
Fókus
Fókus er vikulegur hljóð- og myndþáttur sem birtur er á dv.is. Þátturinn fjallar um ýmis málefni og er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.
Episodes
Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“
Saga Dröfn Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún stígur fram og segir sögu sína af kynferðis- og heimilisofbeldi – og upplifun sinni af því þegar íslenska réttarkerfið brást henni, ekki einu sinni heldur tvisvar. Með henni í þættinum er kærasti hennar, Ingólfur Valur Þrastarson, sem veitir henni stuðning á meðan hún ræðir um þung og viðkvæm málefni. Varað er við lý
Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur
Hvers vegna ná svona margir aldrei varanlegum árangri, þrátt fyrir góð áform og áramótaheit? Í Fókus, viðtalsþætti DV, er masterslífsþjálfinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir – betur þekkt sem Linda Pé – gestur vikunnar og fer yfir hvað raunverulega þarf að breytast til að markmið náist. Hún segir vandann ekki liggja í skorti á aga eða þekkingu, heldur í hugsunum okkar og sjál
Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“
Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir mikinn metnað, kraft og fjölbreytt hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Undanfarin ár hefur hún hins vegar ekki aðeins tekist á við krefjandi verkefni í starfi, heldur einnig farið í gegnum persónulegt ferðalag. Fyrir um sex árum lenti Kristín í kulnun eftir langvarandi álag, sjálfsniðurrif og stöðuga streitu, sem að lokum leiddi til þ
Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked
Söng- og leikkonan Sigga Ózk, Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Sigga skaust fram á sjónarsviðið árið 2023 þegar hún tók fyrst þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. Hún tók aftur þátt ári seinna og komst áfram í úrslit með laginu Um allan alheiminn.Hún hefur einnig getið sér gott orð sem leikkona og talsetti hlutverk Glindu í kvikmyndunum Wicked og Wicked: For G
Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 2026
Spákonan og flugfreyjan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, og jafnframt mætt þriðja árið í röð í sérstakan áramótaþátt þar sem hún spáir fyrir þekktum einstaklingum, íslensku samfélagi og öllu þar á milli. Það kom margt áhugavert fram í þættinum, en samkvæmt Ellý verða miklar breytingar í stjórnmálum, meðal annars mun ný ríkisstjórn taka við í haust og nefnir hún einn flokk
Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn
Margrét Sól Ragnarsdóttir dúxaði þegar hún útskrifaðist með mastersgráðu í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík og tryggði sér draumastarf hjá alþjóðlega tæknifyrirtækinu Össuri. Hún virtist vera á „réttu leiðinni“ en innra með henni var eitthvað sem togaði hana í aðra átt. Í haust tók hún þá stóra ákvörðun um að segja upp starfi sínu og stökkva út í óvissuna til að verða listakona. Marg
Anna Claessen: Frá kulnun í kraft og ástin sem bankaði óvænt upp á
Markþjálfinn, einkaþjálfarinn og skemmtikrafturinn Anna Claessen er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar fer hún opinskátt yfir kulnunina sem hún lenti í árið 2018, hvernig líkaminn reyndi að stoppa hana en hún hlustaði ekki – og hvers vegna margir hunsa þessi skilaboð. Hún talar einnig um fordóma, sérstaklega eldri kynslóðarinnar, fyrir kulnun, álagið sem fylgir nútímalífi og hvers vegna
Kristinn Aron: Veðmálafíkn tók yfir líf mitt
Þjálfarinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Kristinn Aron Hjartarson, sem verður 39 ára í desember, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar ræðir hann opinskátt um veðmálafíkn sem tók yfir líf hans um árabil, meðferðina sem varð vendipunktur árið 2020 og hvernig hann hefur síðan lifað edrú lífi — bæði frá veðmálum og áfengi.Kristinn lýsir spilafíkn sem manískri þráhyggju sem fylgir miki
Hildur: „Í febrúar klessti ég á vegg og fór í kulnun í þriðja skiptið á ferlinum“
Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir sá fyrir sér að árið 2025 yrði mikið tónlistarár, hún var að gefa út fyrstu sólóplötuna sína í janúar og ætlaði að vera óstöðvandi. En síðan lenti hún harkalega á vegg en ætlaði ekki að trúa því að hún væri að lenda í kulnum í þriðja skiptið. Hildur er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún ræðir um kulnun, ADHD, hvernig hugleiðsla breytti
Linda Sæberg - Fann sig í spiritúalisma eftir krabbameinsbaráttuna
Linda Sæberg hefur undanfarin ár gengið í gegnum dimma dali en með aðdáunarverðum hætti tekist á við öll vandamál með bjartsýni og von að leiðarljósi. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún opnar sig um baráttuna við brjóstakrabbamein, áfallasögu sem mótaði líf hennar í tvo áratugi og þá djúpu umbreytingu sem hún gekk í gegnum þegar hún fann styrk í andlegum málum og spiritúa
Sylvía Rún: Lífið með OCD
Körfuboltakonan Sylvía Rún Hálfdanardóttir greindist með áráttu- og þráhyggjuröskun (OCD) þegar hún var sautján ára gömul. Greiningin opnaði augu hennar fyrir ýmsu úr æsku hennar sem var vísbending um hvað var að hrjá hana. Um tíma var hún orðin fárveik en blessunarlega leitaði hún sér hjálpar og tókst með baráttuandann að vopni að komast í gegnum þetta skeið. Í dag er hún á góðum stað og er með ý
Gunnar Dan: Við erum ekki ein
Gunnar Dan, rithöfundur og verslunarstjóri Handverkshússins, trúir því staðfastlega að mannkynið sé ekki eitt í alheiminum. Gunnar var að gefa út bókina UFO101 og er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræðir um reglulegar heimsóknir geimvera til jarðar – líka til Íslands. Hann segir frá mismunandi tegundum geimvera, meintum samningum þeirra við stórveldi og íslensku brottnámstilfelli. G
Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum
Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón Rúnar Sveinsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræddi um ýmsar tegundir netsvindls í þættinum, hvað skal varast og hvað sé gott að vita. Hann hvetur fólk til að vera gagnrýnið en svindlin eru sífellt að verða þróaðri og fágaðri. Það eru heilu hóparnir sem vinna við að hafa af öðrum fé og þó sumir hópar séu viðkvæmari en aðrir þá geta allir lent í
Paradísa: Lífið tók stakkaskiptum þegar hún hryggbrotnað
Tónlistarkonan Paradísa er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún heitir fullu nafni Dísa Dungal og er fyrrverandi fegurðardrottning og íþróttafræðingur.Líf Paradísu snerist á hvolf þegar hún hryggbrotnaði árið 2022. Það hafði gríðarleg áhrif á hana, ekki bara líkamleg heldur einnig andleg en Paradísu fannst fótunum kippt undan henni. Hún gat ekki lengur sinnt starfi sínu né stundað áhugamá
Hanna Birna: Var læknisfræðileg ráðgáta í mörg ár áður en hún var greind með POTS
Hanna Birna Valdimarsdóttir, 33 ára, var læknisfræðileg ráðgáta í mörg ár áður en hún var greind með POTS-heilkenni. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Hanna Birna fékk fyrstu einkennin fyrir rúmlega áratug síðan þegar hún gekk með dóttur sína. Einkennin gerðu aftur vart við sig á meðgöngu sonar hennar en mætti Hanna Birna dómhörku í heilbrigðiskerfinu og var spurð hvort hún væri „all
Viktoría Rós - Þurfti að horfast í augu við áföllin til að byggja sig upp á ný
Markaðsstjórinn og áhrifavaldurinn Viktoría Rós Jóhannsdóttir opnar sig í viðtalsþættinum Fókus og segir frá átakanlegri lífsreynslu sem mótaði hana. Þrátt fyrir venjulega æsku varð hún fyrir kynferðisofbeldi sem barn af hendi barnapíu, áfalli sem hún vann ekki úr fyrr en mörgum árum síðar. Í kjölfarið fylgdu erfið sambönd, áfengisvandamál og flókin fjölskyldumál varðandi faðerni sonar hennar, en
Íþróttakonan Hekla Sif: Baráttan og bataferlið við átröskun
Hekla, 25 ára, var um árabil afreksíþróttakona í frjálsum íþróttum og bjó um tíma í Texas þar sem hún lagði nám við West Texas A&M háskólann og keppti fyrir hönd skólaliðsins. Þegar hún var átján ára gömul vildi hún ná lengra í greininni og ákvað að kaupa matarplan frá fitness þjálfara. Hún myndaði fljótlega óheilbrigt samband við mat og þróaði með sér átröskun sem tók yfir líf hennar. Hún hef
Katla Hreiðars: Reksturinn, barnalánið og ástin
Athafnakonan Katla Hreiðarsdóttir, betur þekkt sem Katla í Systur og makar, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fyrir rúmlega ári síðan var Katla alvarlega að íhuga að hætta eftir sautján ára rekstur. Það voru erfiðir tímar, bróðir hennar var að berjast við illvígt krabbamein og hún var ólétt af þriðja barninu á stuttum tíma. Reksturinn var líka í lægð en það hefur verið krefjandi undanfa
Guðrún Sørtveit: „Það hefur alltaf verið rosalega sterkt í mér að verða mamma“
Guðrún Helga Sørtveit, áhrifavaldur og eigandi fyrirtækisins Fyrsta árið, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Í þættinum opnar Guðrún sig um móðurhlutverkið, þegar hún fékk utanlegsfóstur sem varð til þess að fjarlægja þurfti annan eggjastokkinn og gleðina og kvíðann sem hún upplifði þegar hún varð fljótlega aftur ólétt. Hún segir frá báðum meðgöngunum og fæðingunum og ræðir einnig einlæg
Kara lifði af martröð á götunni: „Ég hugsaði: Hann er að fara að drepa mig“
Við vörum við efnisinnihaldi þáttarins, fjallað er um ofbeldi, kynferðisofbeldi, fíkniefnaneyslu og sjálfsvíg. Kokkurinn og hnefaleikastjarnan Kara Guðmundsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Saga Köru er lituð af áföllum og erfiðleikum, en þetta er líka sigursaga og vonarsaga fyrir fólk í svipuðum aðstæðum og ástvini þeirra.
Steffý Þórólfs: Hafði áhyggjur að áreitið myndi hafa áhrif á ófæddan soninn
Áhrifavaldurinn Steffý Þórólfsdóttir upplifði erfiða tíma á sinni fyrstu meðgöngu. Hún var illa stödd andlega, meðal annars vegna áreitis og eineltis, og hafði miklar áhyggjur af því hvort að það myndi hafa áhrif á frumburðinn í móðurkviðnum. Hún hefur fjallað um þessa reynslu sína á samfélagsmiðlum, svo athygli hefur vakið, og segir að tilgangurinn hafi verið sá að vekja fólk til umhugsunar um mi
Hafdís Björg: „Ég týndi mér alveg“
Einkaþjálfarinn, athafnakonan og áhrifavaldurinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fókus snýr aftur eftir sumarfrí og í fyrsta þætti ræðir Hafdís einlæg um að finna sig eftir erfiðleika, vinkonumissi og hvernig er að verða fyrir netníði þegar hún var á dimmum stað.Hún opnar sig einnig um æskuna, að verða móðir ung og fæðingarþunglyndi.
Þórdís Björk: Móðurhlutverkið, ferillinn og ADHD
Söng- og leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir ræðir um mörgu hliðar móðurhlutverksins, tónlistar- og leiklistaferilinn, harkið og gamanið, ástina og lífið með ADHD í Fókus, viðtalsþætti DV.
Helena Reynis: „Mér datt ekki í hug að ég gæti lent í ofbeldissambandi.“
Myndlistarkonan Helena Reynisdóttir flutti heim til Íslands frá Berlín eftir um fimm ára dvöl. Flutningurinn markaði ákveðin tímamót í lífi hennar. Þá var hún nýkomin úr fimm ára sambandi þar sem hún var beitt andlegu ofbeldi. Hún ákvað nýlega að stíga fram í myndbandi á TikTok og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Andlegt ofbeldi er gjarnan falið, tabú að tala um og mikil skömm sem getur fylgt þv
Hermann um skilnaðinn og svikin: „Hann laug að ég væri dáinn“
Hárgreiðslumeistarinn Hermann Óli Bachmann Ólafsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Hann ræðir um hvernig það var að alast upp sem samkynhneigður strákur þegar hommi var álitið niðrandi og ljótt orð. Hann ræðir einnig um hárgreiðsluferilinn og fyrirtækjareksturinn, sem hefur verið eins og rússíbani á köflum.Hermann opnar sig í einlægur um persónuleg mál, eins og barneignaferlið sem bre
Svavar Elliði: Fór í hárígræðslu í Tyrklandi
Tónlistarmaðurinn og kennarinn Svavar Elliði Svavarson kom nýlega heim frá Istanbúl í Tyrklandi, þar sem hann gekkst hann undir hárígræðslu á höfði.Hann segir frá öllu ferlinu, aðgerðinu og batanum í þættinum. Hann ræðir einnig stuttlega um tónlistarferilinn og fyrsta stefnumótið með unnustu sinni, sem byrjaði ansi erfiðlega en hann náði að rétta skútuna af og eiga þau í dag son.
Fanney: „Ég fann að ég þurfti að staldra aðeins við og hugsa: Hvað vil ég? Hver er ég?“
Fanney Skúladóttir, markaðsstjóri, er gestur vikunnar í Fókus.Fanney varð móðir ung. Hún var ólétt af sínu fyrsta barni sautján ára gömul, en sonur hennar er einmitt sautján ára í dag. Áratugur leið þar til hún eignaðist annað barn, en hún eignaðist tvær stúlkur með árs millibili. Fanney hefur því bæði átt börn með löngu millibili og svo mjög stuttu og hún segir að hið síðarnefnda hafi vissulega v
Dimmey Rós: Verða fyrir fordómum sem par
Dimmey Rós Lúðvíksdóttir valdi hinseginleikann sem málstað til að vekja athygli á þegar hún keppti í Ungfrú Ísland í byrjun apríl. Hún þekkir það af eigin raun að verða fyrir fordómum en hún og kærasta hennar hafa þurft að þola mótlæti og áreiti vegna sambands þeirra. Dimmey er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.
Garðar: „Þess vegna er þetta svona hættulegt, maður fer strax í sjálfsmorðshugleiðingar“
Garðar Eyfjörð hefur glímt við margskonar fíkn frá unglingsaldri og verið umkringdur alkóhólistum og fíklum allt sitt líf. En hann segir að það sé ein fíkn sem er verst, spilafíknin.Garðar birti myndband á TikTok fyrir stuttu þar sem hann ræddi um spilafíkn og vandanum sem blasir við okkur í dag þegar áhrifavaldar, rapparar og önnur þekkt andlit eru fengin til að auglýsa fjárhættu- og veðmálafyrir
Snædís Xyza: „Ég var alltaf hrædd að koma heim“
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2016. Hún var fyrirliði liðsins á heimsmeistaramótinu árið 2018 og á Ólympíuleikunum árið 2020 og kom þá Íslandi á verðlaunapall. Í dag starfar hún sem yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík Kithen & Bar og þjálfar íslenska kokkalandsliðið samhliða.Árangur Snædísar er m
Katrín Björk: Myndi frekar handþvo en að kaupa þvottavél á raðgreiðslu
Katrín Björk Birgisdóttir, naglafræðingur, YouTube-ari, og sérlegur áhugamaður um sparnað, er gestur vikunnar í Fókus. Hún deilir góðum og einföldum sparnaðarráðum sem allir geta nýtt sér.
Fegurðardrottningin Sóldís Vala - Lærði að standa með sjálfri sér
Fegurðardrottningin Sóldís Vala Ívarsdóttir var valin Ungfrú Ísland 2024 í ágúst í fyrra. Hún fór til Mexíkó og keppti fyrir hönd Íslands í Miss Universe og segir ferlið hafa kennt henni margt, eins og að standa með sjálfri sér.Sóldís var yngsti keppandinn úti í Mexíkó og segir að hún hafi alveg þurft að leggja hart að sér til að vinna sér inn virðingu annarra keppanda sem litu á hana hornauga sök
Árni Björn: „Við verðum alveg vör við það að fólk er byrjað að slúðra í kringum okkur“
Fasteignasalinn og vaxtaræktarkappinn Árni Björn Kristjánsson er gestur vikunnar í Fókus.Árni lifði og hrærðist í CrossFit-heiminum í rúmlega tólf ár. Hann æfði, keppti og þjálfaði en lífið breyttist fyrir nokkrum árum. Hann fór að huga meira að andlegri heilsu, fór til sálfræðings og fór að líta meira inn á við. Hann færði sig yfir í vaxtarrækt og er nú að undirbúa sig fyrir fyrsta mót sitt í vax
Kristjana Björk – Stekkur beint í djúpu laugina og stofnar nýtt fyrirtæki
Frumkvöðullinn Kristjana Björk Barðdal er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.Hún er að stofna nýtt fyrirtæki með Guðmundi Birki Pálmasyni, betur þekktur sem Gummi Kíró, en hún hefur verið að starfa sem umboðsmaður hans síðan í sumar. Nú opna þau áhrifavaldaumboðsskrifstofuna Atelier Agency.Kristjana ræðir um þetta nýja ævintýri, ferðalagið sem skilaði henni á þann stað sem hún er í dag, lífið
BIRGO: Hún fékk að sjá mig og kvaddi svo þennan heim
Söngkonan Birgitta Ólafsdóttir, eða BIRGO eins og hún er betur þekkt, söng sig inn í hjörtu landsmanna og Eurovision aðdáenda um alla Evrópu á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins. Það er óhætt að segja að Eurovision samfélagið hafi nötrað eftir að hún komst ekki áfram í úrslit í kjölfar símakosningar.Birgitta er gestur vikunnar í Fókus og ræðir um keppnina, viðbrögð fólks, þakklætið
Hera Rún - „Ég hugsaði: Nú er minn tími kominn“
Hera Rún Ragnarsdóttir er leikkona, athafnakona, hlaðvarpsstjórnandi, móðir og svo margt meira.Í þættinum opnar hún sig um erfiða æsku, eineltið sem mótaði hana og hvernig henni tókst að vinna sig í gegnum það. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að tala um einelti en hún glímdi við sjálfsvígshugsanir sem barn sem henni finnst skelfileg tilhugsun. Hún segir frá sjálfsvinnunni sem hún hefur verið
Þórhildur – Tantra, sambönd og kynlíf
Kynlífs- og sambandsmarkþjálfinn Þórhildur Magnúsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.Þórhildur er fyrsti gestur Fókuss til að koma aftur en mikið hefur gerst síðastliðna átján mánuði.Hún hefur sankað að sér meiri þekkingu og er að klára markþjálfaranám. Hún byrjaði að iðka tantra sem hefur verið eins konar rauði þráðurinn í lífi hennar í gegnum árin. Í þættinum ræðir hún um þjálfunin
Vala um systurmissinn: „Það var ótrúlegt að alast upp með henni og mín mesta gæfa“
Viðskipta- og markaðssérfræðingurinn Valgerður Anna Einarsdóttir, kölluð Vala, er gestur vikunnar í Fókus.Vala hannaði Lífið er núna húfurnar í ár fyrir Kraft, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hönnun húfanna er innblásin af verkum systur Völu, Þórunnar Maríu Einarsdóttur, sem var prjónahönnuður og listakona undir nafninu Tóta Van Helzin
Stebbi Jak – Fann frelsi eftir að hann fór á fund með árásarmanni sínum
Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson er gestur vikunnar í Fókus. Það er margt spennandi á döfinni hjá Stefáni, sem margir þekkja sem Stebba Jak, en hann mun stíga á svið á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins þann 8. febrúar næstkomandi.
Í þættinum fer Stefán um víðan völl. Hann ræðir um Söngvakeppnina, ævintýrið sem því fylgir, lífið og ástina, en hann opnar sig einnig um alvarlega l
Kristín Tómas: „Konur taka frekar ákvörðun um skilnað heldur en karlar“
Kristín Tómasdóttir er fjölskyldumeðferðarfræðingur sem sérhæfir sig í parameðferð og metsöluhöfundur. Hún ræðir um allt sem tengist samböndum í þættinum. Eins og algeng vandamál í parasamböndum, hvernig er hægt að bæta samskipti og svarar spurningunni hvort það sé hægt að halda áfram í sambandi eftir framhjáhald eða trúnaðarbrest.
Allt þetta og svo miklu meira í þætti vikunnar.
Davíð Goði: Barðist til að lifa fyrir ófæddan son sinn
Kvikmyndagerðamaðurinn, framleiðandinn og ljósmyndarinn Davíð Goði Þorvarðarson er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.
Davíð Goði er 27 ára gamall og fyrir ári síðan var veröld hans snúið á hvolf. Hann greindist með óútskýrðan sjúkdóm en fyrir það hafði hann alla tíð verið heilsuhraustur.
„Ég er í rauninni eini á landinu sem er með þetta og mögulega bara einn af þeim fáu í heiminum. Það eru e
Helgi Jean – Rakst harkalega á vegg miðlífskrísunnar
Helgi Jean Claessen, hlaðvarpskóngur, lífsstílsþjálfi og rekstrarmaður, rakst harkalega á vegg miðlífskrísunnar árið 2023. Síðasta ár fór í að vinna sig í gegnum krísuna og kom hann út úr henni sterkari en nokkurn tíma áður. Hann aðstoðar nú aðra sem eru að ganga í gegnum erfiðleika, en hann tekur að sér lífsstílsþjálfun fyrir hópa, auk þess að vera annar umsjónarmaður vinsæla hlaðvarpsins Hæhæ –
HeilsuErla – Góð ráð til að standa við markmiðin á nýju ári
Heilsumarkþjálfinn Erla Guðmundsdóttir er gestur í fyrsta þætti ársins. Við ræddum um áramótaheit en flestir gefast upp á fyrstu vikum ársins. Erla gefur hlustendum góð ráð til að standa við markmiðin. Hún ræðir einnig um mismunandi þætti heilsu, „heilsusérfræðinga“ á netinu og ýmislegt annað, eins og hvers vegna konum á besta aldri gengur oft illa að létta sig.
Erla ræðir einnig einlæg um það þeg
Áramótaspá Ellý Ármanns fyrir 2025
Spákonan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í þessum skemmtilega þætti. Við fengum hana til að spá fyrir mörgum landsþekktum einstaklingum eins og fyrrverandi forsetahjónunum, Valkyrjunum, Katrínu Jakobsdóttur, Þórði Snæ Júlíussyni, World Class-fjölskyldunni, Línu Birgittu og Gumma Kíró, Sveindísi Jane og fleiri!
Eygló Mjöll – Tíu hamingjusöm ár og fjögur börn eftir fyrsta stefnumótið á Litla-Hrauni
TW: Umræða um sjálfsskaða
Eygló Mjöll Óladóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún er fjögurra barna móðir, það elsta er átta ára og það yngsta er fimm mánaða. Hver meðganga og fæðing var öðruvísi.
Hún segir einnig frá upphafi sambands hennar og unnusta hennar, en þegar þau kynntust sat hann inni á Litla-Hrauni og fór fyrsta stefnumótið fram innan veggja fangelsisins.
Eygló opnar sig einnig um erfið
Anton Bjarki – Greindist með mjög sjaldgæft krabbamein í miðju sköpunarferli
Fatahönnuðurinn Anton Bjarki Olsen er gestur vikunnar í Fókus. Hann gaf út forvorlínu fyrir 2025 út í byrjun desember. Línan er mjög persónuleg fyrir hann en hann greindist með mjög sjaldgæfa tegund krabbameins í miðju sköpunarferli.
Í sumar kom í ljós að æxli, sem læknar höfðu áður sagt að væri góðkynja, væri illkynja. Á þeim tímapunkti hafði Anton verið með æxlið það lengi í fætinum að hann væri
Svava Kristín: „Ég gæti ekki gefið barninu mínu betri og dýrmætari gjöf“
Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Stöð 2, er búsett í Reykjavík en getur ekki beðið að flytja aftur á heimaslóðir. Hún er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og ætlar að gefa dóttur sinni þá dýrmætu gjöf að alast upp á eyjunni fögru.
Hún eignaðist dóttur sína með aðstoð nútímatækni í janúar. Hún segir lífið leika við þær mæðgur og að það sé yndislegt að vera móðir.
Svava Kristín er þa
Götustrákurinn Aron: „Það er svo vont að vera þessi gaur sem er að burðast með allan heiminn“
Götustrákurinn Aron Mímir Gylfason, eða Ronni Turbo Gonni eins og hann er þekktur á samfélagsmiðlum, hefur gengið í gegnum dimma dali til að komast á þann stað sem hann er í dag. Hann ræðir í þættinum um æskuna, upphaf neyslunnar og vítahringinn sem hann fann sig í.
Þegar hann var tvítugur átti hann von á barni og sá spenntur fyrir sér föðurhlutverkið. Barnið fæddist andvana eftir tuttugustu viku
Birna á mann í fangelsi – „Við giftumst í blíðu og stríðu“
Birna Ólafsdóttir hefur um skeið barist fyrir réttindum aðstandenda fanga, sér í lagi barna fanga, en málefnið stendur henni nærri.
„Þetta snertir mig persónulega því maðurinn minn situr inni, faðir barnanna minna,“ segir hún.Eiginmaður Birnu, Ólafur Ágúst Hraundal, var dæmdur til tíu ára fangelsisvistar í fyrra fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi.
Hann var handtekinn í
Valentína: Fortíðin fær ekki að skilgreina mig
Þjálfarinn og fitness-keppandinn Valentína Hrefnudóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum ræðir hún um fortíðina, áföll og sjálfsvinnuna sem hefur gert henni að þeirri konu sem hún er í dag. Mikið hefur gengið á í lífi Valentínu, hún hefur glímt við átröskun og fíknivanda en náði bata og er í dag edrú og heilbrigð. Á barnsaldri varð hún fyrir ofbeldi og sleit samskiptum við blóðföður sinn þeg
Sara Lind: Ástar- og kynlífsfíkn
Kynlífsfræðingurinn Sara Lind er gestur vikunnar í Fókus. Hún sérhæfir sig í ástar- og kynlífsfíkn en hún er sjálf ástar- og kynlífsfíkill og hefur þurft að leggja mikla vinnu í að koma sér úr hegðunarmynstrinu sem hafði mikil áhrif á líf hennar.
Hún ræðir einnig um skömm tengda kynlífi og lífið í Danmörku.
Bjarki Steinn – „Upplifunin var að ég rétt náði að lifa þetta af“
Bjarki Steinn Pétursson var um átta ára gamall þegar ókunnugur karlmaður braut á honum á fótboltavellinum á skólalóðinni. Hann segir frá brotinu og afleiðingum þess en hann fékk enga áfallahjálp og hélt áfram að ganga í skólann, gekk framhjá staðnum, þar sem honum fannst lífi sínu ógnað, á hverjum degi. Eftir þetta fór að halla undan fæti, hann byrjaði snemma að drekka og neyta fíkniefna, sem hann
Selma Soffía - Sjálfsvinna eftir ofbeldissamband
Hlaðvarpsstjórnandinn og athafnakonan Selma Soffía Guðbrandsdóttir er gestur vikunnar í Fókus.
Í þættinum segir hún frá sambandi sem hún var í frá 16 til 23 ára. Þetta var á erfiðum tíma, mikilvægum mótunarárum, og hafði mikil áhrif á Selmu. Hún var ung og hélt að svona ætti ást að vera, að það væri enginn annar þarna úti fyrir hana og þetta ætti hún skilið.
Hún leyndi ofbeldinu, sem hún segir haf
Fegurðardrottningin Elísa Gróa – Kom sér upp úr dimmum dal
Fegurðardrottningin Elísa Gróa Steinþórsdóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún er einnig aðstoðarframkvæmdarstjóri Ungfrú Ísland, yfirflugfreyja hjá Play og förðunarfræðingur.
Elísa tók þátt í sinni fyrstu fegurðarsamkeppni árið 2015 og vann loksins árið 2021. Í dag lifir hún og hrærist í bransanum. Hún er sviðshöfundur Ungfrú Ísland og tók við sem aðstoðarframkvæmdastjóri keppninnar í nóvember í
Götustrákurinn Bjarki Viðarsson: Reis upp úr öskunni eftir kókaín- og klámfíkn, smálánaskuldasúpu og sjálfshatur
„Það er ótrúlegt að fá að upplifa venjulegt líf,“ segir Bjarki Viðarsson, gestur vikunnar í Fókus.
Hann skaust fram á sjónarsviðið fyrir einu og hálfu ári síðan þegar fyrsti þáttur af Götustrákum kom út. Síðan þá hefur hann nýtt vettvanginn til að tala um erfiða hluti, hluti sem margir þora ekki að tala um, jafnvel ekki við sína nánustu. Eins og baráttu hans við kókaín- og klámfíkn. Djúpa sjálfsh
Móeiður Sif – Bati eftir átröskun, fitness og flugfreyjulífið
Flugfreyjan og fitnesskeppandinn Móeiður Sif Skúladóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum ræðir hún um flugfreyjulífið, hvað hún myndi aldrei gera um borð í flugvél, hvað hún gerir við flugdólga og svo framvegis. Hún ræðir einnig um fitness og átröskun sem hún glímdi við í næstum einn og hálfan áratug.
Pálína Ósk Ómars - Símtal frá lögreglunni strax eftir fæðingu vakti upp erfiðar minningar
Snyrtifræðingurinn og athafnakonan Pálína Ósk Ómarsdóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum opnar hún sig um fæðingarþunglyndi, nauðgun sem hún varð fyrir og hvernig sú reynsla breytti henni til frambúðar. Hún ræðir um dómsmálið og árin þrjú sem fóru í að leita réttar síns sem enduðu með gerandann í fangelsi. Pálína ræðir einnig um líkamsímynd, samfélagsmiðla, fegrunaraðgerðir og margt annað.
Lína Birgitta
Athafna- og ofurkonan Lína Birgitta Sigurðardóttir er gestur þáttarins. Hún ræðir um upphaf Define the Line, fyrsta fyrirtækið hennar sem fór í gjaldþrot og hvernig hún fann sig loksins í námi eftir að hafa átt mjög erfiða skólagöngu.
Lína opnar sig einnig um veikindi og hvernig hún er að tækla þau í dag. Ásamt því hvernig er að vera þekkt manneskja í sambandi með þekktri manneskju á þessu litla l
Steinunn Ósk – Vildi sleppa feluleiknum þegar hún fór í meðferð
Steinunn Ósk Valsdóttir er áhrifavaldur, förðunarfræðingur, hlaðvarpsstjórnandi, markaðsstjóri og stílisti.
Hún er einnig þriggja barna móðir en hún varð ólétt af tvíburum þegar hún var nítján ára gömul.
Hún opnar sig um lífið sem ung móðir, lærdóminn sem hún hefur dregið af því, hvernig samstarfið gengur með barnsfeðrunum og svo margt annað.
Hún ræðir einnig einlæg um áfengisvanda en Steinunn f
Guðrún Ósk Maríasdóttir - Lífið með bæði langveikt barn og heilbrigð börn og höfuðhöggið sem breytti öllu
Guðrún Ósk Maríasdóttir er matvælafræðingur, næringarþjálfari, nuddari og saunadrottning. Hún er þriggja barna móðir. Halldóra María er elst, ellefu ára gömul og er með mjög sjaldgæfan genasjúkdóm og þekkir Guðrún Ósk það vel hvernig það er að þurfa að berjast fyrir réttindum barnsins síns.Þegar hún varð ólétt af sínu öðru barni var tíminn þar til þau hjónin gátu fengið staðfest hvort barnið væri
Fanney Dóra – Maður heldur aldrei að barnið manns fái heilaæxli
Litla hetjan Thalia Guðrún Aronsdóttir varð þriggja ára í byrjun mars. Rúmlega níu vikum áður hafði hún gengist undir aðgerð þar sem sjö til átta sentímetra góðkynja heilaæxli var fjarlægt. Í dag er hún heilbrigð og líður vel, eða eins og hún sagði sjálf við foreldra sína eftir aðgerðina: „Læknirinn lagaði mig.“
Í marga mánuði höfðu foreldrar Thaliu Guðrúnar reynt að fá aðstoð. Þau horfðu á litla
Vala Grand
Hin frábæra Vala Grand er gestur vikunnar í Fókus og er gestur fyrsta þáttarins eftir sumarfrí. Hún er mætt í Fókus til að ræða um lífið, föðurmissinn og ólýsanlega sársaukann sem honum hefur fylgt. Hún er samt alltaf sama lífsglaða Vala sem lítur björtum augum til framtíðar. Hún er nýbúin að taka U-beygju í lífinu og segir okkur frá öllu þessu og mörgu öðru í Fókus.
(Þátturinn var tekinn upp í jú
Ísak Morris – Endaði á götunni 18 ára og kynntist morfínefnum
Tónlistarmaðurinn Ísak Morris hefur þrisvar sinnum legið við dauðans dyr eftir að hafa tekið of stóran skammt. Hann varð ungur háður fíkniefnum og endaði á götunni þegar hann var átján ára þegar mamma hans flutti úr landi og skildi hann einan eftir. Þar kynntist hann morfínefnum og við tók margra ára barátta við fíknisjúkdóm. Hann náði um tíma sjö ára edrúmennsku, eignaðist fjölskyldu og börn og l
Guðbjörg Ýr – Afmælisferðin breyttist í martröð
Guðbjörg Ýr Valkyrja Guðbjargardóttir á langa áfallasögu að baki. Hún varð fyrir tengslarofi sem barn og litaði það sambönd hennar á fullorðinsárum.
Eftir margra ára edrúmennsku byrjaði Guðbjörg með karlmanni sem hún taldi vera besta vin sinn og ástina í lífi sínu. Hún byrjaði að nota aftur og bauð honum til Dalvíkur þegar hún varð fertug. Ferðin breyttist fljótt í martröð þegar hún kom að honum
Kidda Svarfdal – Heppin að vera á lífi eftir heilablæðingu sem læknar héldu að væri vöðvabólga
Kidda Svarfdal fékk allt í einu svakalegan hausverk árið 2021 og var send þrisvar sinnum heim af læknavaktinni og bráðamóttöku með sterkjar verkjatöflur. Henni var sagt að þetta væri bara slæm vöðvabólga en þegar hún rankaði við sér meðvitundarlaus í blóðpolli heima hjá sér var hún loksins send í myndatöku. Það kom í ljós að hún væri með heilablæðingu og sama dag fór hún í fyrstu aðgerðina af þre
Ólafur Laufdal og Dagur Gunnars – Húðflúrsheimurinn
Ólafur Laufdal og Dagur Gunnarsson eru báðir húðflúrarar en upphaf þeirra í bransanum er gjörólíkt. Á meðan Dagur byrjaði sem lærlingur á stofu, byrjaði Ólafur í bílskúr hjá foreldrum sínum með vél sem hann keypti erlendis.
Þessi þættur er fyrir alla en sérstaklega fyrir fólk sem hefur áhuga á tattúum. Við förum yfir rauð flögg í fari viðskiptavina og húðflúrara. Hvað skal varast, hvaða tattú er v
Aníta Ósk - Þurfti að læra lífið upp á nýtt eftir maníu
Aníta Ósk Georgsdóttir er móðir, dóttir, vinkona, eiginkona og svo margt annað. Hún er hárgreiðslumeistari að mennt og starfaði sem leiðbeinandi í grunnskóla áður en hún fór í veikindaleyfi. Í haust fer hún í starfsendurhæfingu hjá Virk og lítur hún björtum augum fram á veginn.
Aníta er hægt og rólega að læra að lifa upp á nýtt eftir að hafa verið greind með geðhvörf. Hún fékk greininguna eftir að
Katrín Myrra
Söngkonan, laga- og textahöfundurinn Katrín Myrra Þrastardóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún fékk fyrsta ofsakvíðakastið sitt árið 2021, en fyrir það hafði hún aldrei glímt við kvíða eða einhvers konar andleg veikindi. Hún var á þeim tíma búin með jógakennaranámið, stundaði núvitund og hafði ferðast ein til fjölda landa. Það var því mikið áfall að vera greind með ofsakvíðaröskun (felmtursröskun
Samfélagsmiðlastjarnan Embla Wigum
Embla Wigum er ein stærsta samfélagsmiðlastjarna Íslands með rúmlega 2,7 milljónir fylgjenda á TikTok og Instagram. Hún er algjör snillingur með förðunarburstann og hafa myndbönd hennar slegið í gegn, mörg hafa fengið milljónir áhorfa, sum hver tugi milljóna.
Embla ræðir um áhrifavaldabransann í London, þar sem hún er búsett, upphafið á ferlinum, hvernig venjulegur vinnudagur lýsir sér, ráð fyri
Alrún Ösp - BDSM
Alrún Ösp Herudóttir hefur verið mjög virk í BDSM senunni hér á landi um árabil. Hún ræðir um samfélagið, BDSM-hneigð, bindingar, samþykki, og traust. Þá ræðum við BDSM-partý hér á landi og hvað á sér stað á slíkum viðburðum og margt fleira í þættinum.
Draugasögur - Katrín og Stefán John
Það mætti segja að hjónin Katrín Bjarkardóttir og Stefán John Stefánsson séu sértækir fagmenn í draugagangi. Þau halda úti vinsæla hlaðvarpinu Draugasögur og ferðast með hlustendur um myrkustu horn heimsins. Þau eru gestir vikunnar í Fókus og ræða um það sem er fyrir handan, hvernig draugagangur lýsir sér, hvernig er hægt að losna við drauga, þeirra fyrsta reynsla að sjá eitthvað að handan og marg
Arna Vilhjálms - Stóð með sjálfri sér og fór í efnaskiptaaðgerð
Arna Vilhjálms sigraði Biggest Loser árið 2017. Hún fer yfir vegferð sína bæði fyrir og eftir keppnina, leitina að sjálfsást og hvernig tilfinningin var að komast loks á leiðarenda. Arna fer einnig yfir ákvörðun hennar að gangast undir efnaskiptaaðgerð, magaermi, allt ferlið og hvernig henni líður í dag. Arna ætlaði aldrei að verða þrítug, hún bjóst við að lífið yrði búið fyrir þann áfanga. Í dag
Jóna Margrét - Afleiðingar taugaáfalls sem hún fékk sem barn
Jóna Margrét skaust fram á stjörnusviðið í vetur þegar hún lenti í öðru sæti í Idolinu. Hressi persónuleiki hennar var smitandi í gegnum skjáinn en á bak við brosið hefur Jóna gengið í gegnum margt. Þegar hún var í kringum átta ára gömul fékk hún taugaáfall sem sneri veröld hennar á hvolf. Hún varð hrædd við allt og alla, fór ekki í bíl í sjö mánuði og þorði varla út fyrir hússins dyr. Það tók ha
Móna Lind - Lífið með endómetríósu og heimafæðingarsaga
Daginn sem Móna Lind byrjaði á blæðingum vissi hún að eitthvað væri að. Nú tæpum tveimur áratugum síðar hefur hún gengist undir þrjár aðgerðir vegna endómetríósu og er öryrki vegna sjúkdómsins. Hún á tvær dætur og mætti segja að fæðing þeirra yngri sé lyginni líkast. Móna Lind segir frá mögnuðu heimafæðingunni og mörgu öðru í Fókus.
Hafdís og Kleini – Síðustu sex mánuðir
Athafna- og áhrifavaldaparið Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson, kallaður Kleini, eru gestir vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.
Parið hefur haldið sig til hlés frá sviðsljósinu undanfarna mánuði, sérstaklega Kleini sem hefur verið í pásu frá samfélagsmiðlum síðan í lok júlí í fyrra. Þau opna sig um síðastliðið hálft ár, hvað þau hafa verið að braska og bralla, hvað sé fr
Unnur Óla
Gullsmiðurinn, einkaþjálfarinn og fitnesskeppandinn Unnur Kristín Óladóttir er gestur vikunnar.
Hún snýr til baka á keppnissviðið í maí eftir fimm ára pásu. Undanfarna mánuði hefur hún unnir hörðum höndum að byggja sig upp, bæði líkamlega og andlega, eftir mjög erfitt tímabil. Hún missti matarlyst, átti erfitt með að finna gleðina og brosa, hún hafði fjarlægst fólkið sitt og fann að hún var búin
Nína Richter
Fjölmiðlakonan og laganeminn Nína Richter var afburðanemandi í grunnskóla og ætlaði sér að verða lögfræðingur. En að vera í námi og borga leigu á sama tíma reyndist of erfitt og hún hætti í framhaldsskóla. Eftir að systir hennar lést úr krabbameini var hún týnd og fann enga fótfestu í lífinu í nokkur ár. Hún flutti um tíma til Spánar, kom síðan heim og byrjaði í kokkanámi, kláraði handritagerð og
Rakel Hlyns - Viljinn til að lifa sterkari en uppgjöfin
Styrktarþjálfarinn Rakel Hlynsdóttir lenti á vegg árið 2018. Hún var með mikið þunglyndi og kvíða en engum hefði dottið það í hug. Hún faldi sjúkdóminn vel og barðist við hann í hljóði. Það kom síðan tímapunktur þar sem hún varð að leita sér hjálpar því lífsviljinn var að hverfa en innst inni vissi hún að hana langaði að lifa. Rakel hefur alla tíð verið með mikið keppnisskap sem hefur meðal annars
Alda Coco
Glamúrfyrirsætan Alda Coco er gestur vikunnar í Fókus. Hún fer um víðan völl í þættinum og ræðir meðal annars um fyrirsætubransann, Einkamál.is málið svo kallaða, fegrunaraðgerðir og kjaftasögur.
Helgi Ómars - Að rísa upp úr öskunni eftir ofbeldissamband
Ljósmyndarinn, hlaðvarpsstjórnandinn og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson var í ofbeldissambandi í átta ár. Það tók hann langan tíma að átta sig á því sem væri að gerast fyrir hann, en ofbeldið var andlegt og vissi hann ekki hvað gaslýsing og narsisissti var á þeim tíma. Með mikilli sjálfsvinnu er hann kominn á þann stað sem hann er í dag og berst fyrir vitundavakningu um andlegt ofbeldi.











