Home Podcasts Þitt Sanna Sjálf Podcast
Þitt Sanna Sjálf Podcast

Þitt Sanna Sjálf Podcast

Sigrún 3 Episodes Jun 11, 2026

Þitt Sanna Sjálf er podcast sem býður upp á blöndu af hvatningu og hugleiðslum til að dýpka meðvitund þína. Markmiðið er að hjálpa þér að komast inn fyrir veggi sem lífið byggir í kringum okkur og leyfa þínu sanna sjálfi að taka forystuna. Hægt er að hlusta endurtekið til að hafa smám saman áhrif á sýn þína á sjálfan þig og lífið.

Episodes

Hugleiðsla 1 - Tengjast inn á við
Hugleiðsla 1 - Tengjast inn á við Jun 11, 2026 00:10:44 Þessi 10 mín hugleiðsla er grunnurinn að komandi hugleiðslum. Það er engin úrvinnsla aðeins að tengjast inn á við, venjast því að skanna líkamann, leyfa þér að vera eins og þú ert núna og finna fyrir þessari orku sem þú nærð að skapa innra með þér.
Þáttur 2: IFS partavinna
Þáttur 2: IFS partavinna May 7, 2026 00:26:15 Með þessum þætti langar mig að kynna IFS eða partavinnu út frá mínum skilningi og reynslu til að varpa vonandi ljósi á innra landslagið hjá þér. Ég næ vonandi að sýna þér hvað margt er djúpt en á sama tíma einfalt út frá IFS fræðum. Þessi þáttur er einnig hugsaður til að undirbúa þig fyrir komandi hugleiðslur.
Þáttur 1: Kynning
Þáttur 1: Kynning Mar 27, 2026 00:10:48 Jæja þá byrjar ballið aftur, núna með meiri visku, samkennd, skilning og yfirsýn. Ég hlakka til að deila meira af mínu sanna sjálfi, og fá að vekja þitt innra með þér smám saman með hverri deilingu. Ef þú vilt fylgast með á samfélagsmiðlum var ég að byrja með nýtt Instagram https://www.instagram.com/sjalfsraekt_med_sigrunu og nýja Facebook síðu https://www.facebook.com/sjalfsraektmedsigrunu 

Recommended