Home Podcasts Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur
Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

RÚV 51 Episodes Aug 5, 2026

Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.

Episodes

Berglind Viggósdóttir
Berglind Viggósdóttir Aug 5, 2026 0:41:34 Berglind Viggósdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún hefur misst tvo syni og hefur heitið því að berjast fyrir bættum úrræðum innan kerfisins fyrir börn sem passa ekki inn í hið hefðbundna kerfi. Eftir að hafa barist í hljóði fyrir sonum sínum allt frá unga aldri ákvað hún að skila skömminni og gera sitt til að bæta kerfið í minningu þeirra.
Silja Sóley Birgisdóttir
Silja Sóley Birgisdóttir Aug 4, 2026 0:42:46 Silja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún segist hafa komið sjálfri sér á óvart í baráttunni enda séu aðeins örfá ár síðan að hún var svo feimin og kvíðin að koma fram að hún fékk að flytja kynningar fyrir kennara sína í einrúmi. Við heyrum sögu Silju Sóleyjar í þætti dagsins.
Snorri Helgason
Snorri Helgason Jul 30, 2026 0:43:28 Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur verið heillaður af tónlist frá barnsaldri. Hann les allt sem hann kemst yfir um tónlist, meira segja ævisögur tónlistarmanna sem hann er ekki sérlega hrifinn af. Snorri missti föður sinn sama dag og útgáfutónleikar hans fóru fram og hann segir ekkert annað hafa komið til greina en að halda tónleikana og um leið minnast föður síns, tónlistarmannsins Helga Pét
Þórir Kjartansson
Þórir Kjartansson Jul 29, 2026 0:40:06 Þórir Kjartansson bílstjóri og öryggisvörður borgarstjóra er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Saga Þóris er sannkölluð kraftaverkasaga en hann fór frá því að vera heimilislaus og sofa stundum í bílakjallara ráðhússins yfir í að vera bílstjóri borgarstjóra. Hann segir okkur ótrúlega sögu sína í dag- frá ofbeldi, neyslu og skömm yfir í að öðlast frelsi, fallegt líf og að vera treys
Sigríður Birna Sigvaldadóttir
Sigríður Birna Sigvaldadóttir Jul 28, 2026 0:43:02 Sigríður Birna Sigvaldadóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Hún var á dögunum valinn sjálfboðaliði ársins hjá Rauða krossinum fyrir starf sitt með föngum. Hún stendur fyrir konukvöldum einu sinni í viku í fangelsinu á Hólmsheiði þar sem reynt er að gleyma lífinu í fangelsinu um stund. Hún hefur mikla trú á að betrun skili fólki betra út í lífið að afplánun lokinni. Sigríður
María Einarsdóttir, Maya
María Einarsdóttir, Maya Jul 27, 2026 0:41:50 María Einarsdóttir framkvæmdastjóri NTC  er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. María var orkumikið barn sem skipti nánast á einni nóttu íþróttum út fyrir tísku. Hún hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar í áratugi en tók líf sitt í gegn fyrir um 15 árum, hætti að drekka og gerði upp áföll, meðal annars sáran barnsmissi en elsti sonur hennar lést aðeins nokkurra mánaða gamall.
Monika Hjálmtýsdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir Jul 23, 2026 0:41:37 Monika Hjálmtýsdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Monika varð eiginlega óvart fasteignasali en er í dag formaður félags fasteignasala. Hún gekk í gegnum mikinn missi fyrir tveimur árum þegar bróðir hennar, tónlistarmaðurinn Róbert Örn Hjálmtýsson, lést langt fyrir aldur fram. Hún segist í dag skilgreina lífið fyrir og eftir þann missi. Við kynnumst Moniku betur í þætti dag
Ragnar Jónasson
Ragnar Jónasson Jul 22, 2026 0:41:46 Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur skrifað frá unga aldri. Hann bjóst þá aldrei við því að geta lifað af skrifunum - hvað þá að bækur hans væru seldar í 35 löndum og þýddar á 27 tungumálum. Í dag ferðast hann um heim allan að kynna bækur sínar en finnst þó mikilvægast að gefa sér tíma til að sinna skriftum.
Guðni Már Harðarson
Guðni Már Harðarson Jul 21, 2026 0:43:15 Guðni Már Harðarsson var harðákveðinn frá unglingsaldri að verða prestur. Hann segir að starfið sé gefandi og hans köllun en það geti líka verið erfitt. Hann segir það hafa reynt mikið á að koma að hrikalegu máli þegar ung stúlka í blóma lífsins var myrt, Bryndís Klara Birgisdóttir. En af þessu hörmulega máli hafi þó sprottið upp kærleikshreyfing í minningu hennar. Hann ákvað á dögunum að breyta
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Jul 20, 2026 0:40:52 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður hætti á þingi fyrir nokkrum mánuðum og gerist eftir nokkra daga sendiherra Íslands í London. Hún fer yfir ferilinn og ákvörðunina um að bjóða sig ekki fram til formanns, ákvörðun sem var henni erfið. Hún ræðir líka æskuárin á Akranesi, hvað mótaði hana mest og hvað framundan er.
Rósa Ólöf Ólafíudóttir
Rósa Ólöf Ólafíudóttir Aug 7, 2025 0:41:58 Rósa Ólöf Ólafíudóttir ólst upp í mikilli fátækt og bjó á mörgum vistheimilum þar sem hún hlaut misgott atlæti. Hún þráði ekkert heitar en að fá að búa hjá móður sinni sem þráði að hafa börn sín hjá sér en fékk ekki. Rósa vinnur nú að því að skrifa sögu bróður síns heitins, Lalla Johns.
Valdimar Guðmundsson
Valdimar Guðmundsson Aug 6, 2025 0:43:27 Valdimar Guðmundsson.

Recommended