Home Podcasts Hið yfirnáttúrulega
Hið yfirnáttúrulega

Hið yfirnáttúrulega

Ghost Network® 101 Episodes Sep 14, 2026

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

Episodes

119. Galdrar - nornir - álög
119. Galdrar - nornir - álög Sep 14, 2026 10:08 Í þessum þætti tölum við um galdra, hreinsanir, hugarfar og ásetning. Hvað við erum að gera og galdra fram þessa dagana og förum yfir í extreme nornir og nornamenningu sem finnst að mestu erlendis.Galdrar, álög og bölvanir hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og endurspegla ríka þörf mannsins fyrir að skilja, stjórna eða hafa áhrif á umhverfi sitt með yfirnáttúrulegum leiðum.Nútímanornir eru oftas
118. Íslenskar draugasögur - Poltregeist draugar
118. Íslenskar draugasögur - Poltregeist draugar Sep 7, 2026 16:04 Íslenskar draugasögur eiga sér djúpar rætur í þjóðarsálinni og endurspegla lifnaðarhætti, einangrun og harðbýla náttúru landsins í gegnum aldirnar. En sumir draugar skilja eftir sig meiri spurningar en aðrir og eru eftirminnilegri.Vorið 1964 á sveitabænum Saurum í Austur Húnavatnssýslu gerðist eitthvað sem skók allt íslenska samfélagið. Þetta var ekki hefðbundin sending í leit að hefnd, heldur fág
117. Sólgos, sólmyrkvi, fullt tungl - Jörðin er að ganga í gegnum mikla orkubreytingu.
117. Sólgos, sólmyrkvi, fullt tungl - Jörðin er að ganga í gegnum mikla orkubreytingu. Aug 31, 2026 09:39 Jörðin og alheimurinn eru að ganga í gegnum gríðarlega orkubreytingu!Við höfum nýlega upplifað bæði sólmyrkva og tunglsmyrkva, en í yfirnáttúrulegum skilningi eru þetta ekki bara stjarnfræðilegir atburðir heldur öflugar gáttir. Sólmyrkvinn táknar dramatísk þáttaskil þar sem ljósið víkur augnablik fyrir skugganum, sem neyðir okkur til að horfast í augu við okkar eigin dökku hliðar og loka gömlum dy
116. Andlegt trúnó
116. Andlegt trúnó Aug 24, 2026 10:24 Við erum á persónulegum nótum i þessum þætti og segjum frá hvað við höfum verið að upplifa frá okkar andlegu hlið og ástundun í sumar. Lífið er allskonar og suma daga er maður í geggjuðu jafnvægi og með allt á hreinu, aðra daga er maður með allt niður um sig, í lárri tíðni að reyna að koma sér á andlega vagninn aftur og lyfta sér upp.Okkur finnst mikilvægt að lýsa raunveruleikanum eins og hann er
115. Gunnar Dan - Ufo 202, kómísk uppljóstrun með Dr Phil og allt milli himins og jarðar.
115. Gunnar Dan - Ufo 202, kómísk uppljóstrun með Dr Phil og allt milli himins og jarðar. Aug 19, 2026 01:20:30 Gunnar Dan vinur okkar hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum enda er hann aðal upplýsingaveita Íslendinga um það sem er að gerast í Ufo heiminum. Hann var að gefa út bókina sína Ufo 102 sem er hreint út sagt stórkostleg og full af fróðleik!Gunnar hefur upplifað margt í lífinu og andlega vakningin er að koma til hans af miklum krafti og tenging við hinn æðri mátt, hver sem þessi máttur er. Í þes
114. Afhverju eru þessir vísindamenn að deyja?
114. Afhverju eru þessir vísindamenn að deyja? Aug 17, 2026 11:41 Rúmlega tíu toppvísindamenn með háleynilega öryggisvottun í geimvísindum og kjarnorkutækni hverfa eða finnast látnir við furðulegar aðstæður, spyrja netverjar sig, er þetta tilviljun? Sú staðreynd að eftirlitsnefnd Bandaríkjaþings og FBI þurftu að skerast í leikinn þykir mörgum sanna að stjórnvöld séu að reyna að stýra umræðunni og hylma yfir sannleikanum.Nýjasta tilvikið er hann Joe Felz sem lést
113. Tvífarar
113. Tvífarar Aug 10, 2026 11:16 Eigum við okkur öll tvífara? Einhver sem gengur um á jörðinni sem er alveg eins en hefur ekki hugmynd um það?Í þessum þætti ætlum við að tala um tvífara. Er þetta fyrirbæri bara algjörlega tilviljunarkennt eða er eitthvað yfirnáttúrulegt á bakvið það?Paul McCartney lenti í slæmu bílslysi Þegar Bítlarnir voru á hátindi frægðar sinnar og vilja margir meina að hann hafi látist í slysinu og var fengin
112. Er jörðin flöt?
112. Er jörðin flöt? Aug 3, 2026 10:32 Í þessum áskriftarþætti ætlum við að tala um jörðina. Er jörðin stór blár hnöttur eða er hún mögulega eins og risastór pönnukaka með glerhvelfingu yfir sér? Er ísveggurinn á suðurpólnum að passa upp á að við förum ekki fram af jörðinni og leynast mögulega löngu horfnir mengingaheimar á bak við hann?Við ætlum að ræða allar þessar pælingar og margar fleiri Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu
111. Voru risaeðlur kannski bara drekar?
111. Voru risaeðlur kannski bara drekar? Jul 27, 2026 10:30 Við vorum að keyra frá Blönduósi til Reykjavíkur og vorum í svo miklu stuði að ræða um allskonar yfirnáttúrulega hluti að við ákváðum að skella í þátt á leiðinni. Hljóðgæðin eru því ekki þau bestu, en þetta er hrár og ótrúlega skemmtilegur þáttur þar sem við ræðum um stóru spurninguna.....Voru risaeðlur mögulega bara drekar?Ef við setjum upp samsærisgleraugun og skoðum söguna út frá þeirri kenning
110. Þórunn - Nornin í þér
110. Þórunn - Nornin í þér Jul 22, 2026 01:29:28 Þórunn Kristín lýsir sér sjálfri sem rammíslenskri norn. Hún hefur iðkað þessi fræði lengi og er höfundur bókarinnar Nornin í þér þar sem hún deilir m.a. eigin reynslu og þeirri andlegu þekkingu sem hefur fylgt mönnunum í gegnum aldirnar.Við ræðum allt milli himins og jarðar, hvernig hún fann innri nornina í sér og hvað varð til þess að hún virkjaði næmnina og byrjaði að sjá heiminn í gegnum augu
109. Nauralink og Ai
109. Nauralink og Ai Jul 20, 2026 10:51 Í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að tækninni sem gæti breytt mannkyninu að eilífu og byrjum á því að skoða Neuralink. Þetta fyrirtæki Elon Musk vinnur að því að græða örsmáan tölvukubb beint í mannsheilann, sem í fyrstu á að hjálpa lömuðu fólki en stefnir á að tengja huga okkar beint við stafræna heiminn. Hinn helmingurinn af þessari jöfnu er gervigreindin, eða AI, sem er að þróast á ógnar
108. Cern og áhrif þess á okkur.
108. Cern og áhrif þess á okkur. Jul 13, 2026 10:27 Í dag ætlum við að kafa ofan í einn dularfyllsta og umtalaðasta stað jarðarinnar: CERN, Evrópsku kjarnorkurannsóknastofnunina í Sviss. Þar neðanjarðar hvílir stærsti eindahraðall heims, þetta eru 27 kílómetra löng rör ofan í jörðinni þar sem vísindamenn láta atóm rekast saman á nánast ljóshraða til að skilja uppruna alheimsins og finna hina svokölluðu „guðseind“.En einmitt vegna þess hve rannsókni

Recommended