Hugleikur Dagsson fær til sín góða gesti og spyr þau 11 spurninga um mikilvægustu bíómyndirnar í lífi þeirra.
Episodes

52: Sigurjón Kjartansson
Fóstbróðirinn, Tvíhöfuðið og Hamhleypan Sigurjón Kjartansson klifraði uppí kitruna hans Hulla og sagði honum sínar innstu og sönnustu skoðanir á þeim myndum sem máli skipta í lífi hans.

51: Jóhannes Haukur Jóhannesson
Hnefa leikarinn (get it?) Jóhannes Haukur Jóhannesson hlammaði sér í kompuna hjá Hulla sínum og sagði honum allt sem var að frétta af hans kvikmyndasmekk og glápi.

50: Björn Heimir Önundarson
Myndasöguhöfundurinn og tónlistarmaðurinn Björ Heimir Önundarson skellti sér í ellefu-stólinn og fór gaumgæfilega yfir þær bíómyndir sem máli skipta.

49: Hrefna Sætran
Matreiðslumeistarinn Hrefna Rósa Sætran kíkti til Hulla í afar ljúffengt og auðmeltanlegt spjall um kvikmyndir.

48: Haraldur Þorleifsson
Hinn frumlegi frumkvöðull Halli Þorleifs kom sá og sigraði í ellefu bíó.

47: María Reyndal
Leikstjórinn, leikarinn, höfundurinn og spéfuglinn María Reyndal hoppaði í heimsókn til Hulla og blaðraði um bíó!

46: Berndsen
Listamaður tónsins, Davíð Berndsen hleypti Hulla inní stúdíóið sitt og fór vandlega yfir kvikmyndapælingar sínar með honum,

45: Dr. Gunni
Poppgoðið Gunnar Lárus Hjálmarsson fór yfir allt sem honum finnst geggjað og ógeggjað í heimi kvikmyndanna.

44: Helga Braga Jónsdóttir
Fóstbróðirinn og farfuglinn Helga Braga settist hjá Hulla og ræddi það helsta hvað varðar kvikmyndasmekk sinn.

43: Dröfn Ösp Snorradóttir-Rosaz
Lífskúnstnerinn og LA-prinsessan Dröfn Ösp AKA DD-Unit hoppaði í heimsókn til hullans síns og henti í þétta ellefu bíó talningu eins og henni einni er lagið.

42: Gísli Marteinn
Spjallkall Íslands, Gísli Marteinn Baldursson, fór yfir það helsta í sinni kvikmyndaglápssögu með Hullanum sínum.

41: Berglind Häsler
Höfðingi Havarís, Berglind Häsler fór áreynslulaust yfir allar ræmurnar sem skipta máli í augum hennar.












