
HR Hlaðvarpið
Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University 114 episodes Oct 7, 2026
HR-hlaðvarpið er vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík þar sem vísindafólk, kennarar og sérfræðingar fjalla um rannsóknir sínar og verkefni. Þátturinn miðlar þekkingu út fyrir veggi skólans og veitir innsýn í líf nemenda og starfsemi háskólans. Umsjón með hlaðvarpinu hefur samskiptasvið HR.
Episodes

Íþróttarabb HR // 29. þáttur – Dr. Lidon Lashley, forstöðumaður UG-ECCE öndvegisseturs í málefnum ungra barna.
Ingi Þór Einarsson fær til sín Dr. Lidon Lashley, einn helsta sérfræðing Guyana í sértækum stuðningi og skóla án aðgreiningar. Lidon er dósent við University of Guyana, forstöðumaður UG-ECCE öndvegisseturs í málefnum ungra barna og formaður starfshóps háskólans um inngildingu, fjölbreytileika og jafnrétti. Að baki hans liggja 24 ár í kennslu og kennaramenntun, doktorspróf frá University of Roehamp

Íþróttarabb HR // 28. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Kristínu Guðmundsdóttur
Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík veitti á dögunum viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum og sundi, þar sem sjónum var sérstaklega beint að yngsta stiginu og innleiðingu nýrra hæfniviðmiða. Kennarar úr Engjaskóla, Sjálandsskóla og Rimaskóla hlutu viðurkenninguna í ár.Í þætti dagsins fáum við til okkar Kristínu Guðmundsdóttur, íþróttakennara úr Engjaskóla, í einlægt og fa

Verkfræðivarpið// 45. þáttur - Martin Drews
Helgi Þór og Haukur Ingi ræddu við við Martin Drews, prófessor í loftslagsáhættustjórnun við Danska tækniháskólann (DTU), um hvernig samfélög og mikilvægir innviðir geta aðlagast loftslagsbreytingum og aukinni óvissu. Martin var gestur Sjálfbærniseturs HR (SIF) og Verkfræðingafélagsins á Degi sjálfbærni við HR þann 9. september. UM VERKFRÆÐIVARPIÐUpphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi

Sjálfbærni í HR: Hvernig mótum við framtíðina saman?
Í þessum þætti af Hlaðvarpi Háskólans í Reykjavík köfum við dýpra í það hvernig HR nálgast sjálfbærni frá öllum hliðum – allt frá stefnumótun og stjórnun til náms, félagslífs, kennslu og velsældar.Sjálfbærni í HR er ekki bara orð á blaði heldur er hún höfð til grundvallar við ákvarðanatöku í kennslu, rannsóknum og rekstri. Markmiðið er að áhrif skólans séu augljós og hvetji samfélagið allt til að

Verkfræðivarpið// 44. þáttur - David Finger
Í þessum þætti Verkfræðivarpsins ræða Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur við David Christian Finger, dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. David er vísindamaður, kennari og ráðgjafi með doktorspróf í náttúruvísindum frá ETH Zürich í Sviss og hefur gegnt fjölmörgum alþjóðlegum trúnaðarstörfum, meðal annars sem varaforseti International Ecological Engineering Society.Rannsóknir hans haf

Verkfræðivarpið// 43. þáttur - Sveinbjörn Jónsson
Í þessum þætti Verkfræðivarpsins ræðum við við Sveinbjörn Jónsson, verkefnisstjóra hjá ÍAV, um nýju farþegamiðstöðina Vör við Skarfabakka í Reykjavík, sem afhent var Faxaflóahöfnum í mars 2026. Sveinbjörn er byggingarverkfræðingur með MSc-gráðu frá Háskóla Íslands og MPM-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hluti þáttarins var tekinn upp í mannvirkinu sjálfu, en í meginviðtalinu ræða Helgi Þór Ingaso

Íþróttarabb HR // 27. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Davíð Má Sigurðssyni
Gestur þáttarins að þessu sinni er Davíð Már Sigurðsson, íþrótta- og sundkennari í Rimaskóla. Hann, ásamt samstarfskonu sinni Sigrúnu Blomsterberg, hlaut viðurkenninguna fyrir einstaklega vel skipulagt verkefni í aukakennslu í sundi.Davíð segir okkur frá því hvernig þau styðja við nemendur sem glíma við vatnshræðslu eða óöryggi í vatni. Við ræðum meðal annars:Skref fyrir skref: Hvernig áfangamiðuð

Verkfræðivarpið// 42. þáttur - Atli Snær Ásmundsson
Spunagreind býður upp á ótal möguleika og þar á meðal til kennslu og fræðslu. Í Verkfræðivarpinu er tekinn tali Atli Snær Ásmundsson doktorsnemi við Verkfræðideild HR. Atli Snær segir frá doktorsverkefninu sínu sem gæti valdið straumhvörfum þegar kemur að kennslu og stjórnendaþjálfun. Hugmyndin er að nýta gervigreind til að lesa í tilfinningar nemenda og aðlaga kennsluna að þörfum hvers og eins. A

Verkfræðivarpið// 41. þáttur - Jónas Ketilsson
Gestur Verkfræðivarpsins að þessu sinni var Jónas Ketilsson, yfirverkefnisstjóri stækkunar ÞeistareykjastöðvarLandvirkjunar. Á síðustu þremur árum hefur hann gegnt lykilhlutverki í þróun nýrrar tækni, leitt umbreytingu fjölþættra leyfis- og umhverfisstjórnunarþátta, þróun og innleiðingu alþjóðlegra viðmiða auk samþættingar fjölmargra verkefna og hagsmunaaðila tengdri stækkun virkjunarinnar. Nýveri

Íþróttarabb HR // 25. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Tryggva Jóhanni Heimissyni
Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025.Tryggvi Jóhann Heimisson

Verkfræðivarpið// 40. þáttur - Florence Kennedy
Florence Kennedy er framkvæmdastjóri Negotiate Ltd. Hún er dóttir Gavin Kennedy sem var prófessor við Heriot-Watts háskólann í Edinborg og einn virtasti fræðimaður heims á sviði samingatækni. Florence tók við kefli föður síns og kennir, þjálfar og skrifar bækur um samingatækni. Hún hefur kennt í MPM-náminu frá upphafi þar sem fræðilegur bakgrunnur hennar auk víðtækrar alþjóðlegrar reynslu gerir v

Verkfræðivarpið// 39. þáttur - Gervigreind sem einkakennari? Hinrik Jósafat Atlason segir frá Atlas Primer
Hinrik Jósafat Atlason er stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer og hefur unnið að þróun gervigreindarlausna síðan árið 2005. Árið 2018 þróaði hann gervigreindareinkakennara sem hjálpar fólki að læra í gegnum talviðmót. Í dag leiðir hann alþjóðlega uppbyggingu Atlas Primer á þremur heimsálfum, en fyrirtækið hefur verið til umfjöllunar í Forbes og hlotið viðurkenningu frá TIME og Statista sem e











