
Tæknivarpið
Tæknivarpið er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og fjallar um tæknifréttir vikunnar. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul, Bjarni Ben, Egill Moran, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Sverrir Björgvins.
Episodes

Apple hækkar verð, OpenAI eyðir alltof miklu og Elmar kaupir sér Fold
Atli, Elmar og Gulli fara yfir fréttir sumarsins.

Apple WWDC 2026 og Nvidia RTX Spark
Atli, Axel, Gulli og Siggi Fly gera upp WWDC 2026, spjalla um gervigreind og skoða Nvidia RTX Spark.

Apple 50 ára
Atli og Gulli fá góða gesti í þáttinn til að fanga 50 ára afmæli Apple: Andrés Jóns og Bjarka Guðjóns.

Hvernig á að innleiða gervigreind?
Atli og Gulli fá góða gesti í þáttinn til að ræða innleiðingar á gervigreindartólum. Stefán Gunnarsson og Róbert Helgason eru einmitt að halda námskeið í því fyrir Kjarafélaga viðskipta- og hagfræðinga 11. mars og stikla á stóru úr því efni.

MacBook Neo er alger heimalengja 🏈
Það er hátíð á bæ. Atli og Gulli gera upp nýjasta nýtt frá Apple sem var kynnt í vikunni:
iPhone 17e
iPad Air M4
MacBook Pro með M5 Pro og M5 Max
Studio Display og Studio Display XDR
MacBook Neo

Þáttur ársins 2025 í tækniheiminum
Feitasti þáttur Tæknivarpsins er lentur - Andri, Atli, Axel, Elmar, Gulli og Sverrir gera upp helstu fréttir og atriði í tækni fyrir árið 2025.

Warner bros hafnar tilboði Skydance og ChatGPT fær app verslun
Atli og Elmar gera upp tæknifréttirnar vikunnar upp.

Netflix kaupir (kannski) Warner Brothers og Steam Machine leikjaborðtölva
Andri, Atli, og Gulli gera upp tæknifréttir mánaðarins:
Netflix kaupir WB, Valve kynnir Steam Machine og Alan Dye hættir hjá Apple.

Ætlar IKEA að taka yfir snjallheimilsmarkaðinn?
Andri, Gulli og Sverrir fjalla um tæknifréttir síðustu vikna.

iPhone Air, Meta Ray-Ban Display og Pixel 10 Pro XL
Atli, Elmar og Gunnlaugur fjalla um nýjustu tækni og tæki.

Apple Messa með Andrési Jóns
Atli, Gunnlaugur og Sverrir fara yfir kynningu Apple á þrennunni þeirra, ásamt góðum gesti honum Andrési Jóns frá Góðum Samskiptum (og Ræðum það... hlaðvarpinu).

Tæknivarpið kemur úr sumarfríi
Tæknivarpið er komið úr sumarfríi og þeir Elmar, Gulli og Sverrir fara yfir tæknifréttir sumars.

Apple WWDC uppgjör, Switch 2 fyrstu viðbrögð og Sýn droppar Stöð2
Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir spjalla um WWDC2025, fyrstu viðbrögð Atli og Gulla af Switch og íslenskt fjarskiptaslúður.

Gervigreindarspjall með Söfu Jemai frá Víkonnekt
Atli Stefán tekur viðtal við Söfu Jemai frá Víkonnekt (https://www.vikonnekt.com/) um gervigreind.

Nintendo Switch 2 með Daníel Nintendo Rósinkrans
Daníel frá Leikjavarpinu kemur í heimsókn til Atla og Gulla og við köfum djúpt í nýkynnta Nintendo Switch 2.

Zelda kvikmynd, Atli kaupir raftæki og nýr iPad
Andri Valur, Atli Stefán, Gunnlaugur og Sverrir fara yfir fréttir vikunnar og hvað þeir hafa keypt nýlega af tækjum.

Anker er drasl, PlugBug er snilld
Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur gera upp tæknifréttir vikunnar.
#plugbug

iPhone SE (eða 16e) og TikTok bann
Andri Valur, Gulli og Sverrir gera upp tæknifréttir síðustu vikna.

Tækniverðlaun ársins 2024
Andri Valur, Atli Stefán, Elmar, Gulli og Kristján Thors gera upp árið 2024 í tækniheiminum.

Heil vika af Mac og tæknifréttir fjórðungsins
Apple tók sér heila viku og þrjú skipti til afhjúpa nýjar Mac tölvur með M4 flögum: iMac 24, Mac mini og MacBook Pro vörulínuna. Svo förum við fréttir þessa ársfjórðungs til að vinna upp það sem við höfum misst af.
Stjórnendur þessa þáttar eru Andri, Atli Stefán, Elmar og Gunnlaugur.

Apple veisla - iPhone 16, Airpods 4 og Watch S10
Atli, Gulli og Mosi renna yfir nýjar Apple vörur sem er von á í haust.

Apple orðrómar, nýir iPhone 16 símar og Haustráðstefna
Atli Stefán, Bjarni Ben og Gulli fara yfir orðróma fyrir Glowtime viðburð Apple sem verður 9. september og ræða Haustráðstefnu Advania sem verður í næstu viku. Það verður brátt uppselt þannig hlaupa kaupa!

Google Pixel 9 Pro Fold - stutt og laggott nafn
Við erum komnir úr mjög löngu sumarfríi og byrjum með látum. Fullt af Pixel fréttum, Crowdstrike klúðrið og fleira með Atla, Elmari og Gulla.

WWDC 2024 - Apple uppgvötar gervigreind
WWDC 2024 - uppskera hugbúnaðarþróunar Apple er nýlega afstaðin og Andri, Atli og Gulli gera hana upp.

Hvernig er hægt að nýta sér spunagreind?
Tæknivarpið fékk góða gesti til að ræða hagnýtingu gervigreindar - eða þá nánar tiltekið spunagreindar. Gunnar Reykjalín frá Origo og Binna Borgar frá Datalab. Stjórnandi er Atli Stefán.
Þessi þáttur er í boði Origo 🙏

Microsoft sækir á MacBook Air og á gervigreind
Microsoft hélt uppskeruhátíð sína Build nýlega og er búið að dæla út tilkynningum sem Atli og Gulli fara yfir.

Nýjar iPad spjaldtölvur og 121x AI
Atli, Gulli og Elmar fara yfir fréttir MÁNAÐARINS. iPad Pro M4, iPad Air M2 og Apple Pencil Pro. Google IO.

Amazon Fresh gervigreindin var í raun 1000 verktakar á Indlandi
Atli, Elmar og Gulli renna fyrir fréttir vikunnar í tækniheiminum:
Amazon Just Walk Out þjónustan lögð niður
Facebook Messenger skilaboðaþjónusta dulkóðuð alla leið
Íslensk tónlist hent útaf TikTok

MacBook Air M3 og DMA tekur gildi
Andri, Atli og Gulli taka um tæknifréttir vikunnar.

Apple Vision Pro sýndarsjáin prófuð og MWC
Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa og Gulli Sverris spjalla um fréttir vikunnar og ferð Elmars til Barcelona á MWC.

Apple Vision Pro komið til Íslands
Atli, Bjarni og Gulli fjalla um tæknifréttir síðustu þriggja mánaða 🫣

Þáttur ársins 2023
Tæknivarpið kallar alla meðlimi út til að gera upp árið 2023 í tækni. Hvað er app árisns? Hver eru bestu tæknikaup ársins? Hver er sími ársins?
Það og svo miklu meira í þætti ársins.

Það þarf enginn tíu gígabita á sekúndu
Við fáum góða gesti í Tæknivarpið þá Ingvar Bjarnason frá Mílu og Jón Helgason (Nonna) frá Eldey. Þeir héldu einmitt fyrirlestur fyrir fjarskipta-faghóp á vegum Ský í síðustu viku þar sem fjallað var um 10 gígabita ljósleiðara fyrir heimili. Þarf einhver 10 gígabita á sekúndu??
Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.

Nothing hakkar Apple og gervigreindarnæla
Nothing er búið að hakka Apple Messages þannig að það virki á Android símanum sínum Phone (2). Humane kynnir gervigreindarnælu "AI pin" sem kostar 800 USD og kemur kannski einhvern tímann út.

Hryllilega hraðar M3 flögur og Meta áskrift
Apple kynnti nýja línu af flögum: M3, uppfærðar MacBook Pro og iMac 24. Stærsta fréttin er samt mögulega nýr litur 🖤 Qualcomm er með nýja flögulínu sem heitir Oryon sem á að keppa beint við Apple Silicon, og er hraðari en M3 en notar talsvert meira rafmagn (líklega 2x!). Hringdu lenti í hrappara sem náði að svíkja út rafræn skilríki hjá öðrum manni, en tilkynnti hann og náði að koma í veg fyrir mi

Framtíðin er 5,5G, Meta Quest 3 og snjallsólgleraugu
Atli fer yfir framtíðina í farnetum og segir frá ferð sinni til Dubai á 5.5G ráðstefnu Huawei. Meta gefur út nýja sýndarsjá og snjallsólgleraugu. Pixel 8 dómar raðast inn og eru nokkuð jákvæðir.

Pixel 8 símar, Pixel Watch 2 og Vivaldi á iOS
Vivaldi er loksins kominn út á iOS fyrir iPhone. Vodafone eflir samtengingar í Evrópu sem gagnast tölvuleikjaspilun. Kringlan gefur út rafræn gjafakort fyrir Wallet-lausnir Apple og Google. iPhone 15 vandamál halda áfram - en eru þetta raunverulega vandamál? Google kynnti nýja síma og snjallúr og Elmar er búinn að panta sér uppfærslur.

Heitir iPhone-símar og kaldir Android-símar
Það eru komin verð á iPhone 15 og iPhone 15 Pro á Íslandi en þeir virðast vera ofhitna aðeins. Pixel 8 og 8 Pro eru búnir að leka. Ljósleiðarinn fer líka í 10 gígabita.
Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Freyr og Gunnlaugur Reynir.
Þessi þáttur er í boði TechSupport.

iPhone nú í títan og umhverfisvænari Apple
Atli Stefán og Gunnlaugur fá Bjarka Guðjónsson og Pétur Jónsson í settið til að ræða tímamóta kynningu Apple á iPhone 15 línunni, Watch Series 9 og Watch Ultra 2.
Þessi þáttur er í boði TechSupport sem styður íslensk fyrirtæki og stofnanir í upplýsingatækni.

iPhone 15 orðrómar, Samsung M8 skjár og vöruskil
Andri, Atli og Gulli fara yfir orðróma fyrir kynningu Apple í næstu viku. Orðið á götunni er að við fáum eftirfarandi:
iPhone 15 með USB-C
Apple Watch S9
Apple Watch Ultra 2
Apple Airpods Pro 2 með USB-C
Við fjöllum líka um Samsung Smart Monitor M8 og Mac Studio kaup Atla.
Þessi þáttur er í boði TechSupport.

Míla kynnir 10x, Playstation Portal og Zoom lokar á fjarvinnu
Atli, Elmar og Gulli gera upp fréttir vikunnar í tækni:
10 gígabitar til heimila hjá Mílu
Nýr framkvæmdastjóri hjá Ljósleiðaranum
Playstation Portal er flopp?
Sony PS+ hækkar í verði
Zoom kallar inn starfsfólk úr fjarvinnu
ATHUGIÐ Elmar er starfsmaður Mílu og Atli er ráðgjafi Mílu.
Þessi þáttur er í boði Tech Support.

Tæknivarpið snýr aftur - Microsoft Loop og Limir í leikjum
Atli Stefán (kvefaður), Bjarni Ben Loopari og Elmar Torfa ræsa Tæknivarpið þetta haustið og við lofum góðri umræðu um limi í tölvuleikjum og nýjasta nýtt í samvinnuhugbúnaði.
Þessi þáttur er í boði TechSupport.is

Threads, forkæling bíla og 5K tölvuskjáir
Atli, Gulli og Sverrir taka frí frá sumarfríinu og renna yfir tæknifréttir sumarsins.
Þessi þáttur er í boði TechSupport.

WWDC2023 - Apple Vision Pro, MacBook Air 15, Mac Pro og öll stýrikerfin uppfærð
Við rennum yfir lykilræðu Apple á WWDC 2023 ásamt Pétri Jónssyni og Bjarka Guðjónssyni - okkar eigið Pro-teymi ❤️
Stjórnendur eru Atli og Gulli.

WWDC upphitun og fleira.
Viðfangsefni vikunnar er upphitun fyrir WWDC viðburð Apple, friðhelgi einkalífs og fleira. Við metum einnig hvort Gulli sé að reyna að kveikja í bílskúrnum heima hjá sér.
Umræðupunktar (e. Show notes)
Inngangur
Rafhjólahornið
Tenways rafmagnshjól
IPTV umræðan
Sýn stefnir Jóni Einari
Ad-tech og friðhelgi einkalífs
Bandaríkjamenn geta keypt frítt sjónvarp með auglýsingum
Starfsmenn Ring virtu

Microsoft Build, Hot Desking og Motorola ThinkPhone
Skýrsla Fjarskiptastofu um fjarskiptamarkaðinn kom út um daginn og Nova gerði hana upp. Microsoft Build var að klárast og setti met í því hversu oft stafirnir A og I voru sagði upphátt. Tæknivarpið fær að prófa Gripið & Greitt og Gulli verslar í Næra. Fujifilm gaf út nýja myndavél og Atli ætlar að panta. Netflix herjar á samnýtingu aðganga og byrjar í BNA. HBO Max verður.. Max.
Stjórnendur þetta

Google I/O og Bónus: Gripið og Greitt
- ATT.is og Game Stöðin loka verslunum sínum.
- Bónus kynnir EKKi gripið og greitt.
- Wolt hefur starfsemi á Íslandi.
- Google I/O er rætt, sem fór fram í síðustu viku.
- Twitter kynnir nýjan forstjóra
Umjsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi), Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson.

Staða bókarinnar með Margréti Tryggvadóttur
Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, mætti í Tæknivarpið og ræddi stöðu bókarinnar í breyttu landslagi.
Umsjónarmenn þáttarins eru Atli Stefán Yngvason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.

Guðfaðir gervigreindar hættir í fússi og hlutafjáraukning Ljósleiðarans
Gunnlaugur, Atli Stefán og Mosi ræða fréttir vikunnar:
Hlutafjáraukning Ljósleiðarans
Blackberry leikin kvikmynd
Guðfaðir gervigreindar hættir hjá Google í fússi
Þessi þáttur er í boði TechSupport sem lánar okkur upptökustað 💜

Apple Reality, WWDC og NAS pælingar
Atli Stefán Yngvason og Sverrir Björgvinsson komu saman og ræddu Apple Reality höfuðtólið sem verður líklega kynnt í sumar, helstu orðróma varðandi WWDC ráðstefnu Apple sem verður 5.-9. júní.

Páskavarp Tæknivarpsins
Flugur.is hjálpuðu okkur að gera þennan þátt að veruleika.
Svikapóstar sem eru ekki frá ríkislögreglustjóra, endurhlaðanlegar rafhlöður, páskaegg og ný OnePlus spjaldtölva eru meðal umræðu dagsins. Einnig segja þáttastjórnendur frá því hvaða áskriftir þeir eru með þessa dagana með að streymisveitum.
Umsjónarmenn þáttarins eru Andri Valur, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.

Hopp og Hopon á leigubílamarkað
Þessi þáttur er í boði indó, ekki banki.
Ný löggjöf um leigubílaþjónustu tók gildi fyrsta apríl. Hopp stofnaði leigubílaþjónustu, og nýtt fyrirtæki, Hopon ætlar líka að vera með til að Uber-væða íslenskt samfélag
Svo er snert á því hvaða matvörubúð á Íslandi sé best og hvers vegna.
Umsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi) og Elmar Torfason.

ChatGPT talar íslensku, útrunnin rafræn skilríki og TikTok bann
Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka.
Við förum yfir fréttir síðustu þriggja vikna útaf sottlu.
Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Sverrisson (leikari).

Playstation VR2 og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra
Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka.
Við fáum til okkar góðan gest, hann Daníel Rósinkranz, og ræðum Playstation VR2 sýndarveruleikahjálminn og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra.
Stjórendur eru Atli Stefán og Kristján Thors.

Starlink-netið óstöðugt og Musk rekur (ekki?) mann ársins
Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka.
Starlink hefur verið prófað af netnördum Íslands og Sensa í rigningu, roki og logni. Sensa tók sitt próf saman í grein. Elon Musk, smaragðarnámuerfingi, rak eða rak ekki mann ársins í fyrra: Harald Þorleifsson. Svokölluð Schrödinger-uppsögn. Við rekjum upp einn áhugaverðasta Twitter-storm ársins í þættinum. MWC snjalltækja-ráðstefnan var haldin í febrúar o

indó app-þróun og framtíðin
Við fengum góðan gest í þátt vikunnar frá indó: Þór Adam Rúnarsson forritara hjá indó, "ekki bankanum". indó er nýr sparisjóður á Íslandi sem býður upp á veltukort með debit-korti + Apple Pay + Google Pay.
Stjórnendur eru Atli Stefán og Andri Valur.

Nýtt frá Sonos lekur (aftur) og Starlink opnar á Ísland
Starlink opnar á Íslandi, íslenskir netþrjótar ryðja sér til rúms, Sonos hátalarar leka (aftur), Meta býður upp á áskriftir til að tryggja öryggi persónulegs auðkennis og Bing gervigreindin Sydney er dóni.
Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.

Google Bard, Samsung Unpacked og 4000 slög á Twitter
UTmessan nýafstaðin, Origo stofnar menntunarsjóð fyrir starfsfólk, BagDrop.is tekur töskurnar fyrir þig upp á flugvöll, Samsung kynnir nýja síma og tölvur, Google Bard gervigreindin kynnt, Twitter vinnur 4000 slagna tístum og Nintendo Switch verður þriðja mest selda leikjatölvan.
Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir

Bálkakeðjutölvuleikir, Gametíví og Formúla 1 með Kristjáni Einari
Kristján Einar Kristjánsson var gestur okkar þetta skiptið og sagði okkur frá Civitas sem er nýr íslenskur tölvuleikur í vinnslu sem er byggður á bálkakeðju. Ásamt því ræddum við um Gametíví og tækni sem var þróuð í Formúlu 1 sem við nýtum í hversdaglegum græjum. Stjórnendur þáttarins eru Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.

Ómönnuð sjóför, Netflix vangaveltur og greiðsluhættir í Kenía
Íslenska fyrirtækið Hefring smíðar tæknilausnir fyrir ómönnuð sjóför. Microsoft bilun hafði áhrif á hundruðir milljóna notenda. Discord er væntanlegt á PlayStation. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Bjarni Ben og Sverrir Björgvinsson.

Er Apple verri kaup fyrir borgina?
Indó komið í Apple pay, Borgarfulltrú Flokks Fólksins ósáttur við kaup á rándýrum apple tölvum og alskonar nýjar Apple græjur. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar.
Stjórnendur: Bjarni Ben, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir

CES2023: Þvagskynjari, bílar sem breyta um lit og Sony bíll
Mun gervigreind þvinga íslenska skóla til að endurskoða námshögun? Apple gæti mögulega gefið út sýndaveruleikagræju í ár, eða hvað? CES hátíðin er nýafstaðin og við gerðum upp nýtt og spennandi þaðan.
Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

Þáttur ársins og Tækniverðlaun 2022
Við erum komnir úr jólafríi! Tæknivarpið fjölmennti og fór yfir árið 2022 í tækni.
Stjórnendur: Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors, Vöggur Mar og Sverrir Björgvins.

Fleiri App Store verslanir á iOS og græjujólin 2022
Tæknivarpið fer ofan í saumana á máli Nova sem úthlutaði óvart símanúmeri sem var í notkun til til annars viðskiptavinar. Einnig er farið yfir helstu mál síðustu vikna, Spotify wrapped, Domino's wrapped, Xiaomi 13 símann og möguleikann á fleiri App Store verslunum í iOS heimi.
Síðast en ekki síst, þá ræða stjórnendur þáttarins bestu jólagjafir ársins í heimi tækninnar.
Stjórnendur eru Atli Stefá

Rafræn skilríki og eSim, sterkara Gorilla Glass og niðurgreiðslur rafbíla
Ríkið ætlar að fjarlægja fjöldakvóta fyrir niðurgreiðslur rafbíla á næsta ári, en minnka aðeins niðurgreiðsluna. Samsung ætlar að kynna S23 í febrúar. Twitter lak út 5,4 milljón aðgöngum ásamt símanúmerum. Corning er að búa til nýtt högghelt gler fyrir snjallsíma sem þolir 1 metra fall á steypu. Eufy lendir í alvarlegum öryggisgalla, sem var tilkynntur og gerði ekkert. Við förum svo í gegnum spurn

Inniskórnir hans Steve Jobs seldust fyrir 27 milljónir
Nýjustu fregnir af Twitter sem er auðvitað alelda, en við getum ekki hætt að fylgjast með. Rafeyriskauphöllinn FTX sprakk eftir áhlaup og talið er að 10 milljarðar USD hafi gufað upp. Atli byrjaði að prófa Arc-vafrann en fór svo að gera eitthvað annað af viti. Atli prófar Bose Quiet Comfort Earbuds II sem eru víst best í virkri hljóðeinangrun samkvæmt óháðum aðila.
Þessi þáttur er í boði Origo

Sýndarveruleiki með Hilmari Gunnarssyni frá Arkio
Þessi þáttur á sér varla stoð í raunveruleikanum og við ferðumst um sýndarheima með Hilmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Arkio. Arkio vakti athygli á heimsvísu á kynningu Meta um daginn, þar sem var farið yfir framtíðarsýn Metu í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio er sköpunartól fyrir arkitekta og getur hannað alls konar rými og landslag. Arkio virkar bæði í sýndarveruleika og gagnbæt

Ísland slugsar í netöryggi
Nýsköpunarráðherra Íslands boðar aðgerðir í netöryggismálum landsins. Ný fjölmiðlalög eru á leiðinni til að skerpa á því efni sem nær augum barna á streymiveitum. VanMoof kynnir tvö ný rafhjól sem styðja Find My og bætta þjófavörn. Sega ætlar að búa til tvær mini-leikjatölvur: Genesis mini 2 og Astro Mini City V (sem lítur út eins og leikjakassi) með retro-tölvuleikjum. Netflix er búið að afhjúpa

Elon Musk kaupir Twitter og vangaveltur um nýja iPad
Kaupin á Twitter gengu í gegn í vikunni og fyrsta verk Elon Musk var að reka nokkra stjórnendur. En hvers vegna var hann að kaupa Twitter?
Gulli er handviss um að 10 kynslóð af iPad sé grunntýpan. Við ræddum til hvers fólk kaupir iPad og hvaða týpu þú átt að velja.
Þátturinn er í boði KFC sem selur B.O.S.S. Bacon máltíð.
Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors

Nýjar spjaldtölvur frá Apple og þráðlaus símtöl
Apple kynnti nýjan iPad (10), uppfærða iPad Pro (M2) og uppfært AppleTV (USB-C fjarstýring!!) með látlausri fréttatilkynningu og myndböndum. Miðeind samhæfir raddgreiningartólin sín við snjallheimilið þannig nú getur Embla slökkt ljósin. Síminn Sjónvarp býður nú upp á prófíla og vefviðmót. Gulli heldur því einnig fram að myndgæðum hafi farið fram, en það er enn óstaðfest. Vegagerðin opnaði nýjan f

iPhone 14 Plus umfjallanir og nýjar vörur frá Microsoft
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Síminn mætti hafa enska boltann í stórum heildarpakka. iPhone 14 Plus umfjallanir eru komnar út. Microsoft var með ágætis viðburð og margt fleira.
Umsjónarmenn þáttarins er Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Andri Valur Ívarsson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason.
Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BAC

Google leggur Stadia á hilluna og gott Tempo hjá Origo
Farið er yfir tæknifréttir vikunnar; sala Origo á Tempo, nýr forstjóri Sýnar og USB-C reglur Evrópusambandsins. Elmar búinn að panta nýjan Pixel síma sem Google kynnti í vikunni og Sverrir segir frá bestu leiðinni fyrir gagnamagn í Bandaríkjunum.
Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð .
Stjórnendur eru Andri Valur, Elmar Torfason og

Kindle með penna, Höddi Mac kveður og Pixel lekar
Google er að fara halda viðburð í október og það er eiginlega allt búið að leka. Pixel símarnir fá S-uppfærslu og nýja liti. Nýr netbeinir mögulega á leiðinni. Úrið sem var kynnt í sumar verður kynnt aftur. Gulli vill fá eitthvað bitastætt (left field) en það eru allar líkur á öðru. Amazon hélt sýna Kindle/Echo/Eero kynningu og það kom flóð af tækjum. Þar má helst nefna dagljósalampann Halo Rise (

Bann á Google Analytics og GTA6 myndbrotum lekið
Það er þéttur þáttur hjá okkur þetta skiptið. Tækniskólinn var hakkaður illa og flest allt nettengd datt í gólfið. Neytendastofa kallar eftir því að banna Google Analytics á Íslandi í kjölfarið úrskurða annarra Evrópulanda. The Verge endurhannar vefsíðu sína og það eru allir í Tæknivarpinu brjálaðir. Google Pixelbook vörulínan hefur verið fryst og ekki fleiri fartölvur í bígerð þar. The Verge dóma

Mintum rafkrónur í betaprófun, VoWiFi hjá Nova og bestu sjónvarpskaupin
Börkur Jónsson, einn af stofnendum Rafmyntasjóðs Íslands og http://mintum.is, mætti í heimsókn og sagði frá nýjung á sviði rafmynta á Íslandi. Í fréttum vikunnar var farið yfir nýjungar frá Sonos, símtöl yfir þráðlaust net hjá Nova og að lokum var spurningum hlustenda svarað.
Þátturinn er í boði Macland sem kemur með iPhone 14 og iPhone 14 Pro í forsölu 16. september.
Þátturinn er einnig í boði KF

Apple Watch Ultra, iPhone 14 plus og ný Airpods Pro
Apple hélt kynningu á miðvikudaginn, eins og svo oft áður á þessu tíma árs, og kynnti nýjasta nýtt í Apple þrennunni: iPhone, Watch og Airpods.
Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur einmitt þessa svakalegu þrennu.
Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.

iPhone vinsælli en Android í Bandaríkjunum
iPhone er markaðsleiðandi í Bandaríkjunum. Gulli prófaði Skannað og Skundað. Twitter leyfir ritskoðun á tístum gegn gjaldi. Svo eru fastir liðir eins og venjulega.
Þessi þáttur er í boði Macland.
Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Elmar Torfason, Marinó Fannar Pálsson og Sverrir Björgvinsson.

iPhone 14 er handan við hornið
Apple kynnir nýjan iPhone og annað góðgæti þann 7. september næstkomandi. Í sömu viku heldur Advania sína árlegu haustráðstefnu sína. Stjórnendur reyna svo að skera úr um það hvort hljóðskilaboð séu snilld eða ekki. Að endingu þá er #SpurðuTæknivarpið svo á sínum stað.
Þessi þáttur er í boði Macland.
Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason.

Húðtóna heyrnatól frá Kardashian og Himnasendingar
Við förum um víða völl í þættinum, allt frá húðtóna heyrnatólum og að himnum. Kim Kardashian og Beats (Apple) þróa húðtónalituð heyrnatól frá Beats Fit Pro. Aha er víst byrjað að bjóða upp á drónaheimsendingar undir nafninu "Himnasending" en bara þegar veður leyfir. John Deere traktorar geta keyrt Doom, þrátt fyrir svæsið burn-in á skjánum. Android 13 er komið út, aðeins á undan áætlun. Samsung Ga

Vonbrigði í streymisheimi og ný íslensk bankaþjónusta
Í þættinum er meðal annars rætt um glóðvolga niðurstöðu Samsung Galaxy Unpacked, seinkun á komu HBO Max, breytt plön hjá hinu íslenska Netflix, fyrstu viðbrögð við beta-prófunum Indó bankaþjónustunnar og rafbíla. Sem fyrr fer umræðan um víðan völl og stundum út fyrir efnið.
Tæknivarpið er í boði Macland.
Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Elmar, Gunnlaugur Reynir og Marinó Fannar











