Home Podcasts Út í óvissuna
Út í óvissuna

Út í óvissuna

Slysavarnafélagið Landsbjörg 3 Episodes Aug 5, 2026

Sögur úr starfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Undanfarna mánuði höfum við rætt við einstaklinga úr starfi félagsins og farið yfir fjölbreytt málefni sem tengjast starfi Landsbjargar. Nýr þáttur annan hvern miðvikudag.

Episodes

#8 - Útkallsbækurnar & Hannes Þ. Hafstein
#8 - Útkallsbækurnar & Hannes Þ. Hafstein Aug 5, 2026 2446 Í áttunda þætti Út í óvissuna er rætt við rithöfundinn Óttar Sveinsson, höfund hinna vinsælu Útkallsbóka, um sögurnar sem hann hefur safnað úr björgunarstarfi gegnum árin og nýjustu bókina Ég er á lífi.Í seinni hluta þáttarins segir Þorsteinn Þorkelsson, gjaldkeri félagsins og sagnfræðingur, frá ævi og störfum Hannesar Þórðar Hafstein, sem gegndi lykilhlutverki hjá félaginu um áratugaskeið og vann
#7 - Flugbjörgunarsveitin Hellu & Frú Guðrún Jónasson
#7 - Flugbjörgunarsveitin Hellu & Frú Guðrún Jónasson Jul 22, 2026 2076 Að þessu sinni hefjum við leikinn á Suðurlandi, nánar tiltekið á Hellu, þar sem Sigurgeir Guðmundsson, félagi í Flugbjörgunarsveitinni Hellu, tók á móti okkur. Við vildum kynnast sögu sveitarinnar og starfseminni á Hellu, og Sigurgeir var sannarlega rétti maðurinn til að leiða okkur í gegnum það. Hann er mikill sögumaður og kunni frá mörgu að segja.Í síðari hluta þáttarins er rætt við Svanfríði Lá
#6 - Fyrst íslenskra kvenna að ganga á Mont Blanc
#6 - Fyrst íslenskra kvenna að ganga á Mont Blanc Jul 8, 2026 2576 Ólafía Aðalsteinsdóttir hóf störf með Hjálparsveit skáta í Reykjavík í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar og hefur því fylgst með starfinu þróast í meira en hálfa öld. Hún segir frá því hversu miklu máli skátastarfið skipti á unglingsárunum, vináttunni sem myndaðist, æfingunum og öllu því sem hefur setið eftir.Við förum yfir víðan völl: leitir að rjúpnaskyttum, týndum ungmennum, björgunarstörf
#5 - Neyðarlínan & Björgunarhundasveit Íslands
#5 - Neyðarlínan & Björgunarhundasveit Íslands Jun 24, 2026 2295 Í fimmta þætti hlaðvarps Landsbjargar höldum við áfram að kynna okkur ólíkar hliðar starfsins.Í fyrri hluta þáttarins ræðum við við Vilhjálm Halldórsson, varðstjóra hjá Neyðarlínunni. Hann hefur starfað þar um árabil og segir okkur frá fyrsta viðbragði þegar neyðarkall berst, samskiptum við þann sem hringir og samspili viðbragðsaðila, þar á meðal björgunarsveita, allt frá útkalli og út á vettvang.
#4 - Bakverðir & Nýtt húsnæði HSSK
#4 - Bakverðir & Nýtt húsnæði HSSK Jun 10, 2026 1680 Í fjórða þætti verður fjáröflun í brennidepli enda mikilvægur liður í starfsemi félagsins. Bakvarðaverkefnið fór af stað árið 2013 og hefur vaxið mikið síðan þá. Rætt var við Flóka Guðmundsson hjá Takk, sem hefur starfað fyrir fjölmörg góðgerðarfélög og sjálfboðaliðasamtök. Við fórum yfir þróunina í fjáröflun, miðla og boðleiðir og hvernig hægt sé að ná til almennings á gervihnattaröld.Í síðari hl
#3 - Slysavarnaskóli sjómanna & Áhafnaskipti IMRF
#3 - Slysavarnaskóli sjómanna & Áhafnaskipti IMRF May 27, 2026 2029 Sjóbjörgun verður í aðalhlutverki í þætti vikunnar. Bogi Þorsteinsson, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, tók á móti okkur á Reykjavíkurhöfn og bauð okkur um borð í skólaskipið Sæbjörgu. Hlutverk skólans er að standa fyrir öflugu fræðslustarfi fyrir sjómenn og aðra sem starfa í haftengdri starfsemi. Við fengum kynningu á starfsemi skólans og skipinu sjálfu, auk þess að fræðast um sjóbjörgun og
#2 - Sjálfboðaliði í tæp 70 ár & Rótarskot á Snæfellsnesi
#2 - Sjálfboðaliði í tæp 70 ár & Rótarskot á Snæfellsnesi May 13, 2026 1901 Freyr Bjartmarz hefur séð tímana tvenna í starfi félagsins en hann gekk til liðs við Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur á sjötta áratug síðustu aldar og hefur verið viðloðinn björgunarsveitina í tæp 70 ár. Við fórum yfir víðan völl og ræddum meðal annars eftirminnileg útköll, hvernig starfið hefur þróast í gegnum árin, svaðilfarir á vélsleðum og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins var haldið á Snæfe
#1 - Formaður Landsbjargar & Flugslysaæfing
#1 - Formaður Landsbjargar & Flugslysaæfing Apr 29, 2026 2280 Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, gaf okkur innsýn í starf sitt sem formaður. Hún fór yfir víðfeðmt starf félagsins, áskorunum í starfi og velti einnig fyrir sér framtíðinni, ekki síst í ljósi þess að 100 ára afmæli félagsins er á næsta leiti. Viðtalið var tekið upp í febrúar 2026.Í síðari hluta þáttarins færum við okkur á Reykjavíkurflugvöllur í október

Recommended