Home Podcasts Lyklavöldin
Lyklavöldin

Lyklavöldin

Þórhallur Gunnarsson 31 episodes Latest May 1, 2026

Þættir um pólitík og samfélagsmál.

Episodes

“Þetta er mjög stórt mál fyrir okkur…!” May 1, 2026 01:10:27 Þingmennirnir Pawel Bartoszek og Guðlaugur Þór Þórðarson takast á um ESB í eldheitum rökræðum. Hvort fólk skipti um skoðun á þessum málum eftir þáttinn er erfitt að segja en báðir færa sterk rök fyrir skoðun sinni.
“Aðeins 3 vikur í kosningar og spennan magnast” Apr 24, 2026 01:03:40 Fréttahaukarnir Aðalsteinn Kjartansson á Heimildinni og Stígur Helgason á RÚV fara yfir stöðuna þegar stutt er til sveitastjórnarkosninga. Þeir velta vöngum yfir helstu átakamálunum í landspólitíkinni og kosningum um aðildarviðræður við ESB.  Hvað gerist ef þjóðin segir nei?
“Reykjavíkurborg ber mestu sökina á hárri verðbólgu” Apr 16, 2026 01:01:42 Ari Edwald oddviti Miðflokksins og Kristinn Jón oddviti Pírata mætast í stórskemmtilegum rökræðum.  Þeir takast á um húsnæðismál, Borgarlínu, rekstur borgarinnar, lausnir í leikskólamálum og þjónustu við borgarbúa.  Þeir ræða líka væntingar sínar um hverjum þeir vilja starfa með að loknum kosningum.
Lyklavöldin. Páskaþáttur nr. 3. um þróun merkra svæða í Reykjavík. Apr 6, 2026 00:51:30 Í páskaþætti nr. 3 um þróun merkra svæða í Reykjavík fer Dr. Páll Jakob Líndal yfir sögu Slippsvæðisns eða Vesturbugtar. Páll hefur sterkar skoðanir á þróun svæðisins og er gagnrýnin á fyrirhugaða uppbyggingu þess.Hægt er að horfa og hlusta á þættina á Spotify og klakinnstudio.is
Lyklavöldin. Páskaþáttur nr. 2. um þróun merkra svæða í Reykjavík. Apr 5, 2026 00:57:52 Í þessum þætti segir Dr. Páll Jakob Líndal okkur frá sögu hafnarsvæðisins og þróun skipulagsins á Hafnartorgi og Austurbakka.
Lyklavöldin - Þrír sérstakir páskaþættir Apr 3, 2026 00:37:32 Dr. Páll Jakob Líndal segir okkur frá þróun merkra svæða í Reykjavík.Í fyrsta þætti tökum við fyrir Ingólfstorg. Páll Jakob rekur sögu svæðisins og leggur líka mat á hvað hafi heppnast eða farið miður í hönnun Ingólfstorgs.Í þætti tvö ræðum við þróun svæðisins við Hafnartorg og í þriðja þætti verður Vesturbugt (slippsvæðið) til umfjöllunar.
“Viltu ekki draga andann svo ég komist að…” Mar 27, 2026 01:14:08 Þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir og Sigmar Guðmundsson voru í miklu stuði þegar þau mættu í Lyklavöldin.Við ræddum stöðu ríkisstjórnarinnar, lausnir í núverandi efnahagsástandi, ESB atkvæðagreiðsluna og borgarmálin þar sem þau spá fyrir um gengi flokkana.
“Þráðurinn er stuttur núna…! Mar 20, 2026 00:59:33 Erla Björg Gunnarsdóttir fyrrverandi ritstjóri fréttastofu Sýnar og Baldvin Þór Bergsson ritstjóri fréttatengdra þátta RÚV eru gestir þáttarins.  Við veltum upp hvort ríkisstjórnin sé búin að missa tökin og traustið.  Ræðum líka sterk viðbrögð fulltrúa verkalýðs og atvinnulífs um stöðu mála, tölum um ESB, já eða nei kosninguna og borgarmálin.  Þau Erla Björg og Baldvin spá líka fyrir um hverjir my
“Eins og stjórnsamur meðvirknisjúklingur” Mar 11, 2026 01:15:08 Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar segja að vond þjónusta og flækjustig í borgarkerfinu hafi rekið þau inn í borgarpólitíkina. Þau ætla að bregðast hratt við komist þau í meirihluta í Reykjavík. Þau vilja stöðva flótta ungs fólks úr borginni og endurskoða mörg uppbyggingarverkefni sem eru komin í gang. Þau takast á um lausnir í húsnæðismálum, leikskólu
“Kemur ekki til greina að starfa með Samfylkingunni” Mar 7, 2026 01:13:20 Einar Þorsteinsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir takast á um húsnæðismál, Borgarlínu, skólamál, einkarekstur og svara hreinskilnislega hverjum þau vilji starfa með eftir kosningar.
“Bíddu, hvað eru ráðamenn að hugsa..!” Feb 25, 2026 01:00:28 Jóhann Bjarni Kolbeinsson fréttamaður Kveiks og Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður á Sýn ræða Bakkakotsmálið og setja í samhengi við sambærileg mál þar sem börn og unglingar í umsjá ríkis og sveitarfélaga hafa sætt ofbeldi af öllu tagi.Jóhann Bjarni hefur leitt Bakkakotsmálið í Kveik og Berghildur Erla afhjúpaði  fyrir fáum árum skelfilegar aðstæður barna á Hjalteyri og á vistheimilum hin
“Sjálfskaparvíti Samfylkingar” Feb 19, 2026 01:11:59 Frosti Logason og Valur Grettisson eru þrautreyndir blaðamenn og ræða pólitíkina frá öllum hliðum.Ríkisstjórnin að missa tiltrú?  Hver er innistæðan hjá Miðflokki? Lilja Alfreðs sterkur leikur hjá Framsókn?Nær “hægrið” Borginni? Ólga í Samfylkingu og tilvistarkreppa X-D? Millitekjufólk mergsogið og lóðabrask Borgarinnar?

Recommended

Playing