans í BS nám í vélaverkfræði við Háskólann í Álaborg þar sem hann kláraði einnig MS gráðu í

14. Vilborg Einarsdóttir, stofnandi BravoEarth og fyrrum meðstofnandi og framkvæmdastjóri Mentor
Viðmælandi þessa þáttar er Vilborg Einarsdóttir, meðstofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Mentor og stofnandi BraveEarth. Vilborg er fædd árið 1967 og ólst upp í Þórisholti í Mýrdal. Hún gekk í Samvinnuskólann á Bifröst og þaðan lá leið hennar í Kennaraháskóla Íslands þar sem hún lauk gráðu í kennslufræðum (B.Ed). Vilborg kláraði síðan master í Stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og Verslun

13. Hilmar Gunnarsson, stofnandi Arkio og Modio
Viðmælandi þáttarins er Hilmar Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Arkio. Hilmar er fæddur árið 1971 og ólst upp í Sundunum í Reykjavík, Danmörku og í Frakklandi. Hann gekk í Verzlunarskólann en þaðan lá leið hans í Háskóla Íslands þar sem hann lauk gráðu í viðskiptafræði. Eftir útskrift byrjaði Hilmar að vinna í markaðsmálum hjá Íslandsbanka og tók stuttu síðar við sem markaðsstjóri bankans

12. Stefanía Ólafsdóttir, stofnandi Avo
Viðmælandi þessa þáttar er Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, forstjóri og meðstofnendi hugbúnaðarfyrirtækisins Avo. Stefanía er fædd árið 1986 og ólst upp víða á landinu. Hún gekk Menntaskólann á Akureyri en þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands þar sem hún lauk prófi í heimspeki og stærðfræði. Eftir háskólann gekk hún til liðs við Íslenska Erfðagreiningu árið sem 2012 og eftir það tók hún við gagnam

11. Aðalheiður Héðinsdóttir, stofnandi Kaffitárs
Viðmælandi þessa þáttar er Aðalheiður Héðinsdóttir, stofnandi Kaffitárs. Kaffitár er fyrirtæki sem rekur kaffibrennslu, kaffihús og selur kaffi í heildsölu til verslanna og fyrirtækja. Aðalheiður er fædd árið 1958 og ólst upp í Keflavík en flutti síðan til Reykjavíkur þegar hún fór í Fóstruskóla Íslands. Síðar flutti hún til Bandaríkjanna ásamt eiginmanni sínum þar sem kaffiáhuginn kviknaði fyrir

10. Jón von Tetzchner, stofnandi Opera og Vivaldi
Viðmælandi þessa þáttar er Jón Stephenson von Tetzner, stofnandi Opera og Vivaldi vefvafranna. Jón er fæddur árið 1967 og er alinn upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík en hélt síðan til Noregs þar sem hann lauk grunn- og framhaldsnámi í tölvunarfræði við Háskólann í Osló. Eftir útskrift byrjaði hann að vinna sem forritari hjá Norska Landsímanum, Telenor, þar sem hann og me

9. Stefanía Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar
Viðmælandi þessa þáttar er Stefanía Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar sem er framtakssjóður sem fjárfestir í sprotafyrirtækjum á vaxtarstigi. Stefanía er fædd árið 1973 á Akranesi og ólst upp á Hólmavík. Hún kláraði stúdentinn í Austurríki og fór síðan í landfræði í Háskóla Íslands og eftir það fór hún í mastersnám í umhverfisfræði að hluta til í DTU í Danmörku. Stefanía hefur komið ví

8. Mundi Vondi, stofnandi og framkvæmdastjóri Klang Games
Viðmælandi þessa þáttar er Guðmundur Hallgrímsson eða Mundi Vondi eins og hann er alltaf kallaður. Mundi er fæddur árið 1987 og er alinn upp í Vesturbæ Reykjavíkur og víðar. Hann stoppaði stutt við í MH, Iðnskólanum og Myndlistaskóla Íslands en þaðan lá leið hans í Listaháskóla Íslands þegar hann var aðeins 18 ára gamall. Mundi hefur m.a. unnið sem grafískur hönnuður, myndlistarmaður og fatahönnuð

7. Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas
Viðmælandi þessa þáttar er Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas. Hrund er fædd árið 1969 og er alin upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Sund og kláraði svo viðskiptafræði í Háskóla Íslands og eftir það kláraði hún framhaldsnám í alþjóðaviðskiptum við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Hrund hefur m.a. unnið sem framkvæmdastjóri hjá Lyf og Heilsu, Milestone og Marel en nú

6. Georg Lúðvíksson, stofnandi og forstjóri Meniga
Viðmælandi þessa þáttar er Georg Lúðvíksson, stofnandi og forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Meniga en fyrirtækið býður upp á alls kyns stafrænar bankalausnir. Georg er fæddur árið 1976 og er alinn upp í Vesturbænum. Hann gekk í MR og þaðan lá leið hans í hugbúnaðarverkfræði í Háskóla Íslands og síðan Harvard háskóla þar sem hann lauk MBA gráðu. Georg stofnaði Meniga árið 2009 með bræðrunum Ásgeiri

5. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis
Viðmælandi þessa þáttar er Katrín Pétursdóttur, forstjóri Lýsis, sem framleiðir meðal annars þorskalýsið sem allir Íslendingar þekkja. Katrín er fædd árið 1962 og er alin upp miðbæ Reykjavíkur. Hún gekk í Verzlunarskólann og lauk námi í rekstrarfræði í Tækniskóla Íslands sem núna er hluti af Háskólanum í Reykjavík. Katrín kom ung að árum að fyrirtækjarekstri enda alin upp í mikilli frumkvöðlafjöls

4. Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
Viðmælandi þessa þáttar er Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP. Hilmar Veigar er fæddur árið 1973 og ólst upp í Kópavoginum og síðar Garðabænum og þaðan lá leið hans í Háskóla Íslands þar sem hann lauk tölvunarfræðiprófi. Hann gekk svo til liðs við CCP árið 2000 og gerðist síðar forstjóri félagsins. CCP eins og flestir Íslendingar þekkja er fyrirtæki sem býr til vinsæla tölvuleiki þ.á.m. geimtö

3. Áslaug Magnúsdóttir, stofnandi Moda Operandi og Kötlu - guðmóðir tískunnar í New York
Í þættinum ræðir Áslaug Magnúsdóttir um byrjunina á vinnuferli sínum á Íslandi, reynsluna sem hún öðlaðist í Harvard háskóla og hjá McKinsey ráðgjafafyrirtækinu. Hún talar um hvernig hún vann við tískufjárfestingar áður en hún færði sig hinum megin við borðið og stofnaði nettískufyrirtækið, Moda Operandi. Hún segir okkur frá vexti félagsins, fjármögnun, markaðssetningu og ágreiningi við meðstofnan

2. Gauti Guðmundsson, stofnandi Bókunar sem seldi fyrirtækið sitt til Tripadvisor
Viðmælandi þessa þáttar er Ólafur Gauti Guðmundsson eða Gauti eins og hann er alltaf kallaður. Gauti er fæddur árið 1978 og gekk í Vogaskóla og MR. Eftir menntaskólann lá leið hans til New York og London áður en hann lauk prófi í verkfræði frá DTU í Danmörku. Gauti stofnaði hugbúnaðarfyrirtækið Bókun árið 2012 ásamt Hjalta Baldurssyni þar sem Gauti starfaði sem tæknistjóri fyrirtækisins. Bókun býr











