Home Podcasts Trivíaleikarnir
Trivíaleikarnir

Trivíaleikarnir

Daníel Óli 63 episodes Latest May 26, 2026

Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni.

Episodes

55. Stefán Gyrðir og Glæsibærinn May 26, 2026 01:18:10 Já það er komið að fimmtugasta og fimmta þætti Trivíaleikanna - afsakið hve seint þessi þáttur kemur út, það hefur verið erfitt að ná tökum upp á síðkastið. Shoutout líka á nýja sponsorinn okkar Frisbígolfbúðinni - tékkið á þeim í Glæsibænum! Í þennan kyngimagnaða þátt mættu þau Arnór, Heiðdís, Ingi og Bjarni Halldór í sinn annan þátt. Hver er söluhæsta breiðskída Kendricks Lamar? Hvaða Studio Ghi
54. Magnus Carlsen lausnin Apr 15, 2026 01:30:54 Fimmtugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, í stúdíóið mættu Daníel Óli, Kristján, Ingi og splunkunýr keppandi úr fortíðinni, Bjarni Halldór sem keppti við Daníel, Arnór og Inga eitt sinn í Gettu Betur en Arnór Steinn skellti sér einmitt í dómarasætið að þessu sinni og því um sannkallaða endurfundi að ræða. Í hvaða landi er að finna höfuðborgina Dhaka? Fyrir hvað stendur skammstöfunin BSÍ? Þetta
53. Kröddi og cuckstólarnir Mar 8, 2026 01:19:54 Já það er komið að 53. þætti Trivíaleikanna en að þessu sinni kíktu þeir Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Öddi í sjóðblautt stúdíó hlaðvarpsins. Hvaða tveimur löndum í Suður-Ameríku á Brasilía ekki landamæri að? Hvað hefur hver spilari mörg spil á hendi þegar spilaður er skítakall með hefðbundnum spilastokki? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Kristján, Öddi, Ingi og Jón Hlífar.
10P. Rottan í horninu (Patreon þáttur) Feb 19, 2026 01:33:08 Vegna gríðarlegra anna spurningahöfundar að þá hefur þáttur mánaðarins tafist um nokkra daga - við vildum þó brúa aðeins bilið fyrir ykkur kæru hlustendur og leyfum ykkur því að heyra einn gamlan Patreon þátt frá því í haust í millitíðinni. Njótið vel kæru hlustendur og endilega kíkið á Patreon hjá okkur, þar getið þið fengið tugi þátta fyrir litla 8$.
52. 2000's-leikarnir (þemaþáttur) Jan 14, 2026 01:50:27 Fimmtugasti og annar þáttur Trivíaleikanna og þið vitið hvað það þýðir, þemaþáttur! Að þessu sinni varð fyrsti áratugur 21. aldarinnar fyrir valinu eða 2000's þema. Tvö kunnugleg lið, Arnór Steinn og Marín Eydal kepptu við Jóni Hlífari og Kristjáni í svakalegum 2000's slag þar sem Britney Spears, MP3 spilarar og DVD diskar komu víða við sögu. Hver var Region kóði Evrópu á DVD diskum? Hvaða
51. Formalínið hans Gísla Marteins Dec 14, 2025 01:11:33 Já það er komið að nýjum þætti. Að þessu sinni skellti Arnór Steinn sér í dómarasætið og okkar eigin Ingi & Haraldur Örn tóku á móti glænýjum keppendum Þorra Líndal & Andreu í svakalegum þætti. Úr hvaða ávöxt eru sveskjur myndaðar? Hvaða knattspyrnulið hét upprunalega Newton Heath? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Ingi, Haraldur Örn, Þorri Líndal og Andrea.
Jóladagatalið 2025 (tilkynning) Nov 25, 2025 00:03:56 VIÐ ERUM AÐ GEFA ÚT JÓLADAGATAL Í ÁR! Dagatalið inniheldur sjö þætti af Trivíaleikunum sem byrja að droppa 1. desember nk. og svo droppar nýr þáttur áfram á 3-4 daga fresti alveg fram að Jólum þegar lengri úrslitaþáttur droppar á aðfangadagsmorgun! Um er að ræða fyrstu útsláttarkeppni í sögu Trivíaleikanna, átta lið tóku þátt með sextán keppendum, í hverri umferð detta út tapliðin og sigurliðin ha
50. Live á Arena (50th episode special) Nov 1, 2025 02:18:41 Við fögnum 50 þáttum af Trivíaleikunum með fyrsta live þættinum okkar, sem tekinn var upp á Arena í Kópavogi þann 17. okt 2025 fyrir framan fullan sal. Við erum ennþá agndofa yfir móttökunum sem við fengum - takk allir sem mættu og allir sem hlusta og gera okkur kleift að halda þessari veislu gangandi. Liðin tvö voru mynduð af tveimur af íkonískustu liðum Trivíaleikanna frá upphafi: Marínu og Arnó
49. Við rændum Pittinum Oct 22, 2025 01:40:03 Já þið lásuð rétt kæru hlustendur, við fengum stórmeistarana Braga Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson úr Pitturinn Podcast til að kíkja við í stúdíóið með tilheyrandi gleðskap og formúlufróðleik. Kristján Einar og Kristján úr Trivíaleikunum mynduðu lið og Bragi ásamt okkar allra besta Inga gáfu þeim góða samkeppni. Hvað heitir sidekick Radioactive Man í sjónvarpsþáttunum The Simpsons, hvað e
Fimmtugasti þáttur live á Arena! (tilkynning) Oct 14, 2025 00:03:56 Já þú last rétt við tökum upp 50. þátt Trivíaleikanna live á Arena í Kópavogi þann 17. október klukkan 20:00 ekki láta þig vanta á þennan stórviðburð!
48. Eitt þúsund ár af skírlífi Sep 6, 2025 01:29:42 Já það er komið að fertugasta og áttunda þætti Trivíaleikanna. Í sjóðblautt stúdíóið mættu Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi. Hart var barist og mikið svitnað, ekki missa af þessari veislu! Hvort var það Benito Mussolini eða Voldemort sem sagði "Mikilleiki vekur öfund, öfund elur illsku, illska elur lygar"? Hvað hétu ræningjarnir þrír í leikverkinu um Kardemommubæinn? Þetta og m
47. Blái mörðurinn Aug 4, 2025 01:28:50 Fertugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni brá hópurinn sér í stúdíó Sánu að nýju og okkar allra besti Kristján settist í fyrsta sinn í spyrils- og dómarasætið. Tvö þungarvigtarlið tókust á í kjölfarið en Daníel og Ingi mættu Arnóri og Jóni í títanískum hamfaraslag vitsmuna og fræðimennsku. Ekki missa af þessari veislu. Hvaða leikari fór með hlutverk Blade í Blade þríleiknum. Frá

Recommended

Playing