Home Podcasts Tvær á báti
Tvær á báti

Tvær á báti

Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir 24 Episodes Sep 14, 2026

Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir eru tvær miðaldra hlaupakonur sem hafa náð góðum árangri í hlaupum í aldursflokknum 40 – 49 ára. Þær þreytast ekki á að tala um hlaup og setja sér ný markmið. Í hlaðvarpsþættinum Tvær á báti ræða þær um hlaup út frá ýmsum hliðum, fá til sín góða gesti og segja hlaupasögur. Fyrst og fremst eru þær þó venjulegar konur að gera hlaðvarp fyrir venjulega hlaupara.

Episodes

Samkeppni í flokkinn!
Samkeppni í flokkinn! Sep 14, 2026 00:46:53 Linda og Álfrún heyra í Fríðu Hrund sem er einmitt líka fædd 1982 og hefur náð eftirtektarverðum árangri í flokknum 40-44 ára á liðnu hlaupasumri. Þær fara líka yfir æfingar liðinnar viku, frábært Hjartadagshlaup og stutta innsýn inn í hálft maraþon í Porto. 
Gríðarleg eftirspurn!
Gríðarleg eftirspurn! Sep 7, 2026 00:41:18 Vegna gríðarlegrar eftirspurnar opna Linda og Álfrún hlaupahaustið með einum léttum upphitunarþætti fyrir það sem koma skal hlaupahaustið 2026. Báðar ætla þær að gera aðra atlögu að Valencia heilu maraþoni í desember og munu leyfa hlustendum að fylgjast með æfingum og undirbúningi.
Stein Olav í Samfó!
Stein Olav í Samfó! May 12, 2026 00:59:03 Á lokasprettinum í fyrir borgarstjórnarkosningar fengu Linda og Álfrún til sín Stein Olav sem er í 5. sæti hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Hann er venjulegur hlaupari, langar að hlaupa maraþon, klára samgöngusáttmálann og fá fleira fagfólk inn í skólana. Hann er norskur og flutti til Íslands árið 2018.
Fritz í framboði!
Fritz í framboði! May 6, 2026 01:14:15 Linda og Álfrún halda áfram að fá til sín frambjóðendur á hlaupum. Að þessu sinni er það Bjarni Fritzson sem er í 8. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Hann er allt í senn rithöfundur, þjálfari, hlaupari, hlaupahaldari Græna Gímalds hlaupsins og frambjóðandi. Í spjallinu var farið um víðan völl í bókstaflegum skilningi!
Bakgarður og borgarstjórn
Bakgarður og borgarstjórn Apr 29, 2026 01:08:12 Linda og Álfrún eru ekki bara að detta í hlaupagírinn fyrir sumarið heldur eru sveitarstjórnarkosningar á næsta leyti og þær ætla að fá til sín góða gesti, frambjóðendur úr nokkrum framboðum sem eru líka venjulegir hlauparar. Í þættinum ræða þær við Söndru Hlín Guðmundsdóttur sem er í 6. sæti lista Viðreisnar í Reykjavík.
Afrek afrekanna
Afrek afrekanna Apr 1, 2026 00:57:17 Í þættinum fá Linda og Álfrún til sín frábæran viðmælanda sem þær hafa beðið eftir að spjalla við. Steinunn Lilja Pétursdóttir segir frá hlaupaferli sínum, hvernig hún æfir undir leiðsögn Fjallahlaupaþjálfunar, mikilvægi næringar og kolvetnainntöku og síðast en ekki síst ótrúlegu afreki hennar þegar hún hljóp Laugaveginn undir fimm tímum sumarið 2025.
100 km
100 km Mar 29, 2026 00:44:18 Í þættinum fylgjast Linda og Álfrún með Arnari Péturssyni stórbæta eigið Íslandsmet í 100 km. Á meðan ræða þær um hlaup vikunnar, eymsli sem Linda glímir við út frá kálfastífleika og hvernig Álfrún mætti næstum því á æfingu hjá hlaupahópi Þróttar.
Parísardömurnar
Parísardömurnar Mar 20, 2026 01:00:54 Katrin.is kíkti í settið með hlaupasöguna frá París og fór yfir farsælan feril. Heyrðum líka í Fjólu í Fætur toga sem sagði okkur frá undirbúningi fyrir fyrsta Laugaveginn sem hún ætlar að hlaupa í sumar og gaf okkur góð ráð varðandi val á hlaupaskóm.
Næstum komnar á beinu brautina og ræðum brautina!
Næstum komnar á beinu brautina og ræðum brautina! Mar 3, 2026 00:48:45 Linda og Álfrún eru næstum komnar aftur á beinu brautina eftir að hafa lagt allt í sölurnar í maraþoni fyrir tæpum þremur mánuðum. Þær ræða einnig brautina, MÍ öldunga, MÍ 2026, hálft í París eftir viku og langan aðskilnað í febrúar.
Þjálfari ársins
Þjálfari ársins Feb 13, 2026 01:26:14 Þjálfari ársins hjá Þrótti, Jens Elvar Sævarsson mætti sem gestur og gestastjórnandi í fjarveru Álfrúnar. Hann er án gríns alltaf í góðu skapi og segist tileinka sér jákvæða hluti í fari annarra. Haustið 2025 byrjaði hann með hlaupahóp Þróttar og stefnir á að ná fjöldanum upp í 100 meðlimi. Það skemmir svo ekki fyrir að honum finnst hrikalega gaman að r
Reiknum okkur góðar
Reiknum okkur góðar Feb 6, 2026 01:28:37 Í þættinum ræða Linda og Álfrún við Fríðu Rún hlaupakempu með meiru. Hlaupari á heimsmælikvarða í sínum aldursflokki. Hún sagði frá mjög áhugaverðum ferli, gaf góð ráð og kom á óvart með skemmtilegum sögum af sjálfri sér. Frábær hlustun fyrir langa hlaupið um helgina.
Raus um janúarlægðina
Raus um janúarlægðina Jan 29, 2026 00:52:52 Tvær á báti eru að komast upp úr janúarlægðinni og fóru um víðan völl í rausi dagsins. Félagaskipti, sól í perlu, hvernig þær komast reglulega í tísku og síðast en ekki síst mini körfuboltahorn.

Recommended